Bæjarstjórn Hornafjarðar
276. fundur
20. ágúst 2020
kl.
17:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
1. varaforseti
Íris Heiður Jóhannsdóttir
1. varamaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
2. varaforseti
Sæmundur Helgason
aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 950
Íris Heiður Jóhannsdóttir tók til máls undir 1. lið fundargerð fræðslu- og tómstundanefndar, húsnæði Kátakots og 2. lið Efling leikskólastigsins. Sæmundur Helgason tók til máls undir 4. lið Hjólreiða- og göngustígur á milli Nesjahverfis og Hafnar. Til andsvars Matthildur Ásmundardóttir.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 951
Fundargerðin lögð fram til kynningar
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 952
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 953
Sæmundur Helgason tók til máls undir 7. lið, Umsögn um útgáfu leyfa: Gistihús GST. Til andsvars Matthildur Ásmundardóttir. Til andsvars Sæmundur Helgason.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 954
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Bæjarráð Hornafjarðar - 955
Bryndís Hólmarsdóttir tók til máls undir 12. lið Matarsmiðjan, til andsvars Matthildur Ásmundardóttir.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
7.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 275
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
8.
Reglur um félagslega heimaþjónustu
Reglur þessar eru uppfærðar með vísan til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og laga um málefni aldraðra nr. 125/1999.Markmið heimaþjónustu er að efla notandann til sjálfsbjargar og sjálfræðis og gera honum kleift að búa sem lengst á eigin heimili við sem eðlilegastar aðstæður. Við framkvæmd og skipulagningu þjónustunnar skal lögð áhersla á að sníða hana að þörfum notandans og virða sjálfsákvörðunarrétt hans.
Forseti bar reglur um félagslega heimaþjónustu upp til samþykktar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Ósk um óverulega breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi Hnappavöllum
Björgvin Sigurjónsson greindi frá að Íslandshótel óska eftir óverulegri breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 í landi Hnappavalla vegna hótelbyggingar. Óskað er eftir því að heimilaður herbergjafjöldi verði færður úr 120 herbergjum í 125 herbergi. Skipulagsnefnd samþykkti breytinguna á fundi sínum 12. ágúst sl.Lagði til að bæjarstjórn samþykki tillögu að óverulegri breytingu á aðalskipulagi við Hnappavelli og vísi því í lögformlegt ferli skv. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Óveruleg breyting á deiliskipulagi við Hnappavelli
Björgvin Sigurjónsson greindi frá að Íslandshótel óska eftir óverulegri breytingu á deiliskipulagi í landi Hnappavalla vegna hótelbyggingar. Óskað er eftir því að heimilaður herbergjafjöldi verði færður úr 120 herbergjum í 125 herbergi. Skipulagsnefnd samþykkti breytinguna á fundi sínum 12. ágúst sl. Lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi við Hnappavelli og vísi því í lögformlegt ferli skv. 43. gr. skipulagslaga.Ekki er þörf á að grenndarkynna breytinguna því hún hefur ekki áhrif á hagsmuni í grennd, skv. 44. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Aðalskipulagsbreyting náma í Skinney
Björgvin Sigurjónsson greindi frá að vegna vinnu við sjóvarnargarða var unnin aðalskipulagsbreyting þar sem náman í Skinney var stækkuð úr 10.000 m3 í 30.000 m3.Ljóst er að það efni er ekki nægilegt fyrir varnargarðana og því æskilegt að auka enn frekar við efnismagnið sem tekið er úr námunni. Stærð námunnar verður áfram innan við 3 ha en óskað er eftir heimild til að vinna óverulega breytingu á aðalskipulagi og auka efnismagn í 49.000 m3 og eiga þá möguleika á að nýta námuna til minniháttar viðhaldsvinnu við garðana á næstu árum.Aðalskipulagsbreytingin felur í sér óverulega breytingu á landnotkun og sé ekki líkleg til að hafa mikil áhrif á einstaka aðila eða hafa áhrif á stór svæði. Aukning á efnistöku fellur undir flokk C í lið 2.04 í 1. viðauka laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Samkvæmt viðmiðum í 2. viðauka sömu laga um eðli, umfang og staðsetningu framkvæmdarinnar er framkvæmdin ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og er því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.Lagði til að bæjarstjórn samþykki tillögu að breytingu á aðalskipulagi skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga og vísi henni í lögformlegt ferli
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Björgvin Óskarsson kynnti nýja skipulagslýsingu fyrir miðsvæði Hafnar. Með nýju deiliskipulagi á að styrkja miðsvæði bæjarins umhverfis skóla- og íþróttasvæðið og leggja línurnar fyrir þróun þess. Stefnt er að því að endurskipuleggja svæðið með það að markmiði að efla enn frekar aðstöðu til íþróttaiðkunar, lagfæra skólalóðir og efla svæðið sem aðlaðandi útivistarsvæði til samverustunda og mannfagnaðar, allan ársins hring. Lagði til að bæjarstjórn samþykki lýsingu að nýju deiliskipulagi fyrir miðsvæði Hafnar og vísi því til umsagnar hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum og að kynna lýsinguna fyrir almenningi skv. 40. gr. skipulagslaga.
Sæmundur Helgason tók til máls undir þessum lið, til andsvars Matthildur Ásmundardóttir og Björgvin Sigurjónsson.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Tilkynning um framkvæmd: Silfurbraut 25 - sólstofa og þakskyggni
Grenndarkynning vegna byggingar sólstofu og þakskyggnis að Silfurbraut 25 hefur farið fram skv. 44. gr. skipulagslaga. Ein athugasemd barst í gegnum síma þar sem lögð var áhersla á að samræma útlit sólstofa við raðhúsið.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna og vísi henni í lögformlegt ferli.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Tilkynning um framkvæmd: Birkifell, stöðuhýsi
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki afgreiðslu skipulagsnefndar um staðsetningu smáhýsis við Birkifell án deiliskipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga staðsetning hússins og hafi ekki áhrif á hagsmuni annarra en umsækjanda og að bæjarstjórn samþykki að fallið verði frá grenndarkynningu skv. 2. ml. 3. mg. 44. gr. skipulagslaga. Afgreiðslan samræmist aðalskipulagi.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að fallið verði frá grenndarkynningu.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Nýr lóðarsamningur og ósk um stækkun á lóð: Bogaslóð 4
Skipulagsnefnd leggur til að lóðin verði stækkuð um 218 m².
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki stækkun á lóðinni.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum sl. mánuð.