Bæjarstjórn Hornafjarðar
283. fundur
11. mars 2021
kl.
16:00
-
17:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
1. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson
Forseti
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
2. varaforseti
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Sigurður Einar Sigurðsson
1. varamaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 980
Kristján S. Guðnason tók til máls undir 5. lið, Volaða land - ósk um samstarf og fjármögnun.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 2. lið, Könnun - Íbúar og mikilvægi búsetuskilyrða og 3. lið, Heimsmarkmið og stefnumótun 2019.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 2. lið, Könnun - Íbúar og mikilvægi búsetuskilyrða og 3. lið, Heimsmarkmið og stefnumótun 2019.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 981
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 5. lið, Útboð - Hrollaugsstaðir og 8. lið, Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 982
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 983
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 3. lið, Útboð - Hafnarbraut og 6. lið Leikskólagjöld sveitarfélaga í skugga covid og atvinnuleysis. Páll Róbert Matthíasson tók til máls undir 1. lið umhverfis- og skipulagsnefnd, 8. lið, breyting á aðalskipulagi - Leirusvæði II og 16. lið, Breyting á deiliskipulagi, útbæ Höfn. Ásgerður K. Gylfadóttir tók við stjórn fundarins.
Til andsvars Ásgrímur Ingólfsson undir 8. og 16. lið í fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar. Til andsvars Páll Róbert Matthíasson. Til andsvars Ásgrímur Ingólfsson.
Ásgrímur Ingólfsson tók við stjórn fundarins.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
Til andsvars Ásgrímur Ingólfsson undir 8. og 16. lið í fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar. Til andsvars Páll Róbert Matthíasson. Til andsvars Ásgrímur Ingólfsson.
Ásgrímur Ingólfsson tók við stjórn fundarins.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 282
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2020
Bæjarstjóri tók til máls og greindi frá að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála,-iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, gerðu grein fyrir úthlutun fjármuna til uppbyggingu innviða, náttúruverndar og annarra verkefna á ferðamannastöðum árið 2021 við hátíðlega athöfn 9. mars sl. Hæsta styrkinn úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða, sem er samkeppnissjóður, hlaut Sveitarfélagið Hornafjörður 97,4 m.kr. til að hanna og byggja upp göngu- og hjólastíg frá Svínafelli yfir í þjóðgarðinn í Skaftafelli. Einnig hlaut sveitarfélagið 24,6 m.kr. styrk til að standa að hönnunarsamkeppni fyrir Leiðarhöfða á Höfn.
Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi bókun og lagði til að bæjarstjórn gerði hana að sinni.
"Bæjarstjórn fagnar styrkveitingu úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Sveitarfélagið hefur lagt metnað sinn í umsóknir í sjóðinn og er nú að uppskera. Spennandi verður að vinna áfram að þeim verkefnum sem nú eru í vinnslu og ríma þau vel við þá stefnumörkun sem unnið er að. Jafnframt ber að fagna fjármagni úr innviðaáætlun umhverfisráðherra til uppbyggingar í Vatnajökulsþjóðgarði m.a. í Skaftafelli og við Jökulsárlón.
Bæjarstjórn þakkar fyrir rausnarlegt framlag úr sjóðnum og það traust sem sveitarfélaginu er sýnt ásamt því að þakka starfsmönnum fyrir faglega vinnu við gerð umsóknanna."
Sigurður Einar Sigurðarson tók til máls.
Forseti bar tillögu að bókun upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
"Bæjarstjórn fagnar styrkveitingu úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Sveitarfélagið hefur lagt metnað sinn í umsóknir í sjóðinn og er nú að uppskera. Spennandi verður að vinna áfram að þeim verkefnum sem nú eru í vinnslu og ríma þau vel við þá stefnumörkun sem unnið er að. Jafnframt ber að fagna fjármagni úr innviðaáætlun umhverfisráðherra til uppbyggingar í Vatnajökulsþjóðgarði m.a. í Skaftafelli og við Jökulsárlón.
Bæjarstjórn þakkar fyrir rausnarlegt framlag úr sjóðnum og það traust sem sveitarfélaginu er sýnt ásamt því að þakka starfsmönnum fyrir faglega vinnu við gerð umsóknanna."
Sigurður Einar Sigurðarson tók til máls.
Forseti bar tillögu að bókun upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Samningur um yfirtöku Skjólgarðs
Vigdísarholt ehf. hefur nú tekið við rekstri Skjólgarðs. Gengið hefur verið frá viljayfirlýsingu á milli Vigdísarholts og Skjólgarðs um hvernig skuli staðið að yfirfærslunni. Vigdísarholt ehf. hefur jafnframt gert samning við HSU um sjúkrarými og stöðu húsvarðar sem tryggir sjúkrarými í heimabyggð.
Bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi bókun og lagði til að bæjarstjórn geri hana að sinni.
"Bæjarstjórn fagnar því að niðurstaða liggur fyrir í málefnum Skjólgarðs. Frá því bæjastjórn sagði sig frá samningunum hefur ríkt óvissa um rekstur Skjólgarðs. Reksturinn hefur verið þungur undanfarin þrjú ár og er uppsafnaður hallarekstur orðinn um 150 m.kr. Eftir nokkurra mánaða samningaumleitan við Sjúkratryggingar Íslands var niðurstaðan sú að sveitarfélagið treysti sér ekki lengur til að styðja við rekstur Skjólgarðs í óbreyttri mynd þar sem um lögbundið verkefni ríkisins er að ræða. Vigdísarholt ehf. tók við rekstrinum frá og með 1. mars s.l. og heldur starfsfólk sínum réttindum við breytingarnar. Bæjarstjórn vill færa starfsfólki kærar þakkir fyrir vel unnin störf og óskar þeim velfarnaðar undir stjórn nýs rekstraraðila. Jafnframt lýsir bæjarstjórn sig reiðubúna til samstarfs við nýja rekstraraðila."
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls.
Forseti bar bókunina upp til samþykktar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
"Bæjarstjórn fagnar því að niðurstaða liggur fyrir í málefnum Skjólgarðs. Frá því bæjastjórn sagði sig frá samningunum hefur ríkt óvissa um rekstur Skjólgarðs. Reksturinn hefur verið þungur undanfarin þrjú ár og er uppsafnaður hallarekstur orðinn um 150 m.kr. Eftir nokkurra mánaða samningaumleitan við Sjúkratryggingar Íslands var niðurstaðan sú að sveitarfélagið treysti sér ekki lengur til að styðja við rekstur Skjólgarðs í óbreyttri mynd þar sem um lögbundið verkefni ríkisins er að ræða. Vigdísarholt ehf. tók við rekstrinum frá og með 1. mars s.l. og heldur starfsfólk sínum réttindum við breytingarnar. Bæjarstjórn vill færa starfsfólki kærar þakkir fyrir vel unnin störf og óskar þeim velfarnaðar undir stjórn nýs rekstraraðila. Jafnframt lýsir bæjarstjórn sig reiðubúna til samstarfs við nýja rekstraraðila."
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls.
Forseti bar bókunina upp til samþykktar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Höfn - miðstöð jöklaferðamennsku
Bæjarstjóri gerði grein fyrri erindi frá Framhaldskóla Austur- Skaftafellssýslu og Rannsóknamiðstöð HÍ á Hornafirði. Óskað er eftir að Höfn verði miðstöð rannsókna og menntunar á sviði jöklaferðamennsku.Hugmyndin er að leiðandi aðilar á Suðausturlandi sammælist um að gera Höfn að miðstöð jöklaferðamennsku, með uppbyggingu á sviði menntunar og rannsókna sem dregur að fagfólk og fyrirtæki sem sérhæfa sig í ferðaþjónustu á jöklum. Menntun og rannsóknir skapa grundvöll fyrir farsæla nýsköpun og þróun í atvinnulífi og samfélagi. Lagði til að bæjarstjórn samþykki að Sveitarfélagið Hornafjörður taki þátt í þeirri vegferð að sveitarfélagið verði miðstöð jöklaferðamennsku.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Reglur um daggæslu í heimahúsi og niðurgreiðslu til dagforeldra
Bæjarstjóri greindi frá að reglur þessar kveða í fyrsta lagi á um greiðslur, í öðru lagi um ábyrgð, skyldur og rétt foreldra barna í dvöl hjá dagforeldrum, í þriðja lagi um ábyrgð, skyldur og rétt dagforeldra gagnvart börnum og samskipti við foreldra barnanna og í fjórða lagi kveða reglur þessar á um aðkomu og eftirlit af hálfu Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Þær byggja m.a. á reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum nr. 907/2005 og reglugerð um hollustuhætti nr. 941/2002.Bæjarstjóri lagði til að bæjarstjórn samþykkir reglur um daggæslu í heimahúsi og niðurgreiðslu til dagforeldra.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Stofnskrá Menningarmiðstöðvar 2021-25
Kristján S. Guðnason greindi frá að Stofnskrá Menningarmiðstöðvar 2021-2025 er unnin til að uppfylla skilyrði Safnaráðs. Þessi stofnskrá byggir á stofnskrá sem unnin var áður fyrir Menningarmiðstöðina.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki stofnskrá Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Ósk um breytingu á aðalskipulagi vegna efnistöku úr Hornafjarðarós
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá óverulegri breytingu á aðalskipulagi vegna efnistökusvæðis í Hornafjarðarósi fyrir allt að 9.990 m3. Efnið verður tekið úr sjó í Hornafjarðarósi innan Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Efninu verður dælt, samtals um 9.990 m3 eða um 15.000 tonn. Lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á aðalskipulagi 2012-2030 skv. 2. m.gr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Deiliskipulag Þétting byggðar Innbæ
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá að við frágang Skipulagsstofnunar á deiliskipulagi Innbæjar, þéttingu byggðar, kom í ljós að auglýsing birtist í B-deild Stjórnartíðinda, þann 11. febrúar sl. en athugasemdafresti lauk þann 3. febrúar 2020. Samkvæmt. 42. gr. skipulagslaga þarf því að endurtaka málsmeðferð skipulagsins í samræmi við 41. gr. laganna. Lagði til að bæjarstjórn samþykki að auglýsa deiliskipulagið að nýju og vísa því í lögformlegt ferli skv. 40. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með fjórum atkvæðum Sigurður Einar Sigurðarson, Páll Róbert Matthíasson og Bryndís Hólmarsdóttir sátu hjá.
Samþykkt með fjórum atkvæðum Sigurður Einar Sigurðarson, Páll Róbert Matthíasson og Bryndís Hólmarsdóttir sátu hjá.
13.
Framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðara frá Skaftárhreppi að Skaftafelli
Forseti greindi frá umsókn Orkufjarskipta um framkvæmdaleyfi til að leggja ljósleiðarastreng frá tengistað sínum vestan við Brúará í Skaftárhreppi I og áfram austur yfir Skeiðarársand að tengistað við vegamót að þjóðgarðinum í Skaftafelli. Fyrirhugaður framkvæmdatími er sumarið 2021.Ástæða lagnarinnar er áframhaldandi uppbygging ljósleiðarakerfis Orkufjarskipta milli tengivirkja og til stýringa á raforkukerfi landsmanna.Lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið og vísi því í lögformlegt ferli skv.13. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Leyfi vegna efnistöku á Suðurfjörum
Forseti greindi frá ósk um óverulega breytingu á aðalskipulagi vegna efnistöku úr Suðurfjörum til rannsóknar á fýsileika fyrir efnistöku af svæðinu óskað er eftir heimild til að taka allt að 2000 m3 af efni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að auglýsa breytingu á aðalskipulagi vegna efnistöku úr Suðurfjörum og vísi því í lögformlegt ferli skv. 30. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Byggingarleyfisumsókn - Víkurbraut 29, breyting á þakkanti, breyting á notkun að hluta
Forseti greindi frá að Ríkiseignir sækja um leyfi til að breyta þakkanti byggingar á Víkurbraut 29-31. Við breytingu stækkar þakskyggni við aðalinngang og á bakhlið. Lóðin er á samfélagsþjónustusvæði og skv. deiliskipulagi er ekki gert ráð fyrir stækkun.Lagði til að heimilað verði að gera útlitsbreytingar á húsinu skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga og að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem breytingin er óveruleg og hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Fyrirspurn um breytingu á lóð: Hagaleira 14
Forseti greindi frá að óveruleg breyting á skipulagi var áður samþykkt í bæjarstjórn þann 22. ágúst 2019 en láðist að auglýsa breytinguna í B-deild Stjórnartíðinda og er því tekin fyrir aftur til staðfestingar. Samþykkt var að byggja mætti á lóðinni allt að 340 m2 parhús en áður var heimilt að byggja allt að 540 m2 einbýlishús. Ein athugasemd barst við grenndarkynninguna. Lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi á Leirusvæði skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Ekki þarf að endurtaka grenndarkynninguna skv. 3. m. gr. 44. gr. skipulagslaga, þar sem hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn enda verður umrætt parhús í hæfilegri fjarlægð frá nærliggjandi húsum og grunnflötur byggingar er talsvert undir leyfilegu byggingarmagni á lóðinni.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Grenndarkynning: Leyfilegt byggingarmagn Júllatún 10 og 19-21
Ásgrímur Ingólfsson vék af fundi undir þessum lið, Ásgerður K. Gylfadóttir tók við stjórn fundarins. Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá að óskað var eftir heimild til að auka við byggingarmagn á lóðum 10, 19 og 21 við Júllatún. Heimilt byggingarmagn verði allt að 150 m2 á hverri lóð. Óveruleg breyting á deiliskipulagi var áður samþykkt í bæjarráði þann 3. júlí 2018 en láðst hefur að auglýsa breytinguna í B-deild Stjórnartíðinda og er því breytingin lögð fyrir aftur, til samþykktar. Engin athugasemd barst við grenndarkynninguna.Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að breyting á byggingarmagni nái til Júllatúns 8, 10, 17, 19 og 21. Heimilt verður að byggja 150 m2 á hverri lóð.Lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísi því í lögformlegt ferli skv. 43. gr. skipulagslaga. Ekki þarf að endurtaka grenndarkynninguna þar sem hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn skv. 3. m.gr. 44. gr. skipulagslaga.Breyting á byggingarmagni nær til Júllatúns 8, 10, 17, 19 og 21. Heimilt verður að byggja 150 m2 á hverri lóð.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Byggingarleyfisumsókn: Fákaleira 11-13 - raðhús
Ásgrímur Ingólfsson tók við stjórn fundarins og greindi frá að óveruleg breyting á deiliskipulagi á Leirusvæði vegna raðhúss. Breytingin var samþykkt af bæjarstjórn í ágúst 2019 eftir grenndarkynningu en láðst hefur að auglýsa breytinguna í B-deild stjórnartíðinda og er því breytingin lögð aftur fyrir til staðfestingar. Engin athugasemd barst við grenndarkynninguna. Lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísi því í lögformlegt ferli skv. 43. gr. skipulagslaga. Ekki þarf að endurtaka grenndarkynninguna þar sem hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn skv. 3. m.gr. 44. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Landskipti: Karlsbrekka: Karlsbrekka 3,4,5
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá að eigendur jarðarinnar Karlsbrekku landeignanúmer L180010 og fasteignanúmer F2238601, Gunnar Bragi Þorsteinsson kt. 130866-5659, Guðbrandur Jóhannsson kt. 190849-3099 og Geir Þorsteinsson kt. 240465-4349,óska eftir að skipta eftirfarandi lóðum úr upprunalandinu Karlsbrekku, landeignanúmer: L180010 og fasteignanúmer F2238601. Karlsbrekka 3, landeignanúmer: L231196, Karlsbrekka 4, landeignanúmer: L231197, Karlsbrekka 5, landeignanúmer: L231198.
Forseti bar landskiptin upp til atkvæða. Bæjarstjórn samþykkir landskiptin með vísan í 13. gr. jarðarlaga nr. 81/2014 og vísan í 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Umsókn um lóð - Sandeyri 2
Bæjarráð mælti ekki með lóðarúthlutun.
Forseti lagði til að bæjarstjórn hafni lóðarumsókninni.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls.
Lóðarumsókn hafnað með sjö atkvæðum.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls.
Lóðarumsókn hafnað með sjö atkvæðum.
21.
Umsókn um lóð - Álaleira 15
Umsókn Björgvins Freys Larssonar um lóð að Álaleiru 15 lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
22.
Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum sl. mánuð.