Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

247. fundur
8. mars 2018 kl. 16:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir Forseti
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson Upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 846
Málsnúmer 1802006F
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 847
Málsnúmer 1802009F
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 848
Málsnúmer 1802013F
1. Fræðslu- og tómstundanefnd nr. 42. Kristján tók til máls og óskaði eftir upplýsingum um gang mála við landsmótsundirbúning 2019 benti hann á að langt hafi verið síðan fundargerðir hafi komið undir fund nefndarinnar. Björn Ingi greindi frá að undirbúningshópur hafi fundað fyrir ca. 2 vikum og þar var farið yfir endurbætur landsmótsflata og fótboltavalla. Sagði hann að nefndin telur að hægt sé að koma fyrir 8 fótboltavöllum í kring um Víkurbraut. Hann sagði að góður gangur í undirbúningsvinnu og upplýsti að fundargerð verði sett fyrir næsta fund nefndarinnar.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 849
Málsnúmer 1803002F
2. Atvinnumálanefnd nr. 38. Ragnheiður tók til máls undir liðnum fjallskilamál, hún greindi frá vinnu við nýja fjallskilasamþykkt fór yfir áskoranir og leiðir til að leysa þær og fór yfir ferli vinnunnar.

5. Félagsmálanefnd Hornafjarðar nr. 294. Ásgerður tók til máls undir 11. lið fundargerðarinnar og sagði að misskilja mætti bókun bæjarráðs um málið, sagði umræðuna hafa verið um þörf fyrir húsæði heimaþjónustudeildar og dagvist fatlaðra.
Sagði að engin gögn hafi verið með málinu, óskaði eftir gögnum og umræðu um málið, nauðsynleg að vinna að málinu í samstarfi við starfsmenn deildarinnar.
Sæmundur tók undir með Ásgerði sagði bókun bæjarráðs óheppilega og sagði að málið yrði tekið fyrir á næsta bæjarráðsfundi ásamt nauðsynlegum gögnum.

8. Umsögn um frumvarp: Hornafjarðarflugvöllur mál nr. 149. Sæmundur tók til máls og lagði til að bæjarstjórn gerði bókun bæjarráðs að sinni."Bæjarstjórn Hornafjarðar leggur þunga áherslu á að þessi þingsályktunartillaga verði tekin til afgreiðslu og samþykkt. Bæjarstjórn vísar jafnframt í fyrri umsagnir sínar um að minni vélum í millilandaflugi og ferjuflugi verði veitt heimild til að lenda á Hornafjarðarflugvelli. Til þess þarf að styrkja starfsemi flugvallarins enn frekar. Það mun efla atvinnulíf á Hornafirði, uppbyggingu og vöxt Vatnajökulsþjóðgarðs auk þess að auka öryggi í flugi yfir landið."

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samhljóða samþykkt.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 246
Málsnúmer 1802001F
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
6.
Ráðning byggingarfulltrúa
Málsnúmer 201801106
Sæmundur greindi frá ráðningu byggingafulltrúa Bartosz Krzysztof Skrzypkowski, ráðning hans var samþykkt í bæjarráði. Sæmundur óskaði eftir staðfestingu bæjarstjórnar þar sem um lykilstjórnanda er að ræða.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum.

7.
Ósk um umsögn um að Brunnavellir 1 verði gerðir að lögbýli
Málsnúmer 201709096
Erindi Guðrúnar Sigurjónsdóttur, dags. 7. júní 2017 þar sem óskað var eftir umsögn sveitarfélagsins um stofnun lögbýlisins Brunnavellir 1 , landnúmer 194331 skv. landaskiptagerð dags. 27. janúar 2003.
Sæmundur lagði til að bæjarstjórn geri ekki athugasemd við að stofnað verði lögbýli að Brunnavöllum 1 í samræmi við framlögð gögn.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.


8.
Deiliskipulag Brunnhóll
Málsnúmer 201710005
Deiliskipulagið nær yfir um 10 ha. landspildu úr landi Brunnhóls og Árbæjar. Markmið deiliskipulagsins er að skilgreina tvo byggingarreiti með samanlagða byggingarheimild upp á 2800m².Deiliskipulagstillagan var í kynningu frá 19. október til 1. desember 2017. Athugasemdir bárust og var brugðist við þeim. Skipulagsnefnd lagði til að nýtt deiliskipulag fyrir Brunnhól yrði samþykkt á fundi sínum þann 3. janúar.
Sæmundur lagði til að bæjarstjórn samþykki nýtt deiliskipulag fyrir Brunnhól og vísi því í lögformlegt ferli skv. skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Stóralág 2: Óveruleg breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 201709038
Óveruleg breyting á aðalskipulagi 2012-2030 felst í að heimilað verði tjaldsvæði samhliða sumarbústaðarbyggð.Skipulagsnefnd lagði til að tillagan yrði samþykkt á fundi sínum þann 28. febrúar.
Sæmundur lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Deiliskipulag Stórulág
Málsnúmer 201802086
Deiliskipulagstillagan fjallar rúmlega 11,3 ha landspildu úr landi Stórulágar 2. Deiliskipulagið tekur til 12 lóða á frístundasvæði auk tjaldsvæðis meðfram Myllulæk að norðanverðu. Í gildi er deiliskipulag á svæðinu frá október 1994 og fellur það úr gildi með gildistöku þessa skipulags. Unnið er að óverulegri breytingu á aðalskipulagi samhliða deiliskipulagsvinnu.Skipulagsnefnd lagði til að tillagan verði samþykkt á fundi sínum þann 8. febrúar.
Sæmundur lagði til að deiliskipulagstillagan verði samþykkt og vísað í lögformlegt ferli skv. 40. og 41 gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Deiliskipulag Hótel Höfn
Málsnúmer 201801114
Ósk um að hefja vinnu við deiliskipulag fyrir Hótel Höfn, unnin hefur verið uppdráttur og greinargerð sem liggur fyrir fundinum. Skipulagsnefnd fjallað um erindið á fundi sínum þann 28.febrúar og lagði til að farið verði í ferli á nýju deiliskipulagi.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að hefja deiliskipulagsvinnuna og að fyrirliggjandi tillaga verði auglýst skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Breyting á deiliskipulagi: Hof í Öræfum
Málsnúmer 201802080
Tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hofi í Öræfum lögð fram.Áform eru um byggingu raðhúsa að Borgartúni 1, 2 og 14 í stað einbýlishúsa. Einnig eru áform um að byggja einbýlishús á stað sem skilgreindur er undir sumarhús. Skipulagsnefnd lagði til að farið verði í vinnu að breytingu á deiliskipulagi á fundi sínum þann 28. febrúar.
Forseti lagði til að fyrirliggjandi tillaga verði auglýst skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum
13.
Ósk um deiliskipulagsbreytingu: Flugvöllur í landi Skaftafells/Freysnes
Málsnúmer 201802039
Erindi eigenda Freysness og lóðarhafa dags. 2. febrúar þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi við Flugvöll í landi Skaftafells. Skipulagsnefnd lagði til að heimila breytingu á deiliskipulaginu á fundi sínum þann 28. febrúar.
Forseti lagði til að bæjarstjórn heimili breytingu á deiliskipulagi Flugvallar í landi Skaftafells skv. 43. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Umsókn um efnistökuleyfi: Varnargarðar í Haukafelli
Málsnúmer 201802076
Umsókn frá Landgræðslu Ríkisins dags 21. febrúar um efnistökuleyfi í landi Svínafells. Til stendur að vinna grjót úr námu E40 í landi Svínafells og E43 í landi Viðborðssels. Fyrirhugað er að taka allt að 20.000 m³ úr E43 og 15.000 m³ úr E40. Grjótið mun verða notað í varnargarða í Kolgrafardalsá sem skemmdust vegna vatnselgs árið 2017.Skipulagsnefnd lagði til að útgáfu framkvæmdaleyfis með því skilyrði að afla skuli leyfi landeigenda áður en efnistakan hefst á fundi sínum þann 28. febrúar.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfi með því skilyrði að samþykki landeigenda fáist skv. 13. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201709046
Bæjarstjóri greindi frá störfum sínum síðastliðinn mánuð.
16.
Fyrirspurnir: bæjarstjórn 2018
Málsnúmer 201801024
Engar fyrirspurnir hafa borist.