Bæjarstjórn Hornafjarðar
256. fundur
8. nóvember 2018
kl.
16:00
-
17:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgrímur Ingólfsson
aðalmaður
Erla Þórhallsdóttir
aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Guðbjörg Lára Sigurðardóttir
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 873
Fundargerð samþykkt.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 874
Til máls tekur Kristján Guðnason undir fundargerð menningarmálanefnd frá 16. október.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 875
Til máls tekur Sæmundur Helgason undir lið 3. fjárhagsáætlun.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 876
Til máls tekur Guðbjörg Lára Sigurðardóttir undir lið 8. til andsvars kemur Matthildur Ásmundardóttir.
Til máls tekur öðru sinni Guðbjörg Lára undir lið 8. til andsvars kemur Matthildur.
Fundargerð samþykkt.
Til máls tekur öðru sinni Guðbjörg Lára undir lið 8. til andsvars kemur Matthildur.
Fundargerð samþykkt.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 255
Fundargerð lögð fram til kynnningar.
6.
Fjárhagsáætlun 2019
Matthildur gerði grein fyrir fjárhagsáætlun ársins 2019. Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir A og B hluta eru eftirfarandi:
Rekstrarniðurstaða 394,6 m.kr.
Skuldir í hlutfalli af tekjum 56,6%
Framkvæmdir 600 m.kr.
Framlegð 20,5%
Veltufé frá rekstri 597,6 m.kr.
Veltufé sem hlutfall af tekjum 20,5%
Handbært fé í árslok 195 m.kr.
Afborganir langtímalána 119,5 m.k.r
Ný lántaka A-B hluta 130 m.kr.
Langtímalán við lánastofnanir 725 m.kr.
Til máls tekur Sæmundur Helgason, til andsvars kemur Matthildur Ásmundardóttir og Ásgrímur Ingólfsson.
Til máls tekur öðru sinni, Sæmundur og Páll Róbert Matthíasson. Til andsvars kemur Matthildur.
Til máls tekur Erla Þórhallsdóttir.
Forseti lagði til að fjárhagsáætlun 2019 yrði vísað til síðari umræðu bæjarstjórnar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Rekstrarniðurstaða 394,6 m.kr.
Skuldir í hlutfalli af tekjum 56,6%
Framkvæmdir 600 m.kr.
Framlegð 20,5%
Veltufé frá rekstri 597,6 m.kr.
Veltufé sem hlutfall af tekjum 20,5%
Handbært fé í árslok 195 m.kr.
Afborganir langtímalána 119,5 m.k.r
Ný lántaka A-B hluta 130 m.kr.
Langtímalán við lánastofnanir 725 m.kr.
Til máls tekur Sæmundur Helgason, til andsvars kemur Matthildur Ásmundardóttir og Ásgrímur Ingólfsson.
Til máls tekur öðru sinni, Sæmundur og Páll Róbert Matthíasson. Til andsvars kemur Matthildur.
Til máls tekur Erla Þórhallsdóttir.
Forseti lagði til að fjárhagsáætlun 2019 yrði vísað til síðari umræðu bæjarstjórnar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Þriggja ára áætlun 2020-2022
Matthildur kynnti þriggja ára áætlun 2020-2022. Lagði til að þriggja ára áætlun yrði vísað til síðari umræðu bæjarstjórnar.
Til máls tekur Guðbjörg Lára Sigurðardóttir og Sæmundur Helgason, til andsvars kemur Matthildur Ásmundardóttir.
Erla Þórhallsdóttir tekur við fundarstjórn, til andsvars kemur Páll Róbert til andsvars kemur Ásgrímur.
Ásgrímur tekur við fundarstjórn.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Til máls tekur Guðbjörg Lára Sigurðardóttir og Sæmundur Helgason, til andsvars kemur Matthildur Ásmundardóttir.
Erla Þórhallsdóttir tekur við fundarstjórn, til andsvars kemur Páll Róbert til andsvars kemur Ásgrímur.
Ásgrímur tekur við fundarstjórn.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Álagningarreglur 2019
Matthildur kynnti tillögu að álagningarreglum 2019: Útsvar 14,52%. Fasteignaskattur á íbúðahúsnæði 0,45% af fm (hám. 0,625%). Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði 1,65% af fm (hám. 1,65%). Lóðaleiga 1% af lóðamati. Holræsagjöld 0,30% af fasteignamati. Vatnsgjöld 0,18% af fasteignamati. Sorpgjöld eru skv. gjaldskrá.
Samþykkt að vísa reglunum til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt að vísa reglunum til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Aðalskipulagsbreyting Svínhólar
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá lýsingu á breytingu á Aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030. Megin markmið með aðalskipulagsbreytingunni er að staðsetja nýtt verslunar-og þjónustusvæði og skógræktar- og landgræðslusvæði að Svínhólum. Svæðið verður afmarkað á uppdrætti og nánari skilmálar verða settir í greinargerð. Skipulagsnefnd lagði til að lýsingin verði auglýst og mælir með að heimild sé gefin til að hefja vinnu við deiliskipulag samhliða aðalskipulagsbreytingunni.
Björgvin lagði til að bæjarstjórn samþykki lýsingu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagins skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og heimili að hefja vinnu að nýju deiliskipulagi samhliða breytingunni.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Aðalskipulagsbreyting gistiheimildir í Sveitarfélaginu Hornafirði
Björgvin greindi frá að skipulagsnefnd leggur til að unnin verði tillaga að breytingum á aðalskipulagi í samræmi við breytingu á reglugerð nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að farið verði í vinnu á breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins skv. 2. mgr. 26. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að farið verði í vinnu á breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins skv. 2. mgr. 26. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Breyting á deiliskipulagi HSSA, nýtt hjúkrunarheimili
Björgvin greindi frá að áformum um byggingu nýs hjúkrunarheimilis. Frumhönnun hefur leitt í ljós að byggingarreitur eins og hann er skilgreindur í deiliskipulagi sé of lítill. Stýrihópur sem vinnur að hönnunarsamkeppni leggur til að byggingarreitur verði stækkaður um 10 m til SSV.
Lagði til að bæjarstjórn heimili að unnið verði að breytingu á deiliskipulagi HSSA skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Umsókn um lóð: Fákaleira 1-3
Umsókn Mikael ehf. um lóðir að Fákaleiru 1-3 lögð fram. Dregið var um lóðina á fundi bæjarráðs í viðurvist fulltrúa Sýslumanns, bæjarráð mælir með úthlutun lóðarinnar.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar. Bæjarstjórn samþykkti með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
13.
Landskipti milli Seljavalla 1,2 og 3.
Erindi frá landeigendum Seljavalla þar sem óskað er eftir landskiptum á jörðinni Seljavöllum.
Jörðin Seljavellir landnr. 129513 verði skipt samkvæmt fyrirliggjandi uppdrætti, þannig að Eiríkur Egilsson verði eigandi af Seljavöllum 1, Valgerður Egilsdóttir og Ásgeir Núpan eigendur af Seljavöllum 2 og Hjalti Egilsson eigandi af Seljavöllum 3. Seljavellir 3 með landnr. 220108 verði eign Hjalta Egilssonar.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki landskiptin. Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki landskiptin. Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Skýrsla bæjarstjóra
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum frá síðasta bæjarstjórnarfundi.