Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

226. fundur
10. maí 2016 kl. 14:00 - 15:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir Forseti
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir aðalmaður
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 762
Málsnúmer 1604008F
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 763
Málsnúmer 1604012F
2 Fræðslu- og tómstundanefnd
Þórhildur tók til máls undir 2. lið um málefni Þrykkjunnar og skýrslu tómstundafulltrúa. Vildi hún benda á nafnarugling í skýrslunni þar sem fram kemur nafnið Þórhildur Ásta Magnúsdóttir en á að vera Þórhildur Kristjánsdóttir. Sagði hún ánægjulegt hversu vel mætt er í félagsmiðstöðina og hvað samfélagið er ríkt af öflugu ungu fólki. Metþáttaka var af frambjóðendum í Þrykkjuráð. Jafnframt er unnið öflugt starf í ungmennaráði. Bæjarráð hefur samþykkt að ungmennaráð hafi áheyrnafulltrúa í nefndum sveitarfélagsins og ekki annað að heyra en að það gangi vel. Ungmennaráð hefur einnig óskað eftir skuggakosningu samhliða forsetakosningum. Sjá nánar lið 8. Þórhildur þakkar tómstundafulltrúa fyrir vel unnin störf.
Ásgerður tók til máls og tók undir orð Þórhildar um öflugt og gott starf unga fólksins.
Ræddi hún málefni skólalóðar Hafnarskóla og fagnar að verkið er komið af stað og kallar eftir umræðu í bæjarráði um fjármagn og framkvæmdaáætlun fyrir verkið.
Liður 9 - samrekinn leik- og grunnskóli í Hofgarði. Ásgerður fagnar þessari þróun og uppbyggingunni sem á sér stað í Öræfunum.
Björn Ingi tók til máls um málefni skólalóðar grunnskólans og greindi frá að unnið er að málinu. Engu að síður tekur hann undir orð Ásgerðar um að koma þessu í skýrari farveg.

3 Umsögn um tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun
Sæmundur tók til máls. Vísaði hann í eftirfarandi bókun bæjarráðs:

"Bæjarráð gerir alvarlega athugasemd við áætlaðar fjárhæðir til rannsókna á Grynnslunum og innsiglingu um Hornafjarðarós. Einnig furðar bæjarráð sig á hve litlum fjármunum er varið til fækkunar á einbreiðum brúm á þjóðvegum landsins. Færa má fyrir því haldbær rök að slíkar framkvæmdir eru ein mesta öryggis- og samgöngubót á þjóðvegum."

Greindi hann frá því að álíka bókun var gerð í stjórn SASS á dögunum. Einnig ræddi hann umferðaröryggi innanbæjar á Höfn og mögulegar aðgerðir til að draga úr umferðarhraða, sbr. íbúafund um umferðaröryggi í Nýheimum 3. maí sl. þar sem gestur fundarins var Ólafur Guðmundsson tæknistjóri EuroRAP á Íslandi. Sagði Sæmundur frá ábendingum Ólafs á hversu vegmerkingar eru lélegar og benti sérstaklega á einbreiðu brýrnar og tók þannig undir bókun bæjarráðs. Ólafur benti á að hér innanbæjar á Höfn yrði að gera bragarbót á umferðaröryggi, með markvissum aðgerðum. Ólafur benti á vinnu sem hafði verið unnin fyrir hverfisráð Grafarvogs, sem fólst í því að setja umferðarhraða á stofnbrautir í kringum Grafarvogshverfið í 50km og allar aðrar götur í 30km hraða. Sæmundur sér fyrir sér að umferð í þéttbýlinu á Höfn um Hafnarbraut, frá Brautatholti og norður að gömlu mjólkurstöðinni fái að keyra á 50km hraða. En að öll umferð á öðrum götum á Höfn verði gert að aka á 30km hraða.
Ásgerður tók til máls. Tók hún undir bókun bæjarráðs og gerði tillögu um að bæjarstjórn geri hana að sinni. Ræddi hún einnig umferðaröryggismál og sagði skýrslu frá 2008 að einhverju leiti úrelta. Hraðahindranir eru t.d. ekki ráðlagðar í dag. Ásgerður óskar eftir að fenginn verði sérfræðingur í málið og að vinnan verði sett í gang sem fyrst.
Björn Ingi tók til máls og tók undir orð Sæmundar og Ásgerðar. Sagði hann ljóst að ýmsar leiðir eru færar til að auka umferðaröryggi innanbæjar. Björn Ingi væntir þess að umhverfisnefnd komi fljótlega fram með tillögur til aukins umferðaröryggis á svæðinu.
Sæmundur tók til máls og vitnaði í orð Ólafs frá fyrrnefndum fundi þar sem fram kom að æskilegt er að hámarkshraði innanbæjar þar sem fer saman gangandi umferð og önnur umferð sé ekki hærri en 30 km þar sem mun minni líkur eru á alvarlegum slysum við slíkar aðstæður.

Forseti bar tillögu um að bæjarstjórn geri fyrrgreinda bókun að sinni upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 764
Málsnúmer 1604016F
1 Atvinnumálanefnd
Kristján tók til máls um málefni Jökulheima og óskaði eftir að stofnaður yrði starfshópur um verkefnið, sbr. tillögu atvinnumálnefndar. Björn Ingi tók til máls og sagði að unnið hefur verið að framgangi verkefnisins undanfarna mánuði meðal annars með viðræðum við fjárfestingasjóði sem hefur því miður ekki borið árangur. Engu að síður sagði hann mikilvægt að finna verkefninu farveg. Að hans mati er ekki þörf á að stofna starfshóp um verkefnið þar sem menningarmálanefnd á að vinna að því.
Ásgerður tók til máls. Sagði hún uppbyggingu Jökulheima mikilvæga fyrir atvinnulífið á svæðinu. Sagði hún að vinnan hefur hingað til ekki átt sér stað innan menningarmálanefndar heldur af öðrum aðilum sem hafa kynnt málið fyrir nefndinni. Fagnar hún því að nefndin hafi umboð til að vinna að framgangi verkefnisins svo sem að kalla til fundar áhugasamra aðila um uppbyggingu. Sagði hún mikilvægt að atvinnulífið komi að verkefninu. Björn Ingi tók til máls og greindi frá að verkefnið hefur tafist þar sem leyfi forstöðumanns Hornafjarðarsafna hefur lengst.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 225
Málsnúmer 1604002F
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
5.
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2015
Málsnúmer 201604016
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri fór yfir ársreikning 2015 sem var kynntur af endurskoðanda sveitarfélagsins á síðasta bæjarstjórnarfundi.
Lagði til að ársreikningur sveitarfélagsins yrði samþykktur.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Öldungaráð
Málsnúmer 201509045
Forseti greindi frá að samþykkt fyrir nýtt öldungaráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar hefur fengið efnislega umfjöllun í félagsmálanefnd og bæjarráði sem var vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki nýja samþykkt fyrir öldrunaráð.
Forseti bar samþykktina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Sameining sveitarfélaga
Málsnúmer 201604109
Bæjarstjóri lagði til að kannaður verið áhugi nágranna sveitarfélaganna á möguleikum og hagkvæmni um sameiningu sveitarfélaganna Djúpavogshrepps, Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Skaftárhrepps. Slíkt sveitarfélagi yrði um 14.359 ferkílómetra að stærð sem er um 14% af stærð landsins og með íbúafjölda um 3.097 sem er 0,93% íbúa Íslands.
Ásgerður tók til máls og fagnaði því að þetta mál væri komið á dagskrá þessi umræða hefur áður komið upp með óformlegum hætti. Að hennar mati er það skylda okkar að bera upp spurninguna og kanna áhugann á sameiningu.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Ungmennaráð óskar eftir skuggakosningum 2016
Málsnúmer 201603078
Ungmennaráð óskaði eftir að skuggakosningar verði fyrir ungt fólk á aldrinum 13-18 ára í Sveitarfélaginu Hornafirði samhliða forsetakosningum 25. júní 2016.
Þórhildur gerði grein fyrir óskum ungmennaráðs og lagði fram reglur um kosninguna.
Tilgangur með kosningum fyrir ungmenni er að auka lýðræðisvitund ungs fólks. Lagði til að bæjarstjórn samþykki að halda fyrirhugaðar Skuggakosningar samhliða forsetakosningum 25. júní nk. og samþykki einnig framlagðar reglur um kosninguna.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Yfirlýsing vegna fyrirhugaðra kaupa ábúenda á jörðinni Bjarnanesi
Málsnúmer 201605001
Á jörðinni Bjarnanesi í Nesjum 159463 hafa ábúendur jarðarinnar Þorsteinn Sigjónsson kt. 291139-2059 og Vilborg Jónsdóttir kt. 250854-5019 haft jörðina í ábúð frá 1978 og þar áður í félagsbúi frá 1949. Eiga þau þar lögheimili og stunda almennan búskap, fjárbúskap. Ástand mannvirkja og jarðarinnar verður að teljast gott. Jörðina hafa ábúendur setið vel og mælir bæjarstjórn með því að þeir fái jörðina keypta.
Forseti bar kaupin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Umsókn um lóð Víkurbraut 6
Málsnúmer 201604044
Umsókn Gísla Karls Ágústson um lóð að Víkurbraut 6 lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
11.
Umsókn um lóð Víkurbraut 8
Málsnúmer 201604043
Umsókn Jöklasýn ehf. um lóð að Víkurbraut 8 lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
12.
Ósk um deiliskipulag að Kálfafellsstað
Málsnúmer 201603042
Eigendur jarðarinnar Kálfafellsstað í Suðursveit óska eftir að láta vinna deiliskipulag fyrir kláfferju úr Staðardal upp á Miðfellsegg.
Sæmundur greindi frá að málið hefur fengið umfjöllun í skipulagsnefnd og umhverfisnefnd, bæjarráð fjallaði einnig um fjölbreytni í ferðaþjónustu og var jákvætt fyrir erindinu. Umhverfisnefnd bendir á að vinna þurfi nánari upplýsingar til að meta umhverfisáhrifin af framkvæmd vegna kláfferju.
Lagði til að bæjarstjórn heimili að farið verði í gerð deiliskipulags á Kálfafellsstsað skv. 43. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Grenndarkynning, bíslag á pósthús
Málsnúmer 201601008
Sæmundur greindi frá að grenndarkynning hefur farið fram fyrir þá nágranna sem geta átt hagsmuna að gæta, engar athugasemdir voru gerðar við byggingarleyfið.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki byggingarleyfið skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Grenndarkynning, Myllulæk 9
Málsnúmer 201602061
Sæmundur greindi frá að grenndarkynning hefur farið fram fyrir þá nágranna sem geta átt hagsmuna að gæta, engar athugasemdir voru gerðar við byggingarleyfið.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki byggingarleyfið skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Kosningar í nefndir
Málsnúmer 201501002
Nýtt Öldungaráð hefur verið sett á laggirnar. Lagt til að úr D og E lista verði aðalmaður Björn Ingi Jónsson og varamaður Sæmundur Helgason.
Lagt til að úr B lista verði aðalmaður Sigurlaug Gissurardóttir og varamaður Reynir Arnarson.
16.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201412003
Bæjarstóri greindi frá störfum sínum síðastliðinn mánuð.
17.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn 2016
Málsnúmer 201602023
Engar fyrirspurnir hafa borist.