Bæjarstjórn Hornafjarðar
301. fundur
25. október 2022
kl.
16:00
-
16:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason
aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Skúli Ingólfsson
aðalmaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
aðalmaður
Elías Tjörvi Halldórsson
1. varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1051
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1052
Elías Tjörvi Halldórsson tók til máls undir 3. lið, fyrirhugað sorpútboð 2022, til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1053
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1054
Skúli Ingólfsson tók til máls undir 1. lið fundargerð hafnarstjórnar, Grynnslin.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1055
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1056
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 6. lið, innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 300
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
8.
Viðaukar fjárhagsáætlunar 2022
Forseti lagði fram viðauka IV og greindi frá að viðbótarfjárheimildum verði mætt með lækkun á haldbæru fé.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki viðauka IV.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Lýðheilsuráð 2022-2023
Erindisbréf lýðheilsuráðs var endurskoðað af fræðslu- og frístundanefnd. Helstu breytingar eru að ráðið hefur heimild til að stofna starfshóp sem útfærir frekar þau mál sem ráðið vinnur að.
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls.
Forseti bar erindisbréf lýðheilsuráðs upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar erindisbréf lýðheilsuráðs upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Seljavellir 2 - Verslun og þjónusta, Breyting á aðalskipulagi
Lýsing vegna breytingar á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 vegna fyrirhugaðra áforma í landi Seljavalla 2 lögð fram.Markmið með aðalskipulagsbreytingunni er að styðja við frekari uppbyggingu ferðaþjónustu áSeljavöllum 2 og bjóða ferðamönnum uppá fjölbreyttari gistimöguleika á svæðinu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að skipulagslýsingin verði kynnt skv. 30.gr og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Hagaleira ÍB1, leiðrétting - Breyting á aðalskipulagi
Skúli Ingólfsson vék af fundi undir þessum lið.Breyting á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030. Leiðrétt er misræmi milli mældrar stærðar íbúabyggðarinnar ÍB1 Leirusvæði 1 og uppgefinnar stærðar í greinargerð. Auk þess sem heimilaður er aukinn þéttleiki byggðar á svæðinu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að gera óverulega breytingu á aðalskipulagi skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga þar sem tillagan hefur ekki verulegar breytingar á landnotkun í för með sér eða sé líkleg til að hafa mikil áhrif á einstaka aðila eða hafa áhrif á stór svæði.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Samþykkt með sex atkvæðum.
12.
Breyting á aðalskipulagi - VÞ45 Reynivellir
Ósk um óverulega breytingu á aðalskipulagi þar sem gistirýmum á reit VÞ45- Reynivellir II er fjölgað úr 100 í 150 og gestum fjölgar úr 200 í allt að 300.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á aðalskipulagi skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga þar sem tillagan hafi ekki verulegar breytingar á landnotkun í för með sér eða sé líkleg til að hafa mikil áhrif á einstaka aðila eða hafa áhrif á stór svæði.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Reynivellir II, aðkoma - Breyting á deiliskipulagi
Tillaga að breytingu deiliskipulags Reynivalla II vegna breyttrar aðkomu að byggingum.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagsbreytinginguna í samræmi við 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Fallið verður frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga þar sem hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Kyljuholt á Mýrum - Deiliskipulag
Erindi frá Verkfræðistofunni Eflu fyrir hönd eigenda jarðarinnar Kyljuholts á Mýrum þar sem óskað er eftir að hefja vinnu að deiliskipulagi á jörðinni. Deiliskipulagið mun ná yfir um 4 ha svæði sem nú er tún. Áformað er að byggja 300-400 m² raðhús/fjölbýlishús með 4-7 íbúðum og hver er um 40-80 m² að stærð, til sölu eða leigu. Hver íbúð skal hafa aðgang að stórri lóð og görðum sem hugsað er til matjurtaræktunar.Lagði til að bæjarstjórn samþykki að unnið verði deiliskipulag að Kyljuholti á Mýrum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Breyting á deiliskipulagi Leirur á Höfn í Hornafirði - raðhús
Skúli Ingólfsson vék af fundi undir þessum lið. Breyting á deiliskipulagi Leirur á Höfn og samhliða breytingu á deiliskipulagi tjaldsvæðisins og íbúðarsvæðis á Höfn. Breytinginarnar voru auglýstar með athugasemdarfresti frá 17. maí til 28. júní 2022. Ein athugasemd barst sem snéri m.a. að áhyggjum vegna aukinnar umferðar, raski, skerðingu á birtu og útsýni og áhyggjum af leigu/gistingu í nýju húsi. Minjastofnun skilaði inn umsögnum dags. 11. júlí 2022. Í umsögn um deiliskipulagsbreytingu íbúðarsvæðis á Leirum kemur fram að engar þekktar fornminjar séu innan svæðisins sem breytingin nær yfir en rétt utan við hin nýju skipulagsmörk eru ummerki um minjar sem taka þarf tillit til við framkvæmdir. Bæjarstjórn samþykkti tillögu að breytingu á deiliskipulagi Leirur á Höfn og tjaldsvæðisins og íbúðarsvæðis á Höfn skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga á fundi sínum 17. ágúst 2022 en leggur það hér með fram aftur samhliða aðalskipulagsbreytingu.Lagði til að bæjarstjórn samþykki tillögu að breytingu á deiliskipulagi Leirur á Höfn og tjaldsvæðisins og íbúðarsvæðis á Höfn skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og geri svör umhverfis- og skipulagsnefndar að sínum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Samþykkt með sex atkvæðum.
16.
Útbær Höfn - Breyting á deiliskipulagi
Breyting á deiliskipulagi fyrir um 13.000 m2 hótel í Útbæ. Breytingin felur í sér að lóðir C, G, H, D, E og F eru sameinaðar í eina lóð, lóð C-F. Byggingarmagn eykst um 4.831 m2 og hámarkshæð hækkar úr 9,5 m í 12 m. Byggðin hækkar úr 2 hæðum í 3 hæðir að hluta og bundin byggingarlína við Óslandsveg fellur niður. Settir eru nýir sérskilmálar fyrir lóð C-F en einnig eru gerðar breytingar á skilmálum í gildandi deiliskipulagi dags. 12.02.2016 og breytingu á deiliskipulagi dags. 27.07.2018 fyrir lóðir D, E og F.Tillagan var auglýst frá 12. ágúst til 23. september 2022. Tvær athugasemdir og tvær umsagnir bárust.Lagði til að bæjarstjórn samþykki tillögu að breyttu á deiliskipulagi Útbæ á Höfn og geri svör umhverfis- og skipulagsnefndar að sínum skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Deiliskipulag Háhóll - Dilksnes
Forseti bæjarstjórnar Gauti Árnason vék af fundi undir þessum lið, Björgvin Sigurjónsson varaforseti tók við fundarstjórn. Deiliskipulagið er tekið fyrir til endurauglýsingar en skipulagið var áður auglýst frá 29. ágúst til 14. október 2019. Gert er ráð fyrir byggingu íbúðarhúsa, bygginga fyrir landbúnaðarstarfsemi, atvinnustarfsemi og húsnæðis fyrir ferðaþjónustu. Allt byggingar sem styrkja núverandi búsetu, búrekstur og atvinnustarfsemi á jörðunum.Lagði til að bæjarstjórn samþykki að deiliskipulagstillagan verði auglýst skv. 41. gr. skiplagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Samþykkt með sex atkvæðum.
18.
Deiliskipulag Skjólshólar
Deiliskipulagstillaga að Skjólshólum lögð fram. Deiliskipulagið nær yfir um 1 ha en fyrirhugað er að útbúa aðstöðu fyrir ferðafólk og koma upp allt að sjö litlum gistihúsum til útleigu. Deiliskipulagstillagan fór áður í auglýsingaferli árið 2017. Skipulagstillagan var ekki kláruð og er því hér með tekið fyrir á ný.Lagði til að bæjarstjórn samþykki að deiliskipulagstillagan verði auglýst skv 41. gr. skiplagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Deiliskipulag Hafnarnes
Deiliskipulagstillaga að Hafnarnesi. Deiliskipulagið nær yfir 3.665 m² lóð í Hafnarnesi Nesjum. Skipulagið tekur til uppbyggingar ferðaþjónustu, veitingareksturs, gistiaðstöðu, þvottahúss, verslun, minni gistihús, íbúðarhúsa, aðstöðuhús og starfsmannaaðstöðu. Deiliskipulagstillagan fór áður í auglýsingaferli árið 2020, skipulagsferlið var ekki klárað og er því hér með tekið fyrir á ný.Lagði til að deiliskipulagstillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Hafnarbraut 16
Skinney-Þinganes óskar eftir að vinna aðaluppdrætti fyrir Hafnarbraut 16 með þeim breytingum á útliti og umfangi hússins sem framlagðar teikningar sýna. Reiknað er með að eldri hluti hússins verði að stærstum hluta endurbyggður í núverandi mynd en viðbygging fái nýtt útlit. Innra fyrirkomulagi verði breytt talsvert. Innréttaðar verða 6 íbúðir. Reiknað er með að koma fyrir 6 bílastæðum á lóð. Grenndarkynning fór fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 5. ágúst til 5. september 2022. Engar athugasemdir bárust.Lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdir á lóðinni skv. framlögðum teikningum án deiliskipulagsgerðar enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
21.
Umsókn um byggingarheimild - Skaftafell 3A , fjögur gestahús
Skaftafell ehf. óskar eftir fráviki frá deiliskipulagi Skaftafells III og IV hvað varðar hámarkshæð útveggja. Í greinargerð deiliskipulagsins kemur fram að hámarkshæð útveggja er 4,5 m. og hámarksmænishæð er 6 m. mælt yfir gólfplötu. Óskað er eftir leyfi fyrir fráviki sem heimilar að vegghæð verði sama og heildarhæð byggingarinnar, þ.e. 6 metrar, þar sem fyrirhugað er að reisa hús með einhalla þaki.Lagði til að bæjarstjórn samþykki að vikið sé frá kröfum um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu, þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn, sbr. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
22.
Landeignaskrá - Svínafell 2 og 4 - Hálsasker 3, stofnun landeignar
Björgvin Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið.Ármann Karl Guðmundsson og Hólmfríður Guðlaugsdóttir óska eftir stofnun lóðar úr Svínafelli 2 og 4. Um er að ræða 1.500 m² lóð fyrir heilsárshús - Hálsasker 3. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið. Skv. aðalskipulagi er svæðið á skógræktar- og landgræðslusvæði/landbúnaðarsvæði.Lagði til að bæjarstjórn samþykki stofnun landeignar, enda samrýmist hún skipulagsáætlun, sbr. 6.gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Samþykkt með sex atkvæðum.
23.
Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna efnistöku
Óskað er eftir framkvæmdaleyfi vegna malarnáms í árfarvegi Grjótár og í skriðu í landi Setbergs. Efnismagnið sem verður unnið úr námunum er innan marka þeirra sem sett eru í aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Efnisnám hefst 2022. Ástand námunnar verður metið árlega á framkvæmdatímanum og um leið ákvörðun um áframhaldandi vinnslu og umfang endurmetið. Við lok framkvæmdatíma verður námunum lokað í samráði við landeigendur og yfirborð lagað að umhverfinu. Vegir og slóðar afmáðir og landinu skilað. Óskað eftir að taka efni á eftirfarandi hátt: E32 - Heimilt að taka allt að 10.000 m3. Unnið hefur verið lítillega úr námunni árum saman. Tekið úr árfarvegi og aurkeilum við Grjóta á þremur stöðum (Svæði 1 um 0,8 ha, svæði 2 um 0,6 ha og svæði 3 um 0,6 ha. Samtals um 2 ha) þar sem aðgengi er gott og mikilvægt er að losa úr efni ú ánni til að halda farveginum opnum og minnka hættu á að flæði yfir gróðursvæði. Um er að ræða ógrónar áreyrar og flóðasvæði og því engar líkur á að þar séu fornminjar. Sótt er um leyfi til að taka 1000-1400 m3 á ári í 6 ár eða samtals 8400 m3. E-33 heimilt að taka allt að 149.999 m3. Unnið hefur verið úr námunni í áraraðir. Gert er ráð fyrir að haldið sé áfram að taka úr námunni á sama hátt og verið hefur. Síðastliðin ár hefur tiltölulega lítið efni verið unnið úr námunni og því hefur efni sem fallið hefur niður skriðuna dreift sér talsvert og runnið yfir gróin svæði og tún með tilheyrandi tjóni á girðingum. Við vinnsluna verður reynt að forma námuna þannig að skriðan dreifi sér minna og að meira efni rati ofan í námusvæðið. Heildarstærð námusvæðis verður um 2 ha. Sótt er um heimild til að taka um 8.000 m3 á ári í 6 ár samtals 48.000 m3.Lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið þar sem fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag og í samræmi við landnotkun skv. 13. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
24.
Umsókn um byggingarheimild - Hlíðartún 7, bílskúr
Björgvin Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið. Karl Heimir Einarsson sækir um byggingaheimild fyrir 60 m² bílskúr á lóð Hlíðartún 7. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið, fyrirhuguð bygging var grenndarkynnt 6. september með athugasemdarfresti til 10. október 2022. Engin athugasemd barst.Lagði til að bæjarstjórn samþykki að heimila framkvæmdir á lóðinni skv. framlögðum teikningum án deiliskipulagsgerðar enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Samþykkt með sex atkvæðum.
25.
Fylling í Sílavík - Framkvæmdaleyfi
Erindi frá Sveitarfélaginu Hornafirði þar sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi til uppfyllingar í Sílavík á Höfn við tjaldsvæði.Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við aðalskipulag og deiliskipulag. Lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
26.
Breyting á námu í Hornafjarðarfljótum - E34
Vegagerðin óskar eftir leyfi til efnistöku norðan við skilgreinda afmörkun námu 5 (Hornafjarðarfljóti) í verkinu Hringvegur um Hornafjarðarfljót, eins og tilgreint er á meðfylgjandi teikningu. Í ljós kom við athugun að mun heppilegra, grófara, efni til vegagerðar er að finna á svæðinu eftir því sem norðar er farið og því óskað eftir því að fá að taka efni á þessu svæði. Stærð námunnar fyrir breytingu er um 7.207.000 m2, en viðbótarsvæðið sem óskað er eftir eru 226.310 m2. Um er að ræða breytingu á afmörkun námunnar vegna breytinga á árfarvegi frá upphaflegum áætlunum. Ekki er um að ræða aukið efnismagn.Hér er um að ræða minniháttar frávik frá deiliskipulagi og lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið og að heimilt verði að taka efni skv. framlögðum gögnum án breytingar á deiliskipulagi í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga enda munu hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn og að leyfi landeiganda liggi fyrir áður en framkvæmdir hefjast.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
27.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 12
Umsókn A. Jonsson ehf. og Iceguide ehf. um lóð að Álaugarvegi 12. Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Forseti bar lóðarúthlutunina til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
28.
Tilnefning í svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarðs
Matthildur Ásmundardóttir og Ásgerður Gylfadóttir hafa beðist lausnar úr Svæðsráði Suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs.
Lagði til að Sigurjón Andrésson bæjarstjóri verði aðalmaður í svæðisráði Suðursvæðis í stað Matthildar og Lars Jóhann Andrésson Imsland verði varamaður í stað Ásgerðar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
29.
Kosning í stjórn Náttúrustofu Suðausturlands
Hugrún Harpa Reynisdóttir hefur beðist lausnar sem varamaður í stjórn Náttúrustofu Suðausturlands.
Lagði til að Anna Ragnarsdóttir Petersen verði varamaður í stað Hugrúnar Hörpu.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.