Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

288. fundur
9. september 2021 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 1. varaforseti
Finnur Smári Torfason 2. varamaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson 2. varaforseti
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Sæmundur Helgason aðalmaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1002
Málsnúmer 2108011F
Sæmundur Helgason tók til máls undir 1. lið, fundargerðar fræðslu- og tómstundarnefndar, 7. lið Fyrirspurn vegna inntöku barna í Leikskólann Sjónarhól. Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða. Til andsvars Matthildur Ásmundardóttir.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1003
Málsnúmer 2108013F
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri tók til máls undir 8. lið, ósk um söfnun undirskrifta vegna breytingar á aðalskipulagi og deiliskipulagi í "innbæ"
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1004
Málsnúmer 2109001F
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 287
Málsnúmer 2108008F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
5.
Alþingiskosningar - Kjörskrá 2021
Málsnúmer 202109005
Lagt fram erindi frá Þjóðskrár Íslands frá 21. ágúst 2021 þar sem fram koma fyrirmæli um meðferð kjörskrárstofna frá Þjóðskrá, alþingiskosninga 25. september 2021. Jafnframt lagður fram stofn að kjörskrá fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð, sem unnin hefur verið af Þjóðskrá Íslands og yfirfarin af starfsmönnum sveitarfélagsins. Alls eru 1.508 á kjörskrá sveitarfélagsins fyrir þessar kosningar. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki framlagða kjörskrá eins og hún liggur fyrir og felur oddvita að undirrita hana.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Kjörskráin liggur frammi í afgreiðslu sveitarfélagsins til 24. september nk.
6.
Reglur um sölu íbúða í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202108091
Matthildur Ásmundardóttir greindi frá að markmið með reglum um sölu íbúða í eigu sveitarfélagsins er að skýra hvernig staðið verður að sölu íbúða í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Stefna sveitarfélagsins er að fækka íbúðum í eigu sveitarfélagsins en nýta þess í stað þau úrræði sem sveitarfélagið hefur upp á að bjóða, þ.e. húsaleigubætur og sérstakar húsaleigubætur.
Forseti bar reglurnar upp til samþykkar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Reglur um refa- og minkaveiði
Málsnúmer 202108052
Reglur um refa- og minkaveiðar fjalla um stöðu, ábyrgð og starf veiðimanna við veiðar á refum og minkum í sveitarfélaginu.
Finnur Torfason tók til máls.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki reglur um refa- og minkaveiðar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Sala íbúða í eigu sveitarfélagsins
Málsnúmer 202104041
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki sölu á íbúðum á Sandbakkavegi 4 - 101 og Sandbakkavegi 2 - 102 samkvæmt reglum um sölu íbúða í eigu sveitarfélagsins sem samþykktar voru á fundinum undir 5. lið.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Samstarfsyfirlýsing um uppbyggingu á íbúðum á Höfn
Málsnúmer 202103066
Ákvörðun bæjarstjórnar er tekin á grundvelli 6. gr. laga nr. 153/2006 um gatnagerðargjöld. Þar kemur fram að sveitarstjórn er heimilt að lækka eða fella niður gatnagerðargjald af einstökum lóðum í sveitarfélaginu við sérstakar aðstæður, svo sem vegna þéttingar byggðar, atvinnuuppbyggingar, lítillar ásóknar í viðkomandi lóð eða eftirspurnar eftir leiguhúsnæði.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita 50% afslátt af gatnagerðargjöldum fyrir Leigufélagið Bríet ehf.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Byggingarleyfisumsókn: Breiðabólsstaður (Klifatangi) - frístundahús
Málsnúmer 202108043
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá að Flugvirkjafélag Íslands sækir um leyfi til að rífa núverandi 30,6 fm. sumarbústað í Klifatanga í Suðursveit og byggja um 150 fm. heilsárs frístundahús í staðinn. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið, skv. aðalskipulagi er svæðið innan frístundabyggðar F15 í Suðursveit. Svæðið er einnig merkt sem önnur náttúruvernd ÖN10 og er á náttúruminjaskrá. Beiðni um umsagnir hafa verið sendar til Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands.Lagði til að bæjarstjórn samþykki að núverandi 30,6 fm. sumarbústaður verði rifinn og byggður um 150 fm. heilsárs frístundahús í staðinn í samræmi við framlagðar teikningar skv. 1.mgr. 44.gr. skipulagslaga þar sem framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar, að því tilskyldu að jákvæðar umsagnir berist frá Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands. Lagði einnig til að bæjarstjórn samþykki að fallið verði frá grenndarkynningu skv. 3.mgr. 44.gr. skipulagslaga þar sem framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en umsækjanda.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Tilkynning um framkvæmd - Heppuvegur 6 - breyting á útliti
Málsnúmer 202106046
Hepputorg ehf. sækir um leyfi fyrir breytingu á útliti húss á Heppuvegi 6. Breytingar felast í því að núverandi gluggum og hurðum er breytt og fleiri gluggum og hurðum bætt við. Sólpalli er bætt við austurhlið hússins. Á norðurhlið hússins er bætt við tveimur svölum. Á öðrum þeirra er bætt við aðgengi með tröppum upp á aðra hæð. Gildandi deiliskipulag gerir ekki ráð fyrir viðbyggingu við hús að Heppuvegi 6.Lagði til að heimilt verði að breyta útliti á húsi að Heppuvegi 6 í samræmi við framlagðar teikningar skv. 3.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010, þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
12.
Framkvæmdaleyfi - efnistaka Kolgrímu E 84
Málsnúmer 202108071
Vegagerðin óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í Kolgrímu.Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag og í samræmi við landnotkun. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Landeignaskrá - Skálafell 1A og Skálafell 1B - breyting á lóðarmörkum
Málsnúmer 202107008
Björn Guðmundur Sæbjörnsson og Sigurgeir Jónsson óska eftir breytingu á lóðarmörkum milli Skálafells 1 lóð A og Skálafells 1 lóð B skv. meðfylgjandi uppdráttum. Til staðar er staðfest deiliskipulag fyrir svæðið. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 13.7. 2021 að vinna mætti óverulega breytingu á deiliskipulagi þar sem gerð yrði grein fyrir breyttum lóðamörkum og byggingarreitum.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga enda víkur tillagan óverulega frá notkun, nýtingarhlutfalli og formi viðkomandi skipulags. Lagði einnig til að bæjarstjórn samþykki að fallið verði frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjenda.
Samþykkt með sex atkvæðum.
14.
Landskipti - Háhóll
Málsnúmer 202106108
Erindi frá Snorra Snorrasyni fyrir hönd landeiganda að jörðinni Hjarðarnes. Lovísa Eymundsdóttir kt. 151244-2629, óskar eftir að skipta lóð úr jörðinni Hjarðarnes landeignanúmer: L159484 og fastanúmer F2180204, útskipting á lóðinni Háhóll, landeignanúmer L189543 og fastanúmer F2267484, úr upprunalandinu. Útskipting lóðarinnar rýrir ekki upprunalandið svo neinu nemi. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki landskiptin með vísan í 13. gr. jarðarlaga nr. 81/2014 og vísan í 48. gr. skipulagslaga .
Samþykkt með sex atkvæðum.
15.
Umsókn um lóð - Borgartún 1 og 2
Málsnúmer 202109001
Straumhvarf ehf. sækir um lóð að Borgartúni 1. og 2. Bæjarráð mælir með lóðarúthlutuninni.
Forseti bar lóðarúthlutunina til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Umsókn um lóð - Borgartún 1, 2, 3 eða 5
Málsnúmer 202108114
Arcanum Fjallaleiðsögumenn ehf. sækja um lóð að Borgartúni 3 og 5. Bæjarráð mælir með lóðarúthlutuninni.
Sæmundur Helgason tók til máls, til andsvars Matthildur Ásmundardóttir.
Forseti bar lóðarúthlutunina til atkvæða, til andsvars Sæmundur Helgason.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 202101042
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum sl. mánuð.