Bæjarstjórn Hornafjarðar
232. fundur
1. desember 2016
kl.
16:00
-
16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Páll Róbert Matthíasson
Forseti
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
1. varaforseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 788
2 Atvinnumálanefnd - 21
Ragnheiður tók til máls um atvinnuleysi á svæðinu. Sagði atvinnuleysi nú 0,5% og að skortur á vinnuafli endurspeglist víða í samfélaginu á sama tíma og umsvif aukast. Sagði atvinnumálanefnd því fagna að unnið sé að húsnæðisáætlun. Jafnframt sagði hún að miklir vaxtaverkir fylgi auknum umsvifum í sveitarfélaginu og því margt sem þarf að huga að. Sagði hún fjárhagsáætlun 2017 endurspegla nauðsynlega uppbyggingu innviða. Lýsti hún jafnframt yfir ánægju með jólasamveru á fyrsta í aðventu í Nýheimum og þakkaði öllum sem stóðu að því.
6 Hugmyndir og ábendingar um verkefni í framkvæmdir sveitarfélagsins
Sæmundur tók til máls um spurningu mánaðarins á vef sveitarfélagsins þar sem íbúum gefst kostur á að koma skoðunum sínum á framfæri. Óskaði hann eftir að niðurstöður októberspurningar, um framkvæmdir 2017, yrðu kynntar í bæjarráði. Greindi Sæmundur frá því að fjölmargar og góðar ábendingar hafi borist sem litið hafi verið til við forgangsröðun.
Ásgerður tók til máls um spurningu mánaðarins. Óskaði hún eftir að kerfið verði skoðað því ljóst er að ekki hafi allar ábendingar skilað sér.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.

2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 789
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 790
1. Bygging leikskóla undir Fiskhól, undirskriftir
Ásgerður tók til máls. Greindi frá fundi bæjarráðs með starfsmönnum leikskólanna. Sagði hún að þó fáir hafi mætt á fundinn hafi margir sterkar skoðanir á málinu. Að hennar mati er æskilegast að bíða með framkvæmdir í tengslum við leikskólana á meðan þensla er í samfélaginu.
Sæmundur tók til máls og fór yfir ákvörðunartökuferlið við sameiningu leikskólanna. Ítrekaði hann að leiðin sem varð fyrir valinu væri hagkvæmust. Sagði hann málið hafa átt langan aðdraganda og ákvarðanir teknar af skynsemi og vel ígrunduðu máli. Sagði hann fyrirhugað að halda nafnasamkeppni um nýjan leikskóla.
Björn Ingi tók til máls og benti á að vandamálin sem leikskólar standa frammi fyrir eru ekki eingöngu bundin við Sveitarfélagið Hornafjörð heldur er um að ræða vandamál á landsvísu. Einnig nefndi hann kjarabaráttu grunnskólakennara og tónlistarkennara. Sagði hann því ekki hægt að benda einungis á sameiningu leikskólanna sem undirliggjandi þátt varðandi manneklu í leikskólunum á Höfn.
Ásgerður tók til máls og benti á að starfsmenn hafi sagt upp störfum á leikskólunum m.a. vegna þeirrar óvissu sem uppi er í tengslum við framkvæmdir við leikskólana.
Ragnheiður tók til máls og sagði að það versta sem hún viti er óvissa og óöryggi og lagði því áherslu á að nýr leikskóli yrði tekinn í gagnið sem fyrst svo starfsfólk leikskólanna þurfi ekki að búa við óvissu lengur.
Björn Ingi tók til máls og tók undir orð Ragnheiðar. Einnig benti hann á að óvissa hafi verið í leikskólamálum frá því hann byrjaði í bæjarstjórn árið 2006.
3 Atvinnumálanefnd - 22
Kristján tók til máls og fagnaði þeirri vinnu sem fyrirhuguð er í Miklagarði. Varpaði hann fram þeirri spurningu hvort selja ætti Miklagarð.
Björn Ingi tók til máls og sagði að Mikligarður væri ekki forgangsverkefni eins og er vegna annarra brýnni mála. Sagði hann að áætlað er að setja 15 m.kr. í Miklagarð á næsta ári með það að markmiði að koma húsinu aftur í not.
Kristján tók til máls. Spurði hann um stöðu mála varðandi Jökulheima og greindi frá því að heyrst hafi af áhugasömum fjárfestum.
Björn Ingi tók til máls og áréttaði að hann væri ekki á þeirri skoðun að selja eigi Miklagarð. Sagðist ekki hafa heyrt af umræddum fjárfestum í tengslum við Jökulheima.
8 Menningarstefna Hornafjarðar
Gunnhildur tók til máls. Benti hún á að nýrri menningarstefnu er vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn en er ekki á dagskrá.
Björn Ingi tók til máls og greindi frá að stefnan verði lögð fyrir á næsta bæjarstjórnarfundi þar sem unnið er að minniháttar orðalagsbreytingum.

4.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 231
Fundargerðin er lögð fram til staðfestingar.
5.
Fjárhagsáætlun 2017
Bæjarstjóri lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2017.
Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir A og B hluta eru eftirfarandi:
Rekstrarniðurstaða 189 m.kr.
Skuldir í hlutfalli af tekjum 73%
Framkvæmdir 712,5 m.kr.
Framlegð 15,6%
Veltufé frá rekstri 348 m.kr.
Handbært fé í árslok 84 m.kr.
Afborganir langtímalána 109,4 m.k.r
Ný lántaka A-B hluta 500 m.kr.
Langtímalán við lánastofnanir 913,6 m.kr.
Ásgerður bað um orðið og bar upp fyrir hönd Framsóknarflokksins breytingartillögu á fjárhagsáætlun 2017, lækkun fjárfestinga um 270 m.kr. og lántöku um sömu upphæð og lagði til að bæjarstjórn samþykki hana. Sagði hún að rökin væru ekki að sveitarfélagið stæði illa fjárhagslega heldur sú þensla sem við búum við. Sagði hún æskilegast að sveitarfélagið dragi að sér hendur við slíkar aðstæður.
Björn Ingi tók til máls og lýsti yfir undrun á vinnubrögðum Framsóknarflokksins. Við fyrri umræðu greiddu þau gegn framlagðri fjárhagsáætlun, en ekki hafi komið frá þeim tillögur eða ábendingar um breytingar fyrr en nú rétt fyrir seinni umræðu. Benti hann einnig á að villa væri í breytingatillögunni, en sagt er að lækkunin hafi ekki áhrif á niðurstöðuna. Sagði Björn Ingi að umrædd lækkun fjárfestinga hefði víðtæk áhrif á fjárhagslega niðurstöðu.
Forseti bar upp breytingartillögu Framsóknarflokksins til atkvæða, var hún felld með fjórum atkvæðum gegn þremur. Björn Ingi Jónsson, Sæmundur Helgason, Ragnheiður Hrafnkelsdóttir og Páll Róbert Matthíasson voru á móti. Forseti bar upp fjárhagsáætlun sem bæjarstjóri bar upp fyrst. Fjárhagsáætlun samþykkt með fjórum atkvæðum gegn þrem, á móti voru Ásgerður K. Gylfadóttir, Kristján Guðnason og Gunnhildur Imsland.

6.
Þriggja ára áætlun 2018-2020
Bæjarstjóri lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi þriggja ára fjárhagsáætlun fyrir árin 2018 - 2020. Forseti bar upp þriggja ára áætlun sem bæjarstjóri bar upp. Samþykkt með fjórum atkvæðum. Ásgerður K. Gylfadóttir, Kristján Guðnason og Gunnhildur Imsland sátu hjá.
7.
Ósk um framkvæmdaleyfi, Hringvegur nr.1 milli Hólms og Dynjanda
Björn Ingi greindi frá málinu og þróun þess í gegnum árin. Að hans mati er leið 3b farsælust fyrir Sveitarfélagið í heild.
Sæmundur gerði grein fyrir afgreiðslu umhverfisnefndar.
Páll Róbert gerði grein fyrir afgreiðslu skipulagsnefndar.
Sæmundur tók við fundarstjórn.
Ásgerður tók til máls. Sagðist hún standa á sinni skoðun í þessum efnum og telur leið 3b farsæla fyrir fleiri en færri. Sagði hún það hlutverk bæjarstjórnar að taka hagsmuni heildarinnar fram yfir sérhagsmuni.
Björn Ingi tók til máls. Greindi frá að bæjarstjórn hefur kynnt sér bókun umhverfisnefndar frá 29. nóvember sl. og skipulagsnefndar frá 30. nóvember sl., sem fjalla um fyrirliggjandi umsókn Vegagerðarinnar, dags. 21. júní 2016 um framkvæmdaleyfi til lagningar á nýjum Hringvegi um Hornafjörð, milli Hólms og Dynjanda. Í bókun umhverfisnefndar kemur fram að nefndin hafi kynnt sér matsskýrslu framkvæmdarinnar og álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum vegna framkvæmdarinnar. Jafnframt kemur fram að nefndin hafi kynnt sér umsagnir umsagnaraðila, þ.á.m. umsögn Umhverfisstofnunar, dags. 2. nóvember 2016. Auk þess segir í bókun að nefndin taki undir álit Skipulagsstofnunar, m.a. um skilyrði leyfisveitingar, og vísi sérstaklega til stefnu gildandi Aðalskipulags Hornafjarðar 2012-2030. Leggur umhverfisnefnd til að umsótt framkvæmd verði samþykkt. Í bókun skipulagsnefndar kemur fram sambærileg málsmeðferð á umsóttri framkvæmd. Skipulagsnefnd mælir einnig með að umsókn Vegagerðarinnar verði samþykkt af bæjarstjórn. Bæjarstjórn telur með vísan til framangreindra bókanna ljóst að nefndirnar hafa kynnt sér ítarlega umsótta framkvæmd og fylgigögn og hafi komist að rökstuddri niðurstöðu í framhaldi þess, líkt og áskilið er í 2. mgr. 14. gr. skipulagslaga. Auk þess kemur fram í bókun beggja nefnda að fjallað var um skilyrði 13. gr. skipulagslaga og komust nefndirnar að rökstuddri niðurstöðu þess efnis að skilyrði ákvæðisins væru uppfyllt.
Bæjarstjórn hefur kynnt sér umsótta framkvæmd og umhverfisáhrif hennar, matsskýrslu og álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar. Unnin var greinagerð fyrir bæjarstjórn vegna umsóknar Vegagerðarinnar um framkvæmdarleyfi Hringvegar um Hornafjörð þar sem fjallað er um framkvæmdina út frá lögum, reglum og fyrirliggjandi gögnum. Bæjarstjórn hafði greinagerðina til hliðsjónar við afgreiðslu málsins. Bæjarstjórn tekur undir álit Skipulagsstofnunar, m.a. um skilyrði leyfisveitingar og vísar sérstaklega til stefnu sveitarfélagsins skv. Aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030, sbr. t.d. kafla 9. Bæjarstjórn tekur undir sjónarmið umhverfisnefndar og skipulagsnefndar sem er í fullu samræmi við áherslur og stefnu gildandi aðalskipulags. Það er mat bæjarstjórnar að leið 3b uppfylli markmið um aukið umferðaröryggi mun betur en aðrar leiðir gera. Að mati sveitarfélagsins eru ekki aðrir kostir fyrir hendi sem ná markmiðum um umferðaröryggi og styttingu vegalegnda eins vel og leið 3b. Með hliðsjón af gildandi aðalskipulagi og breytinga sem gerðar voru árið 2009 á Aðalskipulagi Hornafjarðar 1998-2018, er fjölluðu um nýtt vegastæði Hringvegar (1) um Hornafjörð sem hefði það að meginmarkmiði að stuðla að auknu umferðaröryggi og styttingu leiða innan sveitarfélagsins, uppfyllir umsótt framkvæmd skipulagsáætlun sveitarfélagsins. Bæjarstjórn leggur áherslu á að stytting vegalengda að þjónustukjarna sveitarfélagsins á Höfn er forsenda áframhaldandi byggða- og atvinnuþróunar á Mýrum, í Suðursveit og Öræfum. Að stytta leiðir að þjónustukjarna sveitarfélagsins styður við þá viðleitni að gera sveitarfélagið að einu búsetu- og atvinnusvæði. Jákvæð samfélagsleg áhrif yrðu því mest fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð ef farin verður leið 3b.
Eftirfarandi skilyrði skulu gilda um umsótt framkvæmdaleyfi:
Vegagerðina skal hafa samráð við sveitarfélagið um staðsetningu á áningarstöðum við Hringveginn.
Deiliskipuleggja þarf námur í Djúpá, Hornarfjarðarfljót, Skógey og við Lambleiksstaði.
Vegagerðin skal mynda formlegan samráðshóp fagaðila, m.a. með aðild Landgræðslu ríkisins og Umhverfisstofnunar, um endurheimt votlendis vegna framkvæmdarinnar. Samráðshópurinn hafi það hlutverk að fylgjast með endurheimt votlendis á framkvæmdasvæðinu og vinni að því markmiði að votlendi endurheimtist til jafns við það sem framkvæmdin hafi raskað. Lagt er til að samráðshópur um endurheimt votlendis leiti til Náttúrufræðistofnunar um þætti sem þarf að hafa í huga til að ná sem bestum árangri.
Frágangur á efnistökusvæðum skal ákveðinn í samráði við Umhverfisstofnun.
Að öðru leyti skal framkvæmdarleyfið bundið skilyrðum 9. kafla greinargerðar.
Björn Ingi lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi tillögur og bókanir umhverfisnefndar og skipulagsnefndar og að bæjarstjórn samþykki umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi til lagningar á nýjum Hringvegi um Hornafjörð, milli Hólms og Dynjanda. Einnig lagði hann til að bæjarstjórn feli skipulagsstjóra að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

8.
Aðalskipualgsbreytingar 2012-2030
Sveitarfélagið hefur unnið að níu breytingum á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030.
Breytingarnar snúa allar að bættri þjónustu vegna ferðamanna. Sveitarfélagið leitaði umsagnar m.a. hjá Skipulagsstofnun eins og lög gera ráð fyrir. Í umsögn Skipulagsstofnunar er bent á að komin sé þörf á að endurskoða stefnu og uppbyggingu vegna ferðaþjónustu í aðalskipulaginu og forsendur verði endurskoðaðar með hliðsjón af raunverulegri og áætlaðri fjölgun ferðamanna á næstu árum.
Skipulagsnefnd lagði til á fundi sínum þann 30. nóvember að endurskoða þurfi Aðalskipulag Sveitarfélagsins 2012-2030 vegna breyttra forsenda varðandi ferðaþjónustu.
Lagði til að bæjarstjórn gefi heimild til að hefja endurskoðun á ferðaþjónustukafla Aðalskipulags 2012-2030 skv. 35. gr. skipulagslaga.

9.
Aðalskipulagsbreyting Svínhólar
Páll Róbert gerði grein fyrir ósk um breytingu á aðalskipulagi 2012-2030 í landi Svínhóla.
Óskað er eftir að breyta landnotkun á skilgreindu svæði úr landbúnaðarsvæði í verslunar- og þjónustusvæði vegna fyrirhugaðra hótelbygginga, vegaframkvæmda og starfsmannaaðstöðu.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirhugaða breytingu á aðalskipulagi og vísi henni í endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012-2030, ferðaþjónustukafla.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Óskað er eftir að breyta landnotkun á skilgreindu svæði úr landbúnaðarsvæði í verslunar- og þjónustusvæði vegna fyrirhugaðra hótelbygginga, vegaframkvæmda og starfsmannaaðstöðu.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirhugaða breytingu á aðalskipulagi og vísi henni í endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012-2030, ferðaþjónustukafla.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Deiliskipulag Vagnstaðir
Páll Róbert greindi frá að deiliskipulagstillagan hafi verið í kynningu frá 22. september til 3. nóvember.
Markmið við gerð deiliskipulagsins er að efla byggð á svæðinu og styrkja atvinnulíf samhliða að auka afþreyingu í sveitarfélaginu.
Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun og HAUST og hefur skipulagsnefnd brugðist við þeim með svörum sínum í bókun nefndarinnar frá 30. nóvember.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu og geri svör skipulagsnefndar vegna athugasemda umsagnaraðila að sínum og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Markmið við gerð deiliskipulagsins er að efla byggð á svæðinu og styrkja atvinnulíf samhliða að auka afþreyingu í sveitarfélaginu.
Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun og HAUST og hefur skipulagsnefnd brugðist við þeim með svörum sínum í bókun nefndarinnar frá 30. nóvember.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu og geri svör skipulagsnefndar vegna athugasemda umsagnaraðila að sínum og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Deiliskipulag Hólabrekka
Málinu frestað þar sem öll gögn liggja ekki fyrir fundinum.
12.
Deiliskipulag tjaldsvæðis, Hafnar
Málinu frestað þar sem öll gögn liggja ekki fyrir fundinum.
13.
Deiliskipulag austan Vesturbrautar S3
Páll Róbert lagði fram tillögu að nýju deiliskipulagi svæðis austan Vesturbrautar S3. Skipulagið gerir ráð fyrir stækkun núverandi leikskóla við Lönguhóla og að núverandi leikskólahúsnæði Krakkakots við Víkurbraut 24 verði nýtt undir aðra samfélagsþjónustu með möguleika á stækkun hússins. Þá er gert ráð fyrir nýju raðhúsi fyrir aldraða við Víkurbraut 34. Ennfremur er gert ráð fyrir bættu umferðarflæði um svæðið.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að auglýsa deiliskipulagstillöguna skv. 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með fjórum atkvæðum. Ásgerður K. Gylfadóttir, Gunnhildur Imsland og Kristján Guðnason sátu hjá.

14.
Breyting á deiliskipulagi HSSA
Páll Róbert greindi frá tillögu að breytingu á deiliskipulagi HSSA.
Markmið með gerð deiliskipulagsbreytingar er að þétta byggð og bjóða upp á fleiri byggingalóðir.
Deiliskipulagsbreytingin felst í að ráð sé gert fyrir fimm nýjum íbúðarlóðum við norðurenda Júllatúns. Gatan Júllatún verður lengd til norðurs og gerð einstefnugata af henni á Víkurbraut, sunnan við Júllatún 8. Skipulagsmörk eru færð lítillega til suðurs. Gert er ráð fyrir gangstétt með nýjum götum og tengingu af þeim á stígakerfi norðan íbúðarsvæðisins.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að auglýsa breytingu á deiliskipulagi fyrir HSSA skv. 41. gr. skipulagslaga.

15.
Fyrirspurn vegna bílastæðaframkvæmda
Páll Róbert gerði grein fyrir að grenndarkynning hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar athugasemdir bárust.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki breytinguna og taki undir bókun skipulagsnefndar frá 30. nóv.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki breytinguna og taki undir bókun skipulagsnefndar frá 30. nóv.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Skipurit fyrir sveitarfélagið
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Björn Ingi kynnti nýtt skipurit sveitarfélagsins og lagði til að bæjarstjórn samþykki skipuritið.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.

17.
Umsókn um lóð Vesturbraut 6
Umsókn Arnarsýnar ehf. um lóð á Vesturbraut 6 lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.

18.
Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum sl. mánuð.
19.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn 2016
Engar fyrirspurnir hafa borist.