Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

260. fundur
14. mars 2019 kl. 16:00 - 17:13
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgrímur Ingólfsson Forseti
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson 2. varaforseti
Sæmundur Helgason aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Finnur Smári Torfason 3. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 889
Málsnúmer 1902006F
Sæmundur Helgason tók til máls undir 11. lið Ferðumst saman: stefna í almenningssamgöngum.
Matthildur Ásmundardóttir tók til máls undir 5. lið Humarhátíð 2019.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 890
Málsnúmer 1902008F
Bryndís Hólmarsdóttir tók til máls undir 2. lið menningarmálanefnd.
Matthildur tók til máls undir 5. lið Ísland ljóstengt.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 891
Málsnúmer 1902013F
Matthildur tók til máls undir 11. lið Loðnukvóti og lagði til að bæjarstjórn legði fram eftirfarandi bókun.
"Ljóst er að loðnubrestur og litlar veiðar á humri í ár munu hafa töluverð áhrif á tekjur sveitarfélagsins og hafnarinnar. Í bókun bæjarráðs 4. mars var fjármálastjóra falið meta áhrif loðnubrests á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins. Sú vinna er í gangi og mun liggja fyrir fljótlega. Sveitarfélagið býr þó við hátt atvinnustig og öfluga ferðaþjónustu sem er mikill styrkur þegar bjátar á í sjávarútvegnum."
Forseti bar bókunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 892
Málsnúmer 1903005F
Sæmundur tók til máls undir 3. lið umhverfisnefnd og 10. lið ósk um göngu- og hjólastíg í Öræfum.
Til andsvars kom Finnur Smári Torfason undir 3. lið umhverfisnefnd. Til andsvars og umræðu kom Sæmundur. Til andsvars Matthildur.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 259
Málsnúmer 1902003F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Fjárhagsáætlun 2019
Málsnúmer 201810039
Fjárhagsáætlun HSU á Hornafirði til afgreiðslu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki fjárhagsáætlunina.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar 2017
Málsnúmer 201709558
Gjaldskráin hefur fengið umfjöllun í hafnarstjórn og var samþykkt þar. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki gjaldskránna og bar hann tillöguna upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Hornafjarðar 2019
Málsnúmer 201901095
Breyting á samþykktum sveitarfélagsins lögð fram til annarar umræðu. Helstu breytingar eru gerðar á 48 gr. um fasta- og undirnefndir. Sameina á nefndir umhverfis- og skipulagsmála og atvinnu og menningarmála. Bætt er við undirkafla um undirnefndir og ráð, þar sem ungmennaráð, öldungaráð gjafa og minningarsjóður koma undir ásamt nýjum samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingu á samþykktum sveitarfélagsins og sendi þær í lögforlmlegt ferli.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með fimm atkvæðum, á móti Sæmundur E- lista, Bryndís D- lista sat hjá.
9.
Erindisbréf atvinnu- og menningarmálanefndar
Málsnúmer 201902034
Nefndir og bæjarráð hafa fengið erindisbréfin til efnislegrar umfjöllunar og vísuðu þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki erindisbréfið.
Forseti bar erindisbréfið upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum, á móti Bryndís Hólmarsdóttir D. lista.
10.
Erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar
Málsnúmer 201902033
Nefndir og bæjarráð hafa fengið erindisbréfin til efnislegrar umfjöllunar og vísuðu þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki erindisbréfið.
Sæmundur tók til máls, til andsvars Matthildur.
Forseti bar erindisbréfið upp til atkvæða.
Samþykkt með fjórum atkvæðum B- lista, á móti Sæmundur E- lista Bryndís og Páll Róbert D- lista.
11.
Stofnun vegsvæða vegna hringvegar um Hornafjarðarfljót
Málsnúmer 201711068
Afsal vegna vegsvæðis úr landi Hafnar land.nr. 218195 sem Vegagerðin gerði við landeigendur vegna framvkæmda við Hringvegar yfir Hornafjarðrafljót. Heildarstærð hins nýja vegsvæðis er 55.872,3 fm. lagt fram til staðfestingar.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki afsalið til Vegagerðarinnar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Aðalskipulagsbreyting Jökulsárlón á Breiðamerkursandi
Málsnúmer 201903009
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá að breytingu á aðalskipulagi við Jökulsárlóni er gerð vegna óskar um breytingu á deiliskipulagi vegna fjölgunar ferðamanna og afmarka þarf ný þjóðgarðsmörk. Helstu breytingar felast í að breyta skipulagsuppdráttum fyrir Öræfi og Suðursveit, ásamt skipulagsuppdrætti fyrir sveitarfélagið í heild sinni. Einnig verða breytingar á skilmálum vegna framkvæmda innan stækkaðs svæðis í samræmi við stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs. Skipulagsnefnd leggur til að námur E61 og E62 verði áfram skilgreindar í aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Björgvin lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi breytingartillögu á aðalskipulagi við Jökulsárlón og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Aðalskipulagsbreyting Svínhólar
Málsnúmer 201709404
Björgvin greindi frá að megin markmið með aðalskipulagsbreytingunni er að staðsetja nýtt verslunar- og þjónustusvæði og skógræktar- og landgræðslusvæði á Svínhólum. Svæðið verður afmarkað á uppdrætti og nánari skilmálar eru settir í greinargerð.
Björgvin lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi breytingartillögu á aðalskipulagi við Svínhóla og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Deiliskipulag Jökulsárlón á Breiðamerkursandi
Málsnúmer 201901123
Björgvin greindi frá að skipulags- og matslýsing vegna breytinga á deiliskipulagi við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi liggur fyrir. Svæðisráð suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs og Sveitarfélagið Hornafjörður hafa ákveðið að vinna nýtt deiliskipulag vegna breyttra forsendna sem snúa að svæðinu sem er nú innan þjóðgarðsins, fjölda gesta, uppbyggingu aðstöðu, aðkomu að svæðinu og bílastæðum, ásamt tengingum innan svæðis.
Björgvin lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi breytingartillögu á deiliskipulagi við Jökulsárlón og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og hún verði auglýst samhliða breytingu á aðalskipulagi við Jökulsárlón.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Fákaleira 1-3 : Ósk um breytingu á lóð
Málsnúmer 1901011
Grenndarkynning vegna áforma um byggingu raðhúss að Fákaleiru 1-3 hefur farið fram skv. 2. mgr. 43. skipulagslaga. Engar athugasemdir bárust.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna og vísi henni í lögforlegt ferli skv. 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Umsókn um lóð: Hagaleira 9
Málsnúmer 201902047
Umsókn Nínu Síbyl Birgisdóttur um lóð að Hagaleiru 9. Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Umsókn um lóð: Sæbraut
Málsnúmer 1902046
Umsókn um lóð frá Íslenska gámafélaginu við Sæbraut. Bæjarráð mælir með að veita lóðina til afnota tímabundið á samningstíma við Íslenska gámafélagið.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina í samræmi við bókun bæjarráðs.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Kosningar í nefndir 2018-2022
Málsnúmer 201806009
Svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs.
Hugrún Harpa Reynisdóttir hættir sem aðalmaður.
Hjalti Vignisson verður aðalmaður.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki tillöguna.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Kosning í bæjarráð
Málsnúmer 201806011
Ásgerður K. Gylfadóttir formaður bæjarráðs B- lista óskar eftir leyfi frá störfum bæjarráðs verði framlengt um einn mánuð.
Björgvin Óskar Sigurjónsson verður aðalmaður B- lista. Varamaður Kristján S. Guðnason B- lista.
Formaður bæjarráðs verður Erla Þórhallsdóttir B- lista. Varaformaður bæjarráðs verður Björgvin Ó. Sigurjónsson B- lista.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201809020
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum síðastliðinn mánuð.
21.
Fyrirspurnir: bæjarstjórn 2019
Málsnúmer 201801024
Engar fyrirspurnir bárust.