Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

299. fundur
17. ágúst 2022 kl. 16:00 - 17:25
í Svavarssafni
Nefndarmenn
Gauti Árnason aðalmaður
Björgvin Hlíðar Erlendsson 1. varamaður
Skúli Ingólfsson aðalmaður
Eyrún Fríða Árnadóttir aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson 1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Sigurjón Andrésson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1042
Málsnúmer 2206004F
Guðrún Stefanía Ingólfsdóttir tók til máls undir 4. lið fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 1. liðu deiliskipulag Víkurbraut 1.
Gunnar Ásgeirsson tók til máls undir 3. lið ráðning bæjarstjóra 2022-2026 og lagði til að bæjarstjórn gerði bókun bæjarráðs að sinni.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Bæjarstjórn bókar eftirfarandi.
"Bæjarráð býður Sigurjón og fjölskyldu velkomin til Sveitarfélagsins Hornafjarðar og óskar Sigurjóni velfarnaðar í nýju starfi."
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 8. lið. Húsnæðismál Vatnajökulsþjóðgarðs ósk um samstarf, til andsvars Sigurjón Andrésson
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1043
Málsnúmer 2206010F
Ásgerður tók til máls undir 8. lið framkvæmd Hafnarbraut hellulagnir til andsvars Sigurjón Andrésson
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1044
Málsnúmer 2207002F
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir lið nr. 1 Hafnarstjórn undir 3. lið Dýpkun á Grynnslum 2022, 10. lið kjörstaðir í sveitarfélaginu og 11. lið Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ. Til andsvars Sigurjón Andrésson.
Gunnar Ásgeirsson tók til máls undir 8. lið Íþróttahús, hönnun á nýju íþróttahúsi á Höfn, til andsvars Eyrún Fríða Árnadóttir. Ásgerður K. Gylfadóttir tók einnig til máls undir sama lið til andsvars Eyrún Fríða Árnadóttir.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1045
Málsnúmer 2207003F
Guðrún Stefanía tók til máls undir 6. lið, útboð byggingar hjúkrunarheimilis. Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 3. lið sorphirða og urðun tilboð haust 2022, 6. lið, Útboð byggingar hjúkrunarheimilis og 17. lið ráðhús aðgengi utanhúss. Til andsvars Sigurjón Andrésson.
Forseti bar fundargerðia upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1046
Málsnúmer 2208002F
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 2. lið skipulag íbúðarsvæðis.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 298
Málsnúmer 2205013F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
7.
Siðareglur kjörinna fulltrúa 2022
Málsnúmer 202208029
Forseti gerði grein fyrir siðareglum og sagði þær þurfa staðfestingu bæjarstjórnar í upphafi hvers kjörtímabils, ekki sé þörf á breytingum að þessu sinni. Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls og lagði til að siðareglurnar verði teknar upp til endurskoðunar í nefndum og bæjarráði. Til andsvars Eyrún Fríða Árnadóttir.
Forseti bar tillögu Ásgerðuar upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Ósk um breytingu á deiliskipulagi Hafnarbraut 4-6
Málsnúmer 202111114
Skúli Ingólfsson og Gunnar Ásgeirsson viku af fundi undir þessum lið. Breyting á deiliskipulagi Hafnarvík Heppu var auglýst frá og með 17. mars til 17. maí 2022. Byggingarreitir lóða við Hafnarbraut 4 og 6 stækka og verða samtengdir. Heimild verður fyrir allt að þriggja hæða byggingu og kjallara. Athugasemdir bárust frá nágrönnum lóðanna og hefur verið brugðist við þeim.Innkeyrsla milli lóða 6 og 8/10 verði breikkuð úr 4,9m eins og hún er nú í 6m án þess að byggingarreit verði breytt í samræmi við athugasemdir eigenda að Hafnarbraut 8. Viðbygging á bak við gamla kaupfélagshúsið verði að hámarki 2 hæðir og nái ekki upp fyrir mæni á Hafnarbraut 4. Tilgangurinn er að taka tillit til umsagnar um að skipulagið taki mið af heildstæðu yfirbragði byggðar, samræmis í hæð og umfangi húsa og fínlegum mælikvarða byggðamynsturs og athugasemd um að þriggja hæða viðbygging á þessum stað sé til þess fallin að rýra byggingarlist gamla KASK hússins og raska stöðu þess í bæjarmynd Hafnar. Á sama tíma er komið til móts við athugasemdir eigenda Hafnarbrautar 3 um skerðingu á útsýni til fjalla. Að auki var lagt til að lóðamörkum austan megin yrði hnikað til þannig að malbikaður göngustígur verði í landi bæjarins og það komi því ekki í hlut lóðarhafa að viðhalda honum lóð nr. 6 og allt að tveggja hæða viðbyggingu og kjallara á hluta á lóð nr. 4. Gert er ráð fyrir um 20 bílastæðum í kjallara. Lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingar á auglýstri tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hafnarvík - Heppu og að bæjarstjórn geri svör umhverfis- og skipulagsnefndar að sínum og vísi því í lögformlegt ferli skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
10.
Deiliskipulag austan Víkurbrautar, svæði S3- breyting Leikskóli
Málsnúmer 202208016
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi þar sem áætlað er að stækka núverandi leikskóla og koma fyrir tímabundnu húsnæði á lóðinni fyrir tvær leikskóladeildir.Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagsbreytinguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 40. og 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Byggingarleyfisumsókn - Bugðuleira 9 Álaleira 11, tvö raðhús
Málsnúmer 202111031
Mikael ehf. óskar eftir að heimilað verði frávik frá deiliskipulagi á Leirunni, að heimilað verði að byggja raðhús sem verði 4,66 m að hæð. Í gildi er deiliskipulag frá 1993 ásamt breytingum á því frá 2016 og 2022, sem gera ráð fyrir allt að 4,5m hátt raðhús.Lagði til að bæjarstjórn heimili að byggt verði 4,7 m. hátt raðhús skv. framlögðum teikningum og að vikið sé frá kröfum um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu, þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn, sbr. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Umsókn um byggingarheimild - Sandbakki 11, óupphituð sólstofa
Málsnúmer 202207044
Frestað.
13.
Umsókn um byggingarheimild - Miðtún 12 (Draumaland), stækkun og endurnýjun
Málsnúmer 202112071
Skrýmir Árnason og Halldóra Jónsdóttir sækja um leyfi til að breyta íbúðarhúsi á Miðtún 12. Um er að ræða niðurrif viðbyggingar suðvestan við húsið, stækkun austan megin, hækkun þaks, og nýbyggingu fyrir geymslu og vinnustofu samkvæmt framlögðum teikningum. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði. Framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag. Grenndarkynning fór fram frá 24. maí til 24. júní 2022. Engar athugasemdir bárust.Lagði til að bæjarstjórn samþykki að heimila framkvæmdir á lóðinni skv. framlögðum teikningum án deiliskipulagsgerðar enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Framkvæmdaleyfi - Göngubrýr yfir Svínafellsá og Skaftafellsá í Öræfum
Málsnúmer 202208015
Óskað er eftir framkvæmdaleyfi við gerðar göngubrúar yfir Svínafellsá og Skaftafellsá í Öræfum samkvæmt meðfylgjandi teikningum. Framkvæmdinni skal vera lokið fyrir árslok 2022.Landið sem um ræðir er í einkaeigu, leyfi landeigenda er fyrir framkvæmdunum. Framkvæmdirnar eru unnar í samráði við hagaðila.Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag sveitarfélagsins.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Framkvæmdaleyfi - Göngubrú yfir Hólmsá á Mýrum
Málsnúmer 202208014
Óskað er eftir framkvæmdaleyfi við gerðar göngubrúar yfir Hólmsá á Mýrum samkvæmt meðfylgjandi teikningum. Framkvæmdinni skal vera lokið fyrir árslok 2022.Landið sem um ræðir er í einkaeigu og leyfi landeigenda er fyrir framkvæmdunum. Framkvæmdirnar eru unnar í samráði við hagaðila.Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag sveitarfélagsins.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Sauðanes 3, beiðni um umsögn vegna lögbýlis
Málsnúmer 202207043
Ósk um umsögn um stofnun lögbýlis. Fyrirhugað er að stofna lögbýli á landareign á L230376 sem búið er að hnitsetja og þinglýsa og gefa út afsal. Til stendur á næstu misserum að fara í uppbyggingu á jörðinni með búsetu og landbúnaðartengda starfsemi á jörðinni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki jákvæða umsögn um stofnun lögbýlis á Sauðanesi 3.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Umsókn um lóð - Dalbraut 2 a
Málsnúmer 202207063
Umsókn Útsparks ehf. um lóð að Dalbraut 2a lögð fram.Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Umsókn um lóð - Dalbraut 2b
Málsnúmer 202207062
Umsókn Útsparks ehf. um lóð að Dalbraut 2b lögð fram.Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Umsókn um lóð - Dalbraut 2c
Málsnúmer 202207061
Umsókn Útsparks ehf. um lóð að Dalbraut 2c lögð fram.Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina.
Samþykkt með sjö atkvæðum.