Bæjarstjórn Hornafjarðar
251. fundur
6. júní 2018
kl.
16:00
-
16:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
1. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson
1. varamaður
Páll Róbert Matthíasson
1. varamaður
Hjálmar Jens Sigurðsson
2. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 858
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 859
6. Laun kjörinna fulltrúa og nefndarmanna
Sæmundur tók til máls um breytingar á kjörum kjörinna fulltrúa. Óformleg umræða hefur farið fram í bæjarráði og bæjarstjórn um að dreifa formennsku á kjörna fulltrúa bæjarstjórnar í fastanefndum milli meiri og minni hluta.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Sæmundur tók til máls um breytingar á kjörum kjörinna fulltrúa. Óformleg umræða hefur farið fram í bæjarráði og bæjarstjórn um að dreifa formennsku á kjörna fulltrúa bæjarstjórnar í fastanefndum milli meiri og minni hluta.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 860
1. Rekstrar- og stjórnsýsluúttektir
Björn Ingi tók til máls um álag í stjórnsýslunni vegna aukinna verkefna. Mannabreytingar hafa verið í lykilstörfum hjá sveitarfélaginu síðustu ár. Sagði hann markmið úttektarinnar að styrkja stjórnsýsluna í ljósi aukinna verkefna og krafna t.d. til nýrrar byggingalöggjafar. Úttektin er í þremur þrepum og er tveimur þeirra lokið, þ.e. viðtöl við lykilstarfsmenn og vinnustofa. Það verður síðan verkefni nýrrar bæjarastjórnar að taka afstöðu til tillagna til úrbóta.
5. Fræðslu- og tómstundanefnd - 45
Gunnhildur tók til máls um skýrslu starfsmanns Þrykkjunnar. Þakkaði hún Adisu fyrir vel unnin störf með von um að hún snúi aftur til starfa síðar hjá sveitarfélaginu. Jafnframt þakkaði Gunnhildur kjörnum fulltrúum samstarfið á kjörtímabilinu og óskaði nýrri bæjarstjórn til hamingju með kjörið.

4.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 249
Fundargerð lögð fram til kynningar.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 250
Fundargerð lögð fram til kynningar.
6.
Fjárhagsáætlun 2018: Viðauki II
Lagður er fram viðauki II við fjárhagsáætlun 2018. Viðaukinn er vegna viðbóta í malbiksframkvæmdum og einnig framkvæmdum vegna vegklæðninga. Einnig eru færðar á deildir, ákvarðanir bæjarráðs eins og sjá má í fundargerðum þess. Um er að ræða 11,4 milljónir vegna rekstrarverkefna og 95 milljónir vegna fjárfestinga. Kostnaði vegna viðauka II er mætt með lækkun á handbæru fé. Handbært fé í ársbyrjun 2018 nam 245,9 milljónum og er 224,9 milljónum hærra en áætlað var í upphaflegri áætlun.
Forseti bar viðauka II upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Ársreikningur HSU Hornafirði 2017
Afkoma af rekstri stofnunarinnar á árinu 2017 var jákvæð um 13,7 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé stofnunarinnar í árslok var jákvætt um 15,8 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Vísað er til ársreiknings varðandi ráðstöfun afkomu ársins og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum. Óvissa ríkir um endanlegt uppgjör á lífeyrisskuldbindingu stofnunarinnar en stjórnendur eru að leita samninga við ríkið vegna þessa. Það er mat stjórnenda að lífeyrisskuldbinding stofnunarinnar hvíli að öllu leyti á ríkinu. Af þeim sökum er lífeyrisskuldbinding ekki færð í ársreikning stofnunarinnar.
Lagt til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi ársreikning. Forseti bar tillöguna upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Laun kjörinna fulltrúa og nefndarmanna
Frá haustinu 2017 hefur bæjarráð farið yfir kjör bæjarfulltrúa og nefndarmanna hjá sveitarfélaginu. Á fundi bæjarráðs nr. 853 var bæjarstjóra falið að fara yfir reglur um kjör fulltrúa. Á fundi nr. 859 var lögð fram endurskoðuð samþykkt um kjör fulltrúa sveitarfélagsins. Kjör bæjarfulltrúa gerð greinilegri og hækkun lögð til fyrir setur í nefndum sveitarfélagsins. Greiðsla fyrir setinn fund hækki úr 13.838 kr. í 22.024 kr.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi samþykkt um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Bæjarstjóri: heimild til auglýsingar á stöðu
Heimild til að auglýsa stöðu bæjarstjóra, þar sem nýr meirihluti hefur ekki tekið til starfa. Óskað eftir heimild fyrir síðustu helgi til að auglýsa stöðu bæjarstjóra.
Forseti bar erindið upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Fákaleira 7: umsókn um lóð
Umsókn Olgeirs Aðalsteins Jóhannessonar um lóð að Fákaleiru 7. Bæjarráð mælti með úthlutun lóðarinnar.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar. Bæjarstjórn samþykkti með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
11.
Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri greindi frá störfum sínum síðastliðinn mánuð.
12.
Fyrirspurnir: bæjarstjórn 2018
Engar fyrirspurnir hafa borist.