Bæjarstjórn Hornafjarðar
279. fundur
12. nóvember 2020
kl.
16:00
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
1. varaforseti
Íris Heiður Jóhannsdóttir
1. varamaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
2. varaforseti
Sæmundur Helgason
aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fjarfundir bæjarstjórnar nefnda, ráða og stjórna
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki, að á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda sveitarfélagsins verði nýttur fjarfundarbúnaður ef nauðsyn ber til. Fundargerðir verði staðfestar í gegnum tölvupóst eftir fundina. Ákvörðun þessi gildir afturvirkt frá og með 10. nóvember sl. til 10. mars 2021 skv. ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 963
Sæmundur Helgason tók til máls undir 10. lið, fundargerðir stjórnar SASS, greindi frá því að Ásgerður K. Gylfadóttir oddviti sveitarfélagsins var kjörin formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga á ársþingi SASS.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin var samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin var samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 964
Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri tók til máls undir 4. lið, jafnlaunavottun.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin var samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin var samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 965
Bryndís Hólmarsdóttir tók til máls undir 9. lið, könnun um ferðavenjur á Höfn. Sæmundur Helgason tók til máls undir 4. lið, gjaldskrár fræðslu- og tómstundasviðs. Til andsvars Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin var samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin var samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 966
Páll Róbert Matthíasson tók til máls undir 1. lið heilbrigðis og öldrunarnefndar 3. lið, í fundargerðinni, rammasamningur milli SÍ og hjúkrunarheimila um þjónustu hjúkrunarheimila og 4. lið, rekstrarstaða Skjólgarðs.
Sæmundur Helgason tók einnig til máls undir 1. lið, fundargerð heilbrigðis- og öldrunarnefndar 3. og 4. lið. Til andsvars Matthildur Ásmundardóttir.
Björgvin Ó. Sigurjónsson tók einnig til máls undir 1. lið, fundargerð heilbrigðis- og öldrunarnefndar.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin var samþykkt með sjö atkvæðum.
Sæmundur Helgason tók einnig til máls undir 1. lið, fundargerð heilbrigðis- og öldrunarnefndar 3. og 4. lið. Til andsvars Matthildur Ásmundardóttir.
Björgvin Ó. Sigurjónsson tók einnig til máls undir 1. lið, fundargerð heilbrigðis- og öldrunarnefndar.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin var samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Bæjarráð Hornafjarðar - 967
Sæmundur Helgason tók til máls undir 1. lið fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar undir 7. lið, Samantekt á sorpmálum 2020 og 16. lið, innköllun lóða. Matthildur Ásmundardóttir tók til máls undir 6. lið, Loftslagsyfirlýsing Festu og SVH.
Páll Róbert Matthíasson tók til máls undir 1. lið, umhverfis- og skipulagsnefnd 2. lið, deiliskipulag Miðsvæði Hafnar og 10.lið, þjóðvegur í þéttbýli. Til andsvars Matthildur Ásmundardóttir og Sæmundur Helgason. Páll Róbert tók aftur til máls undir 10. lið í fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar um þjóðveg í þéttbýli. Til andsvars Matthildur Ásmundardóttir.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða

7.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 278
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
8.
Álagningarreglur 2021
Bæjarstjóri kynnti álagningareglur fyrir árið 2021 lagði til að bæjarstjórn samþykki eftirfarandi breytingar, 10% lækkun fasteignaskattsprósentu í A og C flokki á árinu 2021 vegna Covid-19. Álagningarprósentan í A flokki verður 0,41% og í C flokki 1,49%. Þessi aðgerð kemur til með að hafa í för með sér 22 m.kr. lækkun fasteignaskattstekna ef miðað er við óbreytta álagningarprósentu og 7,3% hækkun á fasteignamati að meðaltali í sveitarfélaginu.Sorphirðugjöld hækka um 20% eða 4.399 kr. og sorpurðunargjöld hækka um 15% eða 2.074 kr. Sorpgjöld verða því samtals 42.294 kr. á heimili. Lóðarleiga, vatns- og holræsagjöld verða óbreytt.
Forseti bar álagningareglurnar upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Fjárhagsáætlun 2021
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fjárhagsáætlun ársins 2021. Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir A og B hluta eru eftirfarandi: Rekstrarniðurstaða 54,5 m.kr., skuldir og skuldbindingar 2.391 m.kr., veltufé frá rekstri 347,8 m.kr., ný lántaka 550 m.kr., afborganir langtímalána 86,3 m.kr., handbært fé í árslok 17,8 m.kr. Skuldir og skuldbindingar í hlutfalli af tekjum 83,8%. Fjárfestingaáætlun næsta árs hljóðar upp á 800 m.kr. Helstu framkvæmdir eru bygging nýs hjúkrunarheimilis, endurbætur í Sindrabæ, breytingar hluta Hrollaugsstaða í íbúðir og endurbætur á Hafnarbrautinni þ.e. lagnir og gata.
Björgvin Óskar Sigurjónsson, Sæmundur Helgason, Páll Róbert Matthíasson tóku til máls. Til andsvars Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri.
Forseti lagði til að fjárhagsáætlun 2021 verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti lagði til að fjárhagsáætlun 2021 verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Þriggja ára fjárhagsáætlun 2022-2024
Bæjarstjóri kynnti þriggja ára fjárhagsáætlun 2022-2024.
Forseti lagði til að þriggja ára áætlun verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn. Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2020
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðauka IV við fjárhagsáætlun 2020. Helstu breytingar eru lækkun á framkvæmdalið um 87 m.kr. þar sem framkvæmdir á Hafnarbraut færast til ársins 2021. Fyrirhuguð uppgreiðsla lána að fjárhæð 60 m.kr. og lækkun á lántöku ársins um 70 m.kr. Lækkun á vísitölu neysluverðs í samræmi við nýja þjóðhagsspá. Breytingarnar hafa áhrif á fjármagnsliði, afskriftir og sjóðstreymi eins og fram kemur í meðfylgjandi gögnum.
Forseti bar viðauka IV upp til afgreiðslu. Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði 2020
Fjárhagsáætlun 2020 fyrir Skjólgarð lögð fram með breytingum, búið er að setja inn í áætlunina þætti sem tengjast tekjuliðum stofnunarinnar og samningi sveitarfélagsins við Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Forseti bar fjárhagsáætlun fyrir Skjólgarð með breytingum upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum
Forseti bar fjárhagsáætlun fyrir Skjólgarð með breytingum upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum
13.
Gjaldskrá Hornafjarðarhafnar 2021
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að hækka gjaldskrá Hornafjarðarhafnar um 2,7% í samræmi við verðbólguspá.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Málefni Ferðamálafélags Austur-Skaftafellssýslu 2020
Alvarleg staða ferðaþjónustunnar í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Í september s.l. hafði Ferðamálafélag Austur-Skaftafellssýslu (FASK) frumkvæði að boðun vinnufundar og framkvæmd könnunar meðal ferðaþjónustuaðila á starfssvæði FASK. Sveitarfélagið Hornafjörður (SVH) kostaði verkefnið og Þekkingarsetrið Nýheimar komu að undirbúningi og utanumhaldi þess. Vinnufundinum var ætlað að skila tillögum (hugmyndum) að lausnum sem greinin sjálf, ríkið, sveitarfélög, bankar, tryggingarfélög og aðrir aðilar geta gripið til sem stuðning við greinina svo draga megi úr neikvæðum áhrifum heimsfaraldurs vegna Covid 19 á fyrirtæki, fjölskyldur, ríkið, sveitarfélög og aðra hagsmunaraðila. Samkvæmt skýrslu frá SASS sem fjallar um hagtölur um atvinnulíf á Suðurlandi kemur fram að 565 einstaklingar störfuðu í ferðaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði árið 2019 og hafði þeim fjölgað um 455% frá árinu 2009.
Spurningakönnun var send út í lok september til 107 mismunandi aðila og bárust svör frá 57 aðilum.
Helstu niðurstöður könnunarinnar:
Áætlað er að á bilinu 15-20% af störfum innan SVH tapist á tímabilinu 2020 til 2021 til samanburðar við árið 2019.
Hlutfall lítilla og meðalstórra fyrirtækja (1-20 starfsmenn) var um 92% af fyrirtækjum í ferðaþjónustu árið 2019.
Lítil og meðalstór fyrirtæki sköpuðu á bilinu 64-66% allra starfa ferðaþjónustunnar í SVH árið 2019.
Ferðaþjónustuaðilar eru mjög neikvæðir til skamms tíma og telja að á bilinu 232-326 störf tapist vegna Covid 19 til loka árs 2021
Ferðaþjónustuaðilar verða jákvæðari ef horft er til lengri tíma (12-24 mánaða) og ekkert fyrirtæki hyggst hætta starfsemi.
Með þessari vinnu FASK og þátttöku ferðaþjónustuaðila vonumst við til þess að þær hugmyndir sem fram komu á vinnufundinum nýtist öllum aðilum máls. Þannig aukast möguleikar á réttum viðbrögðum og dregið verði úr þeim skammtíma skaða sem nú blasir við. Um leið er tryggð viðspyrna íslensks efnahagslífs þegar faraldurinn fer í rénun og eðlilegra viðskiptaumhverfi skapast.
Hægt er að nálgast gögn í heild sinni í viðhengi þar sem m.a er hægt að nálgast helstu niðurstöður vinnufundarins þar sem koma fram hugmyndir um hvað fyrirtækin sjálf, ríki, sveitarfélög, bankar, tryggingarfélög og aðrir aðilar máls geta gert til að draga úr neikvæðum áhrifum Covid 19 og tryggja um leið öfluga viðspyrnu þegar eðlilegra ástand skapast.
Forseti bar bókunina upp til atkvæða.

15.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Forseti kynnti tillögu að breytingum á Samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem hefur verið tekin til endurskoðunar. Þær efnislegu breytingar sem lagðar eru til varða 38. gr.,48. gr. og 65 gr. í samþykktunum. Breytingarnar eru: Í þeim tilfellum sem sveitarfélagið er sjálft framkvæmdaraðili skal umhverfis- og skipulagsnefnd taka fullnaðarákvörðun um matskyldu. Félagsmálanefnd og heilbrigðis- og öldrunarnefnd verða sameinaðar í velferðarnefnd í samræmi við breytingu á skipuriti sveitarfélagsins. Í sömu grein er Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs tekinn út vegna breytinga á félaginu en stofnað hefur verið sjálfstætt félag um gjafasjóðinn sem er óháð sveitarfélaginu. Þá er gerð sú breyting að 65. gr. að yfirskrift greinarinnar verður íbúalýðræði í stað þátttökulýðræðis og lagt er til að breyta hlutfalli þeirra sem geta óskað eftir almennri atkvæðagreiðslu úr 25% í 20%.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingar á samþykktum sveitarfélagsins og vísi þeim til annarrar umræðu í bæjarstjórn.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Erindisbréf öldungaráðs
Nýtt erindisbréf fyrir öldungaráð lagt fram. Öldungaráð er vettvangur samráðs íbúa sem eru 67 ára og eldri, félagasamtaka þeirra, atvinnulífs og sveitarstjórnar og er virkur þátttakandi í allri stefnumörkun málaflokksins. Öldungaráð er ráðgefandi fyrir starfsemi sveitarfélagsins í málaflokknum og stuðlar, í samstarfi við sveitarstjórn, að eflingu félagsauðs og kynningu á þjónustu sveitarfélagsins til íbúa sem eru 67 ára og eldri. Erindisbréfið hefur fengið umfjöllun í öldungaráði og félagsmálanefnd sem fjallar um fundargerðir ráðsins og bæjarráði.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki nýtt erindisbréf fyrir öldungaráð.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Erindisbréf almannavarnanefndar
Nýtt erindisbréf fyrir almannavarnanefnd lagt fram. Hlutverk almannavarnarnefndar er m.a. að móta stefnu og skipuleggja almannavarnir í sveitarfélaginu í samræmi við lög um almannavarnir og vinna að gerð hættumats, viðbragðsáætlana og prófunar þeirra í samvinnu við lögreglustjóraembættið á Suðurlandi. Erindisbréfið hefur fengið umfjöllun í almannavarnanefnd og bæjarráði.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki erindisbréf almannavarnanefndar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Deiliskipulag: Heildarendurskoðun fyrir Skaftafell
Erindi frá Vatnajökulsþjóðgarði þar sem óskað er eftir heimild til að endurskoða deiliskipulag fyrir Skaftafell og jafnframt ósk um þátttöku í samráði um forsendur deiliskipulagsins.
Forseti lagði til að bæjarstjórn heimili endurskoðun á deiliskipulagi fyrir Skaftafell.
Samþykkt með sjö atkvæðum
Samþykkt með sjö atkvæðum
19.
Ósk um söfnun undirskrifa, vegna breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi í "innbæ"
Erindi frá Ara Jónssyni, Eymundi Inga Ragnarssyni, Guðmundi I. Sigurbjörnssyni, Óskari Arasyni og Sveinbjörgu Jónsdóttur.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki erindi um fyrirhugaða undirskriftasöfnun samkvæmt 3. mgr. 108. gr. sveitarstjórnarlaga með þeim fyrirvara að undirskriftarsöfnunin og íbúakosningin fjalli ekki um lögformlegt gildi aðal- og deiliskipulagsins Þétting byggðar innbæ, þar sem slíkt stenst ekki lög.
Aðalskipulagsbreytingin og deiliskipulagið var samþykkt í bæjarstjórn þann 16. apríl 2020, deiliskipulagið var staðfest af Skipulagsstofnun þann 9. október 2020, aðalskipulagsbreytingin staðfest af Skipulagsstofnun þann 15. október 2020. Auglýsing var birt í Eystrahorni þann 15. október sl. Jafnframt er bent á að fyrri undirskriftir teljast ekki gildar þar sem deiliskipulagið hefur tekið miklum breytingum frá þeim tíma sem þeim var safnað, til þess að koma til móts við athugasemdir sem komu fram á skipulagstímanum.
Í 2. gr. reglugerðar nr. 155/2013 um undirskriftasafnanir vegna almennra atkvæðagreiðslna samkvæmt sveitarstjórnarlögum kemur fram að tilkynna skal sveitarstjórn ef fyrirhuguð er undirskriftasöfnun í sveitarfélaginu þar sem óskað er eftir almennri atkvæðagreiðslu um tiltekið mál er varðar sveitarfélagið. Erindið barst sveitarfélaginu innan þess tíma sem veittur er.
Til máls tóku Sæmundur Helgason þrisvar og Páll Róbert Matthíasson. Til andsvars Matthildur Ásmundardóttir og Ásgerður K. Gylfadóttir.

20.
Fyrirspurn til bæjarstjórnar um skipulagsmál
Fyrirspurn barst bæjarstjórn frá Sæmundi Helgasyni bæjarfulltrúa, fyrirspurnin er lögð fram í tveim spurningum um breytingu á aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi vegna Þéttingar byggðar íInnbæ á Höfn.1. Þar sem tímafrestur rann út er þá ekki einsýnt að bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar þarf að fjallaá ný um deiliskipulagstillöguna líkt og Skipulagslög segja til um?2. Er búið að gera jarðvegskönnun á fyrirhuguðum lóðum, eins samþykktin frá 16. apríl 2020 gerir ráðfyrir.
Svör vegna fyrirspurnar Sæmundar:
1. Skipulagsstofnun hefur fjallað um málið og gerði ekki athugasemd við málsmeðferðina.
2. Í bókun bæjarstjórnar þegar deiliskipulagið var samþykkt 16. apríl sl. kemur fram að, jarðvegskönnun verður gerð áður en að lóðarúthlutun kemur sem skal taka tillit til við útfærslu á grundun nýrra húsa.

21.
Breytingar á lóðamörkum: lóð 40B í Stafafellsfjöllum
Óskað er eftir óverulegri breytingu á deiliskipulagi þar sem lóðamörkum og byggingarreit lóðar 40b í Stafafellsfjöllum er breytt. Breytingu þarf að gera þar sem núverandi byggingarreitur á lóðinni er illnýtanlegur.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að um óverulega breytingu séð að ræða á deiliskipulagi vegna lóðar 40b í Stafafellsfjöllum skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga með fyrirvara um samþykki landeigenda.
Tillagan felur í sér óverulegar breytingar á notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi svæðisins. Ekki er þörf á grenndarkynningu þar sem breytingin hefur ekki áhrif á grennd skv. 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan felur í sér óverulegar breytingar á notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi svæðisins. Ekki er þörf á grenndarkynningu þar sem breytingin hefur ekki áhrif á grennd skv. 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
22.
Framkvæmdaleyfi: Breyting á vegi Borgarhöfn 2-3, Neðribær
Ósk um framkvæmdaleyfi vegna nýs aðkomuvegar að Neðribæ. Umsögn Minjastofnunar liggur fyrir.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita framkvæmdaleyfi vegna vegarins með þeim skilmálum sem fram koma í umsögn Minjastofnunar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
23.
Ósk um heimild til að selja Ægissíðu 59
Erindi frá Jóhönnu Írisi Ingólfsdóttur þar sem óskað er eftir samþykki sveitarfélagsins vegna sölu á eign á lóð við Ægissíðu 59.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki söluna.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
24.
Umsókn um lóð: Hagatún 16
Umsókn Valdemars Einarssonar um lóð að Hagatúni 16 lögð fram, bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
25.
Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri greindi frá störfum sínum sl. mánuð.