Bæjarstjórn Hornafjarðar
273. fundur
16. apríl 2020
kl.
13:00
-
14:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
1. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson
Forseti
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
2. varaforseti
Sæmundur Helgason
aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 938
Sæmundur Helgason tók til máls undir 1. lið, Fundur með umhverfis- og auðlindaráðherra 24. mars 2020.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 939
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 1. lið fundargerð. Fræðslu- og tómstundanefnd 8. lið, aðgerðir í fræðslu-, íþrótta- og tómstundamálum vegna Covid 19
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 940
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 9. lið, aðgerðir til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 941
Björgvin Ó. Sigurjónsson tók til máls undir 4. lið og lagði til að bæjarstjórn samþykki eftirfarandi bókun.
"Frá því í október 2019 hafa staðið yfir samningaviðræður við stjórnendur HSU um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði. Það lá fyrir í kjölfar ákvörðunar heilbrigðisráðherra Svandísar Svavarsdóttur að ekki yrði áframhald á samskonar samningi um rekstur heilbrigðisþjónustu og hefur verið í gildi síðan árið 1996. Samningaviðræður hafa verið í gangi síðustu vikur og þokast í rétta átt. Unnið er að því að semja við stjórnendur HSU um rekstur sjúkrarýma og heimahjúkrunar ásamt samstarfi um ýmsa þætti starfseminnar.
Þann 1. apríl síðastliðinn færðust heilsugæsla og sjúkraflutningar yfir til HSU. Þetta var erfiður dagur fyrir starfsfólk sem hefur verið undir miklu álagi vegna Covid faraldursins en breytingar sem þessar eru alltaf erfiðar. Bæjarstjórn vill því nota tækifærið og þakka fyrir frábært samstarf á undanförnum árum og óskar starfsfólki velfarnaðar hjá nýjum vinnuveitanda. Jafnframt er bæjarstjórn sannfærð um að samstarfið verði áfram gott og mun vinna með nýjum stjórnendum HSU til að ná því markmiði."
Forseti bar bókunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 271
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 272
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
7.
Ársreikningur sveitarfélagsins 2019
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2019 lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Ársreikningurinn hefur fengið kynningu í bæjarráði að viðstöddum aðalmönnum í bæjarstjórn. Ársreikningurinn var samþykktur í bæjarráði og vísa til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Matthildur Ásmundardóttir lagði fram ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2019. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 468 m.kr. og niðurstaða A hluta var jákvæð um 407,6. m.kr. Eigið fé í árslok 2019 nam 5.179 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en 4.602 m.kr. fyrir A hluta. Veltufé frá rekstri A og B hluta var 717 m.kr. en 567 m.kr. í A hluta. Eiginfjárhlutfall A og B hluta nam 78,1% í árslok og veltufjárhlutfall var 1,24. Skuldir og skuldbindingar A og B hluta námu 1.453 m.kr. í árslok 2019. Skuldahlutfall A og B hluta í árslok 2019 var 50% og skuldaviðmið 24% sem er vel undir 150% hámarki viðmiðunarreglu samkvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.
Matthildur lagði til að ársreikningi 2019 verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn um leið og hún þakkaði bæjarfulltrúum, starfsfólki og KPMG fyrir störf sín við vinnu við gerð ársreiknings.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

8.
Aðalskipulagsbreyting: Þétting byggðar á Höfn
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá að markmið með breytingunni er að þétta byggð í Innbæ, hún skal vera í samræmi við núverandi byggð hvað varðar tegundir, stærðir, þéttleika og ásýnd byggðar. Með þéttingu byggðar skal tryggja gönguleiðir að opnum svæðum. Þétting byggðar tekur til nýrra lóða, auk aðliggjandi byggðra lóða við Silfurbraut og Hvannabraut. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir íbúðarlóðum fyrir einbýlishús og raðhús. Svæðið er auðkennt sem íbúðarsvæði ÍB9 í aðalskipulagi. Tillagan var í kynningu frá 19. desember 2019 til mánudagsins 3. febrúar 2020. Umsagnir hafa borist frá Vegagerðinni, Náttúrufræðistofnun Íslands, Minjastofnun Íslands, Golfklúbbi Hornafjarðar og undirskriftarlisti frá íbúum. Rætt hefur verið við forsvarsmenn undirskriftarlista og haldinn var íbúafundur um málið þann 5. mars sl.
Björgvin lagði til að aðalskipulagsbreytingin verði samþykkt skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með þeim breytingum sem bent er á í umsögn Skipulagsstofnunar og að bæjarstjórn geri svör umhverfis- og skipulagsnefndar að sínum.
Sæmundur Helgason tók til máls.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með fjórum atkvæðum Ásgerðar K. Gylfadóttur, Björgvins Ó. Sigurjónssonar, Kristjáns G. Sigurðssonar og Ásgríms Ingólfssonar. Á móti Sæmundur Helgason, sátu hjá Bryndís Hólmarsdóttir og Páll Róbert Matthíasson.

9.
Deiliskipulag Þétting byggðar Innbæ
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá að deiliskipulaginu er ætlað að koma á móts við eftirspurn og stuðla að vexti þéttbýlis með auknu lóðarframboði. Þétting byggðar tekur til nýrra lóða, auk aðliggjandi byggðra lóða við Silfurbraut og Hvannabraut. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir íbúðarlóðum fyrir einbýlishús og raðhús. Svæðið er auðkennt sem íbúðarsvæði ÍB9 í aðalskipulagi. Tillagan var í kynningu frá 19. desember 2020 til mánudagsins 3. febrúar 2020. Umsagnir hafa borist frá Vegagerðinni, Náttúrufræðistofnun Íslands, Minjastofnun Íslands, Golfklúbbi Hornafjarðar og undirskriftarlisti frá íbúum. Rætt hefur verið við forsvarsmenn undirskriftarlista og haldinn var íbúafundur um málið þann 4. nóvember 2019 og 5. mars 2020.Jarðvegskönnun verður gerð áður en að lóðarúthlutun kemur sem skal taka tillit til við útfærslu á grundun nýrra húsa. Eftirfarandi breytingar voru gerðar og tillögu breytt að lokinni auglýsingu, til þess að koma til móts við athugasemdir: - Kafli 3.3. Nýjar lóðir og byggingarmagn. Kafli 3.5. Veitur og ofanvatn. Bætt er við ákvæðum varðandi ofanvatn. - Kafli 4.1. Almennt. Bætt er við ákvæðum um áfangaskiptingu framkvæmda. - Kafli 4.3. Grundun mannvirkja. Bætt er við nýjum kafla um grundun mannvirkja. - Kafli 4.5. Frágangur lóða. Bætt er við tímamörkum um frágang lóða. Gerðar eru eftirfarandi breytingar á uppdráttum: - Vesturbraut er þrengd niður í 4 m þar sem hún þverar gangstíg. - Umfang snúningssvæðis við norðurenda Silfurbrautar er minnkað. - Auðkennt er leiksvæði og/eða sparkvöllur syðst á skipulagssvæðinu. - Lóð nr. 41 við Silfurbraut felld út.
Björgvin lagði til að bæjarstjórn samþykki nýtt deiliskipulag fyrir þéttingu byggðar í Innbæ skv. 41. gr. skipulagslaga með þeim breytingum sem gerðar hafa verið eftir auglýsingu og að bæjarstjórn geri svör umhverfis- og skipulagsnefndar að sínum.
Páll Róbert Matthíasson tók til máls og gerði grein fyrir atkvæði sínu. Sæmundur Helgason tók til máls og óskaði eftir að bókað yrði að athugasemdir bárust frá Golfklúbbi Hornafjarðar að ekki er sjáanlegt í fundargerðum athugasemdir Golfklúbbsins. Ásgerður K. Gylfadóttir tók við stjórn fundarins. Til andsvars Ásgrímur Ingólfsson og lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd meirihlutans B- lista.
"Nú liggur til samþykktar aðal- og deiliskipulag um þéttingu byggðar í innbæ. Skipulagið er nokkuð umdeilt á meðal íbúa í innbænum og skiluðu íbúar inn undirskriftarlista þar sem skorað var á sveitarfélagið að falla frá fyrirhuguðu skipulagi. Skipulagið hefur fengið ítarlega umfjöllun á tveimur íbúafundum þar sem hlustað hefur verið á athugasemdir íbúa og reynt að verða við þeim eftir fremsta megni. Einnig hefur verið fjallað um athugasemdir Golfklúbbs Hornafjarðar.
Skipulagið hefur tekið breytingum vegna þeirra athugasemda sem bárust. Leitað var eftir áliti sérfæðinga vegna mögulegra áhrifa jarðvegsframkvæmda á nærliggjandi byggð. Gerðar voru nokkrar breytingar á auglýstri tillögu til að koma til móts við athugasemdir. Lóð við Silfurbraut 41 var felld út ásamt því að tvær lóðir næst golfskálanum voru færðar innar við Hríshólinn. Bætt var við ákvæðum varðandi ofanvatn, ákveðið var að áfangaskipta úthlutunum, bætt var við nýjum kafla um grundun mannvirkja og sett inn tímamörk er varðar frágang lóða ásamt því að sveitarfélagið mun kanna jarðveginn með jarðvegsborun. Vesturbraut var þrengd niður í 4 m þar sem hún þverar gangstíg og umfang snúningssvæðis við norðurenda Silfurbrautar minnkað. Útivistarsvæði neðan Vesturbrautar verður gert aðgengilegra og meira spennandi."
Til andsvars Sæmundur Helgason.
Forseti bar deiliskipulagstillöguna upp til atkvæða.

10.
Aðalskipulagsbreyting Skaftafell III og IV
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá að Skaftafell III og IV liggur sunnan við þjónustumiðstöðina í Skaftafelli, fyrirhugað verslunar- og þjónustusvæði er í um 1.500 m fjarlægð. Skaftafell er einn af fjölsóttustu ferðamannastöðum landsins og er í aðalskipulagi skilgreint sem einn af megin seglum ferðaþjónustu í sveitarfélaginu. Markmið breytingarinnar er að heimila uppbyggingu gistingar og íbúðar/starfsmannaíbúða og þjónustuhúsa, allt að 1.400 m² í landi Skaftafells III og IV til þess að auka þjónustu við þann fjölda ferðafólks sem kemur í Öræfin.
Björgvin lagði til að aðalskipulagsbreytingin verði samþykkt skv. 32. gr. skipulagslaga með þeim breytingum sem gerðar hafa verið eftir auglýsingu. Þar sem heimilt verði að byggja allt að 1400 m2, gætt verði að náttúrulegu plöntuvali og samráð verði haft við Vatnajökulsþjóðgarð við vinnslu deiliskipulags.
Lagði til að bæjarstjórn geri svör umhverfis- og skipulagsnefndar að sínum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Lagði til að bæjarstjórn geri svör umhverfis- og skipulagsnefndar að sínum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Deiliskipulag - Breiðabólstaður Hali
Erindi dags. 27. mars frá Steinþóri Torfasyni þar sem hann óskar eftir að hefja deiliskipulagsgerð á Breiðabólstaðartorfunni. Umhverfis- og skipulagsnefnd lagði til að heimiluð sé vinna við deiliskipulag í samræmi við 40. til 42. gr. skipulagslaga. Allar meginforsendur deiliskipulagsins liggja fyrir í aðalskipulagi og því er fallið frá kröfu um lýsingu.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að heimiluð sé vinna að nýju deiliskipulagi á Breiðabólstaðartorfunni og fallið verði frá kröfu um lýsingu.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
12.
Byggingaráform: Smáhýsi - Hali
Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir tvær 6 herberja sambyggðar smáhýsalengjur. Grenndarkynning hefur farið fram skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga en engar athugasemdir bárust.Fyrirhugaðar byggingar eru í samræmi við framlögð drög að deiliskipulagi s.br. lið 11 hér að framan. Framkvæmdirnar hafa verið grenndarkynntar án athugasemda. Umhverfis- og skipulagsnefnd lagði til að heimilað verði að gefa út byggingarleyfi í samræmi við deiliskipulag sem unnið er að á svæðinu. Áhersla er lögð á að frárennsli sé hugsað og lagt fram með heildarsýn fyrir bæjartorfuna í deiliskipulagi.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna skv. 43. og. 44. grein skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
13.
Óveruleg breyting á deiliskipulagi tjaldsvæði og íbúðarsvæðis við Fiskhól
Óveruleg breyting á byggingarreit á lóð L7, tjaldstæði. Byggingarreit er breytt þannig að hægt sé að byggja sérstæða hreinlætisaðstöðu sunnan við núverandi þjónustubyggingu. Tillagan felur í sér óverulega breytingu á notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi svæðisins. Breytingin hafur ekki áhrif á hagsmuni í grennd og því ekki þörf á grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi að nýju, þar sem áður samþykktur uppdráttur var gallaður og vísi henni til afgreiðslu Skipulagsstofnunar skv. 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Deiliskipulagsbreyting: Lambleiksstaðir
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá að markmið með gerð breytingar á deiliskipulagi fyrir Lambleiksstaði er að efla byggð og styrkja atvinnulíf. Ferðaþjónusta hefur lengi verið á Lambleiksstöðum og með gerð þessarar breytingar er rekstrargrundvöllur styrktur, skipulagssvæðið stækkað og skipt í byggingarreiti A-D hver með sína húsaþyrpingu. Breytingin á deiliskipulaginu tekur til frekari uppbyggingar á gistiaðstöðu og nýbygginga fyrir ferðaþjónustu. Skipulagið var til kynningar frá 16. maí til 1. júlí 2019 og tekið fyrir að nýju skv. umsögn Skipulagsstofnunar og með uppfærðum gögnum.
Tillögunni hefur verið breytt á eftirfarandi hátt skv. umsögnum og athugasemd Skipulagsstofnunar. - Tjaldsvæði hefur verið fellt út úr tillögunni. - Stærð skipulagssvæðis og byggingarreita hefur verið skilgreind í texta. - Fornleifar hafa verið skráðar og færðar inn á uppdrátt. - Byggingaráform og áfangaskipting hafa verið skilgreind nánar og form framsetningar lagfært. Önnur viðbrögð við athugasemdum: - Tillagan samræmist aðalskipulagi. VÞ15 heimilar allt að 40 gistirými. Í breytingu á ferðaþjónustukafla aðalskipulags sem nú er í staðfestingarferli hjá Skipulagsstofnun er þetta skilgreint nánar: "Þar sem fjallað er um gistirými í skipulaginu er almennt miðað við að eitt gistirými rúmi tvo næturgesti nema annað sé tekið fram." - Bæjarhúsin eru öll utan deiliskipulagsmarka. Einu húsin sem eru á skipulagssvæðinu eru nýleg smáhýsi, ætluð til ferðaþjónustu. Því er húsakönnun talin óþörf.
Björgvin lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagið skv. 41. gr. skipulagslaga með þeim breytingum sem gerðar hafa verið eftir auglýsingu og að bæjarstjórn geri svör umhverfis- og skipulagsnefndar að sínum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Björgvin lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagið skv. 41. gr. skipulagslaga með þeim breytingum sem gerðar hafa verið eftir auglýsingu og að bæjarstjórn geri svör umhverfis- og skipulagsnefndar að sínum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Ósk um breytingu á lóðarhafa
Erindi frá Aroni Franklín Jónssyni þar sem hann óskar eftir að breyta lóðarhafa á lóð nr. 6 við Borgartún á fyrirtækið Local guide ehf. Bæjarráð er jákvætt fyrir breytingunni.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi breytingu á lóðarhafa.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Deiliskipulag Þorgeirsstaðir í Lóni
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá að deiliskipulagið nær til hluta jarðanna Þorgeirsstaða (landnr. 159402) og Þorgeirsstaða 3 (landnr. 223144) í Lóni í Sveitarfélaginu Hornafirði. Skipulagssvæðið er um 12 ha að stærð og er í þrennu lagi. Á Þorgeirsstöðum er íbúðarhús og fjárhús en einnig hefur verið rekin þar ferðaþjónusta með gistingu fyrir 7 gesti. Virkjun er í Þorgeirsstaðaá. Fyrirhuguð er frekari uppbygging á ferðaþjónustustarfsemi, m.a. að breyta fjárhúsum í gistingu og vera með gistingu fyrir allt að 60 gesti. Einnig eru fyrirhugaðar tvær nýjar virkjanir í Þorgeirsstaðaá, tjaldsvæði vestan árinnar og göngubrú yfir ána. Í Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar er skipulagssvæðið skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði (VÞ35), afþreyingar- og ferðamannasvæði (AF25) og landbúnaðarsvæði. Þá er heimilt að byggja smávirkjun með uppsettu rafafli allt að 200 kW. Tillagan var kynnt í forkynningu frá 6. apríl á netmiðlum í ljósi samkomubanns.
Björgvin lagði til að skipulagstillagan verði auglýst skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga þegar Skipulagsstofnun hefur gefið jákvæða umsögn.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Brúarstæði yfir Fellsá
Bæjarstjórn barst erindi vegna málsins þann 27. júní 2019 þar sem Skúli Gunnar Sigfússon óskaði þess að bæjarstjórn tæki afstöðu til þess hvort að farið yrði fram á það við Vegagerðina að staldrað við með byggingu brúar yfir Fellsá og brúin færð 2-300 metrum neðar og þar með suður fyrir Hrollaugshóla. Bæjarráð hafnaði erindinu á fundi sínum þann 8. júlí 2019 þar sem búið væri að bjóða út brúarframkvæmdina. Nú er fyrirhugað að hefja framkvæmdir samhliða brúargerð yfir Steinavötn. Bæjarstjóri hefur verið í samskiptum við landeigendur og Vegagerðina vegna málsins. Þann 7. apríl 2020 barst erindi frá stjórn Suðursveitar ehf. þar sem skorað er á bæjarstjórn að álykta um legu þjóðvegar 1 um land Reynivalla í Suðursveit.
Forseti lagði fram eftirfarandi bókun bæjarstjórnar.
Í sveitarfélaginu er í gildi aðalskipulag sem gildir til ársins 2030. Þar er núverandi veglína á skipulagi og því er framkvæmd við brú yfir Fellsá í samræmi við aðalskipulag.
Bæjarstjórn leggur áherslu á að fækka einbreiðum brúm í sveitarfélaginu til að auka umferðaröryggi. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er ástand brúar yfir Fellsá orðið mjög lélegt og nauðsynlegt að endurnýja hana hið fyrsta. Framkvæmdin var boðin út og samið hefur verið við verktaka um framkvæmdina, m.a. verktaka frá Hornafirði. Bæjarstjórn telur mikilvægt að farið verði í framkvæmdina með það að markmiði að auka öryggi vegfarenda og halda uppi atvinnustigi í sveitarfélaginu. Framkvæmdin útilokar ekki aðrar vegstyttingar í framtíðinni um svæðið. Tilfærsla veglínu og brúarstæðis suður fyrir Hrollaugshóla þyrfti að fara í gegnum aðalskipulagbreytingu og í framhaldinu að komast á samgönguáætlun, gera má ráð fyrir að það geti tekið nokkur ár.
Það er því mat bæjarstjórnar að ástand brúarinnar samhliða þörfinni fyrir tvíbreiða brú gefi ekki svigrúm til að bíða með framkvæmdina."

18.
Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum síðastliðinn mánuð.