Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

291. fundur
11. nóvember 2021 kl. 16:00 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 1. varaforseti
Finnur Smári Torfason 2. varamaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson 2. varaforseti
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Sæmundur Helgason aðalmaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1010
Málsnúmer 2110008F
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1011
Málsnúmer 2110011F
Sæmundur Helgason tók til máls undir 1. lið fundargerð fræðslu- og tómstundanefndar 7. lið, Íslensku menntaverðlaunin 2021.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1012
Málsnúmer 2110015F
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1013
Málsnúmer 2111005F
Sæmundur Helgason tók til máls undir 12. lið, ályktun bæjarráðs Árborgar um leikskólamál. Til andsvars Björgvin Ó. Sigurjónsson. Til andsvars Sæmundur Helgason. Aftur til andsvars Björgvin Ó. Sigurjónsson.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 290
Málsnúmer 2110007F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Álagningarreglur 2022
Málsnúmer 202110087
Tillaga að álagningarreglum 2022:Útsvar 14,52%. Fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði 0,41% af fasteignamati (hámark 0,625%). Fasteignaskattur á opinb. húsnæði 1,32%. Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði 1,49% af fasteignamati (hámark 1,65%). Lóðarleiga 1% af lóðarmati. Holræsagjald samkvæmt gjaldskrá (var 0,30% af fasteignamati). Vatnsgjald Samkvæmt gjaldskrá (var 0,15% af fasteignamati). Sorpgjöld samkvæmt gjaldskrá.
Forseti bar álagningarreglurnar upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Fjárhagsáætlun 2022-2025
Málsnúmer 202108093
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fjárhagsáætlun ársins 2022 og þriggja ára áætlun 2023-2025. Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir árið 2022 í A og B hluta eru eftirfarandi: Rekstrarniðurstaða 68,3 m.kr., skuldir og skuldbindingar 2.346 m.kr., veltufé frá rekstri 379 m.kr., ný lántaka 250 m.kr., afborganir langtímalána 116,4 m.kr., handbært fé í árslok 47,4 m.kr. Skuldir og skuldbindingar í hlutfalli af tekjum 73,5%. Fjárfestingaáætlun næsta árs hljóðar upp á 500 m.kr. Helstu framkvæmdir eru fráveituframkvæmdir áfangi 3, ný líkamsrækt sem byggð verður við sundlaugina, endurbætur við Hofgarð ásamt því að haldið verður áfram við endurbætur á Miklagarði. Hjúkrunarheimilið er enn á dagskrá unnið er í samstarfi við tilboðsgjafa að lækkun kostnaðar. Ekki liggur fyrir hver kostnaðarþátttaka sveitarfélagsins verður á næsta ári þar sem nú þegar hafa verið greiddar til verkefnisins tæpar 200 m.kr.
Forseti þakkaði starfsfólki og bæjarfulltrúum fyrir vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.
Páll Róbert Matthíasson tók til máls.
Forseti lagði til að fjárhagsáætlun 2022 verði vísað til síðari umræðu bæjarstjórnar. Samþykkt með 7 atkvæðum.
8.
Gjaldskrár fræðslu og frístundasviðs
Málsnúmer 202110020
Bæjarstjóri gerði grein fyrir gjaldskrám fræðslu- og tómstundanefndar. Hækkanir á leikskólagjöldum og fæði í leikskóla hafa verið í lágmarki undanfarin ár og ekki haldið í við það hlutfall sem foreldrar hafa lengst af greitt. Lagt er til 9% hækkun á leikskólagjöldum og 9% hækkun á fæðisgjöldum. Lagt er til að hækka um 9% á fæðis- og vistunargjöldum í Kátakoti.Lagt er til að hækka fæði í grunnskólanum upp í 360 kr. máltíðin fyrir nemendur og 600 krónur til starfsmanna.Lagt er til að hækka gjaldskrá Vöruhúss um 10% auk þess sem 4 liðir hækka meira vegna raunkostnaðar.Lagt er til að hækka tónskólagjöld hjá börnum 5% og 10% hjá fullorðnum.Lagt er til að hækka gjaldskrá sundlaugar um að jafnaði 5%.
Leikskólagjöld hækka um 9% - átta tíma vistun með fæði hækkar um 2.797 kr. á mánuði.
Skólamáltíðir í grunnskóla hækka um 37 kr. máltíðin.
Kátakot - lengd viðvera hækkar um 1.244 kr. á mánuði miðað við 5 daga í viku og fæðisgjöld um 11 krónur á dag.
Tónskóli - fullt nám fyrir börn hækkar um 3.477 kr. fyrir önnina.
Sundlaug - almennt gjald í sund hækkar um 50 kr.
Vöruhús - gjaldskráin hækkar um 10%.
Sæmundur Helgason tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun, "Sæmundur ítrekar bókun frá fundi bæjarráðs nr. 1011
"Fulltrúi 3. Framboðsins leggst gegn tillögum um hækkun leikskólagjalda. Nær væri að stíga það skref að fella niður leikskólagjöld, enda standa þau undir mjög litlum hluta kostnaðar við rekstur."
Til andsvars Björgvin Ó. Sigurjónsson.
Forseti bar gjaldskrárnar upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Stofnskrá Menningarmiðstöðvar 2021-25
Málsnúmer 202102088
Forseti greindi frá að Stofnskrá Menningarmiðstöðvar 2021-2025 var samþykkt í mars sl. en gerðar voru smávægilegar breytingar á stofnskránni sem þarf að senda til Safnaráðs undirritað af bæjarstjórn.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki stofnskrá Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Persónuverndarstefna
Málsnúmer 202110074
Fyrir liggur ný og breytt persónuverndarstefna, í stefnu þessari er því lýst hvernig Sveitarfélagið Hornafjörður vinnur með persónuupplýsingar. Öll vinnsla sveitarfélagsins á persónuupplýsingum fer fram á grundvelli laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.Lagði til að bæjarstjórn samþykki nýja persónuverndarstefnu.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ
Málsnúmer 202110040
Bæjarstjóri gerði grein fyrir ósk bæjarstjórnar eftir samþykki samgöngu- og sveitastjórnarráðherra fyrir framkvæmd rafrænnar íbúakosningar. Ráðuneytið mun ekki gera athugasemd við rafræna atkvæðagreiðslu, þegar fyrir liggur að Þjóðskrá Íslands geti tryggt kosningakerfi sem uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til þess samkvæmt reglugerð um framkvæmd rafrænna kosninga, nr. 966/2018. Eins og staðan er núna hefur ekki farið fram öryggisúttekt á því kosningakerfi sem er til staðar, sbr. 3. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar, og óvíst hvort að slík öryggisúttekt liggi fyrir fyrr en í fyrsta lagi um miðjan febrúar n.k.Lagði til að bæjarstjórn samþykki að íbúakosning fari fram í síðasta lagi laugardaginn 15. janúar 2022 með hefðbundnum hætti. Verði mögulegt að framkvæma rafræna atkvæðagreiðslu fyrir þann tíma verði sá kostur valinn.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Deiliskipulag Brunnhóll
Málsnúmer 201710005
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá að deiliskipulag fyrir Brunnhól var endurauglýst frá 22. september til 2. nóvember 2021. Skipulagið hafði áður verið auglýst og staðfest í bæjarstjórn árið 2018. Skipulagsreiturinn er fullbyggður. Engar umsagnir eða athugasemdir bárust. Lagði til að bæjarstjórn samþykki nýtt deiliskipulag að Brunnhóli og vísi því í lögformlegt ferli skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Deiliskipulag Skaftafell III og IV
Málsnúmer 202108101
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá tillögu að nýju deiliskipulagi. Markmið með deiliskipulagi þessu er að sníða ramma utan um byggð lítilla húsa á jörðinni Skaftafell III. Deiliskipulagstillagan var kynnt á kynningarfundi 8. nóvember sl.Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagstillöguna og auglýsi skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga. Fallið verði frá gerð skipulagslýsingar skv. 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga þar sem allar meginforsendur liggja fyrir í aðalskipulagi.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Deiliskipulag - Hálsasker - Svínafell 2
Málsnúmer 202109093
Björgvin Óskar Sigurjónsson greindi frá tillögu að nýju deiliskipulagi að Hálsaskeri Svínafelli 2. Þegar hefur verið samþykkt leyfi fyrir gestahúsi sem mun nýtist sem heilsárshús við framtíðaruppbyggingu. Áætlað er að endurbyggja gamla Hnappavallabæinn á Byggingareit B1, í upprunalegri mynd. Lögð er áhersla á að skapa á lóðinni bæjarhlað og húsaþyrpingu eftir ríkjandi hefðum. Deiliskipulagstillagan var kynnt á kynningarfundi 8. nóvember sl.Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagtillöguna og auglýsi það skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga. Fallið verður frá gerð skipulagslýsingar skv. 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga þar sem allar meginforsendur liggja fyrir í aðalskipulagi.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Umsókn um leyfi til niðurrifs og enduruppbyggingu bílskúrs við Bogaslóð 16
Málsnúmer 202110091
Gunnar Örn Olgeirsson óskar eftir leyfi til niðurrifs og endurbyggingar bílskúr að Bogaslóð 16. Fyrirhugað er að stækka bílskúr um 1-1,25m í átt að götu. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Grenndarkynning hefur farið fram, engar athugasemdir bárust. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að gerð verði breyting á bílskúr að Bogaslóð 16 í samræmi við framlagðar teikningar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga og samþykki fyrirliggjandi grenndarkynningu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að gerð verði breyting á bílskúr að Bogaslóð 16 í samræmi við framlagðar teikningar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga og samþykki fyrirliggjandi grenndarkynningu.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Byggingamál - Bjarnahóll 9 - viðbygging, stækkun á anddyri
Málsnúmer 202110071
Sverrir Þórhallsson tilkynnti minnihátta breytingu á húsi að Bjarnahól 9. Um er að ræða breytingu á innskoti við anddyri undir þakskyggni. Settir eru tveir veggir og með því stækkar flatarmál hússins um 4,7 fm. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að fallið verði frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44 gr. skipulagslaga enda varðar breytingin ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og samþykki breytingu á húsi að Bjarnarhóli 9 skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Byggingarleyfisumsókn - Stafafellsfjöll lóð 8, frístundahús
Málsnúmer 202108010
Borgþór Freysteinsson óskar eftir heimild til að víkja frá kröfum deiliskipulags frístundasvæðis Stafafellsfjöll í Lóni. Í greinargerð deiliskipulagsins kemur fram að aðalhús má vera allt að 120m² og ekki minna en 30m², en aukahús getur verið allt að 30m², þó ekki stærra en helmingur af stærð aðalhúss. Fyrirhuguð er að reisa 36,1m² frístundahús á lóð nr. 8 og hafa það sem aðalhús, en núverandi 22,3m² bústað sem aukahús. Óskað er eftir því að vikið sé frá kröfum í deiliskipulagi um að auka hús geti ekki verið stærra en helmingur af stærð aðalhúss. Í deiliskipulaginu er einnig miðað við að húsin falli sem best að landi og að stefna aðalmænis fylgi sem mest meginstefnu í landinu og verði að jafnaði samsíða hlíðum, en staðsetning hússins er sýnd á uppdráttum. Grenndarkynning var send á landeigendur sem hafa allir skilað umsögnum. Ein umsögn hefur verið dregin til baka.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna og umbeðnar heimildir um að vikið sé frá kröfum um stærð aukahúss og leiðbeiningum um mænisstefnu í deiliskipulagi séu ekki líklegar til að hafa neikvæð áhrif á hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Lagði til bæjarstjórn samþykki að vikið sé frá ofangreindum skilmálum og leiðbeiningum skv. framlögðum gögnum án deiliskipulagsbreytingar skv. 3. mgr. 43. gr skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Breyting á lóðamörkum Stafafellsfjöll 17A
Málsnúmer 202111022
Gunnlaugur Ólafsson óskar eftir breytingum á lóðamörkum 17A án breytinga á deiliskipulagi. Staðfesting allra landeigenda liggur fyrir.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að lóðamörkum verði breytt og að fallið verði frá grenndarkynningu. Þar sem stækkun lóðarinnar er talsverð, en engin áform eru um breytingu á byggingarreit, lagði til að bæjarstjórn samþykki einnig að breytingin verði gerð með óverulegri breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Framkvæmdaleyfi - Dýpkun á Grynnslum
Málsnúmer 202111010
Hornafjarðarhöfn óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna dýpkunarframkvæmda á Grynnslum úti fyrir innsiglingu að Hornafjarðarhöfn. Dýpið á Grynnslunum gerir það að verkun að innsiglingin er oft ófær, að vetri til, í lengri tíma. Gert er ráð fyrir að dýpkunin fari fram á næstu vikum. Sótt er um leyfi fyrir flutningi á efni um 30.000 m3 þar sem losunarstaður verður sá sami og árið 2015, á haf út.Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga, með fyrirvara um jákvæða umsögn Umhverfisstofnunar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Framkvæmdaleyfi - Dýpkun innan hafnar
Málsnúmer 202111009
Hornafjarðarhöfn og Vegagerðin sækja um framkvæmdaleyfi vegna viðhaldsdýpkunar innan hafnarinnar. Gert er ráð fyrir að dælt verði upp efni allt að 30.000 m3 úr höfninni. Dýpkunin verður austast í höfninni vegna löndunar á loðnu á komandi vertíð. Gert er ráð fyrir að losunarstaður verði sunnan við Ósland, innan hafnarsvæðis. Leitast verður við að nýta efni til upphækkunar á lóðum í Óslandi og/eða sem farg á lóðir á Leirusvæði II.Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
21.
Framkvæmdaleyfi - Hringvegur nr. 1 milli Hólms og Dynjanda - endurútgáfa
Málsnúmer 202111002
Umsókn Vegagerðarinnar um endurútgáfu framkvæmdaleyfis vegna Hringvegar um Hornafjörð milli Hólms og Dynjanda. Nánari hönnun og reynslutölur sigs í fyrsta áfanga hafa leitt til breytinga varðandi efnistöku. Óskað er eftir heimild fyrir aukinni efnistöku í námu nr. E48 Hólmsá, nr. E44 Djúpá, nr. E34 Hornafjarðarfljót og nr. E35 Skógey. Aukin efnistaka úr námunum er í samræmi við mat á umhverfisáhrifum, álit Skipulagsstofnunar og fyrirliggjandi skipulagsáætlanir. Vegagerðin óskar eftir að framkvæmdatími verði til ársloka 2025.Beiðni Vegagerðarinnar um aukna efnistöku er í samræmi við matsskýrslu Vegagerðarinnar, álit Skipulagsstofnunar, Aðalskipulag Hornafjarðar 2012-2030, deiliskipulagsáætlanir fyrir Hornafjarðarfljót, Djúpá og Skógey. Gögn sem bæjarstjórn lagði fram við afgreiðslu framkvæmdaleyfis árið 2016 eiga enn við, þ.m.t. greinargerð með veitingu framkvæmdaleyfis og skilmálar fyrir framkvæmdaleyfi. Forsendur fyrir leyfisveitingu eru óbreyttar.Viðauki er gerður við greinargerð bæjarstjórnar dagsett í nóvember 2016 um breytingar á efnistöku. Birt verður ný tafla um umfang efnistöku og gildistíma í endurútgefnu framkvæmdaleyfi.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita framkvæmdaleyfið skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
22.
Framkvæmdaleyfi - Skeiðarárnáma E75
Málsnúmer 202111021
Umsókn um framkvæmdaleyfi frá BM Vallá, vegna fyrirhugaðrar efnistöku, allt að 4500 m3 úr Skeiðarárnámu austan Skeiðarár. Náman er með númerið E75 í aðalskipulagi. Áætlað er að efnisvinnsla standi yfir frá nóvember 2021 til vors 2022. Steinefnið verður haugsett og flutt í áföngum að steypustöð sem staðsett verður við Núpsvötn. Þegar efnistöku lýkur verður náman frágengin og sléttuð svipað og gert var í fyrri áfanga 1998.Leyfi landeiganda liggur fyrir.Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
23.
Landskipti - Flatey
Málsnúmer 202107013
Erindi frá Landslögum fyrir hönd Selbakka ehf. þar sem óskað er eftir landskiptum á jörðinni Flatey á Mýrum landeignanúmer 160084 og að landskiptin séu í samræmi við skipulagsáætlanir sveitarfélagsins. Flatey, landeignarnúmer L160084, er 2.095,6 ha jörð.Jörðin Selbakki (L232372), 1.458,1 ha að landstærð verður stofnuð úr jörðinni Flatey (L160084) sem verður skráð 637,5 ha að landstærð að skiptum loknum.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki landskiptin með vísan í 13. gr. jarðarlaga nr. 81/2014 og vísan í 48. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
24.
Landeignaskrá - Skaftafell III og IV - Landskipti, breyting á afmörkun innbyrðis
Málsnúmer 202109002
Stefán Benediktsson kt. 2010413769 eigandi Skaftafells III og Árni Benediktsson kt. 2505523279 eigandi Skaftafells IV óska eftir staðfestingu sveitarfélagsins á breytingu á innbyrðis afmörkun Skaftafells III og IV. Um er að ræða viðauka við landskiptasamning dagsettan 26. september 2014. Ný afmörkun er skv. uppdrætti „Breytt innri afmörkun Skaftafells III og IV“ dags. 4. mars 2021 og lýtur einungis að breytingu á landamerkjum milli landspildnanna tveggja en hefur engin áhrif á sameiginleg ytri mörk þeirra. Landnýting verður í samræmi við aðalskipulag sveitarfélagsins. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki landskiptin með vísan í 13. gr. jarðarlaga nr. 81/2014 og vísan í 48. gr. skipulagslaga.Um er að ræða viðauka við landskiptasamning H-21/2015.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
25.
Landeignaskrá - Háhóll og Hólanes, samruni landeigna, stofnun lögbýlis
Málsnúmer 202110035
Lovísa Rósa Bjarnadóttir kt. 1002775659 og Jón Kjartansson kt. 1205693179 óska eftir því að bæjarstjórn samþykki og veiti jákvæða umsögn um að skrá Háhól landeignanúmer L189543 og fasteignanúmer F2267484 sem lögbýli eftir að skráningu á nýrri fasteign undir nafni Háhóls með samruna Háhóls landeignanúmer: L189543 við Hólanes landeignanúmer: L226427 í Sveitarfélaginu Hornafirði. Jörðin mun áfram vera í landbúnaðarnotkun. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki landskiptin með vísan í 13. gr. jarðarlaga nr. 81/2014 og vísan í 48. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
26.
Umsókn um lóð - Hagaleira 1
Málsnúmer 202110090
Umsókn Skúla Ingólfssonar og Guðbjargar Ómarsdóttur um lóð að Hagaleiru 1.Dregið var um lóðina og urðu Skúli og Guðbjörg hlutskörpust. Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Forseti bar lóðarumsóknina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
27.
Umsókn um lóð - Hraunhóll 1
Málsnúmer 202110080
Umsókn Verkfærni ehf. um lóð að Hraunhóll 1.Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Forseti bar lóðarumsóknina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
28.
Umsókn um lóð - Hafnarbraut 6
Málsnúmer 202109071
Umsókn Gunnars Ásgeirssonar um lóð að Hafnarbraut 6.Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni
Forseti bar lóðarumsóknina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
29.
Umsókn um lóð - Júllatún 10
Málsnúmer 202111045
Umsókn Sævars Knúts Hannessonar og Siggerðar Aðalsteinsdóttur um lóð Júllatún 10.Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Forseti bar lóðarumsóknina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
30.
Kosningar í nefndir 2018-2022
Málsnúmer 201806009
Hafnarstjórn
Heiðar Erlingsson verður 2. varamaður B lista í stað Vigfúsar Ásbjörnssonar.
Fræðslu- og tómstundanefnd
Guðrún Sigfinnsdóttir verður 1. varamaður B lista í stað Kolbrúnar Reynisdóttur.
Forseti bar breytingar á nefndum upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
31.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 202101042
Bæjarstjóri greindi frá störfum sínum síðastliðinn mánuð.