Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

272. fundur
2. apríl 2020 kl. 14:00 - 16:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 1. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson Forseti
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson 2. varaforseti
Sæmundur Helgason aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Aðgerðir til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf
Málsnúmer 202003064
Bæjarstjórn samþykkir að hefja eftirfarandi aðgerðir.
Fasteignaskattar.
Bæjarstjórn samþykkir að veita frest á allt að þrem gjalddögum á atvinnuhúsnæði fyrir fyrirtæki, sækja þarf sérstaklega um hjá sveitarfélaginu.
Bæjarstjórn felur starfsmönnum að afgreiða umsóknir skv. samþykkt bæjarstórnar.
Samþykkt að ekki verði rukkað fyrir ónýtta þjónustu í leikskóla, grunnskóla og Kátakoti.
Ljóst er að þetta eru fyrstu aðgerðir og verða endurskoðaðar þegar áhrif Covod-19 koma í ljós.
Farið verði í auknar markaðsaðgerðir í samvinnu við Ríki Vatnajökuls og Markaðsstofu Suðurlands.
Menning, aukin þjónusta verði hjá Menningarmiðstöð horft verði til barnamenningar.
Sundkort, árskort verði framlengt í samræmi við skertan opnunartíma sundlaugar.
Bæjarstjórn samþykkir að ekki verði greitt sérstaklega fyrir aukafundi bæjarstjórnar sem tengjast Covid-19.
Bæjarstjóra falið að koma á framfæri þeim aðgerðum sem sveitarfélagið hyggst ráðast í.
2.
Samningur um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði
Málsnúmer 201907087
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög sveitarfélagsins til HSU og felur bæjarstjóra að senda drögin til stjórnenda Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.