Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

231. fundur
10. nóvember 2016 kl. 16:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Páll Róbert Matthíasson Forseti
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 784
Málsnúmer 1610009F
2 Umhverfisnefnd
Sæmundur tók til máls um aðgerðaráætlun umhverfisstefnu. Þar nefndi hann sérstaklega fyrirhugað útboð á sorpmálum.
Kristján tók til máls um framkvæmdir í Nesjahverfinu og óskaði eftir upplýsingum um stöðu mála.
Björn Ingi tók til máls og greindi frá vandamáli við fráveitu í Nesjum vegna grunn- og regnvatns í brunnum í götunni sem hefur tafið framkvæmdir. Unnið er að úrlausn málsins og er gert ráð fyrir þeirri framkvæmd í fjárhagsáætlun 2017.
3 Launakönnun
Ragnheiður tók til máls um kjarabaráttu kvenna og launamun kynjanna. Fagnar hún fyrirhugaðri jafnlaunakönnun sveitarfélagsins.
Sæmundur tók til máls og tók undir orð Ragnheiðar um jafnlaunakönnun.
7 Verkefnastjóri á skólaskrifstofu
Gunnhildur tók til máls um ráðningu verkefnastjóra á skólaskrifstofu og óskaði upplýsinga um fjölda stöðugilda á skólaskrifstofu og hvort umrædd staða hafi verið auglýst.
Björn Ingi tók til máls og greindi frá að upphaflega var auglýst í 50% starf og svo tvisvar auglýst án skilgreinds hlutfalls. Auglýsingin bar ekki árangur. Í haust kom fram aðili sem var tilbúinn í verkefnið og var ákveðið að ráða hann í tímabundið starf þar sem það rúmast innan ramma skólaskrifstofu 2016. Starfið verður auglýst laust til umsóknar í lok árs 2017.

Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 785
Málsnúmer 1610011F
2 Undirbúningur samnings um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu
Ragnheiður tók til máls og fagnaði nýjum samningi um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu. Gerði hún grein fyrir helstu atriðum samningsins. Óskaði hún þeim sem að vinnu samningsins komu til hamingju með árangurinn.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 786
Málsnúmer 1610015F
2 Fræðslu- og tómstundanefnd
Ásgerður tók til máls um bókun velferðarteymis hvað varðar kaup á gögnum frá Rannsóknum og greiningu. Að hennar mati er um að ræða mikilvæga vinnu sem gefur upplýsingar um mál sem þarf að vinna að og árangur af því starfi sem hefur átt sér stað síðustu ár. Fagnaði hún þátttöku sveitarfélagins í verkefninu heilsueflandi samfélag sem undirritað var 27. október. Hvetur hún Hornfirðinga alla að vera virkir þátttakendur í verkefninu.
3 Menningarmálanefnd
Kristján tók til máls og óskaði eftir upplýsingum um hvenær fyrirhugaður fundur verði um Jökulheima. Björn Ingi tók til máls og sagði að unnið væri að málinu í nefndinni en tímasetning hefur ekki verið ákveðin.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 787
Málsnúmer 1611002F
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 230
Málsnúmer 1609006F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Viðauki III við fjárhagsáætlun 2016
Málsnúmer 201611022
Björn Ingi Jónsson lagði fram viðauka III við fjárhagsáætlun 2016. Felst hann einkum í lækkun á framkvæmdum um 60,3 m.kr. Handbært fé í árslok fer úr 78,3 m.kr. í 117,5 m.kr. Einnig hafa verið settar inn ákvarðanir bæjarráðs sem ekki hafa áhrif á niðurstöðu ársins eða sjóðstreymi, þ.e. tilfærslur fjárheimilda innan málaflokka og tilfærslur af óráðstöfuðu til aukningar fjárheimilda deilda/málaflokka.

Forseti bar viðaukann upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Álagningareglur 2017
Málsnúmer 201611025
Björn Ingi kynnti tillögu að álagningarreglum 2017:
Útsvar 14,52%
Fasteignaskattur á íbúðahúsnæði 0,50% af fm. (leyfilegt hámark 0,625%)
Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði 1,65% af fm. (leyfilegt hámark 1,65%)
Lóðaleiga 1% af lóðamati
Holræsagjöld 0,30% af fasteignamati
Vatnsgjöld 0,18% af fasteignamati
Sorpgjöld eru skv. gjaldskrá.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Fjárhagsáætlun 2017
Málsnúmer 201609012
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fjárhagsáætlun ársins 2017. Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir A og B hluta eru eftirfarandi.

Rekstrarniðurstaða 162,8 m.kr.
Skuldir í hlutfalli af tekjum 79,54%
Framkvæmdir 712,5 m.kr.
Framlegð 15,61%
Veltufé frá rekstri 339,9 m.kr.
Handbært fé í árslok 86,2 m.kr.
Afborganir langtímalána 94,1 m.k.r
Ný lántaka A-B hluta 450 m.kr.
Langtímalán við lánastofnanir 1.142 m.kr.

Sæmundur tók til máls og sagði að í fjárhagsáætluninni felist sú breyting á fyrri áætlunum að framkvæmdartíminn á byggingu nýs leikskóla við Kirkjubraut 47 mun taka lengri tíma. Er það vegna fjölda annarra verkefna hjá verktökum, m.a. byggingu leiguíbúða, hreinsivirkis og framkvæmda í Vöruhúsi sem kalla á að horfa raunsætt á hlutina. Allar þessar framkvæmdir munu fara í útboð strax í byrjun árs 2017. En eins og fjárhagsáætlun 2017 gefur vísbendingu um, stefnir í að nýr sameinaður leikskóli, undir einu þaki, muni opna á vormánuðum 2018.

Ásgerður tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins:
"Fjárhagsáætlun 2017 gefur til kynna að meirihluti bæjarstjórnar sé ekki í neinum tengslum við atvinnulífið á staðnum. Áætluð fjárhæð til framkvæmda er rúmar 712 milljónir króna og því til viðbótar 12.000 milljónir árin 2018-2020. Framkvæmdir nú á árinu 2016 munu verða 433 milljónir og er því áætlun næsta árs um 280 milljónum kr. hærri. Til þess að fjármagna þessar framkvæmdir er svo gert ráð fyrir 900 milljónum króna í lántöku á næstu fjórum árum sem eitt og sér er áhyggjuefni.
Þar fyrir utan er á áætlun bygging leiguíbúða í gegnum Íbúðarfélag Hornafjarðar hses. sem er að fullu í eigu sveitarfélagisns en ekki hluti af þessari fjárhagsáætlun.
Almenna reglan er að opinberir aðilar haldi að sér höndum í þenslu á vinnumarkaði. Mikill skortur hefur verið á verktökum til framkvæmda í sveitarfélaginu sem meðal annars kemur fram í frestun á verkefnum á líðandi ári. Því teljum við bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins að frekar skuli dregið úr framkvæmdum í þessum aðstæðum og styðjum því ekki framlagða fjárhagsáætlun fyrir árið 2017 og þriggja ára áætlun áranna 2018-2020."

Forseti lagði til að fjárhagsáætlun 2017 yrði vísað til seinni umræðu bæjarstjórnar.
Samþykkt með fjórum atkvæðum. Ásgerður K. Gylfadóttir, Kristján Guðnason og Gunnhildur Imsland greiddu atkvæði gegn tillögunni.
9.
Þriggja ára áætlun 2018-2020
Málsnúmer 201611024
Björn Ingi kynnti þriggja ára áætlun 2018-2020. Lagði til að þriggja ára ætlun yrði vísað til seinni umræðu bæjarstjórnar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með fjórum atkvæðum. Ásgerður K. Gylfadóttir, Kristján Guðnason og Gunnhildur Imsland greiddu atkvæði gegn tillögunni.
10.
Ósk um breytingu á aðalskipulagi Fiskhóll 11
Málsnúmer 201608058
Forseti greindi frá ósk um breytingu á aðalskipulagi Fiskhól 11.
Skipulagsnefnd hefur farið yfir málið og hafnaði ósk um aðalskipulagsbreytingu.
Lagði til að bæjarstjórn staðfesti afgreiðslu skipulagsnefndar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum. Gunnhildur Imsland var ekki viðstödd atkvæðagreiðsluna.
11.
Breyting á deiliskipulagi HSSA
Málsnúmer 201608045
Forseti greindi frá ósk um breytingu á deiliskipulagi HSSA við enda Júllatúns þar verði gert ráð fyrir fimm lóðum undir íbúðarhús.
Fallið verði frá lýsingu þar sem deiliskipulagið samræmist aðalskipulagi einnig er fráveita og vatnsveita er fyrir hendi er því um óveruleg umhverfisáhrif að ræða.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að farið verði í breytingu á deiliskipulagi (HSSA)HSU Hornafirði.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Umsókn um lóð, Bugðuleira 5
Málsnúmer 201610067
Björn Ingi og Gunnhildur Imsland véku af fundi undir þessum lið.Umsókn Íbúðafélag Hornafjarðar hses. um lóð að Bugðuleiru 5 lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðarumsókninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með fimm atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
13.
Umsókn um lóð að Fákaleiru 5
Málsnúmer 201611018
Umsókn Sigurðar Guðnasonar um lóð að Fákaleiru 5 lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðarumsókninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
14.
Umsókn um lóð Álaleira 17
Málsnúmer 201611009
Umsókn Atla Arnarsonar um lóð að Álaleiru 17 lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðarumsókninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
15.
Umsókn um lóð Hagaleira 6
Málsnúmer 201610086
Umsókn Óla Kristjáns Benediktssonar um lóð að Hagaleiru 6 lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðarumsókninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
16.
Umsókn um lóð Fákaleira 9
Málsnúmer 201610085
Umsókn Guðlaugs J. Vilhjálmssonar um lóð að Fákaleiru 9 lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðarumsókninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
17.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201412003
Bæjarstjóri greindi frá störfum sínum sl. mánuð.
18.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn 2016
Málsnúmer 201602023
Engar fyrirspurnir hafa borist.