Bæjarstjórn Hornafjarðar
282. fundur
11. febrúar 2021
kl.
16:00
-
16:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
1. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson
Forseti
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
2. varaforseti
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 976
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 977
Bryndís Hólmarsdóttir tók til máls undir 12. lið fundargerð fræðslu- og tómstundarnefndar, framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna. Matthildur Ásmundóttir tók einnig til máls undir sama lið.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 978
Sigrún Sigurgeirsdóttir tók til máls undir 6. lið, færni í ferðaþjónustu - þátttaka í námskeiðskostnaði.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 979
Sigrún Sigurgeirsdóttir tók til máls undir 19. lið, deiliskipulag: Heildarendurskoðun fyrir Skaftafell.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 281
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Úthlutunarreglur - Hvatning í Hornafirði
Bæjarstjóri greindi frá að hluti af því fjármagni sem fékkst úr sértækri styrkúthlutun er nýtt til þess að vinna að verkefninu "Hvatning í Hornafirði" sem er átaksverkefni og samkeppnissjóður vegna efnahagsáhrifa Covid faraldursins, á fólk og fyrirtæki í Sveitarfélaginu Hornafirði.Sjóðurinn hefur það hlutverk að hvetja fyrirtæki og frumkvöðla í Sveitarfélaginu Hornafirði til að hrinda nýjum atvinnuskapandi aðgerðum í framkvæmd. Umsjón og ábyrgð sjóðsins er hjá atvinnu- og menningarmálanefnd Hornafjarðar.
Forseti til að bæjarstjórn samþykki úthlutunarreglur sjóðsins "Hvatning í Hornafirði".
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Breyting á aðalskipulagi við Hrollaugsstaði
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá lýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi við Hrollaugsstaði.Breytingin er unnin til þess að sveitarfélagið geti boðið upp á íbúðalóðir nærri atvinnutækifærum og möguleikum á þjónustu sveitafélagsins við íbúa, eins og rekstur leikskóla.Lagði til að bæjarstjórn samþykki lýsinguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Breyting á aðalskipulagi - Leirusvæði
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá lýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi á Leirusvæði sem er unnin til þess að sveitarfélagið geti boðið upp á fjölbreyttar íbúðalóðir.Lagði til að bæjarstjórn samþykki lýsinguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 30. gr. skipulagslaga
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Deiliskipulag við Hrollaugsstaði
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá skipulagslýsingu á deiliskipulagi við Hrollaugsstaði. Atvinnuhættir í sveitum hafa breyst mikið undanfarin ár og uppbygging ferðaþjónustu verið mikil á svæðinu. Sveitarfélagið þarf að geta boðið uppá íbúðalóðir nærri atvinnutækifærum og möguleikum á þjónustu sveitarfélagsins við íbúa, eins og rekstur leikskóla. Helstu markmið deiliskipulagsins eru:Að móta hverfi sem hentar ólíkum fjölskyldugerðum og skapa notalegt umhverfi þar sem kostir þess að búa í sveit fá að njóta sín. Áhersla er á notalega og mannvæna byggð sem fellur vel að núverandi byggð og skapa umgjörð og aðkomu að félagsheimilinu Hrollaugsstöðum og tryggja umferðaöryggi.Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagslýsinguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 40. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Deiliskipulag - Leirusvæði II
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá skipulagslýsingu fyrir nýja íbúðabyggð á Leirusvæði. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á Höfn og nauðsynlegt er að skipuleggja nýtt íbúðarsvæði til að anna eftirspurn. Helstu markmið deiliskipulagsins eru: Að afmarka lóðir fyrir séreigna- eða leiguhúsnæði t.d. raðhús, parhús og einbýli. Gert verður ráð fyrir húsnæði í mismunandi stærðum sem hentar ólíkum fjölskyldum og gert er ráð fyrir lágreistri byggð.Að tryggja umferðaröryggi, aðkomu, umferð og bílastæðafyrirkomulag og vistvænar samgöngur og að gönguleiðir barna að skóla- og íþróttasvæði séu öruggar og þægilegar. Gera er ráð fyrir leiksvæði og að uppbyggingin eigi sér stað í tveimur áföngum. Lagði til að bæjarstjórn samþykki lýsingu á deiliskipulagi fyrir Leirusvæði II og vísi því í lögformlegt ferli skv. 40. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Deiliskipulagsbreyting: Lambleiksstaðir
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá að deiliskipulagið hefði verið auglýst sumarið 2019. Skipulagsstofnun gerði athugasemdir við framsetningu skipulagsgagna og hafa nú borist uppfærð gögn. Frestur skv. skipulagslögum til staðfestingar er liðinn og er tillagan því lögð fram aftur til auglýsingar.Fallið er frá kynningu þar sem um endurauglýsingu án umfangsmikilla breytinga er að ræða.Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagstillöguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Byggingarleyfisumsókn - Hagaleira 7, einbýlishús
Forseti greindi frá umsókn um heimild til þess að hafa þakskyggni á húsi við Hagaleiru 7 óverulega út fyrir byggingarreit skv. framlögðum teikningum án breytingar á deiliskipulagi skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Um er að ræða óverulegt frávik að ræða sem skerðir hagsmuni nágranna í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Staðfesting nágranna liggur fyrir. Lagði til að bæjarstjórn samþykki að hafa þakskyggni á Hagaleiru 7 út fyrir byggingareit skv. teikningum.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki breytinguna.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Byggingarleyfisumsókn - Horn 1, viðbygging við veitingarhús
Umsókn um heimild til að byggja við veitingahúsið á Horni í samræmi við framlagðar teikningar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Lagði til að bæjarstjórn samþykki að fallið verði frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44 gr. skipulagslaga enda varðar breytingin ekki hagsmuni annarra en umsækjanda.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að fallið verði frá grenndarkynningu.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Byggingarleyfisumsókn - Víkurbraut 25A-E, raðhús
Umsókn JEK um byggingarleyfi þar sem óskað er eftir að breyta innri lóðamörkum milli íbúða og heimila þakskyggni út fyrir byggingarreit og minniháttar breytingu á byggingarreit án breytingar á deiliskipulagi skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Um er að ræða óverulegt frávik að ræða sem skerðir hagsmuni nágranna í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki breytinguna án breytingar á deiliskipulagi.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki breytinguna.
15.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Umsókn um að heimilt verði að breyta notkun á húsnæði ið vDalbraut 4 þannig að þrjár íbúðir verði í húsinu í samræmi við framlagðar teikningar. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Grenndarkynning hefur farið fram. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki breytta notkun skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Kosningar í nefndir 2018-2022
Kosning í velferðarnefnd.
Gunnar Stígur Reynisson verður aðalmaður B. lista og varaformaður í stað Erlu Þórhallsdóttur. Guðbjörg Guðlaugsdóttir verður 1. varamaður B lista.
Erla Þórhallsdóttir verður 3 varamaður B.lista í umhverfis- og skipulagsnefnd í stað Guðbjargar Guðlaugsdóttur.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls, til andsvars Páll Róbert Matthíasson, til andsvars Ásgerður Kristín Gylfadóttir.
Forseti bar kosninguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Gunnar Stígur Reynisson verður aðalmaður B. lista og varaformaður í stað Erlu Þórhallsdóttur. Guðbjörg Guðlaugsdóttir verður 1. varamaður B lista.
Erla Þórhallsdóttir verður 3 varamaður B.lista í umhverfis- og skipulagsnefnd í stað Guðbjargar Guðlaugsdóttur.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls, til andsvars Páll Róbert Matthíasson, til andsvars Ásgerður Kristín Gylfadóttir.
Forseti bar kosninguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri greindi frá störfum sínum síðastliðinn mánuð.