Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

266. fundur
10. október 2019 kl. 16:00 - 17:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Erla Þórhallsdóttir 1. varaforseti
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson 2. varaforseti
Sæmundur Helgason aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 912
Málsnúmer 1909004F
Sæmundur Helgason tók til máls undir 1. lið umhverfis- og skipulagsnefnd, Aðalskipulagsbreyting, Þétting byggðar á Höfn, til andsvars Björgvin Óskar Sigurjónsson. Til andsvars Sæmundur Helgason. Til andsvars Björgvin Óskar Sigurjónsson. Til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 913
Málsnúmer 1909008F
Kristján S. Guðnasson tók til máls undir 1. lið atvinnu- og menningarmálanefnd, Mikligarður. Bryndís Hólmarsdóttir tók einnig til máls undir 1. lið. Til andsvars Matthildur Ásmundardóttir. Páll Róbert Matthíasson tók einnig til máls undir 1. lið atvinnu- og menningarmálanefnd, Mikligarður. Til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir. Sæmundur Helgason tók einnig til máls undir 1. lið. Til andsvars Kristján S. Guðnason.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 914
Málsnúmer 1909010F
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 915
Málsnúmer 1909016F
Matthildur Ásmundardóttir tók til máls undir 5. lið malbikunarframkvæmdir. Kristján S. Guðnason tók til máls undir 4. lið Stofnun rekstrarfélags um þjónustusláturhús, afurðavinnslu og heildsölu.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 916
Málsnúmer 1910003F
Sæmundur Helgason tók til máls undir 2. lið, reglur Sveitarfélagsins Hornafjarðar um auglýsingaskilti og undir 9. lið Festa samfélagsábyrgð, möguleg aðild. Ásgerður Gylfadóttir tók til máls undir, 5. lið Þarfagreining á húsnæðisþörf eldri Hornfirðinga, 7. lið heimahjúkrun og undir 9. lið, Festa samfélagsábyrgð. Sæmundur tók til máls undir 9. lið. Til andsvars Matthildur Ásmundardóttir. Til andsvars Ásgerður Gylfadóttir.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
6.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 265
Málsnúmer 1909005F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
7.
Samstarf sveitarfélaga um loftlagsmál og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Málsnúmer 201909013
Bæjarstjórn fagnar frumkvæði Sambands íslenskra sveitarfélaga með stofnun samráðsvettvangs sem er ætlaður sveitarfélögum landsins til samstarfs og samráðs um loftlagsmál og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.
Bæjarstjóri lagði til að bæjarstjórn samþykki þátttöku í samráðvettvanginum með þátttöku í fundum og viðburðum um loftlagsmál og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Með því mun bæjarstjórn áfram beita sér fyrir markvissum aðgerðum og stefnumótun í átt til aukinnar sjálfbærni og kolefnishlutleysis. Fulltrúar sveitarfélagsins munu einnig eftir því sem tilefni er til og aðstæður leyfa, taka þátt í miðlun þekkingar, þróun mælinga á árangri og öðru samstarfi sem tengist samráðsvettvanginum.
Páll Róbert tók til máls.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Viðbragðsáætlun almannavarna
Málsnúmer 201809077
Viðbragðsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Lögreglustjórans á Suðurlandi við samfélagslegum áföllum lögð fram til samþykktar. Viðbragðsáætlunin var unnin í samstarfi starfsfólki sveitarfélagsins og Lögreglustjórans á Suðurlandi.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki viðbragðsáætlunina.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Læsisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201805064
Læsisstefnan var unnin af teymi um læsisstefnu og var hún send fastanefndum sveitarfélagsins til umsagnar. Í læsisstefnu Sveitarfélagsins Hornafjarðar er fjallað um megináherslur og markmið í læsi. Einnig eru sett fram viðmið um hvenær grípa þurfi til sérstakrar íhlutunar. Áhersla er lögð á að heimilin taki virkan þátt í læsisnámi barna í samvinnu við skólana.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki læsisstefnu fyrir sveitarfélagið.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Deiliskipulag: Hitaveita á Hornafirði
Málsnúmer 201804002
Björgvin Óskar gerði grein fyrir deiliskipulagstillögunni og sagði að auglýsa hana að nýju þar sem ósk um breytingu á byggingamagni hefur borist. Megin markmið deiliskipulagsins er að setja ramma um fyrirhugaða starfsemi á svæðinu og frekari stefnumörkun um uppbyggingu á iðnaðarsvæði í landi Hoffells og Miðfells ásamt iðnaðarsvæði í landi Stapa. Þá verður gerð grein fyrir framkvæmdinni og lagningu stofnæðar frá fyrirhuguðu framkvæmdasvæði inn í þéttbýlið á Höfn. Skipulagssvæðið tekur til tveggja svæða, auk þess sem framkvæmd er lýst og gerð verður grein fyrir stofnlögn til þéttbýlis á Höfn. Ekki þarf að deiliskipuleggja vegna stofnlagnar, en hún er framkvæmdaleyfisskyld sbr. 5 gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi breytingar á tillögunni og vísi henni í lögformlegt ferli og að hún verði auglýst að nýju.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Beiðni um umsögn: Hótel í landi Svínhóla
Málsnúmer 201909050
Björgvin Óskar greindi frá erindi Skipulagsstofnunar dags. 16. september þar sem óskað er eftir umsögn um hvort og á hvaða forsendum hótel í landi Svínhóla skuli háð mati á umhverfisáhrifum skv. 6. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 2016/2000 og viðauka í framangreindum lögum.Umhverfis-og skipulagsnefnd hefur fjallað um erindið og bókaði eftirfarandi: "Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að nægjanlega sé gerð grein fyrir framkvæmdinni, mótvægisaðgerðum, umhverfi og vöktun. Áður en farið er í framkvæmdir þarf að sækja um byggingarleyfi, framkvæmdaleyfi, efnistökuleyfi og mikilvægt er að framkvæmdir fari fram á þeim tíma árs þannig að minnst rask verði á dýralífi."Lagði til að bæjarstjórn geri svör skipulagsnefndar að sínum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Framkvæmdaleyfi: Steinavötn og Fellsá
Málsnúmer 201909024
Björgvin Óskar greindi frá erindi Vegagerðarinnar dags. 9. september, þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir nýjar brýr, annars vegar yfir Fellsá og hins vegar yfir Steinavötn. Brýrnar verða í núverandi veglínu og samkvæmt gildandi skipulagi. Brúin yfir Steinavötn verður 102 m. löng, steypt brú með 9 m. akbraut. Brúin er grunduð á niðurrekstrarstaurum. Brúin yfir Fellsá verður 49 m. löng steypt plötubrú með 9 m. akbraut, grunduð á klöpp. Samkvæmt viðauka 10.10 í lögum um mat á umhverfisáhrifum fellur framkvæmdin í umhverfismatsflokk C og er því ekki háð umhverfismati. Vegagerðin þarf að óska eftir umsögnum hjá Orkustofnun og Fiskistofu áður en framkvæmdir hefjast.Lagði til að bæjarstjórn samþykki að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir brú yfir Steinavötn og brú yfir Fellsá.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Umsókn um lóð: Víkurbraut 27
Málsnúmer 201909010
Erindi frá Snorra Snorrasyni þar sem óskað er eftir lóð að Víkurbraut 27, fyrir óstofnað einkahlutafélag. Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi lóðarúthlutun.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Umsókn um lóð Krosseyjarvegur 21-23
Málsnúmer 201908026
Björgvin Óskar Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið.Umsókn Jökulfells ehf. um tvær lóðir Krosseyjarveg nr. 21-23.Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni en vísar til þess að eftir á að gera deiliskipulag á svæðinu. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt að gert verði deiliskipulag á svæðinu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina með fyrirvara um að ekki verði veitt byggingarleyfi fyrr en deiliskipulag hefur verið unnið fyrir svæðið. Samþykkt með sex atkvæðum.
15.
Umsókn um lóð: Borgartún 3
Málsnúmer 201908081
Umsókn Tröllaferða ehf. um lóð að Borgartúni 3 í Öræfum.Bæjarráð er jákvætt fyrir umsókninni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Svæðisskipulag fyrir Suðurhálendið
Málsnúmer 201909065
Erindi frá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga dags. 9. september, þar sem óskað er eftir að Sveitarfélagið Hornafjörður taki þátt í vinnu við svæðisskipulag fyrir Suðurhálendið.
Svæði Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem um ræðir liggur að stærstum hluta innan Vatnajökulsþjóðgarðs og lýtur því stjórnunar- og verndaráætlunar og stjórnsýslu hans. Af þeirri ástæðu tekur sveitarfélagið ekki þátt í sameiginlegri vinnu við svæðisskipulag Suðurhálendis.
Forseti óskaði eftir að bæjarstjórn staðfesti að ekki verði tekið þátt í sameiginlegri vinnu við ofangreint svæðisskipulag.
Samþykkt með sex atkvæðum Sæmundur Helgason situr hjá.
17.
Kosning í svæðisráð: Vatnajökulsþjóðgarður
Málsnúmer 201908025
Í svæðisráði Suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs verða fyrir hönd Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Aðalmenn, Matthildur Ásmundardóttir (B), Friðrik Jónas Friðriksson (B) og Hjördís Skírnisdóttir (E).
Varamenn, Hjalti Þór Vignisson(B), Ásgerður Gylfadóttir(B) og Páll Róbert Matthíasson(D).
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki tillöguna.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201809020
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum.