Bæjarstjórn Hornafjarðar
287. fundur
19. ágúst 2021
kl.
16:00
-
16:55
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
1. varaforseti
Finnur Smári Torfason
2. varamaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
2. varaforseti
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Sæmundur Helgason
aðalmaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 996
Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls undir 4. lið ráðning skólastjóra Grunnskóla Hornafjarðar.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 997
Sæmundur Helgason tók til máls undir 7. lið Ósk um söfnun undirskrifta vegna breytingar á aðalskipulagi og deiliskipulagi í "innbæ". Til andsvars Matthildur Ásmundardóttir. Kristján S. Guðnason tók til máls undir 9. lið Kvörtun v. meintrar ólögmætrar stjórnsýslu og lagði fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa B. lista.
"Bæjarfulltrúar framsóknarflokksins standa heils hugar að baki þeim samningi sem gerður var um útleigu Stekkakletts enda eru fyrirætlanir leigutaka með uppbyggingu kvikmyndaiðnaðs, skapandi miðstöðvar lista og kvikmynda að ganga eftir. Verkefnið er menningar- og nýsköpunarverkefni sem hefur nú þegar haft áhrif á atvinnu- og menningarlíf sveitarfélagsins með afgerandi hætti.
Sveitarfélagið tekur til sín ábendingar ráðuneytisins um þá þætti sem betur má fara í stjórnsýslunni en bendir jafnframt á að ósjaldan fer vinnsla deiliskipulags og breytinga á aðalskipulagi fram jafnhliða uppbyggingu þar sem það hefur ekki áhrif á grennd. Framfarir, nýsköpun og uppbyggingu er ekki alltaf hægt að sjá fyrir til lengri tíma og er því mikilvægt að geta brugðist við og stutt við verkefni sem efla og styðja við atvinnuuppbyggingu og mannlíf.
Fordæmi eru fyrir því að breytingar séu gerðar á deiliskipulögum með óverulegum hætti eða alfarið þó um ný skipulög séu að ræða.“
Til andsvars Páll Róbert Matthíasson, forseti tók til máls, til andsvars Sæmundur Helgason.
Til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
"Bæjarfulltrúar framsóknarflokksins standa heils hugar að baki þeim samningi sem gerður var um útleigu Stekkakletts enda eru fyrirætlanir leigutaka með uppbyggingu kvikmyndaiðnaðs, skapandi miðstöðvar lista og kvikmynda að ganga eftir. Verkefnið er menningar- og nýsköpunarverkefni sem hefur nú þegar haft áhrif á atvinnu- og menningarlíf sveitarfélagsins með afgerandi hætti.
Sveitarfélagið tekur til sín ábendingar ráðuneytisins um þá þætti sem betur má fara í stjórnsýslunni en bendir jafnframt á að ósjaldan fer vinnsla deiliskipulags og breytinga á aðalskipulagi fram jafnhliða uppbyggingu þar sem það hefur ekki áhrif á grennd. Framfarir, nýsköpun og uppbyggingu er ekki alltaf hægt að sjá fyrir til lengri tíma og er því mikilvægt að geta brugðist við og stutt við verkefni sem efla og styðja við atvinnuuppbyggingu og mannlíf.
Fordæmi eru fyrir því að breytingar séu gerðar á deiliskipulögum með óverulegum hætti eða alfarið þó um ný skipulög séu að ræða.“
Til andsvars Páll Róbert Matthíasson, forseti tók til máls, til andsvars Sæmundur Helgason.
Til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 998
Sæmundur Helgason tók til máls undir 3. lið hönnun - Mikligarður.
Kristján Guðnason tók til máls undir 2. lið atvinnu- og menningarmálanefnd og undir 3. lið hönnun - Mikligarður.
Matthildur Ásmundardóttir tók einnig til máls undir 3. lið hönnun - Mikligarður og 11. lið bygging nýs hjúkrunarheimils.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Kristján Guðnason tók til máls undir 2. lið atvinnu- og menningarmálanefnd og undir 3. lið hönnun - Mikligarður.
Matthildur Ásmundardóttir tók einnig til máls undir 3. lið hönnun - Mikligarður og 11. lið bygging nýs hjúkrunarheimils.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 999
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1000
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum
6.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1001
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum
7.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 286
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
8.
Breyting á aðalskipulagi - Heppuvegur 6
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá að megin markmið með breytingunni er að M1 miðsvæði stækkar og Heppuvegur 5 og hluti Heppuvegar 6 verða á miðsvæði í stað athafnasvæðis.Með breyttri landnotkun verður heimilt að hafa á lóðunum matvælaframleiðslu/iðnaðarframleiðslu, veitingasölu og listsýningar auk íbúða. Aðalskipulagsbreytingin hefur verið kynnt skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Lagði til að bæjarstjórn samþykki að tillagan verði send Skipulagsstofnun til athugunar skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga og auglýst í samræmi við 31. gr. skipulagslaga
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Deiliskipulag: Reynivellir II
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá að markmiðið með gerð deiliskipulagsins er að byggja upp ferðaþjónustu, gistingu og/eða hótel. Nýtt þjónustusvæði VÞ45 liggur sunnan þjóðvegar og er í landi Reynivalla II. Markmið er að reisa hótel á svæðinu auk þess að styrkja þjónustu við ferðamenn og heimamenn svo sem með vöru- og eldsneytissölu auk ýmis konar afþreyingu s.s. sölu á jökla- og gönguferðum, leiðsögn o.fl. Tillagan var áður auglýst frá 29. janúar til 11. mars 2020. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, HAUST, Vegagerðinni, Náttúrustofu Suðausturlands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Minjastofnun og Veðurstofunni. Brugðist var við athugasemdum sem fram komu á auglýsingartíma. Á grundvelli umsagna var unnið mat á flóðahættu á svæðinu. Tillagan var í kynningu að nýju frá 15. júní til 29. júlí sl. Endurnýjaðar umsagnir bárust frá Veðurstofunni, Vegagerðinn og Veðurstofu Íslands. Nánari upplýsingar hafa verið sendar til Veðurstofunnar. Lagði til að bæjarráð samþykki tillögu að deiliskipulagi fyrir Reynivelli II.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Deiliskipulag - Stekkaklettur
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá að deiliskipulagstillagan var í kynningu 20. apríl til 1. júní sl. Markmið með gerð deiliskipulagsins er að framfylgja markmiðum aðalskipulags um eflingu byggðar, styrkja og auka fjölbreytileika atvinnu og menningarlífs í sveitarfélaginu. Gera listsköpun sýnilega, styrkja og efla menningu, sköpun og tjáskipti og hlúa að menningararfi samfélagsins. Búa starfsemi á staðnum fastan ramma í samræmi við áætlanir og markmið sem fram koma í tillögu um nýtingu á Stekkakletti. Deiliskipulagið var auglýst frá 20. apríl til 1. júní sl. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, Vegagerðinni, HAUST og Minjastofnun. Brugðist hefur verið við umsögnum skv. fundargerð 25. fundar Umhverfis- og skipulagsnefndar.Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagið skv. 41. gr. skipulagslaga og sendi það til umfjöllunar Skipulagsstofnunar skv. 42. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með fimm atkvæðum. Sæmundur Helgason og Bryndís Hólmarsdóttir sátu hjá.
Samþykkt með fimm atkvæðum. Sæmundur Helgason og Bryndís Hólmarsdóttir sátu hjá.
11.
Deiliskipulag Brunnhóll
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá að deiliskipulagstillagan var í kynningu frá 19. október til 1. desember 2017 og samþykkt í bæjarstjórn í mars 2018. Láðst hefur að auglýsa skipulagið í B- deild og því þarf að endurauglýsa skipulagið.Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að skipulagið verði uppfært þar sem búið er að reisa byggingar á byggingareitum B1 og B2. Lagnir fyrir varmadælu í jörð eru frágengnar og hreinsivirki fyrir frárennsli er frágengið. Tillagan hefur áður verið auglýst og kynnt fyrir íbúum skv. 40. gr. skipulagslaga. Lagði til að bæjarstjórn samþykki að auglýsa deiliskipulagstillöguna að nýju og vísa henni í lögformlegt ferli.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Deiliskipulagsbreyting: Lambleiksstaðir
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá að Skipulagsstofnun gerir athugasemdir við að deiliskipulagið verði auglýst í B-deild. Stofnunin telur að fjöldi gistirýma sé umfram það sem heimild er til í aðalskipulagi.Fallist hefur verið á athugasemdir Skipulagsstofnunar og brugðist við þeim. Í aðalskipulagi er gert er ráð fyrir 80 gistirýmum en lagt er til að veitt verði heimild til að rýmka vikmök frá aðalskipulagi í 88 gistirými. Í samræmi við heimild í aðalskipulagi getur bæjarstjórn úrskurðað um vikmörk vegna fjölda gistirýma. Lagði til að bæjarstjórn samþykki að birta auglýsingu í B deild Stjórnartíðinda skv. 42 gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Fyrirspurn til byggingarfulltrúa - Sandbakki 9, viðbygging
Finnur Torfason vék af fundi undir þessum lið og 14. lið.Óskað er eftir heimild til að byggja viðbyggingu við hús á Sandbakka 9. Um er að ræða u.þ.b. 19m² sólstofu vestan megin hússins. Lóðin er á svæði C2 skv. núgildandi deiliskipulagi miðbæjar, en um það kemur fram að hámarksnýtingarhlutfall er 0,3. Skv. Þjóðskrá er núverandi nýtingarhlutfall lóðar 0,34. Ekki eru sýndir byggingarreitir á skipulagsuppdrætti. Grenndarkynning fór fram á tímabilinu 14. júlí til 11. ágúst sl. Engar athugasemdir bárust.Foseti lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirhugaðar breytingar á húsnæðinu án deiliskipulagsbreytingar skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sex atkvæðum.
14.
Tilkynning um framkvæmd - Sandbakki 22, sólskáli
Finnur Torfason vék af fundi undir þessum lið. Sótt er um leyfi til að byggja við íbúð í raðhúsi á Sandbakka 22. Um er að ræða 4,20 m x 3,50 m sólskála allt að 3 m að hæð. Lóð er á svæði C2 skv. núgildandi deiliskipulagi miðbæjar, en um það kemur fram að hámarksnýtingarhlutfall er 0,3. Skv. Þjóðskrá er núverandi nýtingarhlutfall lóðar 0,46. Ekki eru sýndir byggingarreitir á skipulagsuppdrætti. Samþykki íbúa raðhússins liggur fyrir. Grenndarkynning fór fram á tímabilinu 14. júlí til 11. ágúst sl. Engar athugasemdir bárust. Forseti lagði til að bæjarstjórn heimili fyrirhugaðar breytingar á húsnæðinu án deiliskipulagsbreytingar skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sex atkvæðum.
15.
Byggingarleyfisumsókn - Álaleira 5 - nýtt iðnaðarhúsnæði
Björgvin Ó. Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið.Umsókn um byggingarleyfi fyrir 355,7 m² iðnaðarhús á lóð Álaleira 5. Um er að ræða nýframkvæmd. Ekki er til staðfest deiliskipulag fyrir svæði. Grenndarkynning fór fram á tímabilinu 14. júlí til 11. ágúst sl. Engar athugasemdir bárust.Forseti lagði til að bæjarstjórn heimili byggingu á lóðinni án deiliskipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga, enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar.
Samþykkt með sex atkvæðum.
16.
Byggingarleyfisumsókn Garðsbrún 2 - viðbygging, breyting á klæðningu, skipting glugga
Umsókn um leyfi til að byggja við íbúðarhús að Garðsbrún 2. Um er að ræða um 15 m² stofu á neðri hæð. Einnig er sótt um leyfi til að skipta um glugga og hurðir, og að endurklæða húsið, fjarlægja núverandi plastklæðningu og klæða með litaðri báruklæðningu og lerki viðarklæðningu á afmörkuðum svæðum. Ekki er til staðfest deiliskipulag fyrir svæði. Grenndarkynning fór fram á tímabilinu 14. júlí til 11. ágúst sl. Engar athugasemdir bárust.Lagði til að bæjarstjórn heimili fyrirhugaðar breytingar á húsnæðinu án deiliskipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga, enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Heppuvegur 2a, Íshúsið viðbygging
Áform eru um að byggja viðbyggingu við veitingahús að Heppuvegi 2a (Íshúsið Pizzeria). Um er að ræða framlengingu hússins til austurs um 4 m, en viðbygging mun vera 2 m breiðara en núverandi hús. Ytra útlit hússins verður að öðru leyti óbreytt og lögð áhersla á að viðbygging falli að núverandi ásýnd. Óskað er eftir stækkun lóðar til austurs inn að lóð Verðandi um 75 cm. Austurgafl hússins yrði þá glugga og hurðalaus. Gert er ráð fyrir að sveitarfélagið fái lóðina undir Verðanda tilbaka.Forseti lagið til að bæjarstjórn heimili fyrirhugaðar breytingar á húsnæðinu og stækkun lóðar án deiliskipulagsbreytingar skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Beiðni um landskipti - Hagi
Erindi frá Snorra Snorrasyni fyrir hönd landeiganda að jörðinni Haga.Marta K. Grönvold Björnsdóttir kt 160356-5539, óskar eftir að skipta lóðinni Hagi 3, landeignanúmer L231921, úr upprunalandinu Hagi, landeignanúmer L159482 og fasteignanúmer F2180192. Land Haga 3 liggur allt innan upprunalandsins og á ekki landamerki að öðrum jörðum. Lagði til að bæjarstjórn samþykki landskiptin.
Bæjarstjórn samþykkir landskiptin með vísan í 13. gr. jarðarlaga nr. 81/2014 og vísan í 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Ákvörðun ráðherra um starfhæfi sveitarstjórna og nýtt heimildarákvæði sveitarstjórnarlaga
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki, að á fundum bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda sveitarfélagsins verði nýttur fjarfundarbúnaður beri nauðsyn til. Fundargerðir verði staðfestar í gegnum tölvupóst eftir fundina. Ákvörðun þessi gildir afturvirkt frá og með 1. ágúst sl. til 1. október 2021 skv. ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum í sumar.