Bæjarstjórn Hornafjarðar
275. fundur
11. júní 2020
kl.
16:00
-
17:30
í Holti
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
1. varaforseti
Íris Heiður Jóhannsdóttir
1. varamaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Finnur Smári Torfason
2. varamaður
Páll Róbert Matthíasson
2. varaforseti
Sæmundur Helgason
aðalmaður
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 946
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 947
Sæmundur Helgason tók til máls undir 1. lið fræðslu- og tómstundanefnd nr. 68. Til andsvars Íris Heiður Jóhannsdóttir og Matthildur Ásmundardóttir.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 948
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 949
Finnur Smári Torfason tók til máls undir 2. lið fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar og lið nr. 9 eldvarnarbandalagið.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 274
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Ársreikningur HSU Hornafirði 2019
Bæjarráð vísaði ársreikningnum til kynningar í bæjarstjórn og til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2020.
Matthildur Ásmundardóttir bar upp tillögu að bókun bæjarstjórnar. "Samkvæmt drögum að ársreikningi HSU Hornafirði fyrir árið 2019 er tap stofnunarinnar 45,7 milljónir króna. Eigið fé var í árslok neikvætt um 36,7 milljónir króna. Ljóst er að rekstur með sömu forsendum gengur ekki og mun leiða til greiðsluþrots. Rekstur þessa árs stefnir í um 40 m.kr. halla og því er brýnt að fara í aðgerðir til þess að minnka halla yfirstandandi rekstrarárs og treysta rekstrargrundvöll. Starfshópur hefur verið að störfum á hjúkrunarheimilinu með það að markmiði að ná fram hagræðingu í rekstri sem meðal annars hefur leitt til lokunar mötuneytis kl. 16 á daginn, einnig hefur verið sett á yfirvinnubann og samhliða er unnið að skilgreiningu öryggisviðmiða út frá mönnun. Leitað er allra leiða til að ná fram hagræðingu án þess að segja upp starfsfólki.
Starfsmenn hafa lýst óánægju sinni með þær breytingar sem kynntar hafa verið með bréfi til bæjarráðs en haldnir hafa verið fundir með starfsmönnum um málið af stjórnendum og bæjarstjóra. Bæjarstjórn hefur fullan skilning á þeirri óánægju og harmar þá stöðu sem komin er upp. Starfsmenn og stjórnendur hafa staðið vaktina í gegnum Covid faraldurinn með mikilli prýði og vill bæjarstjórn þakka þeirra óeigingjarna framlag í gegnum þennan erfiða tíma. Það er þó ljóst að leita þarf allra leiða til að ná niður hallarekstri stofnunarinnar.
Bæjarstjóri hefur fundað með Sambandi íslenskra sveitarfélaga og forsvarsmönnum sveitarfélaga sem reka hjúkrunarheimili víða um landið og unnið er að því hörðum höndum að fá fjárframlög til reksturs hjúkrunarheimila í landinu leiðrétt. Heilbrigðisráðherra hefur kynnt áform um að framkvæmd verði úttekt á rekstri hjúkrunarheimila sem mun vonandi leiða til þess að samningar verði teknir upp og fjárframlög endurskoðuð."
Páll Róbert Matthíasson tók til más Sæmundur Helgason tók einnig til máls.
Til andsvars Matthildur Ásmundardóttir.
Páll Róbert tók við stjórn fundarins.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls.
Forseti bar bókunina upp til atkvæða með fyrirvara um breytingar á orðalagi og innihaldi textans sem komu fram á fundinum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

7.
Rammasamningur milli SÍ og hjúkrunarheimila um þjónustu hjúkrunarheimila
Samningur sveitarfélagsins við Sjúkratrygginga Íslands er uppsegjanlegur frá 7. júlí og leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að honum verði sagt upp.
Samningur sveitarfélagsins við Sjúkratrygginga Íslands er uppsegjanlegur frá 7. júlí og leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að honum verði sagt upp.
Matthildur tók til máls og bar upp tillögu að bókun bæjarstjórnar.
“Rekstur hjúkrunarheimilisins Skjólgarðs hefur þyngst verulega undanfarin ár. Fyrstu drög ársreiknings sýna fram á að eigið fé stofnunarinnar í árslok var neikvætt um 36,7 m.kr. þá eru ótaldar lífeyrisskuldbindingar sem munu að öllum líkindum falla á stofnunina að upphæð 34 m.kr. Rekstrarvandi þessa árs er mikill og markþættur, yfirfærsla heilsugæslu, sjúkraflutninga og sjúkrarýma til HSU hefur þar áhrif. Bendir allt til þess að uppsafnaður rekstrarhalli í lok árs verði um og yfir 100 m.kr. Bæjarstjórn getur ekki unað við að rekstrarvandi hjúkrunarheimilisins lendi á sveitarfélaginu enda er rekstur hjúkrunarheimila á ábyrgði ríkisins samkvæmt lögum. Sveitarfélagið Hornafjörður hefur rekið þennan málaflokk af myndugleika um langt skeið og hefur mikinn áhuga á að halda því verkefni áfram en sér sér engan veginn fært miðað við þær rekstrarforsendur sem núverandi fjárframlög frá ríkinu bjóða uppá.
Það er því með trega sem bæjarstjórn mun segja upp rammasamningi milli SÍ og sveitarfélagsins frá og með 7. júlí næstkomandi og óska eftir viðræðum við heilbrigðisráðherra um hvernig ríkið geti staðið betur að fjármögnun þannig að áframhald geti orðið á rekstri sveitarfélagsins á þjónustunni.
Ásgerður tók við fundarstjórn.
Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls. Einnig tóku til máls Sæmundur Helgason, Páll Róbert Matthíasson og Matthildur Ásmundardóttir.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi bókun og uppsögn á samningi við Sjúkratryggingar Íslands.

8.
Endurnýjun Jafnréttisáætlunar
Endurskoðun á jafnréttisáætlun er lokið, hafa allar nefndir sveitarfélagsins tekið hana til umsagnar. Engar athugasemdir voru gerðar við breytingar á áætluninni. Helstu breytingar á jafnréttisáætluninni eru þær að henni hefur verið skipt í tvennt þar sem skerpt er á því sem sveitarfélagið vinnur að út á við í jafnréttismálum annars vegar og hins vegar sem atvinnurekandi. Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu og lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingar á jafnréttisáætlun sveitarfélagsins.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2020
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðauka II. Viðauka er mætt með lækkun á handbæru fé og viðbótar lántöku að fjárhæð 50 m.kr. Lagði bæjarstjóri til að bæjarstjórn samþykki viðauka II.
Forseti bar viðauka II upp til afgreiðslu.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Aðalskipulagsbreyting Svínhólar
Björgvin greindi frá því að meginmarkmið með aðalskipulagsbreytingunni er að staðsetja nýtt verslunar-og þjónustusvæði og skógræktar- og landgræðslusvæði á Svínhólum. Svæðið er afmarkað á uppdrætti og nánari skilmálar eru settir í greinargerð. Heimilt verður að byggja upp ferðaþjónustu með gistingu/hóteli sem hýst getur allt að 203 gesti. Einnig er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir starfsfólk í sér húsi og 20 heilsárshúsum, þar sem dvalið yrði aðeins hluta árs. Áform eru einnig uppi um skógrækt á jörðinni í samræmi við samning við Skógræktina um nytjaskógrækt. Tillögurnar voru í kynningu frá og með 25. mars til 5. maí 2020 Umsagnir hafa borist frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Umhverfisstofnun, Veðurstofunni, Náttúrufræðistofnun, Hafrannsóknarstofnun, HAUST og Minjastofnun. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur brugðist við þeim umsögnum og unnið svör. Björgvin lagði til að bæjarstjórn geri svör umhvefis- og skipulagsnefndar að sínum, samþykki breytingu á aðalskipulagi við Svínhóla og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Páll Róbert tók til máls.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Deiliskipulag Svínhólar
Björgvin greindi frá því að markmiðið með gerð deiliskipulagsins er að staðsetja nýtt verslunar-og þjónustusvæði og skógræktar- og landgræðslusvæði á Svínhólum. Svæðið er afmarkað á uppdrætti og nánari skilmálar eru settir í greinargerð. Heimilt verður að byggja upp ferðaþjónustu með gistingu/hóteli sem hýst getur allt að 203 gesti. Einnig er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir starfsfólk í sér húsi og 20 heilsárshúsum, þar sem dvalið yrði aðeins hluta úr ári. Áform eru einnig uppi um skógrækt á jörðinni í samræmi við samning við Skógræktina um nytjaskógrækt. Deiliskipulagstillagan var í kynningu frá 25. mars til 5. maí 2020. Umsagnir bárust frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Umhverfisstofnun, Veðurstofunni, Náttúrufræðistofnun, Hafrannsóknarstofnun, HAUST og Minjastofnun. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur brugðist við þeim og unnið svör. Björgvin lagði til að bæjarstjórn geri svör umhverfis- og skipulagsnefndar að sínum, samþykki nýtt deiliskipulag að Svínhólum og vísi því í lögformlegt ferli skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Deiliskipulagsbreyting: Stafafellsfjöll lóð 45a
Björgvin greindi frá að fyrirhuguð óveruleg breyting á deiliskipulagi vegna stækkunar á sumarhúsi hefur verið kynnt landeigendum og lóðarhöfum á aðliggjandi lóðum sem hafa lýst því yfir skriflega að þeir gera ekki athugasemdir við óverulega breytingu á deiliskipulaginu. Lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi í Stafafellsfjöllum skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga geri bókun umhverfis-og skipulagsnefndar að sinni og vísi því í lögformlegt ferli.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Júllatún 17
Forseti greindi frá að grenndarkynning vegna stækkunar á lóð við Júllatún 17 og samsvarandi minnkun á lóð við Júllatún 15 hefur farið fram, engar athugasemdir bárust.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna breytingu á lóðarstærðum skv. 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Hafnarbraut 20: Beiðni um breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012 - 2030
Erindi dags. 13. maí 2020 þar sem óskað er eftir breytingu á aðalskipulagi 2012-2030 vegna Hafnarbrautar 20 sem er í dag á íbúðasvæði verði breytt í miðsvæði. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að ekki verði gerð breyting á aðalskipulagi vegna Hafnarbrautar 20.
Forseti lagði til að bæjarstjórn hafni breytingu á aðalskipulagi vegna Hafnarbrautar 20.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Breyting á aðalskipulagi - Fiskhóll 11
Erindi dags. 27. maí 2020 þar sem óskað er eftir breytingu á aðalskipulagi 2012-2030 og landnotkunar lóðar á Fiskhól 11 sem er í dag á íbúðabyggð verði breytt í verslunar- og þjónustuhúsnæði. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að ekki verði gerð breyting á aðalskipulagi vegna Fiskhóls 11.
Forseti lagið til að bæjarstjórn hafni breytingu á aðalskipulagi vegna Fiskhóls 11.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Tilkynning um framkvæmd: Silfurbraut 25 - sólstofa og þakskyggni
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að framkvæmdin verði grenndarkynnt skv. 44. gr. skipulagslaga fyrir nágrönnum í raðhúsinu með því fororði að aðrar mögulegar sólstofur við húsið verði sambærilegar.
Forseti lagði til að unnin verði grenndarkynning fyrir Silfurbraut 25.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Borgir - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Forseti greindi frá umsókn um byggingarleyfi fyrir frístundahús að Borgum í Nesjum.Fyrirhuguð bygging er á landbúnaðarlandi og skv. aðalskipulagi er heimilt að byggja eitt frístundahús á lögbýlum. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að heimlit verði að byggja frístundahús skv. meðfylgjandi gögnum án deiliskipulagsgerðar skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga og án grenndarkynningar þar sem framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en landeigenda og umsækjanda skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Kjörskrá vegna forsetakosninga 2020
Erindi frá Þjóðskrá Íslands dags. 9. júní 2020 þar sem fram koma leiðbeiningar um meðferð kjörskrárstofna vegna forsetakosninga 27. júní 2020. Jafnframt lagður fram stofn að kjörskrá fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð, sem unnin hefur verið af Þjóðskrá Íslands og yfirfarin af starfsmanni sveitarfélagsins. Alls eru 1.515 á kjörskrá sveitarfélagsins fyrir þessar kosningar.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki framlagða kjörskrá eins og hún liggur fyrir og felur bæjarstjóra að undirrita hana.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti lagði til að bæjarstjórn veiti bæjarráði fullt umboð til fullnaðarafgreiðslu mála vegna kjörskrár.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti lagði til að bæjarstjórn veiti bæjarráði fullt umboð til fullnaðarafgreiðslu mála vegna kjörskrár.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Fundir bæjarstjórnar og bæjarráðs sumarið 2020
Lögð fram tillaga að fundartíma bæjarráðs á meðan bæjarstjórn er í sumarfríi.
Forseti bar upp tillögu um að bæjarstjórn verði í sumarleyfi í júlí og að bæjarstjórn veiti bæjarráði fullt umboð til afgreiðslu mála þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa skv. 8. gr. samþykkta Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum sl. mánuð.