Bæjarstjórn Hornafjarðar
297. fundur
19. maí 2022
kl.
16:00
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
1. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson
Forseti
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
2. varaforseti
Stefanía Anna Sigurjónsdóttir
1. varamaður
Sæmundur Helgason
aðalmaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1034
Sæmundur tók til máls undir 2. lið Sveitarstjórnarkosningar 2022.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1035
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1036
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1037
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 1. lið, íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1038
Matthildur Ásmundardóttir tók til máls undir 4 og 5. lið, húsnæðismál Vatnajökulsþjóðgarðs - ósk um samstarf.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1039
Páll Róbert Matthíasson tók til máls undir 12. lið, útboð byggingar hjúkrunarheimilis til andsvars Matthildur Ásmundardóttir.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1040
Björgvin Sigurjónsson tók til máls undir l. lið fundargerð fræðslu- og frístundanefndar 5. lið, lokaskýrsla vegna úttektar fyrir innleiðingu farsældarlaganna.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 296
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
9.
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2021
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2021 lagður fram til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Matthildur Ásmundardóttir lagði fram ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2021. Engar breytingar hafa verið gerðar á ársreikningi frá fyrri umræðu í bæjarstjórn. Matthildur lagði til að bæjarstjórn samþykki ársreikning fyrir árið 2021. Forseti bar tillöguna upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Viðaukar fjárhagsáætlunar 2022
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2022.Viðaukanum verður mætt með lækkun á handbæru fé.
Forseti bar viðauka 1 upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Breyting á reglugerð nr.12122015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga.
Skv. reglugerð nr. 230/2021 ber sveitarfélögum að færa byggðasamlög, sameignarfélög, sameignarfyrirtæki með ótakmarkaðri ábyrgð sveitarfélagsins í samantekin reikningsskil sín m.v. hlutfallslega ábyrgð sveitarfélagsins. Gildir þetta um einstaka liði rekstrar og efnahags óháð stærð eignarhlutarins. Tvö samstarfsverkefni sem sveitarfélagið er aðili að falla undir ákvæði reglugerðarinnar, þ.e. SASS og HAUST.Fjármálastjóri og endurskoðendur hafa lagt mat á áhrif samstarfsverkefna á reikningsskil sveitarfélagsins og er niðurstaðan sú að um óveruleg áhrif er að ræða eins og meðfylgjandi skjal sýnir og leggja til að verkefnin verði ekki tekin inn í áætlun og ársreikning sveitarfélagsins. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi breytingar sem fjármálastjóri og endurskoðandi sveitarfélagsins leggja til.
Bæjarstjórn samþykkir mat fjármálastjóra og endurskoðanda með sjö atkvæðum.
12.
Breyting á aðalskipulagi - Leiðarhöfði
Björgvin Sigurjónsson greindi frá að umhverfis- og skipulagsnefnd lagði til að hefja vinnu að breytingum á aðalskipulagi fyrir Leiðarhöfða í samræmi við hönnunarsamkeppni sem var kynnt við hátíðlega athöfn í apríl. Lagði til að bæjarstjórn samþykki að hefja vinnu að aðalskipulagi fyrir Leiðarhöfða.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Deiliskipulag - Leiðarhöfði
Björgvin Sigurjónsson greindi frá að umhverfis- og skipulagsnefnd lagði til að hefja vinnu að gerð deiliskipulags fyrir Leiðarhöfða. Lagði til að bæjarstjórn samþykki að vinna að deiliskipulagi fyrir Leiðarhöfða.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir þessum lið.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Aðalskipulag - Seljavellir 2 lóð
Björgvin Sigurjónsson greindi frá að Reynir Ásgeirsson óskar eftir því að hefja skipulagsferli á landi sem stendur milli afleggjara Dýhóls og Hóla. Landspildan er hluti af Seljavöllum 2, L1595514 og liggur samsíða þjóðvegi 1. Spildan mælist um 6,8 ha að stærð en skipulagssvæðið er áætlað 1,4 ha. Fyrirhugaðar tillögur miða að skipulagningu smáhýsabyggðar tengda ferðaþjónustu, en samhliða megi skapa umgjörð um íbúðarhúsnæði fyrir starfsfólk á svæðinu í kring. Framkvæmd væri m.a. liður í því að stuðla að auknu framboði búsetukosta í sveitarfélaginu. Áætlað er að koma fyrir 20 smáhýsum (heilsárshúsum) að stærð 50-60 m2 innan svæðisins. Hluti húsanna er áætlaður í langtímaleigu sem íbúðarhúsnæði.Lagði til að bæjarstjórn samþykki að heimiluð verði vinna að breytingu á aðalskipulagi.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Deiliskipulag - Seljavellir 2
Björgvin Sigurjónsson greindi frá að umhverfis- og skipulagsnefnd lagði til að hefja vinnu við gerð deiliskipulags fyrir Seljavelli 2.Lagði til að bæjarstjórn samþykki að vinna að deiliskipulagi fyrir Seljavelli 2.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Deiliskipulagsbreyting - Stafafellsfjöll lóð 8
Björgvin Sigurjónsson greindi frá að Borgþór Freysteinsson óskar eftir breytingu á deiliskipulagi frístundasvæðis í Stafafellsfjöllum í Lóni. Breytingin nær til lóðar nr. 8 í Stafafellsfjöllum. Lóðin er eignarlóð og á því er nú þegar sumarhús, 22,3 m2 sem byggt var árið 1976.Breytingin felur í sér breytingar á skilmálum í greinargerð deiliskipulagsins. Um er að ræða niðurfellingu viðmiðunarskilmála um mænisstefnu í 2.2. gr. sem segir að „miðað er við að stefna aðalmænis fylgi sem mest meginstefnu í landinu og verði að jafnaði samsíða hlíðum“. Breytingin fellur einnig í sér niðurfellingu skilmála um stærð aukahúss í sömu grein sem segir að aukahús/gestahús getur ekki verið „stærra en helmingur af stærð aðalhúss“. Með fyrirhugaðri framkvæmd mun mænisstefna húss ekki fylgja sem mest meginstefnu í landinu, og stærð aukahúss verður stærra en helmingur af stærð aðalhúss.Ósk um frávik frá kröfum deiliskipulags hefur áður verið grenndarkynnt fyrir landeigendum og skiluðu þá þrír landeigendur umsögnum. Grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar var send á 13 aðila auk sumarhúsafélagsins á svæðinu. Þrír aðilar skiluðu inn umsögnum.Lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna og óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeirri breytingu að gert skuli ráð fyrir gróðursvæði milli húsanna á lóðum nr. 7 og 8 í þeim tilgangi að takmarka innsýn á milli húsanna og að bæjarstjórn geri svör umhverfis- og skipulagsnefndar að sínum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum, Róbert Mattthíasson sat hjá.
Samþykkt með sex atkvæðum, Róbert Mattthíasson sat hjá.
17.
Deiliskipulagsbreyting - Víkurbraut 9, Miðsvæði Hafnar reitur A
Björgvin Sigurjónsson greindi frá að Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir óverulegri breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar Hafnar, reit A milli Víkurbrautar og Tjarnarbrúar vegna fyrirhugaðar framkvæmdar við líkamsræktarstöð. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkti að unnin verði óveruleg breyting á deiliskipulagi og grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga á fundi sínum þann 04.04.2022.Grenndarkynning hefur farið fram skv. 3. mgr. 44.gr. skipulagslaga. Lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna og óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir þessum lið.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með fimm atkvæðum, Páll Róbert Matthíasson og Stefanía Anna Sigurjónsdóttir greiddu atkvæði á móti.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með fimm atkvæðum, Páll Róbert Matthíasson og Stefanía Anna Sigurjónsdóttir greiddu atkvæði á móti.
18.
Fyrirspurn til skipulagsnefndar - Borgartún 3 og 5, breyting á deiliskipulagi
Björgvin Sigurjónsson greindi frá óverulegri breytingu á deiliskipulagi við Borgartún í Öræfum sem var grenndarkynnt með athugasemdarfresti til 4. apríl sl. skv. 3. mgr. 44.gr. skipulagslaga. Breyting er gerð við Hof í Öræfum þar sem heimilt verður að byggja allt að 385 m2 raðhús á lóðum 3 og 5 við Borgartún. Aðkoma að lóðum breytist og verður norðanmegin við húsin við lóðamörk. Athugasemdir bárust frá þremur aðilum sem leggjast gegn breytingunni.Lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og geri svör umhverfis- og skipulagsnefndar að sínum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Fyrirspurn til skipulagsnefndar - Mikligarður og Verðandi - breytingar á húsum
Björgvin Sigurjónsson greindi frá að breytingar á Miklagarði og Verðanda voru grenndarkynntar með athugasemdarfresti frá 15. mars til 17. apríl sl.Gert er ráð fyrir að byggja við og endurnýja Miklagarð við Krosseyjarveg 5 - 7, fyrirhugaðar breytingar gera ráð fyrir að heimilt verði að lækka landið framan við kjallara Miklagarðs að lóðarmörkum, að byggja nýtt hús í stað rústanna af Verðanda við Heppuveg 2B, og gera aðkomutorg fyrir Miklagarð og Heppuna á þeim hluta lóðarinnar sem svokallað Graðaloft stóð á.Ein athugasemd barst og ein ábending um villu í texta.Grenndarkynning hefur farið fram skv. 3. mgr. 44.gr. skipulagslaga. Lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, samþykki grenndarkynninguna og að bæjarstjórn geri svör umhverfis- og skipulagsnefndar að sínum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Samningur um tímabundið lóðarvilyrði - Ósland C, D, E, F, G, H (Sandeyri 2 til 6)
Matthildur Ásmundardóttir gerði grein fyrir að Sveitarfélagið Hornafjörður og Marina Travel ehf. gerðu með sér samning um lóðarvilyrði 14. júlí 2021 í tengslum við uppbygging á hóteli í útbæ Óslandi. Í samningnum fólst skuldbinding fyrir úthlutun lóða D, E, F, C, G og H skv. deiliskipulagi. Áform eru um að reisa hótel og heilsulind á lóðunum sem mun styrkja ímynd sveitarfélagsins og umgjörð miðbæjarins ásamt því að auka enn frekar fjölbreytileika ferðaþjónustunnar og styrkja atvinnuuppbyggingu í þéttbýlinu. Nú hefur félagið lagt fram staðfestingu á fjármögnun á verkefninu og því eru forsendur fyrir formlegri úthlutun uppfylltar. Bæjarráð er jákvætt fyrir úthlutuninni. Lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarvilyrðið.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
21.
Landeignaskrá - Hnappavellir 2 - stofnun landeigna, landskipti
Erindi frá Sigurði Gunnarssyni þar sem óskað er eftir landskiptum á jörðinni Hnappavellir 2 landnr. L160165 lóð Hnappavellir 2A L233709 verði skipt út úr landi Hnappavalla 2 skv. uppdrætti.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki landskiptin.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
22.
Umsókn um byggingarheimild - Stekkatún, viðbygging
Umsókn Ragnars Frank Kristjánssonar um byggingarheimild fyrir viðbyggingu við frístundahús að Stekkatúni í Öræfum samkvæmt framlögðum teikningum. Um er ræða lengingu á húsinu í suðurátt. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði. Grenndarkynning hefur farið fram skv. 3. mgr. 44.gr. skipulagslaga engar athugasemdir bárust Forseti lagði til að heimilt verði að veita byggingarheimild án deiliskipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44.gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
23.
Byggingarleyfisumsókn - Bugðuleira 9 Álaleira 11, tvö raðhús
Björgvin Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið. Forseti greindi frá umsókn Mikael ehf. eftir frávik frá deiliskipulagi til að heimila raðhús 4,66 m að hæð. Í gildi er deiliskipulag frá 1993 ásamt breytingu á því frá 2016, sem gera ráð fyrir tvö fjölbýlishús á tveimur hæðum allt að 7,6 m há. Unnin hefur verið breyting á þessu deiliskipulagi til að heimila tvö eins hæða raðhús á lóðinni. Breytingin var send til Skipulagsstofnunar en afgreiðsla hennar hefur dregist. Ný breyting gerir ráð fyrir því að hús verða allt að 4,5 m há.Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir athugasemdir við að framkvæmdir hafi verið hafnar áður en leyfi hafi verið veitt og að aðgerðir lóðarhafa leiddu til þess að byggingarfulltrúi þurfti að stöðva framkvæmdir.Forseti lagði til að bæjarstjórn heimili að byggja 4,66 m. há raðhús skv. framlögðum teikningum og að vikið sé frá kröfum um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu, þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn, sbr. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sex atkvæðum.
24.
Umsókn um byggingarheimild - Lambhagi, viðbygging
Umsókn Írisar Ragnarsdóttur Pedersen og Árna Stefáns Haldorsen um byggingarheimild fyrir viðbyggingu við íbúðarhús að Lambhaga í Öræfum samkvæmt framlögðum teikningum. Fyrirhugað er að hafa þvottahús, baðherbergi og bílageymslu í viðbyggingunni. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði.Grenndarkynning hefur þegar farið fram skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Engar athugasemdir bárust.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að heimilt verði að gefa út leyfi án deiliskipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
25.
Byggingarleyfisumsókn - Hafnarbraut 1, breyting á skráða notkun
Gistiheimilið Dyngja ehf. óskar eftir breytingu á notkun húss að Hafnarbraut 1 samkvæmt framlögðum teikningum. Húsið var reist sem íbúðarhús en notað sem gistiheimili á síðastliðnum árum. Lóðin er á miðsvæði M 1 samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins, en ekki er til staðar gildandi deiliskipulag.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki útgáfu byggingarleyfis fyrir breytingu á notkun húss að Hafnarbraut 1 án deiliskipulagsgerðar, sbr. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga og að fallið verði frá grenndarkynningu enda varðar breytingin ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
26.
Umsókn um byggingarheimild - Hálsasker 2, tvö gestahús
Umsókn Odds Ara Sigurðssonar og Katerina Sardicka um byggingarheimild fyrir tvö gestahús á Hálsaskeri 2 í Öræfum. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið. Skv. aðalskipulagi er svæðið á skógræktar- og landgræðslusvæði/landbúnaðarsvæði. Grenndarkynning hafi þegar farið fram sbr. 2. og 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að heimilað verði að byggja tvö gestahús í samræmi við framlagðar teikningar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga án skipulagsgerðar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
27.
Byggingarleyfisumsókn Júllatún 21 - einbýlishús
Björgvin Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið. Árdís Erna Halldórsdóttir skilaði inn nýjum teikningum af húsi á lóð nr. 21 við Júllatún. Fyrirhugað er að hafa flatt þak á húsinu, en í skilmálum deiliskipulagsins fyrir svæði segir að "mænisstefna er frjáls en gæta skal samræmis við nálægar byggingar". Ákvæði skipulagsins má túlka á þann hátt að gerð sé krafa um mænisþak. Með flötu þaki er gert ráð fyrir því að hæð hússins verður langt undir heimildum skipulagsins. Óskað er að heimilt verður að víkja frá ofangreindum skilmálum skipulagsins um mænisstefnu á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.Forseti lagði til að bæjarstjórn heimili að vikið sé frá kröfum um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu, þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn, sbr. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sex atkvæðum.
28.
Umsókn um lóð Júllatún 21
Bæjaráð samþykkir að veita leyfi fyrir frest á framkvæmdum, málinu vísað til bæjarstjórnar þar sem beiðni um breytingu á skipulagi er til afgreiðslu. Verði áform lóðarhafa samþykkt skulu framkvæmdir hefjast innan tveggja mánaða.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita frest á framkvæmdum í tvo mánuði.
Samþykkt með sex atkvæðum.
29.
Ósk um stækkun lóðar Vesturbraut 6
Mikael ehf. sækir um enn frekari stækkun lóðar við Vesturbraut 6 skv. meðfylgjandi teikningu. Um er að ræða 4,6 m stækkun m.v. það sem áður var búið að samþykkja og þannig verður hægt að bæta einni íbúð við húsið.Forseti til að bæjarstjórn samþykkir stækkun lóðarinnar í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga, enda er tillagan í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir umsækjanda á að óska þarf eftir breytingu á aðalskipulagi til þess að heimilt sé að hafa fasta búsetu á lóðinni. Lóðin er skilgreind á svæði sem er VÞ3 í aðalskipulagi, gisting, allt að 40 gistirými, eldsneytissala og tilheyrandi þjónusta og verslun.
Samþykkt með sex atkvæðum.
30.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 13 og 15
Björgvin Sigurjónsson kom inn á fundinn. Umsókn Sláturfélags Austur-Skaftafellssýslu um lóðir að Álaugarvegi 13 og 15.Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni.Forseti bar lóðarúthlutunina til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
31.
Umsókn um lóð - Hraunhóll 3
Umsókn Þórólfs Einarssonar um lóð að Hraunhól 3.Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni.Forseti bar lóðarúthlutunina til atkvæða
Samþykkt með sjö atkvæðum.
32.
Umsókn um lóð - Álaleira 15
Umsókn Ewu Ursulu Jarzyna um lóð að Álaleiru 15.Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni.Forseti bar lóðarúthlutunina til atkvæða
Samþykkt með sjö atkvæðum.
33.
Skýrsla bæjarstjóra
Bæjarstjóri greindi frá störfum sínum á kjörtímabilinu.