Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

278. fundur
8. október 2020 kl. 16:00 - 17:34
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 1. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson Forseti
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson 2. varaforseti
Sigrún Sigurgeirsdóttir 1. varamaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson skipulags- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 959
Málsnúmer 2009004F
Sigrún Sigurgeirsdóttir tók til máls undir 8. lið Þróun íbúafjölda í sveitarfélaginu.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 960
Málsnúmer 2009008F
Páll Róbert Matthíasson tók til máls undir 2. lið, opnunartími íþróttahúss, 12. lið, erindi til ráðherra: Fjölgun verkefna á skrifstofu sýslumanns á Hornafirði og 3. lið Pólskukennsla yngri barna. Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 10. lið framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna. Matthildur Ásmundardóttir tók til máls undir 12. lið, erindi til ráðherra: Fjölgun verkefna á skrifstofu sýslumanns á Hornafirði. Páll Róbert tók einnig til máls um 4. lið, lögfræðing sveitarfélagsins.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 961
Málsnúmer 2009010F
Kristján S. Guðnason tók til máls undir 1. lið menningarmálanefnd.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 962
Málsnúmer 2010001F
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 277
Málsnúmer 2009003F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2020
Málsnúmer 202002017
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðauka III sem innifelur 105 m.kr. lækkun á tekjum frá Jöfnunarsjóði sem mætt verður með hækkun á lántöku ársins um 100 m.kr.
Forseti bar viðauka III upp til afgreiðslu.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Aðalskipulagsbreyting Svínhólar
Málsnúmer 201709404
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá því að bæjarstjórn samþykkti aðalskipulagsbreytingu fyrir Svínhóla 11. júní 2020 og óskaði eftir staðfestingu Skipulagsstofnunar. Stofnunin gerði athugasemdir við aðalskipulagsbreytinguna, þarf því að samþykkja hana að nýju. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkti fyrirliggjandi breytingu á aðalskipulagi á fundi sínum þann 5. október sl. Megin markmið með aðalskipulagsbreytingunni er að staðsetja nýtt verslunar-og þjónustusvæði og skógræktar- og landgræðslusvæði að Svínhólum. Heimilt verður að byggja upp ferðaþjónustu með gistingu/hóteli sem hýst getur allt að 203 gesti. Áform eru einnig uppi um skógrækt á jörðinni í samræmi við samning við Skógræktina um nytjaskógrækt.Lagði til að bæjarstjórn samþykki svör umhverfis- og skipulagsnefndar, geri þau að sínum, samþykki fyrirliggjandi breytingu á uppdrætti og greinargerð og vísi þeim í lögformlegt ferli skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Deiliskipulag Svínhólar
Málsnúmer 201903014
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá því að bæjarstjórn samþykkti nýtt deiliskipulag fyrir Svínhóla 11. júní 2020 og óskaði eftir staðfestingu Skipulagsstofnunar, stofnunin gerði athugasemdir við deiliskipulagið, þarf því að samþykkja það að nýju. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkti skipulagið á fundi sínum þann 5. október sl. Markmiðið með gerð deiliskipulagsins er að staðsetja nýtt verslunar-og þjónustusvæði og skógræktar- og landgræðslusvæði að Svínhólum. Heimilt verður að byggja upp ferðaþjónustu með gistingu/hóteli sem hýst getur allt að 203 gesti.Lagði til að bæjarstjórn samþykki svör umhverfis- og skipulagsnefndar og geri þau að sínum og samþykki fyrirliggjandi breytingu á uppdrætti og greinargerð og vísi þeim í lögformlegt ferli skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga.
Matthildur Ásmundardóttir tók til máls.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Óveruleg breyting á aðalskipulagi Flugvöllur í Skaftafelli
Málsnúmer 201803092
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá því að bæjarstjórn samþykkti óverulega breytingu á aðalskipulagi á fundi sínum þann 11. apríl 2018 málið hlaut ekki framgang vegna almannavarnarsjónamiða á meðan beðið var eftir niðurstöðu hættumats vegna berghlaups í Svínafellsjökli. Lagt er til að fallið verði frá að breytingin verði óveruleg.Veruleg breyting snýst um nýtt svæði fyrir verslun- og þjónustu við flugvöllinn í Skaftafelli. Umsögn um málið hefur borist frá Veðurstofu Íslands sem í ljósi bráðbirgðaniðurstaðna telur að hægt sé að byggja upp þjónustu á svæðinu með ákveðnum skilmálum.Lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingu á aðalskipulagi við Flugvöll í Skaftafelli og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Ósk um deiliskipulagsbreytingu: Flugvöllur í landi Skaftafells/Freysnes
Málsnúmer 201802039
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá því að umhverfis- og skipulagsnefnd lagði til á fundi sínum þann 5. október að bæjarstjórn heimili að unnin verði breyting á deiliskipulagi fyrir flugvöll í landi Skaftafells/Freysness. Breytingin snýr að því að heimila byggingu veitinga- og bensínsöluskála við flugvöllinn. Skipulagsbreytingin var áður tekin fyrir í febrúar 2018 en vinna við hana stöðvuð þegar í ljós kom að svæðið gæti verið í hættu vegna berghlaups úr Svínafellsjökli. Borist hefur umsögn VÍ um tillöguna með tilliti til bráðabirgðaniðurstöðu áhættumats. Lagði til að bæjarstjórn samþykki að heimila að hefja vinnu að breytingu á deiliskipulagi.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Deiliskipulagsbreyting: Skemma í Skaftafelli
Málsnúmer 202008060
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá því að fyrirhugað er að reisa um 200m² geymslu/skemmu í Skaftafelli norðan við gestastofuna. Hæð útveggja er um 3 m. og þakform er hefðbundið risþak. Fyrirhugað er að skemman verði úr yleiningum með steyptri plötu og sökkli.Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til óverulega breytingu á deiliskipulagi í Skaftafelli. Tillagan felur í sér óverulegar breytingar á notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi svæðisins. Breytingin hefur engin áhrif á hagsmuni í grennd og því ekki þörf á grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga. Svæðisráð suðursvæðis fjallaði um málið á fundi sínum þann 20. ágúst 2020 þar kemur fram að framkvæmdin er liður í úrbótum á innviðum í Skaftafelli. Lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísi því í lögformlegt ferli skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Sigrún Sigurgeirsdóttir tók til máls.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Byggingarleyfisumsókn: Víkurbraut 2 - viðbygging
Málsnúmer 202009086
Umsókn Funaborgar ehf. um leyfi fyrir stækkun á þegar samþykktri viðbyggingu við eign 0102 að Víkurbraut 2. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að falla frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Samþykki meðeigenda af húsinu liggur fyrir og viðbyggingin er á baklóð og hefur ekki áhrif á hagsmuni annarra.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Málsnúmer 201908014
Kynning á lýsingu fyrir deiliskipulag Miðsvæði Hafnar er lokið. Umsagnir og athugasemdir bárust frá Minjastofnun Íslands, Vegagerðinni, Skipulagsstofnun, Fimleikadeild Sindra og Kristínu Hermannsdóttur.
Sigrún Sigurgeirsdóttir tók til máls. Til andsvars Matthildur Ásmundardóttir. Páll Róbert Matthíasson tók einnig til máls.
Lagt fram til kynningar.
Vísað til deiliskipulagsgerðar.
14.
Deiliskipulag Háhóll - Dilksnes
Málsnúmer 201904013
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá því að umsagnir hafa borist frá Minjastofnun, Skipulagsstofnun og Vegagerðinni. Gerð hefur verið húsakönnun á svæðinu eins og bent var á þegar kynningarferli stóð.Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að deiliskipulagið verði samþykkt skv. 42. gr. skipulagslaga með þeim breytingum sem lagðar eru til í umsögn Skipulagsstofnunar. Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagið með þeim breytingum sem lagðar eru til í umsögn Skipulagsstofnunar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Stafafellsfjöll - ósk um undanþágu vegna fjarlægðar frá lóðamörkum
Málsnúmer 202009060
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri bar upp erindi sem barst frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu þar sem óskað er eftir umsögn Sveitarfélagsins Hornafjarðar um beiðni um undanþágu frá skipulagsreglugerð nr. 90/2013 varðandi fjarlægð frístundahúss frá lóðamörkum á lóð 11 í Stafafellsfjöllum. Um er að ræða mál sem hefur verið á borði sveitarfélagsins frá árinu 2006 og hefur tvisvar verið vísað til úrskurðar í Úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála. Umrætt hús sem sótt er um undanþágu fyrir var líklega reist á lóðinni árið 2006 en ekki var sótt um byggingarleyfi fyrir því á sínum tíma. Hinsvegar var veitt tímabundið stöðuleyfi fyrir gám á þeim stað sem húsið stendur á. Áður hefur bæjarstjórn fjallað um breytingu á deiliskipulagi þar sem gert yrði ráð fyrir húsinu á þeim stað sem það hefur verið reist og var þeirri umsókn hafnað. Staðan nú er sú að byggingarfulltrúi sveitarfélagsins tók ákvörðun í lok júlí 2018 um að ólöglegt mannvirki á lóð 11 í Stafafellsfjöllum skyldi fjarlægt eða flutt inn á byggingarreit.
Bæjarstjóri bar upp eftirfarandi bókun.
Afstaða bæjarstjórnar í málinu byggist á því að lóðarhafar aðliggjandi lóðar hafa lagst gegn breytingunni og telja staðsetningu hússins ganga gegn sínum hagsmunum. Sveitarfélagið hefur ekki talið stætt á því að ganga gegn hagsmunum lóðarhafa á lóð 10 með því að leyfa staðsetningu hússins á lóð 11. Það er ennfremur afstaða sveitarfélagsins sem hefur ítrekað komið fram að náist samkomulag um óbreytta staðsetningu hússins milli lóðarhafa á lóð 11 og lóð 10 séu það breyttar forsendur og sveitarfélagið gerir ekki athugasemd við að undanþága sé veitt. Bæjarstjórn hefur vísað til þess að tilgangur fjarlægðarreglu í gr. 5.3.2.12 í skipulagsreglugerð sé að tryggja lágmarks fjarlægð milli frístundahúsa og dreifingu frístundabyggðar og skapa með því þá friðsæld sem sóst sé eftir í slíkri byggð.
Það er mat bæjarstjórnar að náist samkomulag lóðarhafa geti fjarlægð milli frístundahúsa samt sem áður verið tryggð, enda sé byggingarreitur fyrir hús á lóð nr. 10 í 20m fjarlægð frá lóðamörkum.
Forseti bar bókunina upp til samþykktar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Framkvæmdaleyfi: Stækkun á dreifikerfi hitaveitu
Málsnúmer 202005047
Engar athugasemdir bárust vegna auglýsingar um grenndarkynningu vegna framkvæmdaleyfis.Fyrirhugað var að framkvæmdir ljúki í september 2021. Lagnaleið í þéttbýli er í grónum götum þar sem gangstéttir eru steyptar og götur malbikaðar. Þar sem um er að ræða svæði þar sem umferð og starfsemi er í gangi, ber verktaka að haga allri vinnu þannig að umferð gangi sem best fyrir sig á svæðinu og aðkoma að heimilum haldist ávallt opin. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfi fyrir stækkun á dreifikerfi fyrir hitaveitu.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Landskipti: Bær 3- Brekka: Karlsbrekka og Karlstangahraun
Málsnúmer 202010001
Erindi frá Snorra Snorrasyni fyrir hönd eigenda jarðarinnar Bær í Lóni Hornafirði, Gunnars Braga Þorseinssonar kt. 130866-5653, Guðbrandar Jóhannssonar kt. 190849-3099 og Sigurjóns Arasonar kt. 020550-2289. Óskað er eftir samþykkt sveitarfélagsins vegna landskiptanna, á jörðinni, Bær 3 Brekka Lóni Hornafirði landeignanr. L159364 fastanr. F2179798. Jörðinni verði skipt í Karlsbrekku landeignanr. L180010 og Karlstangahraun landeignanr. L225567.
Forseti bar landskiptin upp til atkvæða.
Bæjarstjórn samþykkir landskiptin með vísan í 13. gr. jarðarlaga nr. 81/2014 og vísan í 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
18.
Landskipti: Karlsbrekka: Karlsbrekka 2
Málsnúmer 202010002
Erindi frá Snorra Snorrasyni fyrir hönd eigenda jarðarinnar Karlsbrekku, Gunnars Braga Þorseinssonar kt. 130866-5653, Guðbrandar Jóhannssonar kt. 190849-3099 og Sigurjóns Arasonar kt. 020550-2289. Óskað er eftir samþykkt sveitarfélagsins vegna landskipta úr jörðinni Karlsbrekku landeignanr. L180010 fastanr. F2238601. Karlsbrekku 2 landeignanr. L230351 fasteignanr. F2510665 verði skipt út úr jörðinni úr upprunalandinu Karlsbrekku landeignanúmerið L180010 fasteignanr. F2238601.
Forseti bar landskiptin upp til atkvæða.
Bæjarstjórn samþykkir landskiptin með vísan í 13. gr. jarðarlaga nr. 81/2014 og vísan í 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
19.
Umsókn um lóð: Hagaleira 7
Málsnúmer 202009046
Umsókn Berglindar Óskar Borgþórsdóttur um lóð að Hagaleiru 7 lögð fram, bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina. Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Umsókn um lóð: Hagaleira 11
Málsnúmer 202010007
Umsókn Önnu Regínu Heiðarsdóttur um lóð að Hagaleiru 11 lögð fram, bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina. Samþykkt með sjö atkvæðum.
21.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 202001030
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum síðastliðinn mánuð.