Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

253. fundur
23. ágúst 2018 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Guðbjörg Lára Sigurðardóttir aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
Íris Heiður Jóhannsdóttir 2. varamaður
Páll Róbert Matthíasson
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson Upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 861
Málsnúmer 1805014F
6. Fasteignagjöld 2019. Sæmundur tók til máls og spurði um vinnu að gerð sviðsmynda vegna lækkunar fasteignagjalda. Ólöf greindi frá að vinnunni hafi seinkað vegna annríkis fjármálastjóra og að hún verði unnin samhliða fjárhagsáætlunargerð 2019. Ásgerður tók til máls og sagði að í stefnuskránni hafi verið talað um lækkun á fasteignagjöldum en líka væri verið að skoða lækkun á öðrum gjöldum samkvæmt ábendingum. Einnig verði hugað að jafnræði milli dreifbýlis og þéttbýlis.
19. Aukaaðalfundur SASS, sem haldin var í Vestmannaeyjum, Sæmundur gerði athugasemd um hvernig meirihlutinn hagaði skipan fulltrúa sveitarfélagsins í kjörnefnd vegna aðalfundar SASS. Samþykktir SASS kveða á að Sveitarfélagið Hornafjörður megi skipa 5 fulltrúa á aðalfundi SASS. Hann benti á að fyrrverandi meirihluti skipaði fulltrúa þáverandi minnihluta í þetta sæti. Það væri mikilvægt að deifa ábyrgð og leita til minnihlutans þar sem mikil reynsla býr í þeim hópi.
Ásgerður sagði gott að fólk hafi skoðun á málinu en það hafi endað á þennan hátt.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 862
Málsnúmer 1806009F
2. Fræðslu- og tómstundanefnd 46. Íris tók til máls undir 9. lið fundargerðarinnar, sagði nefndina hafa farið í heimsókn á nýja leikskólann og fagnaði nýju byggingunni, aðbúnaður fyrir starfsfólk og nemendur er til fyrirmyndar. Sagði að leikskólinn muni vera með opið hús á næstunni þegar formleg vígsla fer fram. Sagði að ekki myndi skorta starfsfólk á komandi vetri því margar umsóknir hafi borist. Hún vill koma á framfæri sérstöku þakklæti til starfsmanna leikskólans fyrir jákvæðni og þrautseigju í breytingaferlinu og óskaði hornfirðingum til hamingju með glæsilegan leikskóla. Sæmundur tók undir góð orð Írisar og sagði hann hafa verið stóra málið á síðasta kjörtímabili og óskaði samfélaginu til hamingju með leikskólann.
4. Umhverfisnefnd 45, Sæmundur ræddi um umferðarhraða í íbúagötum á Höfn spurði hvernig verkefninu miðar áfram. Sagði að í Umferðaröryggisáætluninni sé ákvæði að 30 km. hraði eigi að vera í íbúagötum og núverandi hraði hafi verið hækkaður í 50 km. klst. eftir að vegagerðin setti skilti þar um við inngang í þéttbýlið. Ólöf greindi frá því að málið sé í vinnslu og það verði sett í forgang þegar starfsmenn eru komnir til starfa eftir sumarfrí.
35. Heilsuefling starfsmanna sveitarfélagsins, Sæmundur sagði starfsmenn ekki hafa fengið kynningu á samþykktum reglum um styrk til starfmsanna. Ólöf greindi frá að kynning meðal starfsmanna verði á næstu dögum þegar allir starfsmenn eru komnir til starfa eftir sumarfrí.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 863
Málsnúmer 1807001F
4. Almannavarnanefnd 56. Ásgerður tók til máls og greindi frá fundi í Hofgarði sem lögreglustjórinn á Suðurlandi boðaði til ásamt Almannavarnanefnd vegna bergsprungu í Svínafellsheiði. Sagði að áhersla hafi verið lögð á að ná til ferðaþjónustuaðila og greina þeim frá hættu sem er á svæðinu. Það stendur til að setja upp skilti sem varar við náttúruvá á svæðinu. Íbúafundur verður haldinn þegar gögn úr rannsóknum hafa borist.
7. Alþjóðleg kvikmyndagerð á Hornafirði. Sæmundur tók til máls og sagði þetta mál hafi verið á borði bæjarráðs, menningarnefndar og bæjarstjórnar s.l. 2-3 ár, undir nafninu Hvítur, hvítur dagur. Hlynur Pálmason fengið afnot af húsinu, til að taka upp kvikmynd. Verkefnið hefur fengið styrk frá sveitarfélaginu til þess að gera endurbætur á húsinu vegna verkefnisins.
Hlynur hefur núna stærri plön fyrir þetta hús. Hann langar að nýta húsið undir kvikmyndamiðstöð þar sem innréttuð verður eftirvinnsla á kvikmyndum. Sömuleiðis vill hann búa í húsinu sjálfur með fjölskyldu sína. Skoðun Sæmundar er að það stangast á við gildandi skipulag. Rafmagns-spennistöð er í húsinu sem þyrfti að færa ef til þess kæmi að breyta því í íbúðarhúsnæði, kostar það ekki undir 4 milljónum að færa hana.
Ef gera á breytingar á húsnæðinu, t.d. að byggj við það eins og hugmyndir eru um þá verður það að fara í gegnum opið skipulagsferli. Sæmundur telur húsið vera verðmæta eign og lóðin sömu leiðis og vil að bæjarfélagið eigi það áfram. Minnihlutinn er andvígur sölu á húsinu að svo stöddu máli.
Leiga til samfélagsverkefna á húsinu kemur vel til greina, og því geta hugmyndir um notkun fyrir eftirvinnsluaðstöðu á kvikmyndum vel komið til greina, en engin kaupleiga og ekki sem íbúðarhúsnæði.
Sæmundur telur það skyldu samfélagsins styrkja við menningu og listastarfsemi. Til þess notum við styrktarsjóði sem auglýsa reglulega. Í útdeilingu á gæðum og peningum til að styrkja menningarstarfsemi þarf að gæta jafnræðis. Það er okkar hlutverk í stjórnun sveitarfélagsins.
Ásgerður sagði að það væri frábært að finna frumkvæði og sköpunarkraftinn í sveitarfélaginu, sagði að það væru fleiri sem hafa áhuga á aðstöðu hjá sveitarfélaginu. Hún sagði málinu væri ekki lokið það er að mörgu að hyggja það er verið að skoða margar leiðir til að gæta jafnræðis.
Páll Róbert tók til máls sagði að bæjarráð hafi tekið vel í hugmyndir umsækjanda á sínum tíma og hafi verið sammála því að ekki ætti að selja húsið, því það stendur á framtíðarbyggingalandi og er inngangur inn í bæinn. Sagði að það væri hægt að gera leigusamning til þess að verkefnið fái framgang en ekki ætti að selja húsið.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 864
Málsnúmer 1807004F
6. Endurbætur Ráðhúsi 2018. Sæmundur tók til máls og las inngang að bókun bæjarráðs, þar sem lagt er til að bíða með breytingar á endurbótum þar til stjórnsýsluútekt hefur farið fram. Sagði að það ætti að fara í framkvæmdir en ekki blanda stjórnsýsluúttektinni við endurbætur á ráðhúsi. Ásgerður sagði að umræður á fundinum hefðu verið um að það lægi á að fara í framkvæmdir á fyrstu hæð ráðhússins og í framhaldinu yrði farið í aðrar framkvæmdir þegar starfsmannamál yrðu skýr og nýr bæjarstjóri komin til starfa.

12. Ráðning bæjarstjóra, Ásgerður lagði til að bæjarstjórn tæki undir bókun bæjarráðs. "Formaður lagði til að Matthildur Ásmundardóttir verði ráðin bæjarstjóri fyrir kjörtímabilið 2018-2022 skv. ráðningasamningi.
Formaður lagði til við bæjarráð að ráðning bæjarstjóra verði samþykkt.
Bæjarráð samþykkir samhljóða ráðningu Matthildar Ásmundardóttur.*
Bæjarráð lýsir yfir ánægju með nýráðinn bæjarstjóra og óskar henni velfarnaðar í nýju starfi."
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 865
Málsnúmer 1807005F
2. Skipulag: Skóla-, íþrótta- og útivistarsvæði. Guðbjörg Lára tók til máls sagði að það hafi verið stofnaður 9 manna stýrihópur, hún lýsti því yfir að hún er á móti stofnun stýrihópsins sagði að fræðslunefnd geti unnið að málinu. Sagði að mikil vinna sé búin að eiga sér stað í málinu, stýrihópurinn verði of mikill kostnaður fyrir sveitarfélagið þar sem búið er að vinna nýtileg gögn í málinu. Ásgerður sagði að það væru 3 ár síðan þessi vinna hafi átt sér stað og það væri mikilvægt að stýrihópurinn vinni hratt að málinu. Sæmundur sagði að mikil greiningavinna hafa verið unnin og skýrsla gerð 2015, stefnan hafi verið að byggja millibyggingu undir líkamsræktarstöð en málið hafi ekki fengið forgang vegna margra annarra verkefna. Sagði að Alta hafi haft hugmyndir að unnin verði skipulagsforsögn þar sem vinna þarf sýn fyrir þróun svæðisins, sagði að það hafi verið hugmyndir um að vinna áfram að málinu í sumar en það hafi ekki verið gert þegar nýr meirhluti tók við. Sagði að líkamsræktarstöðin væri með tveggja ára leigusamning og það þurfi að vera í forgangi að byggja aðstöðu undir líkamsrækt. Ásgerður sagði að tilboðið sem Alta hafi unnið verði sett undir stýrihópinn og þau taki samtal við fyrirtækið um framhaldið. Sæmundur spurði meirihlutann um hvaða stefnu þau hafi um uppbyggingu íþróttamannvirkja. Ásgerður sagði stefnu B- listans vera að taka saman það sem búið er að gera og forgangsraða framkvæmdum. Páll Róbert sagði að hann hafi verið í stýrihópi um málið árið 2015 og þá hafi komið í ljós að ýmis vinna hafi verið unnin eins og íbúafundur 2012 og að ekki þurfi að finna upp hjólið á hverju kjörtímabili. Sagði mikilvægt að horfa til framtíðar og koma öllum saman um hvað eigi að gera í málaflokknum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 252
Málsnúmer 1805016F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
7.
Siðareglur kjörinna fulltrúa 2018
Málsnúmer 201807017
Forseti gerði grein fyrir siðareglum og sagði þær þurfa staðfestingu bæjarstjórnar í upphafi hvers kjörtímabils, ekki sé þörf á breytingum að þessu sinni.
Lagði til að bæjarstjórn samþykkti siðareglurnar óbreyttar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Kosningar í nefndir 2018-2022
Málsnúmer 201806009
Fræðslunefnd fyrir E- lista.
Aðalmaður verður Samir Mesetovic.
Varamaður verður Þórey Bjarnadóttir.
Ásgerður tók til máls og benti á ójafnvægi í kynjahlutfalli í þremur nefndum og óskaði eftir skýringu á því að ekki sé leiðrétt í dag. Róbert sagði að það hafi ekki unnist tími til að skoða málið. Sæmundur sagði að í nefndum sveitarfélagsins væru 22 konur og 18 karlar. Varamenn eru 20 af hvoru kyni. Sagði að niðurstaða kosninga gefi forskrift að nefndarskipan. Sagði það vera þannig að flokkarnir í minnihluta hafi eingöngu einn einstakling í nefnd og það væri mikilvægt að skipa hæfa einstaklinga í nefndir. Sem dæmi um skipan í félagsmálanefnd að þær sem skipaðar voru í félagsmálanefnd séu mjög hæfar og hafa góða þekkingu á málaflokknum. Ásgerður þakkaði samtalið og sagði að það væri gott að skoða málin og ræða betur og á formlegan hátt. Sæmundur sagði jafnréttislög horfa þröngt á málið þau skoði eingöngu hverja nefnd fyrir sig. Sagði að ekki væri slæmt kynjahlutfall almennt ef horft er á allar nefndir sveitarfélagsins.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Reynivellir II, framkvæmd í óleyfi
Málsnúmer 201808016
Þann 13. ágúst barst sveitarfélaginu tilkynning um að eigendur Reynivalla II hófu framkvæmdir við veglagningu án þess að óska eftir framkvæmdaleyfi til sveitarfélagsins.
Framkvæmdaraðili þarf að tilkynna framkvæmd til sveitarstjórnar en kröfur um gögn eru skv. 11. gr. reglugerðar um mat á umhverfisáhrifum og málsmeðferð sveitarstjórnar skv. 14. gr. reglugerðarinnar.
Við ákvörðun skal höfð hliðsjón af viðmiðum í 2. viðauka laga um mat á umhverfisaáhrifum, s.s. um umfang og eðli framkvæmdar, staðsetningu, viðkvæmni framkvæmdarsvæðis o.fl. þættir.
Þau gögn sem framkvæmdaraðili hefur lagt fram eru ekki fullnægjandi fyrir matsskyldufyrirspurn eða framkvæmdaleyfi.
Bæjarstjón staðfestir stöðvun skipulagsstjóra á framkvæmdar veglagningar í fjallshlíð við Reynivelli II.
10.
Fyrirspurnir: bæjarstjórn 2018
Málsnúmer 201801024
Sæmundur Helgason sendi fyrirspurn til bæjarstjórnar. Hvernig er staðan varðandi byggingu nýs hjúkrunarheimilis? Hvernig hefur framvindan verið frá í vor, eftir að sveitarfélagið skipaði í stýrihóp með ráðuneytinu um verkefnið?
Ólöf greindi frá að lítil framvinda hefur átt sér stað vegna byggingar nýs hjúkrunarheimilis frá því í vor. Matthildur, framkvæmdastjóri HSU Hornafirði, fór á fund í Velferðarráðuneytinu í júlí síðastliðnum þar sem þær upplýsingar fengust að málið liggur hjá Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir. Samstarfsnefndin þarf að gefa leyfi fyrir framkvæmdinni áður en lengra er haldið. Starfsmenn ráðuneytis munu verða í sambandi um leið og nefndin afgreiðir málið. Þau svör hafa fengist að líklegur fundartími verði í næstu viku.
Sæmundur þakkaði fyrir svörin og sagðist vona að málið fengi framgang sem fyrst.