Bæjarstjórn Hornafjarðar
295. fundur
10. mars 2022
kl.
16:00
-
16:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
1. varaforseti
Finnur Smári Torfason
2. varamaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
2. varaforseti
Bryndís Hólmarsdóttir
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1026
Páll Róbert Matthíasson tók til máls undir 3. lið, íbúðir sveitarfélagsins.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1027
Kristján S. Guðnason tók til máls undir 8. lið, Humarhátíð 2022.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1028
Sigrún Sigurgeirsdóttir tók til máls undir 2. lið, útboð byggingar hjúkrunarheimilis, til andsvars Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri, hún tók einnig til máls undir 4. lið, húsnæðismál Vatnajökulsþjóðgarðs ósk um samstarf, til andsvars Kristján S. Guðnason.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1029
Sigrún Sigurgeirsdóttir tók til máls undir 3. lið, nytjasmiðjan-regnhlíf hringrásarhagkerfis í Sveitarfélaginu Hornafirði, til andsvars Páll Róbert Matthíasson og Matthildur Ásmundardóttir, aftur til andsvars Páll Róbert Matthíasson.
Finnur S. Torfason tók til máls undir 1. lið, umhverfis- og skipulagsnefnd 10. lið breyting á deiliskipulagi útbæ.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Finnur S. Torfason tók til máls undir 1. lið, umhverfis- og skipulagsnefnd 10. lið breyting á deiliskipulagi útbæ.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 294
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ
Bæjarstjóri lagði til að bæjarstjórn samþykki að framkvæmd verði íbúakosning um samþykkt aðal- og deiliskipulag. Framkvæmd íbúakosningarinnar verði ráðgefandi og hún verði samhliða sveitarstjórnarkosningum 14. maí nk. skv. 107. gr. sveitarstjórnarlaga nr.123/2011. Leitað var til Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um ráðgjöf vegna framlagningar á spurningu vegna íbúakosningarinnar. Spurning íbúakosningarinnar verði þessi: Nýtt aðal- og deiliskipulag um þéttingu byggðar í Innbæ á Höfn, samkvæmt auglýsingum um samþykkt bæjarstjórnar frá 16. apríl 2020 og 27. maí 2021, hefur verið samþykkt af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Ekkert deiliskipulag var áður í gildi fyrir svæðið, en allar upplýsingar um nýja deiliskipulagið og aðalskipulagsbreytinguna má sjá á heimasíðu sveitarfélagsins https://www.hornafjordur.is/stjornsysla/skipulagsmal/skipulag-i-kynningu/Vilt þú að þessi nýju aðal- og deiliskipulag haldi gildi sínu með þeim breytingum sem því fylgja, eða vilt þú að það falli úr gildi og þar með verði skipulag óbreytt á svæðinu? Ég vil að nýtt aðal- og deiliskipulag haldi gildi sínu. Ég vil að nýtt aðal- og deiliskipulag falli úr gildi.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að framkvæmd verði íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ. Framkvæmd íbúakosningar verði samhliða sveitarstjórnarkosningum 14. maí nk.og íbúakosningin verði ráðgefandi.
Bæjarstjórn samþykkti með sjö atkvæðum að framkvæmd verði íbúakosning um aðal- og deiliskipulag þétting byggðar innbæ 14. maí nk.
Bæjarstjórn samþykkti með sjö atkvæðum að framkvæmd verði íbúakosning um aðal- og deiliskipulag þétting byggðar innbæ 14. maí nk.
7.
Reglur um starfsemi leikskóla
Breytingar á reglum um starfsemi leikskóla snúa að ýmsum þáttum svo sem innritun, meiri fyrirsjáanleika í leikskólastarfinu og auknum sveigjanleika gagnvart foreldrum.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingar á reglum um starfsemi leikskóla.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins
Breytingar á samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins lagðar fram til fyrri umræðu.Helstu breytingar á samþykktum sveitarfélagsins varða 14. gr. um rafræna fjarfundi og 48. gr. þar sem fjölmenningaráð er fest í sessi í samþykktunum en ráðið hefur þegar tekið til starfa.Forseti bar breytingu á samþykktum sveitarfélagsins upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum og vísað til annarrar umræðu í bæjarstjórn.
9.
Breyting á aðalskipulagi - Hagaleira
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá breytingu á aðalskipulagi þar sem íbúðarbyggð á Leirusvæði ÍB1 stækkar til suðvesturs og opið svæði OP2 minnkar að sama skapi. Markmið breytingarinnar er að skapa rými í íbúðarbyggðinni fyrir nýja raðhúsalóð neðan við Fiskhól.Lagði til að bæjarstjórn samþykki breytinguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 30. og 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Breyting á deiliskipulagi Leirur á Höfn í Hornafirði - raðhús
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá breytingu á deiliskipulagi þar sem bætt er við einni raðhúsalóð við Hagaleiru fyrir 6 íbúðir. Markmið með breytingunni er að koma til móts við eftirspurn eftir íbúðahúsnæði á Höfn.Samhliða tekur afmörkun deiliskipulags Tjaldsvæðis á Höfn breytingum og einnig afmörkun íbúðasvæðis ÍB1 í aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030.Lagði til að bæjarstjórn samþykki að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulögunum Tjaldsvæði og Leirusvæði skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Ósk um breytingu á deiliskipulagi Hafnarbraut 4-6
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá tillögu að breytingu á deiliskipulaginu Hafnarvík - Heppa. Byggingarreitir lóða við Hafnarbraut 4 og 6 stækka og verða samtengdir. Heimild verður fyrir þriggja hæða byggingu og kjallara á lóð nr. 6 og allt að tveggja hæða viðbyggingu og kjallara á hluta lóðar nr. 4. Gert er ráð fyrir um 20 bílastæðum í kjallara.Lagði til að bæjarstjórn samþykki að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi og vísi henni í ferli skv. 40 og 41. gr. skipulagslaga.
Forseti lagði tillöguna til samþykktar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Deiliskipulag Skaftafell III og IV
Björgvin Ó. Sigurjónsson greindi frá að markmið með deiliskipulaginu Skaftafell III og IV er að sníða ramma utan um byggð lítilla húsa á jörðinni Skaftafell III og staðsetja grunninnviði. Deiliskipulagstillagan var í auglýsingu frá 19. nóvember 2021 til 3. janúar 2022. Umsagnir bárust frá Vatnajökulsþjóðgarði, Veðurstofu Íslands, Minjastofnun, Vegagerðinni, HAUST og Árna Benediktssyni.Samráðsfundur vegna tillögunnar með Vegagerðinni og Vatnajökulsþjóðgarði var haldinn þann 15. febrúar 2022.Gerðar hafa verið eftirfarandi breytingar á tillögunni frá auglýsingu:* Texta um gróður á deiliskipulagssvæðinu hefur verið breytt lítillega.* Bætt hefur verið inn texta um útilýsingu á deiliskipulagssvæðinu.* Texta um tengingu við þjónustuhlað Vatnajökulsþjóðgarðs í Skaftafelli með göngustíg og göngubrú hefur verið breytt.* Göngustígur og brú/-brýr hefur verið afmáð af uppdráttum.* Texti um mögulega tengingu við vatnsveitur Vatnajökulsþjóðgarðs í Skaftafelli hefur verið fjarlægður.* Það sem áður var kallað „veghelgunarsvæði“ á deiliskipulagssvæði á uppdráttum er nú „vegsvæði“.* Bætt hefur verið inn skýringu í texta að lega rafstrengs sem sýnd er að deiliskipulagssvæðinu sé leiðbeinandi.Lagði til að bæjarstjórn samþykki nýtt deiliskipulag með þeim breytingum sem gerðar hafa verið til að bregðast við innkomnum umsögnum og vísi því í lögformlegt ferli skv. 42. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Ósk um stækkun lóðar Vesturbraut 6
Umsókn Mikaels ehf. um stækkun lóðar að Vesturbraut 6 lögð fram.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki stækkun á lóð að Vesturbraut 6 samkvæmt fyrirliggjandi teikningum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Byggingarleyfisumsókn - Hagaleira 12, einbýlishús
Umsókn Jóhannesar Hjalta Danner um heimild til þess að hafa þakskyggni á SA horni húss við Hagaleiru 12 óverulega út fyrir byggingarreit.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að heimilt verði að hafa þakskyggni óverulega út fyrir byggingarreit skv. framlögðum teikningum án breytinga á deiliskipulagi skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga enda um óverulegt frávik að ræða sem skerði ekki hagsmuni nágranna varðandi landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Umsókn um lóð - Víkurbraut 34
Umsókn Jóns Malmquist Guðmundssonar um lóð að Víkurbraut 34.
Forseti bar lóðarumsóknina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Umsókn um lóð - Júllatún 8
Umsókn Humarhafnarinnar ehf. um lóð að Júllatún 8.
Forseti bar lóðarumsóknina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Umsókn um lóð að Júllatúni 10
Umsókn Humarhafnarinnar ehf. um lóð að Júllatúni 10.
Forseti bar lóðarumsóknina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri greindi frá störfum sínum sl. mánuð.