Bæjarstjórn Hornafjarðar
268. fundur
12. desember 2019
kl.
16:00
-
17:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Erla Þórhallsdóttir
1. varaforseti
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
2. varaforseti
Sæmundur Helgason
aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 922
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 923
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir 1. lið fræðslu- og tómstundanefnd undir 1. lið ungmennaráð.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 924
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 925
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 267
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Álagningarreglur 2020
Matthildur kynnti tillögu að álagningarreglum 2019: Útsvar 14,52%. Fasteignaskattur á íbúðahúsnæði 0,45% af fasteignamati (hám. 0,625%). Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði 1,65% af fasteignamati (hám. 1,65%). Lóðaleiga 1% af lóðamati. Holræsagjöld 0,30% af fasteignamati. Vatnsgjöld voru 0,18%, lækka í 0.15% af fasteignamati. Sorpgjöld eru skv. gjaldskrá sem er til staðfestingar á fundinum.Lagði til að bæjarstjórn samþykki álagningareglur 2020.Lagði til að bæjarstjórn samþykki breytinguna.
Lögð fram tillaga að lækkun vatnsgjalds úr 0,18% í 0,15%.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki breytinguna.
Forseti bar tillöguna og álagningareglurnar upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki breytinguna.
Forseti bar tillöguna og álagningareglurnar upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Fjárhagsáætlun 2020
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri greindi frá helstu niðurstöðum áætlunarinnar fyrir A og B hluta sem eru eftirfarandi:
Rekstrarniðurstaða 292,4 m.kr.
Skuldir í hlutfalli af tekjum 62,3%
Framkvæmdir 792,8 m.kr.
Framlegð 19%
Veltufé frá rekstri 551,6 m.kr.
Handbært fé í árslok 79,6 m.kr.
Afborganir langtímalána 104,6 m.kr.
Ný lántaka A-B hluta 400 m.kr.
Langtímalán við lánastofnanir 872 m.kr.
Páll Róbert Matthíasson tók til máls.
Ásgerður tók til máls og bar upp eftirfarandi bókun og lagði til að bæjarstjórn geri hana að sinni.
"Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar er stolt af því að rekstur sveitarfélagsins er í góðu jafnvægi og stendur styrkum stoðum sem gerir okkur kleift að bæta þjónustu og styrkja innviði. Framkvæmdaáætlun fjárhagsáætlunar 2020 miðar að bættum aðbúnaði og vinnuaðstæðum í velferðarmálum. Þjónustuþegar og starfsmenn í málefnum aldraðra, fatlaðra og barna munu merkja þar mikinn og langþráðan mun sem mun verða til fyrirmyndar. Haldið verður áfram með verkefni í skólahúsnæði sveitarfélagsins í Vöruhúsi og undirbúnar áframhaldandi endurbætur í Sindrabæ á næstu árum. Auk þessara verkefna eru fjölmörg önnur verkefni á áætlun sem taka til sín minna fé en bæta inniviði samfélagsins okkar og styrkja."
Forseti bar bókunina upp til samþykktar bæjarstjórnar.
Bókunin samþykkt með með sjö atkvæðum.
Forseti bar fjárhagsáætlun 2020 upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Rekstrarniðurstaða 292,4 m.kr.
Skuldir í hlutfalli af tekjum 62,3%
Framkvæmdir 792,8 m.kr.
Framlegð 19%
Veltufé frá rekstri 551,6 m.kr.
Handbært fé í árslok 79,6 m.kr.
Afborganir langtímalána 104,6 m.kr.
Ný lántaka A-B hluta 400 m.kr.
Langtímalán við lánastofnanir 872 m.kr.
Páll Róbert Matthíasson tók til máls.
Ásgerður tók til máls og bar upp eftirfarandi bókun og lagði til að bæjarstjórn geri hana að sinni.
"Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar er stolt af því að rekstur sveitarfélagsins er í góðu jafnvægi og stendur styrkum stoðum sem gerir okkur kleift að bæta þjónustu og styrkja innviði. Framkvæmdaáætlun fjárhagsáætlunar 2020 miðar að bættum aðbúnaði og vinnuaðstæðum í velferðarmálum. Þjónustuþegar og starfsmenn í málefnum aldraðra, fatlaðra og barna munu merkja þar mikinn og langþráðan mun sem mun verða til fyrirmyndar. Haldið verður áfram með verkefni í skólahúsnæði sveitarfélagsins í Vöruhúsi og undirbúnar áframhaldandi endurbætur í Sindrabæ á næstu árum. Auk þessara verkefna eru fjölmörg önnur verkefni á áætlun sem taka til sín minna fé en bæta inniviði samfélagsins okkar og styrkja."
Forseti bar bókunina upp til samþykktar bæjarstjórnar.
Bókunin samþykkt með með sjö atkvæðum.
Forseti bar fjárhagsáætlun 2020 upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Þriggja ára fjárhagsáætlun 2021-2023
Matthildur fór yfir þriggja ára fjárhagsáætlun og lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi þriggja ára fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2021-2023.
Sæmundur tók til máls.
Forseti bar þriggja ára áætlun 2021-2023 upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar þriggja ára áætlun 2021-2023 upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Gjaldskrá söfnunarstöð
Breyting á gjaldskránni er vegna vísitöluhækkunar á samningi um sorpmál. Helstu breytingar eru: Óendurvinnanlegur og almennur úrgangur er 26. kr/kg. og verður 30 kr./kg.Skolp og seyra er 10 kr./kg. verður 11 kr./kg.Lífrænn úrgangur í urðun er 26 kr./kg. verður 30 kr./kg.Lífrænn úrgangur til moltugerðar, verður óbreytt 19. kr./kg.Aukaklippikort er 8.000 kr., verður 9.120 kr.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi breytingu á gjaldskrá söfnunarstöðvar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Gjaldskrá sorphirðu- og sorpeyðingar
Breyting á gjaldskránni er vegna vísitöluhækkunar á samningi um sorpmál. Sorphirðugjöld fyrir heimili eru 19.294 kr. verða 21.995 kr. hækkunin er um 2.701 kr. og sorpeyðingagjöld fyrir heimili eru 12.128 kr. verða 13.826 kr hækkunin er 1.698 kr. Sorphirðugjald þar sem eru fleiri en 20 frístundahús er 3.500 kr. verður 3.990 kr. Sorpeyðingargjald fyrir frístundahús er 4.800 kr. verður 5.472. kr.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi breytingu á gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Gjaldskrá og reglur -Gagnaveita
Matthildur greindi frá að Gagnaveita Hornafjarðar ehf. á og rekur ljósleiðarakerfi í Sveitarfélaginu Hornafirði. Gagnaveitu Hornafjarðar ehf. er heimilt að selja aðgang að ljósleiðara samkvæmt gjaldskrá og reglum þessum. Lagði til að bæjarstjórn samþykki reglur um gjaldskrá og reglur Gagnaveitu Hornafjarðar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Reglur um starfsemi leikskóla
Helstu breytingar á reglunum eru sveigjanleg deildarskipting. Börnum er skipt niður á deildir eftir aðstæðum hverju sinni og tekið er tillit til aldurs og fjölda barna í árgangi, fjölda starfsmanna og plássi á deildum. Innritun barna er breytt þannig að eldri börn, börn með fötlun eða þau sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður og börn starfsmanna hafi forgang í samræmi við laus pláss.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingu á reglum um starfsemi leikskóla.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Reglur um birtingu gagna með fundargerðum
Reglur um birtingu gagna með fundargerðum hafa fengið umfjöllun í öllum fastanefndum sveitarfélagsins. Markmið með reglunum er að stjórnsýslan sé opin til að auka aðgang íbúa að gögnum sveitarfélagsins. Íbúar hafi kost á að fylgjast með störfum bæjarstjórnar og nefnda eftir því sem lög og reglugerðir heimila.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki reglur um birtingu gagna.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Ráðning umhverfis- og skipulagsstjóra
Matthildur greindi frá ráðningu Brynju Daggar Ingólfsdóttur í starf umhverfis- og skipulagsstjóra. Ráðningin var samþykkt í bæjarráði. Hún óskaði eftir staðfestingu bæjarstjórnar þar sem um lykilstjórnenda er að ræða.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Endurskoðun á ferðaþjónustukafla Aðalskipulags Hornafjarðar 2012-2030
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá að markmið með endurskoðun á ferðaþjónustukafla aðalskipulagsins er að fara yfir skilmála um ferðaþjónustu með nýjar forsendur og viðmið í huga. Einnig er markmiðið að skilgreina hverskonar þjónustu og í hve ríku mæli á að heimila hana utan skilgreindra þjónustusvæða. Þar er bæði horft til uppbyggingar sem beint tengist ferðaþjónustu sem og annarrar þjónustu s.s. uppsetningu fjarskiptamastra, upplýsingagjöf og fleira. Það er vilji til að bregðast við þeim mikla fjölda ferðafólks sem sækir sveitarfélagið heim og styrkja ákveðin svæði þar sem umferð er mest samhliða því að efla ný svæði. Lagði til að bæjarstjórn samþykki að vísa aðalskipulagstillögunni í lögformlegt ferli skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Aðalskipulagsbreyting Stekkaklettur
Björgvin Óskar greindi frá að um óverulega breytingu á aðalskipulagi er að ræða. Breytingin felur í sér m.a. að heimiluð sé föst búseta að Stekkakletti ásamt frekari uppbyggingu tengda kvikmyndagerð. Lagði til að bæjarstjórn samþykki að vísa óverulegri breytingu á aðalskipulagi í lögformlegt ferli skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Sæmundur tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Minnihlutinn ítrekar bókun minnihluta skipulagsnefndar 14.08.2019 og 04.12.2019 og minnihluta bæjarstjórnar frá 22.08.2019 sem segir m.a. að minnihlutinn getur ekki tekið undir að um óverulega breytingu á aðalskipulagi sé að ræða og telur fyrirhugaðar breytingarnar þurfi að fara í gegnum skipulagsferli aðal- og deiliskipulags."
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með fjórum atkvæðum meirihlutans á móti Sæmundur Helgason, Bryndís Hólmarsdóttir og Páll Róbert Matthíasson.
"Minnihlutinn ítrekar bókun minnihluta skipulagsnefndar 14.08.2019 og 04.12.2019 og minnihluta bæjarstjórnar frá 22.08.2019 sem segir m.a. að minnihlutinn getur ekki tekið undir að um óverulega breytingu á aðalskipulagi sé að ræða og telur fyrirhugaðar breytingarnar þurfi að fara í gegnum skipulagsferli aðal- og deiliskipulags."
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með fjórum atkvæðum meirihlutans á móti Sæmundur Helgason, Bryndís Hólmarsdóttir og Páll Róbert Matthíasson.
17.
Aðalskipulagsbreyting: Þétting byggðar á Höfn
Björgvin Óskar greindi frá að tillaga vegna breytinga á aðalskipulagi um þéttingu byggðar í innbæ var kynnt fyrir íbúum á fundi í Nýheimum þann 4. nóvember sl. Markmið með breytingunni er að þétta byggð í innbæ, hún skal vera í samræmi við núverandi byggð hvað varðar tegundir, stærðir, þéttleika og ásýnd byggðar. Með þéttingu byggðar skal tryggja gönguleiðir að opnum svæðum. Ekkert deiliskipulag er til af svæðinu og verður því nýtt deiliskipulag unnið samhliða aðalskipulagsbreytingu. Lagði til að tillagan verði kynnt og auglýst í samræmi við 30. og 31 gr. skipulagslaga.
Sæmundur tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.
"Þriðja framboðið ítrekar bókun frá bæjarstjórnarfundi 14.11.2019. og telur enn að athugasemdum frá íbúum hafi ekki verið svarað nægilega vel í framlögðum hugmyndum."
Til andsvars Matthildur.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum, Sæmundur situr hjá.
"Þriðja framboðið ítrekar bókun frá bæjarstjórnarfundi 14.11.2019. og telur enn að athugasemdum frá íbúum hafi ekki verið svarað nægilega vel í framlögðum hugmyndum."
Til andsvars Matthildur.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum, Sæmundur situr hjá.
18.
Deiliskipulag Þétting byggðar Innbæ
Björgvin Óskar greindi frá að deiliskipulaginu er ætlað að koma á móts við eftirspurn og stuðla að vexti þéttbýlis með auknu lóðarframboði. Þétting byggðar tekur til nýrra lóða, auk aðliggjandi byggðra lóða við Silfurbraut og Hvannabraut. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir íbúðarlóðum fyrir einbýlishús og raðhús. Svæðið er auðkennt sem íbúðarsvæði ÍB9 í aðalskipulagi. Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagstillöguna og auglýsi hana samhliða breytingu á aðalskipulagi.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum, Sæmundur situr hjá.
Samþykkt með sex atkvæðum, Sæmundur situr hjá.
19.
Deiliskipulag Hafnarnes
Björgvin Óskar greindi frá að deiliskipulagið nær yfir 3.665 m² lóð í Hafnarnesi. Markmið með gerð deiliskipulagsins er að efla byggð og styrkja atvinnulíf í sveitarfélaginu. Skipulagið tekur til uppbyggingar ferðarþjónustu, veitingareksturs, gistiaðstöðu, þvottahúss, verslun, minni gistihúsa, íbúðarhúsa, aðstöðuhúss og starfsmannaaðstöðu sem samræmist aðalskipulagi. Lagði til að bæjarstjórn samþykki að vísa deiliskipulagstillögunni í lögformlegt ferli skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Umsókn um lóð: Víkurbraut 25
Erindi frá Snorra Snorrasyni fyrir hönd óstofnaðs félags þar sem óskað er eftir að úthlutun á lóðinni Víkurbraut 25. Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
21.
Ósk um breytingu á deiliskipulagi: Víkurbraut 25 og 27
Björgvin Óskar gerði grein fyrir óverulegum breytingum á deiliskipulagi við HSSA sagði það hafa verið kynnt fyrir grennd. Breytingin felst í að byggingarreitur Víkurbrautar 25 og 27 er sameinaður í einn. Engar athugasemdir bárust.Lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi HSSA og vísi því í lögformlegt ferli skv. 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
22.
Framkvæmdaleyfi - Varnargarður út í Einholtskletta
Björgvin greindi frá umsókn um framkvæmdaleyfi vegna varnargarðs frá Suðurfjörutanga út í Einholtskletta. Talið er að varnargarðurinn muni hafa jákvæð áhrif á sandburð í Grynnslin og tryggja öryggi á innsiglingu Hornafjarðar. Varnargarðurinn er um 150 m langur. Fyllingarefni í varnargarðinn verður að hluta til unnið úr núverandi varnargörðum á Suðurfjörutanga. Lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið.
Björgvin bar upp bókun og lagði til að bæjarstórn geri bókunina að sinni. "Bæjarstjórn telur framkvæmdina falla í flokk C skv. viðauka 1 í lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og telur því að vinna þurfi breytingu á Aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030 vegna efnistöku í námu E49 við Skinney, í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga."
Forseti bar bókunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Matthildur tók til máls.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar bókunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Matthildur tók til máls.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
23.
Ósk um breytingu á stærð Lóðar: Hagatún 6
Erindi frá Gunnari Frey F. Valgeirssyni dags. 4. október þar sem hann óskar eftir breytingu á stærð lóðar við Hagatún 6. Bæjarráð samþykkti breytingu á lóðarmörkunum.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingu á stærð lóðar við Hagatún 6.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
24.
Ránarslóð 6: Kvöð um lóð
Sigurður Jón Skúlason eigandi og lóðarhafi Ránarslóðar 6 fastanr. F2181135 landnúmer L159907 samþykkir að veita eigendum á Ránarslóð 8 leyfi til að klæða bílskúr sem liggur við og inn á lóð Ránarslóðar 6.
Forseti lagði til að bæjarstjórn staðfesti beiðni lóðarhafa að Ránarslóð 6 og 8.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
25.
Kosningar í nefndir 2018-2022
Öldungaráð.
B. lista - Ásgerður Kristín Gylfadóttir verður aðalmaður í stað Sigurlaugar Gissurardóttur.
B. lista - Ásgerður Kristín Gylfadóttir verður aðalmaður í stað Sigurlaugar Gissurardóttur.
26.
Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum síðastliðinn mánuð.