Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

233. fundur
12. janúar 2017 kl. 16:00 - 16:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Páll Róbert Matthíasson Forseti
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson Upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 791
Málsnúmer 1612001F
8.Fundargerðir SASS 2016, Sæmundur tók til máls og greindi frá að Samtök sunnlenskra sveitarfélaga veita árlega verðlaunin fyrir framúrskarandi framlag á sviði menntunar á Suðurlandi. Að þessu sinni var Framhaldskóla Austur- Skaftafellssýslu veitt verðlaunin fyrir markvisst starf að náttúrufarsrannsóknum frá 1990. Sæmundur óskaði FAS til hamingju með verðlaunin.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin var samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 792
Málsnúmer 1612002F
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin var samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 793
Málsnúmer 1612007F
6.Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2017, Sæmundur tók til máls, og vakti máls á fundi Alþingis að í fjáraukalögum fyrir 2016 voru settir fjármunir í kaup á jörðinni Fell við Jökulsárlón, sagði að það skynsamlega hugmynd að jörðin yrði tekin undir þjóðgarð.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin var samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 794
Málsnúmer 1612011F
7. Sjúkraflutningar frá Hornafirði, Sæmundur tók til máls. Lagði til að bæjarstjórn geri bókun bæjarráðs að sinni.
" Hornafjörður er afskekkt og ekki óalgengt að hringvegurinn lokist annað hvort til austurs eða vesturs, eða jafnvel í báðar áttir, vegna veðurs. Langt er í næstu aðstoð, þegar þörf er á liðsauka. Næsta sjúkrahús er Norðfjörður 360 km eða Selfoss 400 km, sem er langur akstur með alvarlega veikt fólk.
Bæjarstjórn krefst að NA-SV braut 06/24 Reykjavíkurflugvallar verði opin í neyðartilfellum á meðan aðrar lausnir eru ekki tiltækar. Það er grundvallaratriði að á hverjum tíma séu tryggðar samgöngur af landbyggðinni við Landsspítala Háskólasjúkrahús sem er hefur þá skildu að sinna neyðarþjónustu við alla landsmenn."

Forseti bar tillögu sæmundar að bókun bæjarstjórnar atkvæði.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin var samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 795
Málsnúmer 1701001F
15. Fundargerðir viðbragðaðila Austur-Skaftafellssýslu 2017, Sæmundur tók til máls og lagði til að bæjarstjórn geri bókun bæjarráðs að sinni.
"Bæjarstjórn tekur undir mikilvægi þess að Öræfaeftirlit sem Lögreglan á Suðurlandi stóð fyrir sumar og haust 2016 verði framhaldið og markaðir varanlegir fjármunir til verkefnisins. Samkvæmt fundargerð hafði eftirlitið mikil og jákvæð áhrif á svæðinu. Eftirlitið styrkti viðbragðsaðila á Kirkjubæjarklaustri, Höfn og í Öræfum. Lögreglumaður í Öræfum hefur mikil áhrif gagnvart forvörnum og skapar ákveðið öryggi fyrir íbúa sem og ferðamenn. Bæjarstjórn tekur undir mikilvægi þess að koma upp aðstöðu á svæðinu fyrir eftirlits- og viðbragðsaðila."
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin var samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 232
Málsnúmer 1611010F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
7.
Menntastefna sveitarfélagsins 2015-2030
Málsnúmer 201507038
Björn Ingi sagði að menntastefnan endurspegli hugmyndir og sýn íbúa á öllum aldri til menntamála og framtíðarþróunar í sveitarfélaginu.
Framtíðarmarkmið menntastefnunnar eru unnin úr niðurstöðum þeirra hópa sem tóku þátt í mótun hennar. Þar kemur fram að, nám miðast við framtíðina er sveigjanlegt og einstaklingsmiðað og felur í sér sköpun.
Grunnur að metnaðarfullu og faglegu skólastarfi er fólgin í áhugasömu og vel menntuðu starfsfólki. Skólarnir eru vettvangur fjölbreytileikans þar sem nemendur stunda einstaklingsmiðað nám í samræmi við þroska og getu.
Lagði til að bæjarstjórn samþykkti framlagða menntastefnu.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Menningarstefna Hornafjarðar
Málsnúmer 201504037
Björn Ingi sagði að hlúa þurfi að menningu í heild sinni, horfa til þess sem kemur sveitafélaginu til góða. Öflug og fjölbreytt menning styður samfélagið. Hlúa að þjónustuhlutverki og menningarstarfsemi Menningarmiðstöðvar, hvetja til samstarfs á sviði menningarmála, styðja við starfsemi listamanna í sveitarfélaginu og styðja við og efla fjölmenningu innan sveitafélagsins
Fagleg vinnubrögð eru höfð að leiðarljósi í því að efla menningu innan svæðisins og styrkja þannig ímynd sveitarfélagsins.
Lagði til að bæjarstjórn samþykkti framlagða menningarstefnu.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum
9.
Reglur um þátttöku í farsímakostnaði
Málsnúmer 201612077
Björn Ingi greindi frá reglum þátttöku í farsímakostnaði starfsmanna sveitarfélagsins.
Lagði til að bæjarstjórn samþykkti framlagðar reglur um þátttöku í farsímakostnaði starfsmanna.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum
10.
Reglur um styrkveitingar fræðslu- og tómstundanefndar
Málsnúmer 201612015
Björn Ingi greindi frá reglum um úthlutun styrkja fræðslu- og tómstundarnefndar. Lagði til að bæjarstjórn samþykkti framlagðar reglur um styrkveitingar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum
11.
Landskipti við Bjarnarneskirkju
Málsnúmer 201612017
Erindi frá Ríkiseignum dags. 6. október 2016 þar sem óskað er eftir samþykki bæjarstjórnar vegna fyrirhugaðra landskipta á 14275 fm. spildu með landnúmeri 159464 undir Bjarnarneskirkju.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkir landskiptin með með vísan í 13. gr. jarðarlaga nr. 81/2004 og með vísan í 48 gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Ósk um skiptingu landspildunnar úr landi Reyðarár. (Stóramýri)
Málsnúmer 201701019
Frestað.
13.
Deiliskipulag Hólabrekka
Málsnúmer 201606051
Deiliskipulagstillagan var í kynningu frá 22. sept.- 3. nóv.
Markmið við gerð deiliskipulagsins er að efla byggð á svæðinu og styrkja atvinnulíf og samhliða að auka afþreyingu í sveitarfélaginu. Þá á að breyta íbúðarhúsi/sambýli í gistihús og byggja allt að 5 gistihús fyrir ferðaþjónustu.
Skipulagsnefnd tók málið fyrir á fundi sínum þann 11. janúar.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að gera bókun skipulagsnefndar að sinni og vísi deiliskipulagstillögunni í lögformlegt ferli skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Deiliskipulag tjaldsvæðis, Hafnar
Málsnúmer 201504074
Deiliskipulagstillagan var í kynningu frá 22. sept. - 3. nóv.
Markmið deiliskipulagsins er að bæta öryggi vegfarenda og íbúa með endurskoðun á umferðarflæði og bílastæðum, bæta aðstöðu og aðbúnað fyrir ört vaxandi ferðamannastraum á Höfn, skapa möguleika á þróun og vexti núverandi þjónustustarfsemi á tjaldsvæðinu, setja skilmála fyrir allar byggingar, m.a. núverandi íbúðarbyggð við Fiskhól og bæta almennt aðgengi fyrir hreyfihamlaða.
Skipulagsnefnd tók málið fyrir á fundi sínum þann 11. janúar.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að gera bókun skipulagsnefndar að sinni og vísi deiliskipulagstillögunni í lögformlegt ferli skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Færsla á ljósleiðara við flugvöll Hafnar
Málsnúmer 201612064
Umsókn Mílu um framkvæmdaleyfi vegna breytinga á lagningu ljósleiðara dags. 13. desember 2016.
Leitað hefur verið umsagna hjá Umhverfisstofnun og ISAVIA.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd fjallaði um erindið á fundi sínum þann 11.01.2017 og telur framkvæmdina ekki háða mati á umhverfisáhrifum skipulagslaga.
Bar upp tillögu um að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið skv. 13. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Framkvæmdaleyfi ræsi á milli Fella
Málsnúmer 201608053
Framkvæmdin er unnin af sveitarfélaginu í samráði við Vatnajökulsþjóðgarð, framkvæmdin er styrkt af Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og er liður í Jöklaleið.
Skipulagsnefnd fjallaði um erindið á fundi sínum þann 11.01.2017 og telur framkvæmdina ekki háða mati á umhverfisáhrifum.
Bar upp tillögu um að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið skv. 13. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201412003
Bæjarstjóri greindi frá störfum sínum síðastliðinn mánuð.
18.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn 2017
Málsnúmer 201701012
Engar fyrirspurnir hafa borist.