Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

305. fundur
22. desember 2022 kl. 13:00 - 13:23
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Skúli Ingólfsson aðalmaður
Eyrún Fríða Árnadóttir aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Útsvar 2023
Málsnúmer 202212128
Lagt er til að sveitarfélögin hækki útsvar vegna samkomulags um breytingu á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk og hækkunar á útsvarsálagningu.Samkomulag hefur náðst á milli ríkis og sveitarfélaga varðandi breytingu á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk og hækkun útsvarsálagningar. Með vísan til ákvæða og fyrirliggjandi samkomulags er byggir á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 16. desember 2022, er lagt til að bæjarstjórn samþykki að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2023 hækki í sveitarfélaginu um 0,22% og verði þannig 14,74%. Á móti kemur að ríkið lækkar tekjuskatt um samsvarandi hlutfall og mun þá almenningur ekki finna fyrir hækkuninni. Viðeigandi lagabreytingar verða samþykktar á Alþingi og allar sveitarstjórnir þurfa að samþykkja 0,22% hækkun útsvars fyrir áramót, svo samkomulagið raungerist.
Forseti bar upp tillögu að bæjarstjórn samþykki að hækka útsvar fyrir árið 2023 um 0,22% úr 14.52% í 14,74% enda mun tekjuskattsálagning einstaklinga lækka um samsvarandi hlutfall og þannig ekki leiða til þess að heildarálögur á skattgreiðendur hækki. Bæjarstjórn fagnar því að loks hafi náðst samkomulag á milli ríkis og sveitarfélaga til að fjármagna betur málaflokk þjónustu við fatlað fólk enda hefur málaflokkurinn verið stórlega undirfjármagnaður á landsvísu af hálfu ríkisins.
Samþykkt með sjö atkvæðum.