Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

249. fundur
9. maí 2018 kl. 16:00 - 17:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir Forseti
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 854
Málsnúmer 1804006F
1.Umhverfisnefnd - 40
Sæmundur tók til máls um strandhreinsunardaginn sem fram fór síðastliðinn laugardag og þakkaði skipuleggjendum og þátttakendum. Benti einnig á að plokkarar geti skilað rusli til Áhaldahússins þeim að kostnaðarlausu.
Ásgerður tók til máls undir 3. lið um umhverfisviku. Harmaði hún að umhverfisvikan hafi ekki fengið nægjanlega kynningu t.d. á vef sveitarfélagsins. Sagði mikilvægt að auglýsa það að Áhaldahúsið taki við sorpi frá plokkurum.
Ragnheiður tók til máls. Fagnaði auknum áhuga íbúa á umhverfismálum almennt og aukinni þátttöku þeirra í verkefnum sem snúa að umhverfismálum t.d. strandhreinsunardeginum og Pokastöðinni. Ræddi einnig fyrirhugaðan félagslandbúnað í sveitarfélaginu og hvatti íbúa til að taka þátt. Fór einnig yfir umhverfisdagatal SASS.
Björn Ingi tók til máls um umhverfisvikuna og benti á að hún hafi verið vel auglýst innan sveitarfélagsins með tölvupósti til forstöðumanna og í Eystrahorni.
3. Fab Lab: Samningur
Ásgerður tók til máls og óskaði eftir upplýsingum um stöðu mála.
Björn Ingi tók til máls og greindi frá samtali við atvinnu- og ferðamálaráðherra sem var í heimsókn á Höfn nú á dögunum.
4. Humarhátíð 2018
Ragnheiður tók til máls um nýja Humarhátíðarnefnd og fagnaði frumkvæði íbúa við skipulagningu.
5. Félagsheimili sveitarfélagsins
Ásgerður tók til máls og óskaði eftir upplýsingum um hvar málið er statt, þ.e. hvort bæjarstjóri hafi fundað með kvenfélagskonum.
Björn Ingi tók til máls og upplýsti að fundur með kvenfélagskonum hafi ekki átt sér stað enn sem komið er.
8. Fundargerðir stjórnar SASS 2018
Sæmundur tók til máls um fyrri úthlutun 2018 úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands og benti á hversu margar umsóknir eru á Suðurlandi miðað við aðra landshluta. Fór yfir úthlutanirnar og hvatti aðila sem ekki fengu úthlutað að halda áfram að sækja um. Benti á að sjóðurinn úthlutar styrkjum tvisvar á ári.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 855
Málsnúmer 1804008F
1. 1804007F - Fræðslu- og tómstundanefnd - 44
Sæmundur tók til máls og sagði frá nýyfirstöðnum kosningafundi á vegum ungmennaráðs og fagnaði hann framtakinu.
2. Menningarmálanefnd - 40
Ásgerður tók til máls um útgáfu Skaftfellings. Sagði að erfiðlega hafi gengið að fá fólk í ritnefnd. Sagði að kaup og kjör kjörinna fulltrúa væru í endurskoðun og benti á þörfina á að hafa aðra hópa einnig í huga sem starfa fyrir sveitarfélagið eins og fyrrnefnda ritnefnd.
Björn Ingi tók til máls og greindi frá að ákveðið hafi verið að skipa ekki í ritnefnd Skaftfellings heldur fá áhugasamt fólk í þá vinnu. Um hefur verið að ræða ólaunað starf. Sagði ástæðu til að endurskoða það fyrirkomulag sem og störf ungmennaráðs.
4. Heilsuefling starfsmanna sveitarfélagsins
Sæmundur tók til máls og fagnaði þeirri ákvörðun að styrkja starfsmenn til heilsueflingar.
5. Olíutrektir fyrir heimili
Sæmundur greindi frá ákvörðun bæjarráðs að dreifa olíutrektum til áhugasamra.
10 Umsögn: frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða 425. mál
Ragnheiður tók til máls um frumvarp til laga um breytingar á stjórn fiskveiða. Ræddi öryggismál strandveiðisjómanna þar sem kerfið stuðli að ólympískum strandveiðum. Harmar hún einnig þá þætti frumvarpsins sem rýra möguleika til eflingar á strandveiðum hringinn í kringum landið. Beindi hún þeirri spurningu til Ríkisstjórnarinnar hvernig þetta kerfi geti gagnast okkur hér á Suð-Austurlandi?
Björn Ingi tók til máls og tók undir orð Ragnheiðar. Sagði mikilvægt að sjónarmiðum svæðisins verði komið á framfæri.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 856
Málsnúmer 1804012F
5. Útboð Vöruhús endurbætur 2018 2. áfangi.
Ragnheiður tók til máls og fagnaði því að haldið verði áfram með endurbætur á Vöruhúsinu.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 857
Málsnúmer 1805002F
1. Atvinnumálanefnd - 40
Ragnheiður tók til máls. Greindi frá því að nefndin fari reglulega yfir stöðu atvinnumála í sveitarfélaginu. Sagði stöðuna góða þar sem atvinnuleysi er vart mælanlegt. Sagði að skortur væri á vinnuafli og því mikilvægt að halda áfram aðgerðum til að hvetja til húsbygginga svo sveitarfélagið geti haldið áfram að vaxa og dafna.
Ræddi einnig kynningarmál sveitarfélagsins og benti á að samningur við Ríki Vatnajökuls renni út um næstu áramót og mikilvægt að huga að framtíð kynningarmála hjá sveitarfélaginu.
11. Tímabundinn afsláttur af lóðagjöldum
Sæmundur tók til máls og greindi frá samþykkt bæjarráðs að framlengja þeim um 12 mánuði. Benti einnig á mikilvægi þess að styrkja uppbyggingu í dreifbýli t.d. með því að koma á byggingastyrkjum til íbúa líkt og Djúpavogshreppur gerði á yfirstandandi kjörtímabili.
Björn Ingi tók til máls og tók undir hugmyndir Sæmundar um aðgerðir til að styðja við uppbyggingu í dreifbýli.
Ásgerður tók til máls og tók undir orð Sæmundar og Björns Inga um áframhaldandi aðgerðir til að hvetja til frekari uppbyggingar í sveitarfélaginu öllu.
12. Fundur með heilbrigðisráðherra
Björn Ingi tók til máls og greindi frá að fyrirhugað er að undirrita 17. maí nk. samning við Heilbrigðisráðuneytið um byggingu nýs hjúkrunarheimilis. Áætlað er að framkvæmdum ljúki í lok árs 2021.
Ásgerður tók til máls og fagnaði fyrirhugaðri undirritun samnings sem er stór áfangi í langri baráttu fyrir bættum aðstæðum hér í heimabyggð.
13. Öræfajökull : jarðskjálftar og áætlanir
Björn Ingi tók til máls og greindi frá fundi sem fram fór í gær með íbúum Öræfa og viðbragðsaðilum vegna jarðhræringa á svæðinu og jarðsigs á Svínafellsheiði sem getur leitt til berghlaups. Benti á að frekari upplýsingar er að finna á vef Veðurstofunnar.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 248
Málsnúmer 1804003F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2017
Málsnúmer 201804027
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri fór yfir ársreikning 2017 sem var lagður fram á síðasta bæjarstjórnarfundi.
Engar breytingar hafa verið gerðar á ársreikningi frá síðustu umræðu í bæjarstjórn.
Rekstrarniðurstaða A og B hluta á árinu var jákvæð um 494 millj. kr., en niðurstaða A hluta var jákvæð um 425 millj. kr.. Veltufé frá rekstri A og B hluta nam 688 millj. kr. en 559 millj. kr. í A hluta. Skuldir og skuldbindingar A og B hluta námu 1.228 millj. í árslok 2017. Eiginfjárhlutfall A og B hluta nam 77%. Skuldahlutfall sveitarfélagsins er 47% og er undir viðmiðunarreglu sem er 150%.

Björn Ingi þakkaði bæjarfulltrúum, starfsfólki og KPMG fyrir störf sín við vinnu við gerð ársreiknings.
Lagði til að ársreikningur sveitarfélagsins yrði samþykktur.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Tímabundinn afsláttur af lóðagjöldum
Málsnúmer 201805019
Forseti gerði grein fyrir framlengingu um eitt ár á reglum um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda sem voru settar þann 9. apríl 2015 til tveggja ára og framlengt um eitt ár 2017.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að framlengja reglur um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda um eitt ár. Forseti bar tillöguna upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Breyting á aðalskipulagi Skotsvæði og Moto cross braut
Málsnúmer 201709111
Aðalskipulagsbreytingin var send Skipulagsstofnun og gerði stofnunin athugasemdir við uppdrátt. Brugðist hefur verið við athugasemdum Skipulagsstofnunar.Skipulagsnefnd lagði til að aðalskipulagsbreytingin yrði samþykkt á fundi sínum þann 2. maí.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi aðalskipulagsbreytingu fyrir skotsvæði og motocrossbraut og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Aðalskipulagsbreyting: Reynivellir II
Málsnúmer 201709275
Kynningarferli fyrir aðalskipulagsbreytingu að Reynivöllum II er lokið, athugasemdir bárust og hefur verið brugðist við þeim. Skipulagsnefnd lagði til að aðalskipulagsbreytingin yrði samþykkt á fundi sínum þann 2. maí.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að gera svör skipulagsnefndar að sínum og samþykki aðalskipulagsbreytingu fyrir Reynivelli II og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Deiliskipulag Moto-cross braut
Málsnúmer 201709203
Kynningarferli fyrir deiliskipulag Mótor-cross er lokið og hefur verið sent Skipulagsstofnun og gerði stofnunin athugasemdir við skipulagið sem brugðist hefur verið við. Skipulagsnefnd lagði til að nýtt deiliskipulag verði samþykkt á fundi sínum þann 2. maí.
Forseti lagði til að deiliskipulagið verði samþykkt og vísað í lögformlegt ferli skv. 42 gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Framkvæmdaleyfisumsókn: Umferðarstýring við Jökulsárlón
Málsnúmer 201805002
Umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi vegna lagfæringar á aðkomu við brúnna á Jökulsárlóni lögð fram. Fyrirhugaðar framkvæmdir falla undir framkvæmdaflokk C skv. lög um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið skv. 13. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Breyting á deiliskipulagi: Hof í Öræfum
Málsnúmer 201802080
Óveruleg breyting á deiliskipulagi að Hofi í Öræfum, helstu breytingar snúa að aðkomu að lóðum 1.2 og 14 verður sunnan megin og heimilt verður að byggja allt að 350 m2. Grenndarkynningu er lokið, athugasemdafrestur var til 13. apríl, engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd lagði til að óveruleg breyting á deiliskipulaginu yrði samþykkt á fundi sínum þann 2. maí.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi við Hof og vísi því í lögformlegt ferli skv. 44. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Breyting á deiliskipulagi: Útbær á Höfn
Málsnúmer 201802099
Ósk um að hefja vinnu við breytingu á deiliskipulagi útbæ, unnin hefur verið uppdráttur og greinargerð sem liggur fyrir fundinum. Helstu breytingar eru að möguleiki verður á að lóðir verða sameinaðar og byggingarmagni er breytt. Skipulagsnefnd fjallaði um erindið á fundi sínum þann 2. maí og lagði til að farið verði í ferli að breytingu á deiliskipulaginu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að hefja deiliskipulagsvinnuna og að fyrirliggjandi tillaga verði auglýst skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Beiðni um landskipti fyrir Dilksnesland/lóð2
Málsnúmer 201804013
Erindi frá Kristjáni Jónssyni kt 280544-4189, eiganda jarðarinnar Dilksnesland/Lóð 2, landnúmerið 159474, óskar eftir umsögn og samþykki fyrir landskiptum á jörðinni samkvæmt uppdrætti sem fylgdi með erindinu. Spildan sem skipt er úr landi Dilksnesland/Lóð 2 er nefnd Skjólshólar landnúmer 226461 og fastanúmer 250-0058, landskiptin eru vegna áforma um að skipta þessari lóð út úr upprunalandinu og afsala.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki landskiptin með vísan í 13. gr. jarðarlaga nr. 81/2004 og með vísan í 48 gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Umsókn um lóð Hagaleira 4 og 6
Málsnúmer 201804108
Umsókn Finns Karls Vignissonar og Sveins Rafnkelssonar um lóðir að Hagaleiru 4 og 6. Bæjarráð mælti með úthlutun lóðanna.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkti með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
16.
Umsókn um lóð: Hagaleira 2
Málsnúmer 201805015
Umsókn Bjarna Þórs Jakobssonar um lóð að Hagaleiru 2. Bæjarráð mælti með úthlutun lóðarinnar.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkti með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
17.
Lóðaumsókn: Borgartún 1 og 2
Málsnúmer 201805017
Umsókn Straumhvarfs ehf. um lóð að Borgartúni 1 og 2 að Hofi. Bæjarráð mælti með úthlutun lóðarinnar.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkti með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
18.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201709046
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum síðastliðinn mánuð.
19.
Fyrirspurnir: bæjarstjórn 2018
Málsnúmer 201801024
Engar fyrirspurnir hafa borist.