Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

236. fundur
7. apríl 2017 kl. 14:00 - 16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Páll Róbert Matthíasson Forseti
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 804
Málsnúmer 1703010F
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 805
Málsnúmer 1703012F
2.Fræðslu- og tómstundanefnd
Ásgerður tók til máls um framtíðarskipulag skólastarfs í Hofgarði. Sagði hún nemendafjölda og þjónustuþörf hafa aukist í Öræfunum. Núverandi skólastjóri hættir störfum eftir þetta skólaár. Stofnaður hefur verið samráðshópur um framtíðarskipulag skólastarfsins og staða skólastjóra auglýst. Að hennar mati ætti fulltrúi úr fræðslunefnd að sitja í hópnum þar sem um er að ræða stefnumótandi vinnu.
Björn Ingi tók til máls. Greindi frá að samkvæmt upplýsingum frá fræðslustjóra óskaði fræðslunefnd ekki eftir að skipa fulltrúa í hópinn.
Gunnhildur, fulltrúi í fræðslu- og tómstundanefnd, tók til máls og greindi frá að ekki hafi mikið verið rætt innan nefndarinnar hvort nefndarmaður ætti að eiga sæti í hópnum. Eftir á að hyggja ætti að hennar mati aðili úr frælðslunefnd að vera í hópnum.
6. Vöruhús endurbætur 2017
Gunnhildur tók til máls. Óskaði eftir að ungmennahúsi yrði fundinn samastaður á meðan endurbætur eiga sér stað í Vöruhúsinu.

Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 806
Málsnúmer 1703016F
2. Menningarmálanefnd - 26
Kristján tók til máls og greindi frá nýafstaðinni ráðstefnu um safnamál. Að hans mati var ráðstefnan vel heppnuð og gagnleg þó þátttaka hafi verið dræm. Sagði mikilvægt að vinna að uppbyggingu í safnamálum en ljóst að til þess að verkið nái fram að ganga þarf fjárfesta með í vinnuna og stofna sérstakan stýrihóp. Björn Ingi tók til máls. Tók undir orð Kristjáns um vel heppnaða og góða ráðstefnu. Að hans mati er verkefnið Jökulheimar í höndum menningarmálanefndar og því ekki þörf á að stofna sérstakan stýrihóp. Sagði hann erfitt að fá fjármagn frá ríkinu í þennan málaflokk vegna niðurskurðar og benti hann á að gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs á Höfn væri í fjórða sæti varðandi uppbyggingu gestastofa skv. samþykktum um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs.
Ásgerður tók til máls og tók undir orð Kristjáns um ráðstefnuna þó að sjálfsögðu hefði verið ánægjulegra að sjá betri þátttöku.
11. Vöruhús endurbætur
Ásgerður tók til máls um tilboðsgerð í endurbætur á Vöruhúsi. Gagnrýndi hún verklagið og verkröðina við tilboðsgerðina. Einnig benti hún á að ekki koma fram nægjanlega skýrar kostnaðartölur og samanburðartölur við kostnaðaráætlun.
12. Útboð leikskóla Kirkjubrau 47
Ásgerður tók til máls. Rakti afgreiðslu bæjarráðs á útboðinu og benti á rangar upplýsingar í bókuninni þar sem fram er tekið að ekki sé um að ræða lóðakostnað en samkvæmt fyrirliggjandi gögnum sé ljóst að allur lóðakostnaður er inní kostnaðaráætluninni og því um mikil frávik að ræða á fyrstu áætlun og tilboði. Óskaði Ásgerður eftir því að meirihlutinn endurskoði þessi byggingaráform í ljósi aukins kostnaðar auk þess sem mörg önnur forgangsmál eru þörf. Lagði hún áherslu á að sameining leikskólanna í einn skóla yrði kláruð áður en farið verði í byggingarframkvæmdir. Í hennar huga virðist sem fara eigi í verkið hvað sem það kostar. Undirbúningur var hafinn við Krakkakot áður en tilboðsfrestur var runninn út og spurði hvort búið væri að ganga frá samningum við Hafnarbakka um lausar kennslustofur? Hvatti hún bæjarráðsmenn til að huga vandlega að málinu áður en gengið verði að tilboði í verkið.
Sæmundur tók til máls. Benti hann á málið hefur átt sér langan aðdraganda og fengið mikla og vandaða umfjöllun. Kannanir voru gerðar meðal foreldra og starfsfólks sem og ráðgjafi fenginn með í vinnuna. Verkið hefur verið undirbúið og unnið með hönnuðum, arkitektum, starfsmönnum og öðrum sérfræðingum. Því er ljóst að vinnan er vel ígrunduð af hálfu meirihlutans. Óskaði Sæmundur eftir að minnihlutinn gerði grein fyrir hvaða verkefni ættu að vera í forgangi að þeirra mati.
Kristján tók til máls. Sagði hann önnur forgangsmál væru t.d. framkvæmdir við götur, gangstéttar og opin svæði ásamt því að klára matreiðslustofuna í Heppuskóla. Að hans mati er þetta ekki rétti tíminn til byggingar nýs leikskóla og óþarfi að ana út í slíkt.
Ragnheiður tók til máls og benti á húsnæðisþörf fyrir fatlað fólk. Með því að byggja nýjan leikskóla er hægt að nýta Krakkakot undir málefni fatlaðs fólks. Ragnheiður lagði fram eftirfarandi bókun meirihlutans:

"Meirihluti bæjarstjórnar bendir á að undirbúningur byggingar leikskóla við Kirkjubraut 47 ásamt endurbótum á húsnæði Lönguhóla hefur átt sér langan aðdraganda. Málið hefur verið stærsta mál kjörtímabilsins og fengið mikla og vandaða umfjöllun. Frá kosningum hefur farið fram skoðanakönnun meðal starfsmanna og foreldra sem kallaði á sameiningu leikskólans undir einu þaki. Mikil vinna og undirbúningur hefur farið fram í samstafshópi hagsmunaaðila, leikskólastjóra, fulltrúa starfsfólks, foreldra, ráðgjafa og pólitíkurinnar. Hönnun og mikil undirbúningsvinna hefur einnig verið unnin af starfsmönnum sveitarfélagsins og hönnuðum. Niðurstaðan úr þessari vinnu var það verkefni sem boðið var út í febrúar 2017 með kosnaðaráætlun upp á 527 milljónir. Við opnun útboða í mars 2017 kom í ljós að lægsta tilboð var 13% yfir kostnaðaráætlun. Ákvörðun um að taka tilboði hefur ekki enn verið tekin."

Björn Ingi tók til máls og greindi frá að upplýsinga var aflað frá öðrum sveitarfélögum varðandi nýbyggingar leikskóla. Starfshópurinn heimsótti til dæmis aðra leikskóla á landinu. Benti hann á að Lönguhólar uppfylla ekki nútímakröfur varðandi leikskólabyggingar og því ljóst að burtséð frá nýbyggingu hefði þurft að fara í endurbætur á Lönguhólum. Einnig verður lóðin við leikskólann endurbætt sem mikil þörf er á. Ræddi hann einnig húsnæðisvanda fatlaðs fólks og sagði ótækt að málaflokkurinn hafi verið húsnæðislaus frá því að hann fluttist yfir til sveitarfélagsins. Sagði hann ljóst að út frá svörum Kristjáns að Framsóknarmenn legðu ekki áherslu á húsnæðismál vegna málefna fatlaðra. Að hans mati er peningunum vel varið í þessa tvo málaflokka og þarfara en að eyða 1.200 mkr. í Jökulheima.
Kristján tók til máls og gangrýndi harðlega orð Björns Inga í garð Framsóknarmanna. Greindi frá að það hafi aldrei verið ætlun Framsóknarflokksins að hlúa ekki að málefnum fatlaðra. Er hann algjörlega sammála um að bæta þarf úr í þeim málaflokki. Benti hann jafnframt á að það hafi ekki verið hans ætlun að sveitarfélagið leggði 1.200 mkr. í Jökulheima heldur kæmu tekjur af starfseminni og framlag fjárfesta á móti.
Sæmundur tók til máls. Greindi frá að margt af því sem minnihlutinn tiltekur sem forgangsverkefni eru þegar komin á fjárhagsáætlun eins og uppbygging gatna og gangstétta.
Kristján tók til máls og sagði ljóst að verkefnalistinn sem hann nefndi áðan væri ekki tæmandi enda verkefnalistinn í raun endalaus.
Ásgerður tók til máls og minnti á ósk sína um að meirihlutinn ígrundi enn betur ákvörðun sína í leikskólamálunum. Sagði hún ljóst að þegar gögn eru skoðuð að ýmsu er enn ósvarað um kostnað verkefnisins t.d. hvað varðar innanstokksmuni. Tók hún fram að framsóknarmenn væru ekki mótfallnir endurbótum á húsnæðismálum fatlaðra og að fullyrðing bæjarstjóra þar um væri röng. Minnti hún einnig á, svo að það kæmi örugglega fram, að bygging nýs hjúkrunarheimilis væri forgangsverkefni að mati Framsóknarflokksins. Sagði að hún geri sér grein fyrir að þörf er á endurbótum Lönguhóla eins og Björn Ingi benti á. Spurði hún hvað muni kosta að aðlaga húsnæði Krakkakot að þörfum málefna fatlaðra? Minnti hún á að tilboðið í nýbyggingu leikskóla er 13% yfir áætlun sem gera 67 mkr.
Ragnheiður tók til máls og sagði að umrætt verkefni við byggingu nýs leikskóla væri ekki einungis mikilvægt í huga meirihlutans heldur einnig á meðal meirihluta íbúa.
Björn Ingi tók til máls um byggingu nýs hjúkrunarheimilis. Svaraði einnig fyrirspurn Ásgerðar um kostnaðinn við breytingu Krakkakots. Sagði hann að í núverandi fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir 10 mkr. í að hanna og kostnaðarmeta þær framkvæmdir.

Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 807
Málsnúmer 1703018F
10. Hringvegurinn um Hornafjarðarfljót
Ragnheiður tók til máls og lagði til að bæjarstjórn geri eftirfarandi bókun bæjarráðs að sinni:

"Nú liggur fyrir ákvörðun ríkisins að verja 200 milljónum í framkvæmdir við nýjan veg yfir Hornafjörð. Samgönguáætlun 2015 til 2018 gerði ráð fyrir að til framkvæmdarinnar yrði varið 1.000 milljónum árið 2017 og 1.000 milljónum á árinu 2018 og að áframhald yrði síðan á framkvæmdum 2019. Bæjarstjórn fagnar því að verkið muni fá framgang en harmar að ekki skuli farið eftir samþykktri samgönguáætlun varðandi framlög. Það lítur því út fyrir að framkvæmdahraði verði ekki eins og fram kemur í samgönguáætlun 2015 til 2018. Bæjarstjórn leggur mikla áherslu á að þessar langþráðu samgöngubætur verði framkvæmdar eins hratt og mögulegt er. Til að verkið verði eins hagkvæmt og mögulegt er telur bæjarstjórn ráðlegt að framkvæmdin verði boðin út í heild. Gera má ráð fyrir að með þeim hætti nýtist þær 200 milljónir sem ætlaðar eru í verkið á þessu ári betur."

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 235
Málsnúmer 1703002F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2016
Málsnúmer 201703135
Björn Ingi lagði fram ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2016. Rekstrarniðurstaða A og B hluta á árinu var jákvæð um 380 millj. kr., en niðurstaða A hluta var jákvæð um 337 millj. kr.. Veltufé frá rekstri A og B hluta nam 580 millj. kr. en 466 millj. kr. í A hluta.
Skuldir og skuldbindingar A og B hluta námu 1.242 millj. í árslok 2016. Eiginfjárhlutfall A og B hluta nam 76%.
Skuldahlutfall sveitarfélagsins er 51,17% og er undir viðmiðunarreglu sem er 150%.
Lagði til að bæjarstjórn vísi ársreikningi 2016 til annarrar umræðu í bæjarstjórn.
Björn Ingi þakkaði bæjarfulltrúum, starfsfólki og KPMG fyrir störf sín við vinnu við gerð ársreiknings. Lagði til að bæjarstjórn vísi ársreikningi 2016 til annarrar umræðu í bæjarstjórn.
Ásgerður tók til máls. Fagnaði hún góðri niðurstöðu og þakkaði starfsfólki vel unnin störf. Í ljósi góðrar stöðu sagði hún ástæðu til að endurskoða forgangsverkefni með hliðsjón af þeim verkefnum sem íbúar lögðu til við síðustu fjárhagsáætlunargerð.
Gunnhildur tók til máls og óskaði eftir að við næstu fjárhagsáætlunargerð fái íbúar að njóta góðrar stöðu sveitasjóðs t.d. með lækkun fasteignagjalda hjá öldruðum og öryrkjum, hækkun tómstundastyrks og gjaldfrjálsan forskóla í tónslistarskólanum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði 2017
Málsnúmer 201612055
Björn Ingi gerði grein fyrir fjárhagsáætlun heilbrigðistofnunar HSU. Þar kom fram að meira svigrúm er í rekstrinum en áður.
Lagði til að bæjarstórn samþykki fjárhagsáætlun HSU á Hornafirði 2017.
Forseti bar fjárhagsáætlun HSU Hornafirði upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Aðalskipulagsbreytingar 2012-2030
Málsnúmer 201605086
Forseti gerði grein fyrir lýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi 2012-2030. Þar kemur fram að breytingin snýr einna helst að auknum ferðamannastraum til landsins.
Fyrirhugaðar breytingar fela í sér að landnotkun á 16 stöðum verður breytt, yfirleitt úr landbúnaðarlandi yfir í verslunar- og þjónustusvæði. Oft er um að ræða gistingu í núverandi húsnæði og/eða litlum húsum, sem henta 2 til 8 gestum hvert fyrir sig. Þá er einnig um stærri gistihús/hótel að ræða auk þess sem oft er stefnt að veitingarekstri samhliða.

Lagði til að bæjarstjórn samþykki lýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 og skal málsmeðferð vera skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Breyting á aðalskipulagi Skotsvæði og Moto cross braut
Málsnúmer 201609016
Forseti gerði grein fyrir tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012-2030.
Markmið með breytingunni er að vinna að gerð nýrra íþróttasvæða fyrir skotæfinga- og moto cross. Einnig verður opnuð gömul náma í Fjárhúsavík sem var felld út á við síðustu aðalskipulagsgerð.

Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi 2012-2030.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Beiðni um breytingu á aðalskipulagi og heimild til að hefja vinnu við deiliskipulag nýr afhendiastaður rafmagns í Öræfum
Málsnúmer 201703096
Erindi frá Landsnet hf. dags. 20. mars 2016.
Forseti greindi frá ósk Landsnets um breytingu á aðalskipulagi 2012-2030 vegna mannvirkis sem verður nýtt sem afhendingastaður fyrir rafmagn í Öræfum. Málið hefur fengið umfjöllun í umhverfisnefnd og skipulagsnefnd.
Bæjarstjórn leggur áherslu á að landsvæðið er mjög sérstakt og að gæta skuli að staðsetnigu mannvirkisins þar sem Salthöfði er friðlýst svæði og Kvíármýrarkambur og aðrar jökulöldur við Kvíárjökul eru einhverjar stærstu og sérstæðustu jökulöldur á landinu og eru á náttúruminjaskrá.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að hefja vinnu við breytingu á að alskipulagi sveitarfélagsins skv.36.gr. skipulagslaga og heimili gerð deiliskipulags á svæðinu.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Óveruleg breyting á aðalskipulagi Stóramýri
Málsnúmer 201703092
Forseti greindi frá óverulegri breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012-2030.
Breytingin er tvíþætt og felst í leiðréttingu á skilgreiningu stærðar frístundasvæðis F1 og að nafni Stórumýri verði breytt í Aðalból.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að heimila óverulega breytingu á aðalskipulagi og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 36. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Ósk um breytingu á aðalskipulagi og að hefja vinnu við deiliskipulag virkjun í Birnudal
Málsnúmer 201703131
Erindi dags. 30. mars frá landeigendum að Kálfafellsstað, ósk um breytingu á aðalskipulagi vegna virkjunaráforma.
Forseti greindi frá að skipulagsnefnd hefur fjallað um erindið og leggur til að unnin verði breyting á aðalskipulagi 2012-2030 vegna virkjunaráforma.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að heimila breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins og heimili gerð deiliskipulags á svæðinu.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Ósk um óverulega breytingu á aðalskipulagi athafnasvæði á Höfn
Málsnúmer 201703059
Erindi frá Svövu Mjöll Jónasardóttur dags. 11.03 2017, ósk um óverulega breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Skipulagsnefnd hefur fjallað um erindið og mælir ekki með að farið verði í breytingu sem feli í sér gistiþjónustu á svæðinu.
Lagði til að bæjarstjórn synji umsókn um óverulega breytingu á aðalskipulagi og geri bókun skipulagsnefndar að sinni.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

14.
Breyting á deiliskipulagi Leiran
Málsnúmer 201609137
Grenndarkynning hefur farið fram frestur til að skila inn athugsemdum var til 13. febrúar 2017. Ein athugasemd barst vegna númera húsa og var tekið tillit til hennar að hluta.
Helstu breytingar á deiliskipulaginu eru: Mænisstefna er gefin frjáls. Lóðanúmer á Hagaleiru og Álaleiru
uppfærist og verður án bókstafa endingar. Hagaleira 2 og 4 verður að þrem lóðum.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna þar sem hún samræmist aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Deiliskipulag skotsvæði Höfn
Málsnúmer 201602030
Tillaga að deiliskipulagi fyrir skotsvæði hefur fengið umfjöllun í skipulagsnefnd.
Markmið með gerð deiliskipulagsins er að efla íþróttastarf í sveitarfélaginu og tryggja fjölbreytni og
möguleika til skipulegra skotæfinga. Byggja aðstöðu sem fullnægir öryggiskröfum á svæði þar sem hægt er að stunda alþjóðlegar greinar skotíþrótta sem stundaðar eru með skotvopnum.
Deiliskipulagstillagan er auglýst samhliða breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagstillöguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Deiliskipulag Moto-cross braut
Málsnúmer 201602032
Tillaga að deiliskipulagi fyrir Moto-crossbraut hefur fengið umfjöllun í skipulagsnefnd.
Markmið með gerð deiliskipulagsins er að efla íþróttastarf í sveitarfélaginu og tryggja fjölbreytni og
möguleika til skipulegra æfinga. Ennfremur að færa til svæði sem valda hávaðamengun fjær íbúabyggð.
Deiliskipulagstillagan er auglýst samhliða breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagstillöguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Deiliskipulag: Náma í Djúpá
Málsnúmer 201703068
Erindi frá Vegagerðinni dags. 20. mars 2017 þar sem óskað er eftir unnið verði að gerð deiliskipulags.
Skipulagsnefnd hefur fjallað um málið og samþykkti gerð deiliskipulags vegna námu í Djúpá.
Deiliskipulagsgerðin samræmist aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að unnið verði deiliskipulag fyrir svæðið skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Deiliskipulag: Náma í Hornafjarðarfljótum
Málsnúmer 201703069
Erindi frá Vegagerðinni dags. 20. mars 2017 þar sem óskað er eftir unnið verði að gerð deiliskipulags.
Skipulagsnefnd hefur fjallað um málið og samþykkti gerð deiliskipulags vegna námu í Hornafjarðarfljótum.
Deiliskipulagsgerðin samræmist aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að unnið verði deiliskipulag fyrir svæðið skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Deiliskipulag: Náma í Skógey
Málsnúmer 201703070
Erindi frá Vegagerðinni dags. 20. mars 2017 þar sem óskað er eftir unnið verði að gerð deiliskipulags.
Skipulagsnefnd hefur fjallað um málið og samþykkti gerð deiliskipulags vegna námu í Skógey.
Deiliskipulagsgerðin samræmist aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að unnið verði deiliskipulag fyrir svæðið skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Deiliskipulag: Náma ofan Einholtsvatna
Málsnúmer 201703071
Erindi frá Vegagerðinni dags. 20. mars 2017 þar sem óskað er eftir unnið verði að gerð deiliskipulags.
Skipulagsnefnd hefur fjallað um málið og samþykkti gerð deiliskipulags vegna námu ofan Einholtsvatna.
Deiliskipulagsgerðin samræmist aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að unnið verði deiliskipulag fyrir svæðið skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
21.
Ósk um að hefja vinnu við deiliskipulag Brunnhól
Málsnúmer 201703079
Erindi frá Jóni Kristni Jónssyni dags. 8. mars 2017 þar sem óskað er eftir að hefja vinnu að gerð deiliskipulags fyrir Brunnhól að Mýrum.
Skipulagsnefnd hefur fjallað um erindið og lagði til að heimila gerð deiliskipulags skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Áformin eru í samræmi við aðalskipulag sveitarfélagsins.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að hafin verði vinna að gerð deiliskipulagi fyrir svæðið.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
22.
Ósk um að hefja vinnu við deiliskipulag Hótel Höfn
Málsnúmer 201703123
Erindi dags. 20. mars frá eigendum Hótel Hafnar þar sem óskað er eftir að breyta deiliskipulagi með þeim tilgangi að stækka hótelið.
Skipulagsnefnd hefur fjallað um erindið og lagði til að heimila gerð deiliskipulags skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Áformin eru í samræmi við aðalskipulag sveitarfélagsins.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að hafin verði vinna að gerð deiliskipulags fyrir svæðið.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
23.
Grenndarkynning: Nýtt íbúðarhús Kirkjubraut 9
Málsnúmer 201703037
Grenndarkynning hefur farið fram þar sem ekki er til deiliskipulag af svæðinu, frestur til að skila inn athugsemdum var til 21. mars 2017.
Þrjár athugasemdir bárust og var brugðist við þeim.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna þar sem hún samræmist aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum
24.
Umsókn um lóð Víkurbraut 10
Málsnúmer 201608075
Grenndarkynning hefur farið fram frestur til að skila inn athugsemdum var til 25. mars 2017. Ein athugasemd barst og hefur skipulagsnefnd brugðist við henni.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna og geri svar skipulagsnefndar að sínu.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum
25.
Grenndarkynning: Nýtt íbúðarhúsnæði Hagatún 16
Málsnúmer 201703005
Grenndarkynning hefur farið fram þar sem ekki er til deiliskipulag af svæðinu, frestur til að skila inn athugsemdum var til 4. apríl 2017.
Ein athugasemd barst og var brugðist við henni.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna þar sem hún samræmist aðalskipulagi sveitarfélagsins og geri svar skipulagsnefndar að sínu.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum
26.
Hafnarbraut 4 og 6: Fyrirspurn um skipulag
Málsnúmer 201611101
Grenndarkynning vegna óverulegra breytinga á deiliskipulagi Hafnarvík Heppa hefur farið fram, frestur til að skila inn athugsemdum var til 31. mars 2017.
Ein athugasemd barst og var brugðist við henni.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna og geri svar skipulagsnefndar að sínu.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum
27.
Umsókn um lóð Fákaleira 11
Málsnúmer 201703119
Umsókn Höllu Beic Sigurðardóttur um lóð að Fákaleiru 11.Bæjarráð mælti með lóðaúthlutuninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
28.
Umsókn um lóð Hagaleira 8
Málsnúmer 201703134
Umsókn Hönnu Guðrúnar Kolbeinsdóttur um lóð að Hagaleiru 10 var8. Bæjarráð mælti með úthlutuninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
29.
Kosningar í nefndir
Málsnúmer 201501002
Menningarmálanefnd.
Jóhann Klemens Björnsson verður varamaður í stað Ármanns Friðrikssonar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
30.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201412003
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum síðastliðinn mánuð.
31.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn 2017
Málsnúmer 201701012
Engar fyrirspurnir hafa borist.