Bæjarstjórn Hornafjarðar
230. fundur
13. október 2016
kl.
16:00
-
18:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Páll Róbert Matthíasson
Forseti
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
1. varaforseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
2. varaforseti
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson
1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 779
1. Atvinnumálanefnd
Sæmundur ræddi um skipulagsbreytingar hjá SASS sem ráðist var í í lok síðasta árs og hvernig starfið hefur verið byggt upp.
Ragnheiður tók til máls um ný lög um gerð landsáætlunar um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum. Einnig ræddi hún stefnumótandi stjórnunaráætlun fyrir ferðaþjónustu í hverjum landshluta/Destination management plan (DMP).
Ásgerður tók til máls og þakkaði framkvæmdaaðilum Starfamessu sem að hennar mati heppnaðist vel.
2 Umhverfisnefnd
Sæmundur tók til máls um rusl og ruslaflokkun. Sagði hann það ítrekað gerast að allt að helmingur þess efnis sem er í grænu tunnunni er óhreint og illa lyktandi sorp sem þarf að fara beint til urðunar en hefði átt heima í svörtu tunnunni. Starfsmenn áhaldahúss hafa nú í tvígang farið á undan sorpbílnum, kíkt í tunnur, metið ástandið og deilt út gulum miðum í einhverjum tilvikum. Efnið sem fer í endurvinnslutunnuna er verðmæti og er söluvarningur í endurvinnslu. Umhverfisnefnd vill taka á þessum vanda. Sagði hann frá heimsókn fimm manna hóps, skipuðum nefndarmönnum og starfsfólki sveitarfélagsins, til þriggja sveitarfélaga, Fljótsdalshéraðs, Norðurþings og Akureyrar sem virðast eiga það sameiginlegt að hafa náð ágætis árangri í sorpmálum. Þar er lífrænn úrgangur flokkaður sérstaklega og sendur í moltugerð og þar gengur vel að aðskilja endurvinnsluefni frá.
Ásgerður tók til máls um hleðslustöðvar fyrir rafbíla og óskaði eftir upplýsingum um stöðu verkefnisins.
Björn Ingi tók til máls og greindi frá því að ekki hafi komið formlegt erindi varðandi rafhleðslustöðvarnar sem fyrirhugað er að gefa hverju sveitarfélagi eins og fram hefur komið í fjölmiðlum. Sagði hann að send hafi verið inn umsókn um styrk til uppbyggingar rafhleðslustöðva.
4 Fráveita á Höfn fyrsti áfangi
Ásgerður tók til máls um stöðu fráveituframkvæmda í sveitarfélaginu. Ljóst er að tafir hafa orðið á framkvæmdinni en vildi hún minna á hve mikilvægt verkefnið er. Björn Ingi tók til máls og tók undir orð Ásgerðar. Greindi hann frá því að ýmsar skekkjur og mistök hafi átt sér stað við upphaf verkefnisins. Unnið er að úrbótum og mótun verk- og kostnaðaráætlunar fyrir framhaldið.
17 Fundargerðir SASS 2016 201602042
Sæmundur ræddi tillögu um að HÍ, HfSu og SASS standi sameiginlega að könnun á eftirspurn eftir fjarnámi á háskólastigi á Suðurlandi, annars vegar meðal almennings og hins vegar meðal stjórnenda fyrirtækja. Niðurstöður munu liggja fyrir í árslok og Háskólinn mun hefja fjarnám í völdum greinum á haustönn 2017 m.t.t. könnunarinnar.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.

2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 780
5 Námsferð til Svíþjóðar vegna íbúalýðræðis á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga
Sæmundur tók til máls um ferðina og verkefni sem tengjast íbúalýðræði.
6 Ferðamannastaðurinn Jökulsárlón
Ásgrímur tók til máls og fagnaði frumkvæði sveitarfélagsins varðandi möguleika á uppbyggingu á vesturbakkanum. Sagði hann að sama skapi mætti afturkalla deiliskupulagið austan meginn.
Björn Ingi tók til máls og greindi frá að erindi hafi verið sent inn til forsætisráðuneytisins en engin svör borist. Það er nokkuð ljóst að það deiliskipulag sem er í gildi á austur bakkanum anni ekki þeim ferðamannafjölda sem er á svæðinu í dag og því mikilvægt að huga að nausynlegri uppbyggingu á svæðinu.

3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 781
2 Félagsmálanefnd Hornafjarðar
Ásgerður tók til máls um fyrirhugaða jafnlaunakönnun hjá sveitarfélaginu. Vildi hún minna stjórnsýsluna á hve miklu máli skiptir að vandað sé til verka í þessum efnum.
Björn Ingi tók til máls um jafnlaunakönnunina og greindi frá því í hvaða ferli verkefnið er. Tók hann undir orð Ásgerðar og sagði ljóst að um flókið og viðamikið verk væri að ræða sem vanda þarf vel til.
3 Fræðslu- og tómstundanefnd
Ásgerður tók til máls og vildi minna á mikilvægi þess að hefja undirbúning fyrir Unglingalandsmótið 2019. Óskaði hún eftir upplýsingum um hvaða vinna hefur átt sér stað til þessa.
Björn Ingi tók til máls og tók undir orð Ásgerðar um landsmótið. Sagði hann að undirbúningurinn væri hafinn og ljóst að huga þarf að mörgum þáttum sem starfshópurinn væri meðvitaður um.
Sæmundur tók til máls. Sagði frá því að fræðslunefnd sendi nefnd á Ráðstefnu ungmennaráða á Suðurlandi. SASS stóð fyrir ráðstefnunni í samráði við ungmennaráð á Suðurlandi dagana 28. og 29. september. Fyrir hönd sveitarfélagsins fóru 6 manns, einn nemandi úr grunnskólanum, þrír úr Fas ásamt starfsmanni og fulltrúa úr fræðslunefnd. Sæmundur fagnar kraftinum í ungmennum á Suðurlandi. Ráðstefnan var til fyrirmyndar að hans mati.
4 Jökulheimar - staða
Ásgerður tók til máls og þakkaði formanni mennigarmálanefndar fyrir upplýsandi umræður um verkefnið á fundi bæjarráðs. Vildi hún minna á fyrirhugaðan fund í lok nóvember um málefni og samstarfgrundvöll Jökulheima og að skammur tími væri til stefnu.

4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 782
1 Atvinnumálanefnd
Ragnheiður tók til máls um starfsemi Fab Lab smiðjunnar á Höfn. Sagði hún frá þeirri nýsköpun og verkefnum sem unnið er að innan smiðjunnar.
2 Hafnarstjórn Hornafjarðar -
Gunnhildur tók til máls og lagði til að bæjarstjórn geri eftirfarandi bókun bæjarráðs að sinni:
"Bæjarstjórn hvetur Vegagerðina á grunni framkominna gagna að ráðast í gerð sjóvarnargarðs (sandfang) frá núverandi garði á Suðurfjörum út í Einholtskletta. Með slíku sandfangi er talið að hefta megi sandburð úr vestri inn á Grynnslin".
5 Tjaldsvæði Hafnar, rekstur
Ásgerður tók til máls. Óskaði hún eftir upplýsingum um hvernig starfi tjaldsvæðisins verði háttar í vetur í ljósi aukins ferðamannastraums. Björn Ingi tók til máls og greindi frá því að núverandi rekstraraðili ætli að halda úti starfseminni fram á vetur eða eins lengi og rekstrargrundvöllur er fyrir hendi.
9 Fjárhagsáætlun 2017
Ásgrímur tók til máls og fagnaði að búið væri að framkvæma hugmynd Ásgerðar um þátttöku íbúa í forgangsröðun verkefna með því að senda inn hugmyndir í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins.
Forseti bar tillögu Gunnhildar upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum.

5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 783
2 Umhverfisnefnd
Ásgerður tók til máls um verkefnið Plastpokalaus Hornafjörður og fagnaði því en kallaði eftir meiri þátttöku sveitarfélagsins í verkefninu. Að hennar mati þarf sveitarfélagið að koma að umhverfisverkefnum með afgerandi hætti, t.d. með minni notkun plasts.
Ásgerður tók til máls og fagnaði því að nýta eigi símenntunardaginn til að kynna loftlagsverkefnið.
Sæmundur tók til máls um verkefnið Plastpokalaus Hornafjörður. Þakkaði hann Guðrúnu Ásdísi Sturlaugsdóttur framtakið og sagði verkefnið til fyrirmyndar í alla staði. Gerði hann grein fyrir verkefninu sem gengur út á að búa til fjölnota innkaupapoka úr notuðum bolum og hafa ókeypis í körfu fyrir viðskiptavini verslanna í bænum. Næsta skref verður að fá fleiri til að taka þátt í að búa til poka og nota þá helst alltaf í öllum innkaupum.
5 Fráveita á Höfn - hreinsivirki
Ásgrímur tók til máls og óskaði eftir upplýsingum um hver áætlaður kostnaður við hreinsivirkið er.
Björn Ingi tók til máls og greindi frá því að upphafleg kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 46 m.kr. Í ljósi aðstæðna hér á svæðinu sagði hann þörf á að taka tillit til fleiri þátta hvað varðar útlit og niðritíma virkisins sem hafi áhrif á verðið.
Ásgrímur tók til máls og óskaði eftir frekari lýsingu á hönnun hreinsivirkisins. Spurði hann hvort ekki væri hægt að skera niður við hönnun hússins.
Björn Ingi tók til máls og fór nánar yfir hönnun hússins. Sagði hann ekki um neinn íburð vera að ræða.
13 Umsókn í Framkvæmdasjóð aldraðra 2017
Ásgerður tók til máls og greindi frá að bæjarráð samþykkti að fara í forhönnun á nýju hjúkrunarheimili sem væri ein af forsendum umsóknar í sjóðinn.
14 Samningar SFV um öldrunarþjónustu 14. 201609147
Ásgerður tók til máls og fagnaði ákvörðun sveitarfélagsins um aðild að samningnum.

6.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 229
Fundargerð lögð fram til kynningar.
7.
Húsnæðissjálfseignarstofnun um leiguíbúðir
Sveitarfélagið hefur unnið að stofnun húsnæðissjálfseignarstofnunar um leiguíbúðir vegna mikillar eftirspurnar um íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu.
Tilgangur félagsins er að byggja eða kaupa, eiga og hafa umsjón með rekstri og viðhaldi almennra íbúða og veita þjónustu í almannaþágu samkvæmt lögum um almennar íbúðir.
Félaginu er einnig heimilt: Að byggja, kaupa, eiga, leigja og reka húsnæði undir starfsemi félagsins.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki stofnun húsnæðissjálfseignarstofnun um leigubúðir.
Ásgrímur tók til máls og sagði fyrirhugaðar byggingaframkvæmdir sveitarfélagsins áhyggjuefni vegna hættu á offramboði á fasteignum sem hefði í för með sér lækkun á fasteignaverði.
Björn Ingi tók til máls um fyrirhugaðar byggingaframkvæmdir. Greindi hann frá því að með þessu fyrirkomulagi væri ekki um að ræða verulegar skuldbindingar af hálfu sveitarfélagsins. Sagði hann frá þeirri miklu þörf sem sveitarfélagið stendur frammi fyrir í húsnæðismálum þar sem stór hópur fólks á svæðinu hefur ekki tök á að byggja eða fjárfesta í eigin húsi. Nú eru um 20 fjölskyldur á biðlista fyrir húsnæði auk þess sem mikill skortur er á vinnuafli í sveitarfélaginu. Tók hann undir orð Ásgríms um hættuna á offramboði en sagði því mikilvægara að fylgjast vel með þróuninni og bregðast fljótt við ef í óefni stefnir.
Sagði Björn að bæjarstjórn væri að taka vel upplýsta og ígrundaða ákvörðun með fyrirhuguðu fyrirkomulagi í húsnæðismálum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

8.
Reglur Sveitarfélagsins Hornafjarðar um stofnframlag vegna almennra leiguíbúða
Páll Róbert tók til máls og gerði gein fyrir reglum um veitingu stofnframlaga Sveitarfélagsins Hornafjarðar samkvæmt lögum um almennar íbúðir nr. 52/2016.
Markmið með veitingu stofnframlaga er að bæta húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga í sveitarfélaginu, sem eru undir tekju- og eignamörkum skv. 10. gr. laga um almennar íbúðir, með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi íbúðarhúsnæði til leigu og stuðla að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki reglur um stofnframlag vegna almennra leiguíbúða.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Markmið með veitingu stofnframlaga er að bæta húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga í sveitarfélaginu, sem eru undir tekju- og eignamörkum skv. 10. gr. laga um almennar íbúðir, með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi íbúðarhúsnæði til leigu og stuðla að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki reglur um stofnframlag vegna almennra leiguíbúða.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Umsókn Íbúðarfélags Hornafjarðar Hses um stofnframlag vegna almennra leiguíbúða.
Gunnhildur Imsland stjórnarmaður og Björn Ingi Jónsson framkvæmdastjóri viku af fundi undir þessum lið.
Páll Róbert greindi frá að sótt verði um stofnframlag auk viðbótarframlags vegna íbúða á svæðum þar sem skortur er á leiguhúsnæði og bygging íbúða hefur verið í lágmarki og/eða sérstök vandkvæði á því að fá fjármögnun á almennum markaði. Heildarstofnframlag verður 16%.
Stofnframlag þá áæltað 22,4 til 24 milljónir króna.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita ofangreint stofnframlag vegna almennra leiguíbúða með fyrirvara um samþykki Íbúðarlánasjóðs fyrir hönd ríkisins á sínum hluta stofnframlags.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með fimm atkvæðum.

10.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Sæmundur lagði fram Umhverfisstefnu Sveitarfélagsins.
Stefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar er að vera til fyrirmyndar og leiðandi í umhverfismálum þar sem sjálfbærni náttúru og umhverfis skal höfð að leiðarljósi. Í rekstri allra stofnanna sveitarfélagsins skal leitast við að starfsemin hafi sem minnst neikvæð áhrif á umhverfið. Eitt af helstu markmiðum er að skila umhverfi og náttúru svæðisins til komandi kynslóða í jafn góðu eða betra ástandi en það er nú. Unnin verði framkvæmdaráætlun með markmiðum umhverfisstefnunnar að leiðarljósi og samkvæmt markmiðum loftlagsverkefnis Landverndar og Sveitarfélagsins.
Umhverfisstefnan verði endurskoðuð á fjögurra ára fresti.
Sæmundur lagði til að bæjarstjórn samþykkti framlagða umhverfisstefnu.

11.
Umsókn um stofnun þjóðlendu Vestanvert Jökulasárlón og landsvæði vestan lónsins
Umsókn Forsætisráðuneytisins dags. 25. maí 2016 um stofnun þjóðlendu, sbr. 14. gr. laga um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 með síðari breytingu.
Mörkin eru skv. meðfylgjandi erindi við Vestanvert Jökulslárlón og landsvæði vestan lónsins. Lína (lon3)á meðfylgjandi uppdrætti sem dregin er frá punkti H (lon4) í ósnum úr Jökulsárlóni að Prestfelli, síðan eftir þeirri línu í punkt H og þaðan eftir miðri Jökulsá í punktinn G við ströndina (lon5). Telst land norðan og vestan þessarar markalínu þjóðlenda, en sunnan og austan hennar eignarland Fells.
Lagði til við bæjarstjórn að erindi Forsætisráðuneytisins verði samþykkt og byggingafulltrúa verði falið að annast málsmeðferð.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Lagði til við bæjarstjórn að erindi Forsætisráðuneytisins verði samþykkt og byggingafulltrúa verði falið að annast málsmeðferð.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Umsókn um stofnun þjóðlendu Veðurárdalssvæðið norðvestan Hvítingsdals
Umsókn Forsætisráðuneytisins dags. 25. maí 2016 um stofnun þjóðlendu, sbr. 14. gr. laga um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 með síðari breytingu.
Páll Róbert greindi frá að mörkin liggja skv. meðfylgjandi erindi, að austan frá vesturmörkum jarðarinnar Reynivalla í jaðri Vatnajökuls, sem er punktur A (vd1) og þaðan í punkt C (vd2) sem á uppdrætti er í Þröng við Breiðamerkurjökul. Viðbót vegna Norður-, vestur-og suðurmarka þjóðlendunnar sem vatnar í dóm Hæstaréttar. (1) Milli punkta A (vd1) og C (vd2) ræður jaðar Breiðamerkurjökuls eins og hann var við gildistöku þjóðlendulaga 1. júlí 1998.
Lagði til við bæjarstjórn að erindi Forsætisráðuneytisins verði samþykkt og byggingafulltrúa verði falið að annast málsmeðferð.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Lagði til við bæjarstjórn að erindi Forsætisráðuneytisins verði samþykkt og byggingafulltrúa verði falið að annast málsmeðferð.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Endurskoðun lóðaleigusamninga
Lóðaleigusamningar sveitarfélagsins hafa verið í endurskoðun og uppfærðir í samræmi við lög og reglugerðir.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi fyrirmyndir að lóðarleigusamningum sveitarfélagsins.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Umsókn um lóð Hagaleira 8
Umsókn Bryndísar Bjarnarson um lóð að Hagaleiru 8 lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðaúthlutuninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.

15.
Umsókn um lóð Hagaleira 8a
Umsókn Guðrúnar Sturlaugsdóttur um lóð að Hagaleiru 8a lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðaúthlutuninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
16.
Umsókn um lóð Álaleira 17
Umsókn Gunnlaugs Róbertssonar um lóð að Álaleiru 17 lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðaúthlutuninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
17.
Umsókn um lóð Fákaleira 5a
Umsókn Kristjáns V. Björgvinssonar um lóð að Fákaleiru 5a lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðaúthlutuninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
18.
Umsókn um lóð Víkurbraut 10
Umsókn Birgis Fannars Reynissonar um lóð að Víkurbraut 10 lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðaúthlutuninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
19.
Ósk um aðalskipulagsbreytingu Hólabrekka
Páll Róbert greindi frá fyrirhugaðri breytingu á aðalskipulagi Hornafjarðar 2012 - 2030 sem nær yfir landsvæði við Holt á Mýrum. Breytingin felst í að stækka svæði fyrir íbúðarbyggð og breyta byggingarheimildum lítillega: Íbúðarsvæði ÍB12 er stækkað um 1 ha frá því sem er í gildandi aðalskipulagi,
verður 9ha í stað 8ha áður sem blönduð byggð. Leiðrétting er gerð á nafni á töflu 14.4, Íbúðarsvæði á Mýrum, sem er ranglega merkt. Íbúðarsvæði í Nesjahverfi. Í gildandi aðalskipulagi. Breyting er gerð á töflunni, allt að 30 gistirými í stað 20 áður.
Stækkun á íbúðarsvæði mun hafa óveruleg umhverfisáhrif í för með sér.
Stækkunin fer ekki inn á verndarsvæði, er fjarri skráðum fornleifum, skerðir ekki votlendi eða lykil vistkerfi. Fjölgun gistirýma er ekki líkleg til að auka umferð á þann hátt að hún hafi
áhrif á hljóðvist.
Bæjarstjórn telur umrædda breytingu vera óverulega og að málsmeðferð skuli vera í samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi breytingu á aðalskipulagi 2012-2030.

20.
Deiliskipulag Hólabrekka
Erindi frá Ólafi Páli Vignissyni um fyrirhugaða byggingu á Hólabrekku. Grenndarkynna þurfti byggingaráformin þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag á svæðinu.
Páll Róbert greindi frá að grenndarkynning hefur farið fram, skv. 44. gr. skipulagslaga 2010, engar athugasemdir bárust.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki erindið þar sem það samræmist aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki erindið þar sem það samræmist aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
21.
Ósk um að hefja deiliskipulagsvinnu við Lönguhóla og íbúðir fyrir aldraða
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir að vinna að gerð deiliskipulags í þéttbýlinu á Höfn fyrir svæði S3 (austan Víkurbrautar) fyrir viðbyggingu við Lönguhóla, íbúðir fyrir aldraða og aðrar byggingar tengdar samfélagsþjónustu.
Ekki er þörf á lýsingu þar sem allar meginforsendur liggja fyrir í
aðalskipulagi. Áformin falla vel að landnotkun, þéttleika byggðar og byggðarmynstri svæðisins.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að hefja deiliskipulagsvinnu skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Ásgrímur tók til máls og gagnrýndi umrædd deiliskipulagsáform. Að hans mati er kostnaðurinn við breytingu leikskólanna allt of hár. Gagnrýndi hann einnig hönnun á breytingu Lönguhóla.
Björn Ingi tók til máls. Sagði hann að um væri að ræða ábendingu en ekki athugasemd frá Skipulagsstofnun og þar væri eðlismunur á. Sagði hann ekkert við málsmeðferð meirihlutans að athuga.
Ásgerður tók til máls og greindi frá að hún væri óviss með fyrirhugaðar framkvæmdir í leikskólamálum og að hennar mati ætti að skoða nýbyggingu á nýjum stað og því sæti hún hjá við atkvæðagreiðsluna.
Gunnhildur greindi frá að hún sitji hjá við afgreiðslu málsins.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með fjórum atkvæðum. Ásgrímur greiddi atkvæði gegn tillögunni. Ásgerður og Gunnhildur sátu hjá.

22.
Kjörskrá vegna alþingiskosninga 29. október 2016
Lagt fram bréf Þjóðskrár Íslands frá 26. sept. 2016 þar sem fram koma fyrirmæli um meðferð kjörskrárstofna frá Þjóðskrá, alþingiskosninga 29. október 2016.J afnframt lagður fram stofn að kjörskrá fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð, sem unnin hefur verið af Þjóðskrá Íslands. Alls eru 1.540 á kjörskrá sveitarfélagsins fyrir þessar kosningar.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki framlagða kjörskrá eins og hún liggur fyrir og felur bæjarstjóra að undirrita hana.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Kjörskráin liggur frammi í afgreiðslu sveitarfélagsins til 28. október.

23.
Ósk um framkvæmdaleyfi, Hringvegur nr.1 milli Hólms og Dynjanda
Björn Ingi tók til máls og greindi frá að á fundi bæjarstjórnar nr. 229, hinn 8. september sl. var umsókn Vegagerðarinnar, dags. 21. júní 2016, um framkvæmdaleyfi á nýjum hringvegi á milli Hólms og Hafnarvegar samþykkt. Bókunin var svohljóðandi:
Sótt er um framkvæmdaleyfi á grundvelli 13. og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. og 6. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum m.s.b. Matsskýrsla og álit Skipulagsstofnunar frá 7. ágúst 2009 liggur fyrir. Sótt er um framkvæmdina á grundvelli aðalskipulags Hornafjarðar 2012-2030 þar sem gert er ráð fyrir nýjum Hringvegi um Hornafjörð, sbr. 1. mgr. 7. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi.
Skipulagsnefnd fór yfir matsskýrslu framkvæmdar og álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum vegna framkvæmdarinnar 'Hringvegur um Hornafjörð, í Sveitarfélaginu Hornafirði'. Umsókn og fylgigögn, s.s. lýsing á framkvæmdinni, eru í samræmi við aðalskipulag Hornafjarðar 2012-2030. Skipulagsnefnd tók undir álit Skipulagsstofnunar, m.a. um skilyrði leyfisveitingar er snúa að myndun formlegs samráðshóps fagaðila um endurheimt votlendis vegna framkvæmdarinnar. Einnig tók skipulagsnefnd undir álit Skipulagsstofnunar um að reynt verði að komast hjá efnistöku úr námu 7. við Dynjanda/Friðsæld.
Lagt til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfi fyrir nýjan hringveg um Hornafjörð þar sem fyrirhuguð framkvæmd sé í samræmi við aðalskipulag Hornafjarðar 2012-2030.
Í tengslum við samþykkt bæjarstjórnar um framkvæmdaleyfi til Vegagerðarinnar frá 8. september sl. leggur bæjarstjóri eftirfarandi tillögu fram:
Í ljósi þess að framkvæmdaleyfi fyrir nýjan hringveg á milli Hólms og Hafnarvegar hefur ekki verið gefið út, skv. 11. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012, og umfjöllunar um ný náttúruverndarlög nr. 60/2013, í úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr. 46/2016 Kröflulína 4, Skútustaðahreppur, frá 10. október sl., legg ég til að bæjarstjórn afturkalli ákvörðun sína frá 8. september sl. um samþykki á útgáfu framkvæmdaleyfis til Vegagerðarinnar með vísan til 1. tl. 1. mgr. 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Legg ég jafnframt til að umsókn Vegagerðarinnar, frá 21. júní sl. um framkvæmdaleyfi verði vísað aftur til nefnda sveitarfélagsins til nánari skoðunar í ljósi umfjöllunar um ný náttúruverndarlög í umræddum úrskurði nr. 46/2016. Bæjarstjóri lagði til við bæjarstjórn að afturkalla framkvæmdaleyfið.

24.
Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum sl. mánuð.
25.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn 2016
Engar fyrirspurnir hafa borist.