Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

225. fundur
14. apríl 2016 kl. 16:00 - 17:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir Forseti
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir aðalmaður
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 758
Málsnúmer 1603007F
2 Loftlagsverkefni Landverndar, sveitarfélagsins og Sambandsins.
Sæmundur tók til máls. Sagði hann loftlagsverkefnið hafa marga snertifleti við starfsemi sveitarfélagsins. Til að mynda mun starfsmönnum sveitarfélagsins bjóðast fræðsla og námskeið í sparakstri. Skoðaðir verða möguleikar á að breyta í "græna átt" í starfseminni þegar það á við, t.d. að fjárfesta í rafbílum, ef hægt er að koma því við. Kallað er eftir vistvænni hugsun við viðhald og nýframkvæmdir. Átaki verður hrundið af stað í minni matarsóun. Áform eru um að breyta götum í svokallaðar vistgötur. Skipt verður yfir í sparneytnar Led-perur, svo dæmi séu tekin.
Sagði Sæmundur sveitarfélagið hafa stigið jákvæð skref í sorpflokkun, sbr. tveggja tunnu flokkunin sem hófst haustið 2013 og uppbyggingin í flokkunarstöðinni Gárunni. Næstu skref verða þriggja tunnu flokkun, þar sem lífrænn úrgangur er alveg skilinn frá. Þetta verður gert til að spara rúmmál sorps. Minna rúmmál þýðir minni kostnaður við urðun og minni losun gróðurhúsalofttegunda. Sæmundur greindi frá því að í síðustu sorplosun þurfti að urða um 14% af því sem kom úr grænu flokkunartunnuni í almennt sorp. Sagði hann það neikvæða þróun og ekki í anda Loftlagsverkefnisins. Sagði hann ljóst að íbúar þurfi að vanda betur til verka við sorpflokkun.
4 Jökulheimar
Kristján tók til máls og óskaði eftir upplýsingum um fyrirhugaðan fund og framgang verkefnisins. Björn Ingi tók til máls og sagði að ekki væri búið að skipuleggja fundinn en stefnt er að honum í lok mánaðar.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 759
Málsnúmer 1603011F
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 760
Málsnúmer 1603012F
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 761
Málsnúmer 1604003F
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 224
Málsnúmer 1602014F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
6.
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2015
Málsnúmer 201604016
Sigurjón Örn Arnarson endurskoðandi sveitarfélagsins fór yfir ársreikning sveitarfélasins fyrir árið 2015 og skýrslu endurskoðenda.
Rekstrarniðurstaða A og B hluta á árinu var jákvæð um 247 millj. kr., en niðurstaða A hluta var jákvæð um 227 millj. kr.. Veltufé frá rekstri A og B hluta nam 437 millj. kr. en 364 millj. kr. í A hluta.
Skuldir og skuldbindingar A og B hluta námu 1.261 millj. í árslok 2015. Eiginfjárhlutfall A og B hluta nam 72%.
Skuldahlutfall sveitarfélagsins er 54.9% og er undir viðmiðunarreglu sem er 150%.
Björn Ingi þakkaði bæjarfulltrúum, starfsfólki og KPMG fyrir störf sín við vinnu við gerð ársreiknings. Lagði til að bæjarstjórn vísi ársreikningi 2015 til annarrar umræðu í bæjarstjórn.
Ásgerður tók til máls og sagði útkomuna 63,6% betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Sagði hún helstu ástæðu þess að áætlaðar framkvæmdir náðu ekki fram að ganga. Lýsti hún yfir áhyggjum af framgangi framkvæmda. Að hluta skýrist það af skorti á vinnuafli á svæðinu og mikilvægt að hafa það í huga við forgangsröðun verka ásamt rýni í þau verð sem bjóðast á hverjum tíma. Þakkaði hún jafnframt starfsmönnum, kjörnum fulltrúum og endurskoðendum vinnu við gerð ársreikningsins og vel unnin störf.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Viðauki I við fjárhagsáætlun 2016
Málsnúmer 201604017
Björn Ingi Jónsson lagði fram viðauka I við fjárhagsáætlun 2016.
Aukning á framkvæmdum er 110,7 m.kr. þar af eru 75,1 m.kr. færðar frá fyrra ári, þ.e. framkvæmdir sem ekki náðist að klára. Skatttekjur hækka um 2,6 m.kr. Rekstur málaflokka hækkar um 17,5 m.kr. Þá er lántaka ársins lækkuð um 70 m.kr, þ.e. úr 270 m.kr. í 200 m.kr.

Helstu niðurstöður viðauka I í A- og B- hluta eru:

Rekstrarniðurstaða 155,8 m.kr., lækkun um 9,2 m.kr.
Veltufé frá rekstri 314,3 m.kr., lækkun um 6,4 m.kr.
Framkvæmdir 460,7 m.kr. aukning um 110,7 m.kr.
Lántaka ársins 200 m.kr. lækkun um 70 m.kr.
Afborganir ársins 129,4 m.kr. lækkun um 0,6 m.kr.
Handbært fé í árslok 111,3 m.kr., lækkun um 36,4 m.kr.

Forseti bar viðauka I upp til atkvæða.
Samhljóða samþykkt.
8.
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði 2016
Málsnúmer 201512055
Björn Ingi gerði grein fyrir fjárhagsáætlun HSU á Hornafirði. Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði gerir ráð fyrir tæpum 14 m.kr. halla. Enn er óvissa með húsnæðisgjald vegna öldrunarþjónustu og misræmi er á fjárlögum og upplýsingum frá velferðarráðuneytinu sem nemur 7 m.kr. Einnig hefur heilbrigðisráðherra boðað hækkun á daggjöldum en óvíst er um hve mikla hækkun er að ræða. Unnið er að endurskoðun á framlagi ríkis vegna sjúkraflutninga. Þá er þetta síðasta ár sem samningur er í gildi um rekstur sveitarfélagsins á heilbrigðis- og öldrunarþjónustu en vinna er hafin við að fá áframhaldandi samning um rekstur málaflokksins í samræmi við vilja sveitarstjórnar um áframhald á þessu fyrirkomulagi mála.
Ásgerður tók til máls og sagði bagalegt að þurfa að samþykkja fjárahagsáætlun með svo miklum halla.
Björn Ingi tók til máls og benti á að jákvæð staða efnahagsreiknings heilbrigðisstofnunar dugir fyrir hallarekstri í áætlun.

Forseti bar fjárhagsáætlun HSU Hornafirði upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Umsókn um lóð, Ægissiða 11
Málsnúmer 201604002
Umsókn Jóns S. Karlssonar um lóð að Ægissíðu 11 lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
10.
Umsókn um lóð Vesturbraut 6
Málsnúmer 201604026
Umsókn Vigfúsar Vigfússonar um lóð að Vesturbraut 6 lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
11.
Deiliskipulag við Holt á Mýrum
Málsnúmer 201112005
Þórhildur gerði grein fyrir að deiliskipulag við Holt á Mýrum hafi verið í kynningu frá 28. janúar - 10. mars, bárust tvær athugasemdir vegna hennar, og var tekið tillit til þeirra.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki nýtt deiliskipulag að Holtiá Mýrum og vísi því í lögformlegt ferli skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Deiliskipulag tjaldsvæðis, Hafnar
Málsnúmer 201504074
Þórhildur gerði grein fyrir að lýsing hefur verið unnin fyrir deiliskipulag Tjaldssvæðis á Höfn.
Markmið með gerð deiliskipulags er, að bæta aðstöðu og aðbúnað fyrir ört vaxandi ferðamannastraum á Höfn og skapa möguleika á þróun og vexti núverandi þjónustustarfsemi á tjaldsvæðinu. Bæta almennt, umferðaröryggi og aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Að setja skilmála fyrir allar byggingar, m.a. núverandi íbúðarbyggð við Fiskhól.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að kynna lýsinguna og vísa henni í lögformlegt ferli skv. 40. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Deiliskipulag Miðbæjarsvæði
Málsnúmer 201511008
Þórhildur gerði grein fyrir að lýsing hefur verið unnin fyrir deiliskipulag miðbæjarsvæðis á Höfn.
Markmið með gerð deiliskipulags er, að skapa möguleika á þróun og vexti núverandi þjónustustarfsemi. Að setja skilmála fyrir allar byggingar, m.a. ný og/eða stækkuð hús í miðbæ. Að bæta öryggi vegfarenda og íbúa með endurskoðun á umferðarflæði
og bílastæðum og bæta aðgengi almennt fyrir hreyfihamlaða. Að bæta aðstöðu og aðbúnað fyrir ört vaxandi ferðamannastraum á Höfn.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að kynna lýsinguna og vísa henni í lögformlegt ferli skv. 40. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Deiliskipulag fyrir Hof í Öræfum
Málsnúmer 201010059
Þórhildur greindi frá því að deiliskipulagstillaga að Hofi hafi verið samþykkt í bæjarstjórn þann 14. janúar 2016. Deiliskipulagið var sent til samþykkis Skipulagsstofnunar sem hafði eftirfarandi athugasemdir við deiliskipulagið:
Skilgreina þarf stærð bygginga á athafnalóðum og jafnframt gera grein fyrir hvaða starfsemi sé leyfileg.
Það þarf að koma fram hvar fyrirhugaðir byggingarreitir frístundarhús eru á svæði C og leita umsagnar Minjastofnunar og gera grein fyrir útliti og efnisvali á byggingum við Nónhamar.

Brugðist hefur verið við athugasemdum Skipulagsstofnunar með því að breyta greinargerð.
Svæði A: þar sem ítarlegar er gerð grein fyrir stærð bygginga, efnisvali og útliti við hótelbyggð sem og starfsemi á athafnalóðum. Svæði C: Staðsetning frístundahúsa hefur verið bætt við á uppdráttinn og leitað hefur verið umsagnar Minjastofnunar sem hefur ekki borist.

Lagði til að bæjarstjórn samþykki nýtt deiliskipulag að Hofi með fyrirvara um að Minjastofnun gefi jákvæða umsögn um deiliskipulagið og vísi jafnframt deiliskipulaginu í lögformlegt ferli skv. 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.


15.
Umsókn um heimild til skipulags Skaftafelli III og IV
Málsnúmer 201507018
Umsókn Stefáns Benediktssonar um gerð deiliskipulags að Skaftafelli III og IV lögð fram.
Þórhildur greindi frá að markmið með gerð deiliskipulags er að byggja upp svæði fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu ásamt aðstöðu fyrir starfsmenn.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að unnin verði lýsing að svæðinu og í framhaldinu verði unnin deiliskipulagstillaga fyrir Skaftafell III og IV skv. 40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 samhliða breytingu á aðalskipulagi 2012-2030.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Kosningar í nefndir
Málsnúmer 201501002
Umhverfisnefnd:
Lagt er til að Ingibjörg Lilja Pálmadóttir verði aðalmaður í stað Hugrúnar Hörpu Reynisdóttur sem mun taka sæti varamanns í nefndinni.
Hafnarstjórn:
Lagt er til að Bryndís Hólmarsdóttir verði formaður í stað Valdemars Einarssonar. Páll Guðmundsson verður aðalmaður í stað Bryndísar Hólmarsdóttur.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201412003
Bæjarstjóri greindi frá störfum sínum milli funda bæjarstjórnar.
18.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn 2016
Málsnúmer 201602023
Engar fyrirspurnir hafa borist.