Bæjarstjórn Hornafjarðar
302. fundur
9. nóvember 2022
kl.
16:00
-
16:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason
aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Skúli Ingólfsson
aðalmaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
aðalmaður
Elías Tjörvi Halldórsson
1. varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1057
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1058
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 301
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
4.
Fjárhagsáætlun 2023-2026
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fjárhagsáætlun ársins 2023 og þriggja ára áætlun 2024-2026. Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir árið 2023 í A og B hluta eru eftirfarandi: Rekstrarniðurstaða 242,5 m.kr., skuldir og skuldbindingar 2.745 m.kr., veltufé frá rekstri 578 m.kr., ný lántaka 350 m.kr., afborganir langtímalána 115 m.kr., handbært fé í árslok 55 m.kr. Skuldir og skuldbindingar í hlutfalli af tekjum 74,3%. Fjárfestingaáætlun næsta árs hljóðar upp á 800 m.kr. og unnið er að forgangsröðun verkefna og verður sundurliðuð framkvæmdaáætlun birt við síðari umræðu fjárhagsáætlunar á fundi bæjarstjórnar í desember. Þá eru álagningarreglur í endurskoðun og verða tillögur mótaðar að greiningavinnu lokinni og nýjar álagningarreglur afgreiddar við síðari umræðu fjárhagsáætlunar.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls, til andsvars Sigurjón Andrésson.
Forseti þakkaði starfsfólki og bæjarfulltrúum fyrir vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.
Forseti lagði til að fjárhagsáætlun 2023 verði vísað til síðari umræðu bæjarstjórnar.
Samþykkt með 7 atkvæðum.
Forseti þakkaði starfsfólki og bæjarfulltrúum fyrir vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.
Forseti lagði til að fjárhagsáætlun 2023 verði vísað til síðari umræðu bæjarstjórnar.
Samþykkt með 7 atkvæðum.
5.
Leikskólinn á Höfn, austan Víkurbrautar - S3 - Breyting á deiliskipulagi
Breyting á deiliskipulagi austan Víkurbrautar - S3, sem tekur til lóðar Sjónarhóls á Kirkjubraut 47 var auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdarfrestur var frá 14. september til 26. október 2022.Engar athugasemdir né umsagnir bárust.Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Skipulag íbúðarsvæðis
Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur látið skoða kosti nýrrar íbúðabyggðar til þess að bregðast við lóðaskorti á Höfn. Skoðað var hvort hægt væri að hefja vinnu við skipulag á svæði ÍB-2, nýlegar jarðvegsrannsóknir benda til að burðargeta jarðvegsins er verulegum vafa undiropið en kann að batna þegar árin líða. Því er lagt til að hefja skipulagsvinnu á svæði ÍB-5. Það svæði er merkt sem íbúðasvæði á aðalskipulagi og eðlilegur hluti af byggð sem er risin vestan Hafnarbrautar og nýting á þeim hluta nessins sem byggð nær nú þegar til.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls og lagði til eftirfarandi bókun og lagði til að bæjarstjórn geri hana að sinni. "Bæjarstjórn Hornafjarðar hvetur innviðaráðherra til að ljúka við gerð reglugerðar um rafrænar íbúakosningar í sveitarfélögum sem fyrst. Bið eftir þessari reglugerð stendur í vegi fyrir uppbyggingu að nokkru leiti og því þarf að klára málið sem fyrst."
Til máls tók Sigurjón Andrésson og Ágerður K. Gylfadóttir.
Til máls tók Eyrún Fríða Árnadóttir og Ásgerður K. Gylfadóttir
Forseti bar bókun Ásgerðar til samþykktar, samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að farið verði í vinnu við að skipuleggja svæði á ÍB-5 skv. 40 gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Til máls tók Sigurjón Andrésson og Ágerður K. Gylfadóttir.
Til máls tók Eyrún Fríða Árnadóttir og Ásgerður K. Gylfadóttir
Forseti bar bókun Ásgerðar til samþykktar, samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að farið verði í vinnu við að skipuleggja svæði á ÍB-5 skv. 40 gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Umsókn um byggingarheimild - Miðtún 2 - sólskáli
Björgvin Ó. Sigurjónsson vék af fundu undir þessum lið. Umsókn um leyfi til að setja kaldan sólskála við Miðtúni 2. Skálinn verður um 13,5 m², um 2,5 m að hæð og fylgir honum yfirlýsing NMÍ um nothæfi fyrir íslenskar aðstæður. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið. Grenndarkynning hefur farið fram skv. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Engar athugasemdir bárust. Lagði til að bæjarstjórn samþykki að heimilt verði að gefa út leyfi án deiliskipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sex atkvæðum.
8.
Landeignaskrá - Sauðanes 2 - stofnun nýrrar landeignar og samruni
Skúli Ingólfsson vék af fundu undir þessum lið. Valdimar Ingólfsson og Aðalheiður Fanney Björnsdóttir óska eftir samþykki á stofnun nýrrar landeignar úr landi Sauðanes 2 (L230375). Um er að ræða 1,5 ha spildu sem fyrirhugað er að sameina Sauðanesi (L159512). Jafnramt er óskað eftir að landeign Sauðanes 2A (L234017) verði sameinuð Sauðanesi 2 (L230375).
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki stofnun nýrrar landeignar og sameiningu á landeignum.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Samþykkt með sex atkvæðum.
9.
Skipulagsmál - Óleyfisframkvæmdir í landi Hofs
Umhverfis- og skipulagsstjóri hefur stöðvað óleyfisframkvæmdir í óskiptu landi Hofs vestan við Hvalvörðugilslæk.
Forseti lagði til að bæjarstjórn staðfesti stöðvun á framkvæmdum skv. 1. mgr. 53. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Umsókn um stækkun lóðarinnar að Dalbraut 4
Bryndís Bjarnarson vék af fundi undir þessum lið. Umsókn um stækkun á lóð Dalbraut 4. Um er að ræða stækkun um 90 m² til austurs samkvæmt meðfylgjandi teikningu. Erindi var tekið fyrir fund umhverfis og skipulagsnefndar í 2011 þar sem nefndin mælti með því að umsækjanda verði veittur afnotaréttur af stækkun. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði.Umhverfis- og skipulagsnefnd mælir með að lóð að Dalbraut 4 verði stækkuð í samræmi við ósk umsækjanda.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki stækknun álóðínni og að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem stækkun á lóðinni varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda skv. 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.