Bæjarstjórn Hornafjarðar
284. fundur
15. apríl 2021
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir
1. varamaður
Ásgrímur Ingólfsson
Forseti
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
2. varaforseti
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 984
Sigrún Sigurgeirsdóttir tók til máls undir 5. lið, umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2020 og 16. lið, íbúafundur í Öræfum 23. mars. Matthildur Ásmundardóttir tók til máls undir 8. lið, samstarfsyfirlýsing um uppbyggingu á íbúðum á Höfn og 16. lið íbúafundur í Öræfum 23. mars.
Páll Róbert Matthíasson tók til máls undir 16. lið, íbúafundur í Öræfum 23. mars og 7. lið, athugasemd við úthlutun byggingalóða.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Páll Róbert Matthíasson tók til máls undir 16. lið, íbúafundur í Öræfum 23. mars og 7. lið, athugasemd við úthlutun byggingalóða.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 985
Sigrún Sigurgeirsdóttir tók til máls undir 4. lið, endurbætur í Hofgarði, Íris Heiður Jóhannsdóttir tók einnig til máls undir 4. lið.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 986
Bryndís Hólmarsdóttir tók til máls undir 2. lið, atvinnu- og menningarmálanefnd 6. liður Mikligarður. Kristján Sigurður Guðnason tók einnig til máls undir 2. lið. Matthildur Ásmundardóttir tók til máls undir 7. lið, útboð - Hrollaugsstaðir.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 987
Sigrún Sigurgeirsdóttir tók til máls undir 15. lið, uppsögn á leigusamningi við Víkurbraut 26. Til andsvars Matthildur Ásmundardóttir.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 283
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Ársreikningur sveitarfélagsins 2020
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2020 lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Ársreikningurinn hefur fengið kynningu í bæjarráði að viðstöddum aðalmönnum í bæjarstjórn. Ársreikningurinn var samþykktur í bæjarráði og vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Matthildur Ásmundardóttir lagði fram ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2020. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 125 m.kr. og niðurstaða A hluta var jákvæð um 57 m.kr. Eigið fé í árslok 2020 nam 5.359 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en 4.714 m.kr. fyrir A hluta. Veltufé frá rekstri A og B hluta var 406 m.kr. en 241 m.kr. í A hluta. Eiginfjárhlutfall A og B hluta í árslok nam 75,9% og 81,8% í A hluta. Veltufjárhlutfall var 0,72 í A og B hluta og 0,99 í A hluta. Skuldir og skuldbindingar A og B hluta námu 1.700 m.kr. í árslok 2020 en 1.051 m.kr. í A hluta. Skuldahlutfall A og B hluta í árslok 2020 var 59% og skuldaviðmið 36% sem er vel undir 150% hámarki viðmiðunarreglu samkvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.
Matthildur lagði til að ársreikningi 2020 verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls, Páll Róbert Matthíasson tók einnig til máls.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Matthildur lagði til að ársreikningi 2020 verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls, Páll Róbert Matthíasson tók einnig til máls.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Erindisbréf fjölmenningarráðs
Íris Heiður Jóhannsdóttir greindi frá að megin hlutverk fjölmenningarráðs er að móta stefnu í fjölmenningarmálum sveitarfélagsins. Ráðið skal stuðla að hvers konar upplýsingagjöf og samstarfi sveitarfélagsins við íbúa af erlendum uppruna, vinna að stefnumótun og gera tillögur sem varðar verksvið þess. Megin markmið ráðsins er að koma málefnum innflytjenda í sveitarfélaginu á framfæri, skapa vettvang til samskipta og stuðla að fjölmenningarlegu samfélagi.Lagði til að bæjarstjórn samþykki erindisbréf fjölmenningarráðs.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Öryggisstefna í tölvumálum
Bæjarstjóri greindi frá nýrri upplýsinga- og öryggisstefnu. Stefnan á að tryggja að starfsemi Sveitarfélagsins Hornafjarðar sé aldrei í hættu og tilgreina hlutverk og ábyrgðir fyrir ýmsum atriðum í daglegu starfi sveitarfélagsins. Stefnan á einnig að koma á stöðluðum verkferlum til að hjálpa til við ofangreind atriði. Upplýsinga- og öryggisstefnunni er ætlað að tryggja að farið sé að lögum, þ.m.t. lögum nr.90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.Lagði til að bæjarstjórn samþykki nýja upplýsinga- og öryggisstefnu sveitarfélagsins.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Gjaldskrá félagsleg heimaþjónusta
Bæjarstjóri greindi frá gjaldskrá fyrir félagslega heimaþjónustu sem er unnin með vísan til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og málefni aldraðra nr. 125/1999. Notendur greiða fyrir aðstoð við almenn heimilisstörf og mat.Lagði til að bæjarstjórn samþykki gjaldskrá fyrir félagslega heimaþjónustu.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Reglur um félagslegt leiguhúsnæði og íbúðir fyrir aldraða
Bæjarstjóri greindi frá reglum um almennt félagslegt leiguhúsnæði sem er ætlað þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum félagslegra aðstæðna, þungrar framfærslubyrðar og lágra launa. Með almennu félagslegu leiguhúsnæði er átt við hverja þá íbúð í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem ekki er sérstaklega skilgreind sem húsnæði fyrir aldraða eða húsnæði fyrir fatlað fólk.Lagði til að bæjarstjórn samþykki nýjar reglur um félagslegt leiguhúsnæði og íbúðir fyrir aldraða.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Urðunarstaður Grænt bókhald 2020
Forseti greindi frá að starfsmenn sveitarfélagsins og KPMG hafa tekið saman grænt bókhald fyrir urðunarstaðinn í Firði í Lóni. Samtals voru urðuð 1.880.465 kg. af úrgangi á urðunarstaðnum í Lóni árið 2020, urðaður úrgangur dróst saman um 700 þús. kg. Úrgangurinn er frá fyrirtækjum og heimilum. Sé upprunagreining á úrganginum skoðuð má sjá að heimili hafa ekki dregið úr sorpmyndun, samdrátturinn liggur alfarið hjá ferðaþjónustufyrirtækjum.Það er álit KPMG að skýrslur Sveitarfélagsins Hornafjarðar um grænt bókhald fyrir árið 2020 sé gert í samræmi við lög og reglur um innihald skýrslu um grænt bókhald og að tölulegar upplýsingar í skýrslunni séu í samræmi við þær aðferðir sem þar er gerð grein fyrir.
Bæjarstjórn undirritar Græna bókhaldið sem verður sent Umhverfisstofnun til samþykktar.
Forseti bar græna bókhaldið upp til staðfestingar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar græna bókhaldið upp til staðfestingar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Deiliskipulag - Stekkaklettur
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá að markmið deiliskipulagsins er að framfylgja markmiðum aðalskipulags um eflingu byggðar, styrkja og auka fjölbreytileika atvinnu og menningarlífs í sveitarfélaginu. Gera listsköpun sýnilega, styrkja og efla menningu, sköpun og tjáskipti og hlúa að menningararfi samfélagsins. Búa starfsemi á staðnum fastan ramma í samræmi við áætlanir og markmið sem fram koma í tillögu um nýtingu á Stekkakletti. Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagstillöguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga. Allar meginforsendur deiliskipulagsins liggja fyrir í aðalskipulagi og því er fallið frá kröfu um lýsingu.
Páll Róbert Matthíasson tók til máls.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með fjórum atkvæðum Sigrún Sigurgeirsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir og Páll Róbert Matthíasson sátu hjá.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með fjórum atkvæðum Sigrún Sigurgeirsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir og Páll Róbert Matthíasson sátu hjá.
13.
Deiliskipulagsbreyting: Lambleiksstaðir
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá að deiliskipulagsbreyting fyrir Lambleiksstaði var í kynningu frá 18. febrúar til 2. apríl engar athugasemdir bárust. Markmið með gerð breytingar á deiliskipulagi fyrir Lambleiksstaði er að efla byggð og styrkja atvinnulíf. Ferðaþjónusta hefur lengi verið á Lambleiksstöðum og með gerð þessarar breytingar er rekstrargrundvöllur styrktur, skipulagssvæðið stækkað og skipt í byggingarreiti A-D hver með sína húsaþyrpingu. Breytingin á deiliskipulaginu tekur til frekari uppbyggingar á gistiaðstöðu og nýbygginga fyrir ferðaþjónustu. Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagsbreytinguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Deiliskipulag Borgarhöfn
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Borgarhöfn. Meginmarkmið með deiliskipulaginu er að skilgreina tjaldsvæði, byggingarreit fyrir smáhýsi og lóðir og byggingarreiti fyrir frístundahús. Áform landeiganda er að efla ferðaþjónustu á svæðinu og bjóða uppá möguleika til gistingar og afleidda þjónustu. Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagstillöguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Jökulsárlóns á Breiðamerkursandi
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá óverulegri breytingu á deiliskipulagi Jökulsárlóns á Breiðamerkursandi, þar sem lega Prestbakkalínu samræmist ekki legu í aðalskipulagi. Sótt hefur verið um framkvæmdaleyfi vegna færslu línunnar enda er ysta mastrið nú aðeins um 7,5m frá sjávarbakkanum. Leitað var umsagna Vegagerðarinnar, Umhverfisstofnunar og Minjastofnunar sem gera ekki athugasemdir við færsluna. Umsögn hefur ekki borist frá Vatnajökulsþjóðgarði.Lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi Jökulsárlóns á Breiðamerkursandi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga með fyrirvara um jákvæða umsögn stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Byggingarleyfisumsókn: Reynivellir 2a (L225395) - geymsla
Grenndarkynning vegna byggingarleyfis fyrir geymslu að Reynivöllum 2a hefur farið fram fyrir eigendur að Reynivöllum 2, ekki voru gerðar athugasemdir við grenndarkynninguna.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Smáhýsi - Reynivellir 2
Óskað er eftir leyfi til að reisa smáhýsi á Reynivöllum. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að fallið verði frá grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Ósk um framkvæmdaleyfi fyrir nýjan veg við Kálfafellsstaðarkirkju
Ósk um framkvæmdaleyfi vegna nýs aðkomuvegar og bílastæðis við Kálfafellsstaðarkirkju. Framkvæmdin er alfarið í landi Kálfafellsstaðarkirkju. Óskað var eftir umsögn Minjastofnunar og Vegagerðarinnar vegna framkvæmdaleyfis, engar athugasemdir bárust.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfi fyrir aðkomuveg og bílastæði við Kálfafellsstaðarkirkju.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Framkvæmdaleyfi - færsla á Prestbakkalínu Breiðamerkursandi.
Landsnet hf. óska eftir framkvæmdaleyfi vegna færslu á Prestbakkalínu á Breiðamerkursandi. Nauðsynlegt er að færa línuna vegna landrofs en mjög stutt er nú frá línustæðinu út í sjó eða um sjö metrar. Leitað var umsagna Vegagerðarinnar, Umhverfisstofnunar, Minjastofnunar sem gera ekki athugasemdir við færsluna. Umsögn hefur ekki borist frá Vatnajökulsþjóðgarði.Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag og í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið með fyrirvara um að stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs veiti jákvæða umsögn.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðara frá Setbergi til Rauðabergs
Orkufjarskipti óska eftir framkvæmdaleyfi til að leggja ljósleiðarastreng frá tengistað Rarik í landi Setbergs að tengistað við gatnamót á vegi no:1 og 986 að Rauðabergi. Áætlaður framkvæmdatími er sumarið 2021. Ástæða framkvæmdarinnar er áframhaldandi uppbygging ljósleiðarakerfis Orkufjarskipta milli tengivirkja, til stýringa á raforkukerfi landsmanna.Forseti lagði til að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag og í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar.Lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga og falli frá grenndarkynningu skv. 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
21.
Byggingarleyfisumsókn: Akurnes - geymsla
Áformað er að byggja geymslu að Akurnesi. Um er að ræða frístandandi kalda geymslu sem er staðsett á hlaðinu í Akurnesi, austan við núverandi hlöðu og kartöflugeymslu. Ekki er gert ráð fyrir starfsfólki að staðaldri í geymslunni. Geymslunni er skipt upp í þrjú jafn stór bil, sem hvert um sig er með stórum innkeyrsludyrum og göngudyrum. Geymslan er stálgrindarhús á steyptum sökkli og klætt samlokueiningum. Skipulagsnefnd fjallaði um málið árið 2019 og gerði ekki athugasemd við framkvæmdina þar sem hún samræmist búrekstri sem er fyrir á Akurnesi og mælti með að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem langt er í næstu grennd.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að fallið verði frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
22.
Mánabraut 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ásgrímur Ingólfsson vék af fundi undir þessum lið, varaforseti Páll Róbert Matthíasson tók við fundarstjórn undir þessum lið. Forseti greindi frá umsókn Hjalta Þórs Vignissonar um leyfi fyrir útlitsbreytingu á húsi við Mánabraut 6. Breytingin felst í byggingu tveggja nýrra kvista. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Grenndarkynning var auglýst frá 10. febrúar til 10. mars. Engar athugasemdir bárust.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
23.
Byggingarleyfisumsókn - Hagaleira 11, einbýlishús
Greindi frá að Anna Regína Heiðarsdóttir og Hlynur Kristjánsson sækja um heimild til þess að hafa þrjú bílastæði á lóð Hagaleiru 11 og að lágmarkshalli þaks verði 8 gráður. Gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir tveimur bílastæðum og 10 gráðu lágmarkshalla þaks. Umhverfis- og skipulagsnefnd lagði til að fallið verði frá breytingu á skipulagi og grenndarkynningu þar sem frávik eru það óveruleg og hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að fallið verði frá breytingu á skipulagi og grenndarkynningu skv. 3. mgr.43 gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
24.
Umsókn um stækkun á lóð - Álaleira 6
Finnur Ármannsson óskar eftir stækkun á lóð að Álaleiru 6, umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkti að lóðin verði stækkuð og leggur til að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem breytingin hefur ekki áhrif á aðra en umsækjanda og sveitarfélagið.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki stækkun á lóð skv. teikningum og að fallið verði frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
25.
Umsókn um lóð Bugðuleira 7
Umsókn Mikael ehf. um lóð að Bugðuleiru 7, bæjarráð mælti með lóðarumsókninni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutun að Bugðuleiru 7.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
26.
Kosning í bæjarráð
Forseti kynnti að Sæmundur Helgason kemur úr leyfi frá bæjarráði og mun stíga aftur inn í bæjarráð.
Sæmundur verður áheyrnarfulltrúi í bæjarráði og Sigrún Sigurgeirsdóttir verður vara áheyrnarfulltrúi 3. framboðsins.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
27.
Kosningar í nefndir 2018-2022
Engar kosningar eru að þessu sinni.
28.
Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum sl. mánuð.