Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

308. fundur
8. mars 2023 kl. 16:00 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason aðalmaður
Tinna Rut Sigurðardóttir 2. varamaður
Skúli Ingólfsson aðalmaður
Eyrún Fríða Árnadóttir aðalmaður
Elías Tjörvi Halldórsson 1. varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1071
Málsnúmer 2302004F
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1072
Málsnúmer 2302009F
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir 10. lið, beiðni um stuðning við bíóklúbb. Til andsvars Sigurjón Andrésson.
Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls undir 8. lið ferðamennskusamfélagið.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1073
Málsnúmer 2302015F
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir 2. lið fundargerð umhvrerfis- og skipulagsnefndar, 1. lið umhverfisviðurkenning 2022 og 1. lið fundargerð fræðslu- frístundanefnd og 9. lið ungmennaráð Hornafjarðar.
Til máls tók Ásgerður Kristín Gylfadóttir undir 6. lið, ósk um viðhald á búnaði í Sporthöllinni. Til andsvars Sigurjón Andrésson.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1074
Málsnúmer 2302018F
Elías Tjörvi Halldórsson tók til máls undir 3. lið, Humarhátíð 30 ára.
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir 4. lið skrifstofuhúsnæði Litlubrú - störf án staðsetningar.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir 1. lið atvinnu- og menningamálanefnd 4. lið, Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs, fundargerð 113, endurskoðun gjaldskrár Vatnajökulsþjóðgarðs, fundargerð 114, 3. liður, Sveitarfélagið Hornafjörður - Viljayfirlýsing um húsnæðismál á Höfn og 7. lið fundargerðar bæjarráðs framkvæmdir 2023. Til andsvars Sigurjón Andrésson.
Til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir. Aftur til andsvars Sigurjón Andrésson.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 307
Málsnúmer 2302005F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Laun kjörinna fulltrúa og nefndarmanna
Málsnúmer 202110027
Samþykkt um laun kjörinna fulltrúa og nefndamanna var tekin upp og gerð breyting á samþykktinni, áréttað með veikindarétt og upphæð vegna tækjabúnaðar bæjarstjórnamanna var hækkuð.
Forseti bar samþykkt um laun kjörinna fullltrúa og nefndamanna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Umsögn - Samþykkt um umgengni og þrifnað utan húss
Málsnúmer 202212133
Sameiginleg samþykkt um umgengni og þrifnað utan húss á starfssvæði HAUST lögð fram til annarrar umræðu. Ekki eru efnislegar breytingar á samþykktinni heldur er verið að bregðast við sameiningu sveitarfélaga sem eru í samstarfi við Hornafjörð undir hatti HAUST.
Forseti bar samþykkt um umgengni og þrifnað utanhúss upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Seljavellir 2 - Verslun og þjónusta, Breyting á aðalskipulagi
Málsnúmer 202209054
Breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins að Seljavöllum 2 um er að ræða 6,8 ha. skipulagssvæði sem verður skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði.Helstu markmið með breytingunni eru að styðja við frekari uppbyggingu ferðaþjónustu á Seljavöllum þar sem fyrirhugað er að byggja hótel og 20 stakstæð hús til útleigu auk þjónustuhúsa. Nýtt deiliskipulag var unnið og auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingunni. Tillagan var í kynningu frá 19. janúar til 2. mars sl. tvær umsagnir bárust frá Vegagerðinni, RARIK, Haust og MÍ.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki tillögu að breytingu á aðalskipulagi 2012-2030 og að bæjarstjórn geri svör umhverfis- og skipulagsnefndar að sínum samkv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Seljavellir 2 - Deiliskipulag
Málsnúmer 202205087
Nýtt deiliskipulag fyrir Seljavelli 2, um er að ræða 6,8 ha. skipulagssvæði sem er skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði.Helstu markmið með breytingunni eru að styðja við frekari uppbyggingu ferðaþjónustu á Seljavöllum 2, fyrirhugað er að byggja hótel og 20 stakstæð hús til útleigu auk þjónustuhúsa. Nýtt deiliskipulag var unnið og auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingunni. Tillagan var í kynningu frá 19. janúar til 2. mars sl. ein athugasemd barst frá Sigurði Bjarnasyni og umsagnir bárust frá Vegagerðinni, RARIK, Haust og MÍ.Umhverfis - og skipulagsnefnd lagði til að bæjarstjórn samþykki að gera svör nefndarinnar að sínum.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki nýtt deiliskipulag fyrir Seljavelli og geri svör umhverfis- og skipulagsnefndar að sínum og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Deiliskipulag Þorgeirsstaðir í Lóni
Málsnúmer 201908028
Deiliskipulag Þorgeirsstaða í Lóni er tekið fyrir að nýju þar sem deiliskipulagsferli frá 2020 lauk ekki innan þess tímaramma sem skipulagslög segja.Deiliskipulagið nær til hluta jarðanna Þorgeirsstaða (landnr. 159402) og Þorgeirsstaða 3 (landnr. 223144) í Lóni. Skipulagssvæðið er um 12 ha. að stærð og er í þrennu lagi. Á Þorgeirsstöðum er íbúðarhús og fjárhús en einnig hefur verið rekin þar ferðaþjónusta með gistingu fyrir 7 gesti. Virkjun er í Þorgeirsstaðaá. Fyrirhuguð er frekari uppbygging á ferðaþjónustustarfsemi, m.a. að breyta fjárhúsum í gistingu og vera með gistingu fyrir allt að 60 gesti.Forseti lagði til að bæjarsjórn samþykki að auglýsa að nýju deiliskipulagstillögu fyrir Þorgeirsstaði í Lóni skv. 40. gr skipulaglaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Umsókn um byggingarheimild - Mánabraut 2, stækkun, breyting inni og úti
Málsnúmer 202212126
Björgvin Óskar Sigurjónsson og Tinna Rut Sigurðardóttir véku af fundi undir þessum lið. Umsókn Jakobs Arnar Guðlaugssonar og Sædísar Aspar Valdemarsdóttur um byggingarheimild fyrir breytingar á húsi að Mánabraut 2 samkvæmt framlögðum teikningum. Um er að ræða stækkun á bílskúr, nýja tengibyggingu, stækkun á húsi, breytingar á þaki, breytingar á gluggum og hurðum, breytingar á innra skipulagi og nýja klæðningu bæði á þaki og veggjum. Lóð er inn á íbúðarsvæði ÍB9 samkvæmt aðalskipulagi sveitarfélagsins, en ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæði. Grenndarkynning fór fram 11. janúar með athugasemdarfresti til 10. febrúar 2023. Engin athugasemd barst.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna og byggingarheimildina fyrir breytingar á Mánabraut 2 án deiliskipulagsgerðar samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
12.
Landeignaskrá: Hoffell - landskipti
Málsnúmer 202302060
Björgvin Óskar Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið. Landeigendur að Hoffelli 1 L159488, Hoffelli 2 L159494 og Miðfelli L 159509, 781 Hornafirði, Úlfar Helgason, kt. 110745-7299, eigandi Hoffells 1 L159488, Andri Már Jónsson kt. 141076-4189 eigandi Hoffells 1 L159488, Benedikt Jónsson kt. 251277-4359 eigandi Hoffells 1 L159488, Þrúðmar Sigurður Þrúðmarsson, kt. 141254-5109 eigandi Hoffells 2 L159494 og Miðfells L 159509 og Ingibjörg Ævarr Steinsdóttir, kt. 020453-4519, eigandi Miðfells L 159509 óska eftir því við bæjarstjórn að staðfest verði innra skipulag að Hoffelli 1, Hoffelli 2 og Miðfelli og að skiptingin sbr. meðfylgjandi lóðarblöð nr. 101 - 108, unnin af Verkhof ehf., dags. 7. mars 2023, sé í samræmi við skipulagsskilmála. Hoffell I, Hoffell 2 og Miðfell eru í dag í óskiptri sameign og verða það áfram að því er varðar það land sem ekki er verið að skipta upp skv. meðfylgjandi lóðarblöðum. Svæðin Hoffell 1 svæði A, Hoffell 1 svæði B, Hoffell 1 svæði C og Hoffell 1 svæði D renna við skiptin í óskipta sameign að Hoffelli 1, L 159488, þannig að Úlfar Helgason kt. 110745-7299 eignast 50% hlut og þeir Andri Már Jónsson, kt. 141076-4189 og Benedikt Jónsson kt. 251277-4359 eignast 25% hlut hvor. Svæðin Hoffell 2 og Miðfell svæði E, Hoffell 2 og Miðfell svæði F, Hoffell 2 og Miðfell svæði G og Hoffell 2 og Miðfell svæði H, renna við skiptin inn í Hoffell 2, L159494, og Miðfell L 159509, í jöfnum hlutföllum. Hoffell 2 (L159494) er í 100% eigu Þrúðmars Sigurðar Þrúðmarssonar kt. 141254-5109 og Miðfell (L159509) er í 50% eigu Þrúðmars Sigurðar Þrúðmarssonar kt. 141254-5109 og 50% eigu Ingibjargar Ævarr Steinsdóttur, kt. 020453-4519.
Forseti lagði til að bæjarstjórn geri ekki athugasemd við áformuð landskipti þar sem þau eru í samræmi við skipulagsáætlun á umræddu svæði og hefur ekki áhrif á búrekstrarskilyrði, sbr. 6.gr. jarðalaga 81/2004. Bæjarstjórn mun ekki taka afstöðu til ytri marka jarðanna þar sem það felst ekki í hlutverk hennar, en hvetur landeigenda að þinglýsa landamerkjalýsingu við aðliggjandi landeignir.
Sigurjón Andrésson tók til máls.
Samþykkt með sex atkvæðum.
13.
Náma við Breiðárlón á Breiðamerkursandi - framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 202303019
Beiðni Vegagerðarinnar um efnistöku er í samræmi við fyrirspurn Vegagerðarinnar um matsskyldu, álit Skipulagsstofnunar og Aðalskipulag Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030.Með tilvísun í töflu 20.1 í greinargerð aðalskipulags telur umhverfis- og skipulagsnefnd að ekki sé þörf á að deililskipuleggja námuna.Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veitt verði framkvæmdaleyfi fyrir 78.000 m3 af grjóti til framkvæmda á Breiðamerkursandi á næstu 10 árum með þeim skilmálum að fylgt sé þeim mótvægisaðgerðum sem gert er grein fyrir í fyrirspurn um matsskyldu, að gengið sé frá námunni eftir hvert skipti sem farið er í námuna og að bæjarstjórn samþykki að fallið sé frá gerð deiliskipulags fyrir svæðið. Settur er fyrirvari um afstöðu Minjastofnunar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Umsókn um lóð Hagatún 16
Málsnúmer 202104132
Breyting á lóðarmörkum við Hagatún 16 var í grenndarkynningu frá 11. janúar til 10. febrúar. Ein athugasemd barst sem varðar snúningssvæði í götunni. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingu á lóðarmörkum og grennarkynninguna og að fallið verði frá gerð deiliskipulags skv. 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 10
Málsnúmer 202302007
Umsókn Þingvaðs ehf. um lóð að Álaugarvegi 10, bæjarráð er jákvætt fyrir úthlutuninni. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarúthlutunina.
Samþykkt með sjö atkvæðum.