Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

300. fundur
14. september 2022 kl. 16:00 - 17:30
í Svavarssafni
Nefndarmenn
Gauti Árnason aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Skúli Ingólfsson aðalmaður
Elías Tjörvi Halldórsson 1. varamaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1047
Málsnúmer 2208006F
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tók til máls undir liðum 1. fjölmenning í Sveitarfélaginu Hornafirði og 6. áskorun frá bæjarstjórn Vestmannaeyja um heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni og lagði til að bæjarstjórn geri bókun bæjarstjórnar Vestmannaeyja að sinni.

"Bæjarstórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar tekur undir áskorun Bæjarstjórnar Vestmannaeyja og áréttar að jafnt aðgengi allra landsmanna að heilbrigðisþjónustu á að vera grundvallaratriði í samfélagsuppbyggingunni. Sú er hins vegar ekki raunin fyrir fólk á landsbyggðinni í dag. Heilsugæslan á landsbyggðinni er undirmönnuð og aðgengi íbúa að grunnheilbrigðisþjónustu er skert. Það þarf að búa þannig um hnútana að heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni geti mannað stöður heilbrigðisstarfsfólks þannig að þær geti veitt þá grunnheilbrigðisþjónustu sem þeim er ætlað. Þá liggur fyrir að flestar flóknar aðgerðir eru í dag einungis framkvæmanlegar á Landspítalanum. Það þarf að auka öryggi sjúklinga á landsbyggðinni með því að styrkja og breyta fyrirkomulagi sjúkraflugs m.a. með tilkomu sérhæfðrar sjúkraþyrlu og ákveða þarf staðsetningu flugvallar í Vatnsmýrinni til framtíðar. Þannig tryggjum við að allir landsmenn geti notið þjónustu Landspítalans með fullnægjandi hætti." Lagði til að eftirfarandi bókun verði bætt við.
“Einnig er nauðsynlegt að styðja sérstaklega við meðgöngu og sængurlegu þjónustu á landsbyggðinni. Það er mikilvægt að fæðingarþjónusta verði efld í þéttbýliskjörnum sem eru langt frá slíkri þjónustu. Í þeim tilfellum þarf barnshafandi fólk að ferðast langar vegalengdir, með tilheyrandi ferðakostnaði, streitu og óþægindum sem slíku ferðalagi fylgir, á viðkvæmum tíma í lífi fólks’’
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir liðum 1. fjölmenning í Sveitarfélaginu Hornafirðiog 6. áskorun frá bæjarstjórn Vestmannaeyja um heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni.
Forseti bar tillögu Guðrúnar Stefaníu upp til atkvæða.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1048
Málsnúmer 2208011F
Sigurjón Andrésson tók til máls undir 12. lið reglur um úthlutun lóða.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir lið nr. 3. fræðslu- og frístundanefnd 4. lið, ósk um endurskoðun á samningi við Sporthöllina og 4. lið framkvæmdir 2022. Til andsvars Sigurjón Andrésson. Til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1049
Málsnúmer 2208014F
Sigurjón Andrésson tók til máls undir 2. lið framkvæmdir 2022.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1050
Málsnúmer 2209005F
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tók til máls undir 6. lið ákall nemenda í Félagsráðgjöf.
Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls undir 6. lið ákall nemenda í Félagsráðgjöf.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 299
Málsnúmer 2208005F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Reglur um niðurgreiðslur til dagforeldra
Málsnúmer 202208064
Reglum um niðurgreiðslu til dagforeldra og reglum um daggæslu í heimahúsi er verið að skipta upp þar sem þær tilheyra sitt hvoru sviðinu. Reglur þessar tilheyra fræðslu- og frístundasviði.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki reglur um greiðslur til dagforeldra.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Reglur um daggæslu í heimahúsi
Málsnúmer 202012055
Reglum um niðurgreiðslu til dagforeldra og reglum um daggæslu í heimahúsi er verið að skipta upp þar sem þær tilheyra sitt hvoru sviðinu. Reglur þessar tilheyra velferðarsviði.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki reglur um daggæslu í heimahúsi.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Reglur um úthlutun lóða
Málsnúmer 202010156
Reglur um úthlutun lóða voru í endurskoðun hjá lögfræðingi sveitarfélagsins og byggingafulltrúa. Helstu breytingar eru á þriðju grein um lóðarumsóknir og afturköllun lóða.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls.
Forseti bar reglur um úthlutun lóða upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Samningur um rekstur umdæmisráðs barnaverndar á landsbyggðinni
Málsnúmer 202209039
Drög að samningi um sameiginlegt umdæmisráð barnaverndar á landsbyggðinni, ásamt viðaukum og erindisbréfi valnefndar. Öll sveitarfélög landsins skulu hafa skipað umdæmisráð fyrir 1. október n.k.Sveitarfélög er aðild eiga að umdæmisráði barnaverndar á landsbyggðinni, skipa fimm manna valnefnd er fer með umboð sveitarfélaganna til skipunar í umdæmisráð barnaverndar sbr. 14. gr. bvl. nr. 80/2002 og 2. gr. samnings um umdæmisráð barnaverndar á landsbyggðinni. Forseti bar samning um umdæmisráð barna á landsbyggðinni og erindisbréf fyrir valnefnd upp til samþykktar.
Sigurjón Andrésson kynnti málið, til andsvars Ágerður K. Gylfadóttir gerði athugasemd við feril málsins. Til andsvars Sigurjón Andrésson. Til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir.
Samþykkt með fimm atkvæðum, Ásgerður K. Gylfadóttir og Björgvin Óskar Sigurjónsson sátu hjá.
Samþykkt að Sveitarfélagið Hornafjörður verði aðili að sameiginlegu umdæmisráði barnaverndar á landsbyggðinni.
Bæjarstjóra falið að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.

10.
Breyting á deiliskipulagi - Deiliskipulag austan Víkurbrautar, svæði S3
Málsnúmer 202205075
Frumdrög af teikningum á húsi á lóð að Víkurbraut 34 lögð fram, óskað er eftir breytingum á skilmálum deiliskipulags til þess að auka byggingamagn úr 360 m² í 365 m². Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 22.06. sl (með umboði bæjarstjórnar) að víkja megi frá kröfum um breytingu á deiliskipulagi vegna aukningar á byggingamagni lóðar í 360m² og breytingu á notkun íbúða úr "þjónustuíbúðir aldraða" í "íbúðir aldraða".Lagði til að bæjarstjórn heimili að vikið sé frá kröfum um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu, þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Breyting á deiliskipulagi Hornafjarðarhöfn við Ósland
Málsnúmer 202104021
Tillaga að breyttu deiliskipulagi fyrir Hornafjarðarhöfn, Ósland lögð fram.Megin markmið með breytingunni er að tryggja skilvirka nýtingu og markvissa uppbyggingu á hafnarsvæðinu. Lagði til að bæjarstjórn samþykki tillögu að deiliskipulagsbreytingu og sendi skipulagstillöguna í kynningu skv. 41. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Umsókn um byggingarheimild - Sandbakki 11, óupphituð sólstofa
Málsnúmer 202207044
Björgvin Óskar vék af fundi undir þessum lið. Ósk um leyfi til að byggja 19 m² óupphitaða sólstofu við hús á Sandbakka 11. Lóðin er á svæði C3 skv. gildandi deiliskipulagi miðbæjar, en þar kemur fram að hámarksnýtingarhlutfall er 0,3. Með sólstofu mun nýtingarhlutfall vera 0,31. Ekki eru sýndir byggingarreitir á skipulagsuppdrætti. Grenndarkynning hefur farið fram, engar athugasemdir bárust. Lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna skv. 3. mgr. 44.gr. skipulagslaga og óverulega breytingu á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til samþykktar.
Samþykkt með sex atkvæðum.
13.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Hagatún 3, stækkun á bílastæði
Málsnúmer 202208034
Óskað eftir leyfi til stækkunar á bílastæði við hús að Hagatúni 3. Fyrirhugað er að setja malarstæði fyrir tvo bíla skv. framlögðum teikningum.Lagði til að bæjarstjórn heimili að bætt verði við bílastæðum á lóðinni í samræmi við framlögð gögn án þess að unnið sé deiliskipulag af svæðinu enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar skv. 3. mgr. 43 gr. skipulagslaga. Lagði einnig til að bæjarstjórn samþykki að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem sýnt þykir að framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en umsækjanda skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Tilkynning um framkvæmd - Vogabraut 4, PVC skjólþak yfir sólpall
Málsnúmer 202208045
Umsókn um leyfi til þess að byggja skjólþak úr PVC báruplasti yfir sólpall að Vogabraut 4. Sjö uppistöður eru steyptar niður í holur og er heildar-flatarmál 29 m2. Opið er í báða enda (austur/vestur) og að hluta til að framan (suður). Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið.Lagði til að bæjarstjórn samþykki byggingu á skjólþaki án deiliskipulagsgerðar þar sem framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar skv. 1. mgr. 44.gr. skipulagslaga. Lagði einnig til að bæjarstjórn samþykki að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda, skv. 3.mgr. 44.gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillögurnar upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Landeignaskrá - Miðsker, stofnun landeignar
Málsnúmer 202208083
Miðskersbúið ehf. óskar eftir að skipta jörðinni Miðsker. Fyrirhugað er að stofna nýja 0,85 ha. lóð sem verður Miðsker II Rofhóll. Ný landareign verður á landbúnarðasvæði.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki landskiptin enda samrýmist hún skipulagsáætlun, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Kosning í stjórn Náttúrustofu Suðausturlands
Málsnúmer 202208078
Forseti lagði til að eftirfarandi verði í stjórn Náttúrustofu Suðausturlands:
Sæunn Stefánsdóttir og Sigurjón Andrésson aðalmenn.
Hugrún Harpa Reynisdóttir og Sigurður Sigursveinsson varamenn.
Samþykkt með sjö atkvæðum.