Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

280. fundur
10. desember 2020 kl. 16:00 - 18:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 1. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson Forseti
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson 2. varaforseti
Sæmundur Helgason aðalmaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 968
Málsnúmer 2011008F
Fundargerðin var samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 969
Málsnúmer 2011012F
Fundargerðin var samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 970
Málsnúmer 2011015F
Fundargerðin var samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 971
Málsnúmer 2012003F
Kristján S. Guðnason tók til máls undir 2. lið fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar, 8. lið staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2020, 13. lið Svavarssafn og 14. lið Mikilgarður.
Til andsvars Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri.
Páll Róbert Matthíasson tók einnig til máls undir fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 14. lið Mikligarður.
Fundargerðin var samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 279
Málsnúmer 2011005F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Fjárhagsáætlun 2021
Málsnúmer 202009023
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fjárhagsáætlun ársins 2021. Engar breytingar voru gerðar milli umræðna. Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir A og B hluta eru eftirfarandi: Rekstrarniðurstaða 54,5 m.kr., skuldir og skuldbindingar 2.391 m.kr., veltufé frá rekstri 347,8 m.kr., ný lántaka 550 m.kr., afborganir langtímalána 86,3 m.kr., handbært fé í árslok 17,8 m.kr. Skuldir og skuldbindingar í hlutfalli af tekjum 83,8%. Fjárfestingaáætlun næsta árs hljóðar upp á 800 m.kr. Helstu framkvæmdir eru bygging nýs hjúkrunarheimilis, endurbætur í Sindrabæ, breytingar hluta Hrollaugsstaða í íbúðir og endurbætur á Hafnarbrautinni þ.e. lagnir og gata.Bæjarstjóri lagði til að bæjarstjórn samþykki fjárhagsáætlun 2021.
Ásgerður K. Gylfadóttir bar upp eftirfarandi bókun og óskaði eftir að bæjarstjórn geri bókunina að sinni.
Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir í dag fjárhagsáætlun fyrir árið 2021 þar sem staðið er vörð um starfsemi og þjónustu sveitarfélagsins auk þess sem lagt er upp með metnaðarfulla framkvæmdaáætlun þrátt fyrir efnahagslegar þrengingar vegna heimsfaraldurs kórónaveiru. Það er ljóst að góð staða sveitarfélagsins og traustur rekstur gerir okkur kleift að halda sjó með þeim hætti sem stefnt er að. Óvissa hefur verið mikil varðandi tekjur sveitarfélagsins og þróun þeirra síðustu mánuði, gjöld hafa aukist og ljóst er að krafa er um enn meiri útgjöld en orðið er við að svo stöddu. Starfsmenn hafa staðið sig vel í því að rýna rekstur og er gerð krafa um áframhaldandi aðhald á meðan við erum að komast í gegnum faraldurinn. Bæjarráð og bæjarstjórn munu hér eftir sem hingað til þurfa að vakta reksturinn vel á komandi mánuðum. En við höfum trú á því að með því að halda úti fjölbreyttri og öflugri framkvæmdaáætlun sé stutt við atvinnusköpun í sveitarfélaginu og að atvinnulífið með ferðaþjónustuna í broddi fylkingar muni taka vel við sér á vormánuðum ef gengur vel í baráttunni við heimsfaraldurinn.
Páll Róbert Matthíasson tók til máls, Sæmundur Helgason tók til máls og Björgvin Sigurjónsson tók einnig til máls. Til andsvars Sæmundur Helgason og Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri.
Forseti bar bókunina upp til atkvæða, samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fjárhagsáætlun 2021 upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum
7.
Þriggja ára fjárhagsáætlun 2022-2024
Málsnúmer 202011023
Bæjarstjóri fór yfir þriggja ára fjárhagsáætlun og lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi þriggja ára fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2022-2024.
Forseti bar þriggja ára áætlun 2022-2024 upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202008006
Bæjarstjóri greindi frá breytingum á samþykktum sveitarfélagsins.Við 36. gr. er bætt við að þegar sveitarfélagið er sjálft framkvæmdaraðili skal skipulagsnefnd taka fullnaðarákvörðun um matskyldu framkvæmda. 48. gr. breytist vegna sameiningar nefnda, félagsmálanefnd og heilbrigðis- og öldrunarnefnd falla út, þær eru sameinaðar í velferðarnefnd í lið 5. Við lið 8. almannavarnanefnd er bætt við upptalningu þeirra aðila sem hafa setu- og áheyrnarrétt í nefndinni. 65. gr. breytist yfirskrift greinarinnar verður íbúalýðræði í stað þátttökulýðræði og breytist þannig að 20% kosningabærra íbúa í sveitarfélaginu geta óskað eftir almennri atkvæðagreiðslu en var áður 25%. Bæjarstjóri lagði til að bæjarstjórn samþykki nýja og breytta Samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Rammasamningur milli SÍ og hjúkrunarheimila um þjónustu hjúkrunarheimila
Málsnúmer 201806069
Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi bókun og lagði til að bæjarstjórn samþykki hana.
Samningaviðræður við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafa staðið yfir frá því í október sl. um rekstur hjúkrunarheimilisins. Eins og komið hefur ítrekað fram hefur reksturinn þyngst verulega á þessu ári og því síðasta, en hallarekstur stefnir í um 100 m.kr. á þessu ári. Við það verður ekki unað til lengdar enda er um verkefni ríkisins að ræða. Á sama tíma er rekstur sveitarfélagsins að þyngjast og hagræða þarf til að ná endum saman ásamt því að lántaka eykst til að geta haldið uppi núverandi þjónustu og framkvæmdastigi. SÍ hafa lagt til 3ja mánaða framlengingu samnings og í því samhengi boðið fjölgun dagdvalarrýma og að fella niður húsaleigu en þrátt fyrir það mun reksturinn áfram verða rekinn með töluverðum halla á næsta ári. Við það verður ekki unað og stendur bæjarstjórn við þá ákvörðun sem tekin var í júní sl., þ.e. að segja sig frá rammasamningi um rekstur hjúkrunarheimilisins frá og með 1. febrúar 2021 nema SÍ bæti að fullu þann halla sem mun myndast á framlengingartímanum. Þar sem viðræður við SÍ hafa snúist um framlengingu á núgildandi samningi þá hefur undirbúningur viðskilnaðar ekki hafist, bæjarstjórn óskar eftir skýrum svörum frá SÍ varðandi framhaldið og felur starfsmönnum að hefja undirbúning er varðar viðskilnað sem fyrst í samstarfi við SÍ og heilbrigðisráðuneytið.
Forseti bar bókunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Loftslagsyfirlýsing Festu og Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202012006
Forseti greindi frá samstarfssamningi Festu og sveitarfélagsins um stuðning við loftlagsaðgerðir fyrirtækja og stofnana. Loftlagsyfirlýsingin verður fyrirtækjum kynnt og send hvatning til að skrifa undir loftlagsyfirlýsingu með formlegum hætti í lok febrúar.Markmið með verkefninu er að hvetja fyrirtæki og stofnanir á Hornafirði til þess að setja sér markmið í loftslagsmálum, fræðast um leiðir til aðgerða og mæla árangurinn.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki samstarfssamninginn.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Erindisbréf velferðarnefndar
Málsnúmer 202009100
Erindisbréf fyrir nýja nefnd, velferðarnefnd sveitarfélagsins þar sem félagsmálanefnd annars vegar og heilbrigðis- og öldrunarnefnd hins vegar verða sameinaðar skv. nýjum samþykktum sveitarfélagsins.Helstu hlutverk velferðarnefndar eru að móta stefnu og fjalla um málefni í velferðarþjónustu, félagsþjónustu, barnavernd, þjónustu við fatlað fólk, þjónustu við aldraða, húsnæðismál,jafnréttismál og forvarnarmál í sveitarfélaginu.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki erindisbréf velferðarnefndar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Stytting vinnuviku: innleiðing kjarasamninga
Málsnúmer 202010030
Bæjarstjóri greindi frá tillögu um breytt fyrirkomulag á vinnutíma starfsmanna skv. kjarasamningum sem tekur gildi 1. janúar nk. Vinnutímanefndir starfsmanna og stjórnenda kynntu tillögur að breyttum vinnutíma fyrir starfsmönnum sem kusu um fyrirkomulagið. Tillagan er lögð fyrir bæjarstjórn til staðfestingar. Breyting á skipulagi vinnutíma á ekki að leiða til breytinga á launum eða launakostnaði sveitarfélagsins. Jafnframt er forsenda breytinganna að starfsemi vinnustaðarins raskist ekki og að opinber þjónusta sé af sömu gæðum og áður.Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi vinnutímasamkomulag og útfærslur stofnanna sveitarfélagsins.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Reglur um úthlutun lóða
Málsnúmer 202010156
Forseti greindi frá því að unnar hafa verið nýjar reglur um úthlutun lóða.Í reglunum eru tímamörk við upphaf og lok framkvæmda þrengd og úthlutun lóða fellur sjálfkrafa úr gildi ef gjöld eru ekki greidd áður en frestur umsækjanda rennur út. Einnig kemur fram að eigi síðar en 3 árum eftir dagsetningu lóðarúthlutunar skal lóðarhafi hafa lokið fullnaðarfrágangi byggingar að utan, gengið frá yfirborði lóðar og öllum frágangi við lóðarmörk.Ákvæði um lóðarúrdrátt segir að ef dregin er út fleiri en ein lóð í sama skipti, getur hver einstaklingur einungis fengið eina lóð úthlutaða. Lagði til að bæjarstjórn samþykki nýjar reglur um úthlutun lóða.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls, Sæmundur Helgason tók til máls og Páll Róbert Matthíasson tók einnig til máls.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Breyting á aðalskipulagi Hnappavellir 1 - Verslunar og þjónustusvæði
Málsnúmer 202011129
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá því að Local Guide ehf. óska eftir breytingu á aðalskipulagi á hluta af Hnappavöllum 1. Um er að ræða 10.909 m2 lóð úr landinu þar sem nú stendur fjárhús og hlaða. Lóðinni verður skipt út úr jörðinni og heita Hnappavellir 1, Mói, en hún hefur ekki verið skráð hjá Þjóðskrá. Stefnt er að því að breyta byggingum sem þegar eru á lóðinni skv. meðfylgjandi teikningum. Ekki er gert ráð fyrir fleiri byggingum.Hluti af Hnappavöllum 1, verði breytt í verslunar og þjónustusvæði.Gert er ráð fyrir 20 gistirýmum.Fyrirhuguð starfsemi leigutaka er rekstur ferðaþjónustu ásamt tilheyrandi stoðstarfsemi, s.s. gistiaðstöðu og veitingasölu þ.e. bæði matar- og vínveitingasölu.Engar breytingar verða gerðar á húsi að utan fyrir utan einhverja viðbót og breytingar á gluggum.Gert er ráð fyrir minniháttar tjaldgistingu/húsbílastæði fyrir viðskiptavini fyrirtækisins þá 20 tjöld.Ekki er gert ráð fyrir íbúðum.Björgvin lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingu á aðalskipulagi og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 36. gr. skipulagslaga og lýsing verði auglýst skv. 30. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Breyting á aðalskipulagi - Borgarhöfn 2-3 Suðursveit
Málsnúmer 202011122
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá ósk um breytingu á aðalskipulagi vegna frístundabyggðar og afþreyingar- og ferðamannasvæði, m.a. fyrir tjaldsvæði í landi Neðribæjar í Borgarhöfn vegna áforma um gerð deiliskipulags. Lagði til að bæjarstjórn samþykki að unnin verði breyting á aðalskipulagi og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 36. gr. skipulagslaga og lýsing verði auglýst skv. 30. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Deiliskipulag: Borgarhöfn 2 - 3 Suðursveit
Málsnúmer 201911001
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá skipulagslýsingu vegna deiliskipulags fyrir frístundabyggð og afþreyingar- og ferðamannasvæði, m.a. fyrir tjaldsvæði.Í deiliskipulagi verður gerð grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum og settir fram skilmálar um landnotkun, byggingar og vernd náttúru- og menningarminja. Að lokinni lýsingu verður unnið deiliskipulag og samhliða henni breyting á aðalskipulagi. Björgvin til að bæjarstjórn samþykki skipulagslýsinguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra -Sel, Svínafell Öræfum - Hesthús
Málsnúmer 202011035
Björgvin Óskar Sigurjónsson vék af fundi. Umsókn Öræfahesta ehf. um leyfi til að byggja atvinnuhúsnæði/hesthús fyrir tamningastöð og hestaleigu. Áætlað er að húsið verði steinsteypt, byggt við hól í Seli í Svínafelli, þar sem gömul fjárhús og hlöður eru og hafa verið síðan 1954. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.Forseti lagði til að heimilað verði að byggja hesthús án deiliskipulagsgerðar og að fallið verði frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sex atkvæðum.
18.
Fyrirspurn til skipulagsefndar - Svínafell 2 og 4 - reiðhöll
Málsnúmer 202011125
Björgvin Óskar Sigurjónsson vék af fundi. Umsókn Öræfahesta um leyfi til að byggja reiðhöll, í landi Svínafells 2 & 4, eins og hún er staðsett á meðfylgjandi afstöðumynd. Gert er ráð fyrir tengibygging milli reiðhallarinnar og fyrirhugaðs hesthúss í landi Sels 1. Afstöðumynd sýnir byggingarnar tvær, reiðhöllin verður staðsett um 5 metrum norðar en myndin sýnir og lengd hússins verður 40m. Ekkert deiliskipulag er til af svæðinu. Forseti lagði til að bæjarstjórn heimili byggingaráformin og falli frá grenndarkynningu þar sem framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda, skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sex atkvæðum.
19.
Byggingarleyfisumsókn Hrollaugsstaðir - breyting á notkun
Málsnúmer 202011062
Forseti lagði til að heimilað verði að breyta Hrollaugstöðum án deiliskipulagsgerðar skv. 43. gr. skipulagslaga, enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins, lagði til að fallið verði frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Páll Róbert Matthíasson tók til máls.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Tilkynning um framkvæmd - Birkikot, vélageymsla
Málsnúmer 202009041
Umsókn Sigurjóns Arasonar, um byggingu vélageymslu skv. meðfylgjandi gögnum án deiliskipulagsgerðar skv. 43. gr. skipulagslaga, enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki byggingaráformin þar sem framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda og lagði einnig til að fallið verði frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Umsækjanda er benti á að sækja um undanþágu vegna fjarlægðar frá þjóðvegi skv. 12. mgr. 45. gr. skipulagslaga til umhverfis- og auðlindaráðherra.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
21.
Landskipti: Miðfell Nesjum
Málsnúmer 202011088
Björgvin Óskar Sigurjónsson vék af fundi. Erindi Þrúðmars Þrúðmarssonar kt. 1423545109 og Ingibjargar Ævarr Steinsdóttur kt. 0204534519, um landskipti jarðarinnar Miðfell í Nesjum óskað er eftir staðfestingu bæjarstjórnar á landskiptum á jörðinni Miðfell, fasteigna.nr. F2180304 land.nr. L159509. Landskiptin eru vegna skiptingar jarðarinnar Miðfell 2 fasteigna.nr. F250-7522 land.nr. L229177, 105812 m2 úr landinu Miðfell í Nesjum skv. uppdrætti.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki landskiptin með vísan í 13. gr. jarðarlaga nr. 81/2004 og með vísan í 48 gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sex atkvæðum
22.
Landskipti: Stórulág 2
Málsnúmer 202011090
Erindi frá Jónu Benný Kristjánsdóttur fyrir hönd eigenda jarðarinnar Stórulágar í egiu Sigurðar Sigfinnssonar kt. 230353-7449, þar sem óskað er eftir staðfestingu bæjarstjórnar á landskiptum úr jörðinni Stórulág land.nr. 159520.Jörðinni Stórulág 2 land. nr. 230863 1700 m2, verður skipt úr jörðinni Stórulág land. nr. 159520.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki landskiptin með vísan í 13. gr. jarðarlaga nr. 81/2004 og með vísan í 48 gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum
23.
Umsókn um lóð - Álaleira 6
Málsnúmer 202012041
Umsókn Finns Ármanns Óskarssonar um lóð að Álaleiru 6 lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
24.
Ósk um söfnun undirskrifta vegna breytingar á aðalskipulagi og deiliskipulagi í "innbæ"
Málsnúmer 202011025
Erindi frá Ara Jónssyni, Eymundi Inga Ragnarssyni, Guðmundi I. Sigbjörnssyni, Óskari Arasyni og Sveinbjörgu Jónsdóttur um endurupptöku á málinu sem hlaut afgreiðslu á 279. fundi bæjarstórnar. Ósk um undirskriftasöfnun samkvæmt 3. mgr. 108. gr. sveitarstjórnarlaga
Bæjarstjóri lagði til að bæjarstjórn samþykki beiðni um söfnun undirskrifta í samræmi við 3. mgr. Sveitarstjórnarlaga. Um söfnun undirskrifta gildir reglugerð nr. 155/2013 (https://www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/155-2013) og leiðbeiningar má lesa á vefnum island.is. Bæjarstjóri leitaði ráðgjafar hjá lögfræðingum Sambands íslenskra sveitarfélaga um málið og staðfesta þeir málsmeðferðina á fyrri stigum málsins. Til að taka af allan vafa er erindið sett á dagskrá bæjarstjórnar í dag og samþykkt á ný.
Sæmundur Helgason tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.
"Sæmundur fagnar því að bæjarstjórn veitti leyfi 12.nóvember 2020 til undirskriftarsöfnunar og tekur undir þá beiðni ábyrgðaraðila fyrirhugaðar undirskriftarsöfnunar að bæjarstjórn breyti svari sínu og felli skilyrði sem sett eru fram um mögulegar íbúakosningar út úr svari sínu. Bæjarstjórn fór fram úr sér í svari sínu með því að setja skilyrði á hugsanlega íbúakosningu. Beiðni ábyrgðaraðilanna er einföld spurning um heimild til undirskriftasöfnunar og af því leiðir að svar bæjarstjórnar á að vera einfalt svar, já eða nei við þeirri beiðni. Komi til íbúakosningar, getur meirihluti bæjarstjórnar sett skilyrði um kosninguna, sýnist þeim svo."
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls, til andsvars Matthildur Ásmundardóttir. Páll Róbert Matthíasson tók til máls til andsvars Matthildur Ásmundardóttir. Til andsvars Sæmundur Helgason. Til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum, Sæmundur Helgason sat hjá og gerði grein fyrir atkvæði sínu.
25.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 202001030
Bæjarstjóri greindi frá störfum sínum sl. mánuð.