Bæjarstjórn Hornafjarðar
309. fundur
26. apríl 2023
kl.
16:00
-
17:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason
aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Skúli Ingólfsson
aðalmaður
Elías Tjörvi Halldórsson
1. varamaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1075
Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls undir 1. lið fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar C.10 Þróun aðlögunaraðgerða vegna áhrifa loftslagsbreytinga á sveitarstjórnarstigi. Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 1. lið, fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar undir 1. lið, þróunarsvæði vestan við Nýheima.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða, til andsvars Sigurjón Andrésson, til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða, til andsvars Sigurjón Andrésson, til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1076
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tók til máls undir 3. lið, ósk um félagsmiðstöð í Hrollaugsstöðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1077
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1078
Sigurjón Andrésson tók til máls undir 3. lið Hafnarstjórn Hornafjarðar, samtal við Vegagerðina um málefni hafnarinnar varðandi Grynnslin, Björgvin Óskar Sigurjónsson tók einnig til máls undir sama lið. Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir sama lið og 1. lið fundargerð velferðarnefndar undir fundargerð fjölmenningaráðs 3. liður, móttaka flóttafólks einnig tók hún til máls undir 2. lið fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar 3. lið, áfanga- og áningarstaðir innan SVH - uppbygging og viðhald 2023. Til andsvars Sigurjón Andrésson, til andsvars Hjördís Edda Olgeirsdóttir og Ásgerður K. Gylfadóttir.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1079
Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls undir 4. lið Gamlabúð - auglýsing vegna leigu, Ásgerður K. Gylfadóttir tók einnig til máls undir 4. lið Gamlabúð - auglýsing vegna leigu og 5. lið viðbygging við leikskóla.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1080
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 2. lið, stofnun þjónustusláturhúss og matarsmiðju.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1081
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 308
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
9.
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2022
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2022 lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Ársreikningurinn hefur fengið kynningu í bæjarráði að viðstöddum aðalmönnum í bæjarstjórn. Ársreikningurinn var samþykktur í bæjarráði og vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarstjóri lagði fram ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2022. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 232 m.kr. og niðurstaða A hluta var jákvæð um 218 m.kr. Eigið fé í árslok 2022 nam 5.709 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta og 4.984 m.kr. fyrir A hluta. Veltufé frá rekstri A og B hluta var 626 m.kr. og 467 m.kr. í A hluta. Eiginfjárhlutfall A og B hluta í árslok nam 71,6% og 73,7% í A hluta. Veltufjárhlutfall var 1,02 í A og B hluta og 1,55 í A hluta. Skuldir og skuldbindingar A og B hluta námu 2.269 m.kr. í árslok 2022 en 1.776 m.kr. í A hluta. Skuldahlutfall A og B hluta í árslok 2022 var 65% og skuldaviðmið 40% sem er vel undir 150% hámarki viðmiðunarreglu samkvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri lagði til að ársreikningi 2022 verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn. Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum.
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri lagði til að ársreikningi 2022 verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn. Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ
Unnið hefur verið að framkvæmd íbúakosningar um aðal- og deiliskipulag þétting byggðar í Innbæ frá árinu 2021, vegna galla í rafrænu kosningakerfi og breytinga á lögum og reglum um íbúakosningar hefur ekki verið hægt að framkvæma kosninguna fyrr. Nú hefur lögum verið breytt og nýjar reglur um íbúakosningar verið samþykktar. skv. 108 gr. sveitarstjórnarlaga á að framkvæma kosninguna innan árs frá því að undirskriftasöfnun fór fram, innviðaráðuneytið hefur gefið sveitarfélaginu undanþágu á að framkvæma kosninguna.Undirskriftasöfnun vegna breytingar á aðal- og deiliskipulagi í Innbæ, fór fram hjá Þjóðskrá 2021. Á kjörskrá voru 1590 einstaklingar, fjöldi þeirra sem skráðu nafn sitt á undirskriftalistann var 353 eða 22,2 %. Skv. samþykktum sveitarfélagsins skal bæjarstjórn verða við ósk um almenna atkvæðagreiðslu ef 20% þeirra sem eiga kosningarétt óska þess.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að framkvæmd verði íbúakosning um samþykkt aðal- og deiliskipulag þéttingu byggðar Innbæ, og að spurning íbúakosningarinnar verði þessi:
Samþykkir þú að breyting á aðal- og deiliskipulagi um þéttingu byggðar í Innbæ Hafnar haldi gildi sínu? Já/Nei.
Íbúakosningin skal fara fram á þriggja vikna tímabili og kjördeild verði í Ráðhúsinu á Höfn.
Yfirkjörstjórn skal sjá um framkvæmd kosningarinnar.
Nýtt aðal- og deiliskipulag um þéttingu byggðar í Innbæ á Höfn, samkvæmt auglýsingum um samþykkt bæjarstjórnar frá 16. apríl 2020 og 27. maí 2021, var samþykkt af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Ekkert deiliskipulag var áður í gildi fyrir svæðið, en allar upplýsingar um nýja deiliskipulagið og aðalskipulagsbreytinguna má sjá með því að smella á þennan hlekk til að skoða samþykkt skipulaganna: https://www.hornafjordur.is/stjornsysla/skipulagsmal/skipulag-i-kynningu/thetting-byggdar-innbae-auglysing-um-samthykkt-baejarstjornar-1
Þennan hlekk til að skoða samþykkt um breytingu á aðalskipulagi: https://www.hornafjordur.is/stjornsysla/skipulagsmal/skipulag-i-kynningu/thetting-byggdar-innbae-auglysing-um-samthykkt-baejarstjornar
Kynningargögn má nálgast hér: https://www.hornafjordur.is/stjornsysla/skipulagsmal/skipulag-i-kynningu/thetting-byggdar-innbae-auglysing-um-samthykkt-baejarstjornar-1
Forseti bar fram tillögu bæjarstjóra.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að framkvæmd verði íbúakosning um aðal- og deiliskipulag þétting byggðar Innbæ.
Samþykkir þú að breyting á aðal- og deiliskipulagi um þéttingu byggðar í Innbæ Hafnar haldi gildi sínu? Já/Nei.
Íbúakosningin skal fara fram á þriggja vikna tímabili og kjördeild verði í Ráðhúsinu á Höfn.
Yfirkjörstjórn skal sjá um framkvæmd kosningarinnar.
Nýtt aðal- og deiliskipulag um þéttingu byggðar í Innbæ á Höfn, samkvæmt auglýsingum um samþykkt bæjarstjórnar frá 16. apríl 2020 og 27. maí 2021, var samþykkt af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Ekkert deiliskipulag var áður í gildi fyrir svæðið, en allar upplýsingar um nýja deiliskipulagið og aðalskipulagsbreytinguna má sjá með því að smella á þennan hlekk til að skoða samþykkt skipulaganna: https://www.hornafjordur.is/stjornsysla/skipulagsmal/skipulag-i-kynningu/thetting-byggdar-innbae-auglysing-um-samthykkt-baejarstjornar-1
Þennan hlekk til að skoða samþykkt um breytingu á aðalskipulagi: https://www.hornafjordur.is/stjornsysla/skipulagsmal/skipulag-i-kynningu/thetting-byggdar-innbae-auglysing-um-samthykkt-baejarstjornar
Kynningargögn má nálgast hér: https://www.hornafjordur.is/stjornsysla/skipulagsmal/skipulag-i-kynningu/thetting-byggdar-innbae-auglysing-um-samthykkt-baejarstjornar-1
Forseti bar fram tillögu bæjarstjóra.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að framkvæmd verði íbúakosning um aðal- og deiliskipulag þétting byggðar Innbæ.
11.
Urðunarstaður Grænt bókhald 2022
Starfsmenn sveitarfélagsins og KPMG hafa tekið saman grænt bókhald fyrir urðunarstaðinn í Firði í Lóni. Samtals voru urðuð 1.554.565 kg. af úrgangi á urðunarstaðnum í Lóni árið 2022. Urðaður úrgangur dróst saman um rúm 30 tonn milli ára og rúm 1.000 tonn frá árinu 2019. Samdrátt í urðun á síðasta ári má að hluta til rekja til tilraunaverkefnis við jarðgerð matarleifa á urðunarstaðnum en við hana nýttust 100 tonn af hreinu timbri sem annars hefði verið urðað.
Bæjarstjórn samþykkir grænt bókhald fyrir árið 2022.
12.
Hverfisráð - Íbúaráð
Erindisbréf um íbúaráð lagt fram til samþykktar. Í hverju íbúðaráði skulu sitja þrír fulltrúar kosnir af íbúum ásamt tveimur varamönnum.Fyrstu íbúaráðin verða skipuð af bæjarráði eftir auglýsingu eftir áhugasömum íbúum. Súskipun verður til eins árs.
Sigurjón Andrésson tók til máls undir þessum lið, Ásgerður K. Gylfadóttir og Hjördís Edda Olgeirsdóttir tóku einnig til máls undir þessum lið.
Forseti bar erindisbréfið upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar erindisbréfið upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Barnaverndarlög, samvinna Fjarðabyggðar og Hornafjarðar um barnaverndarþjónustu
Samningur um sameiginlega barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar lagður fram til samþykktar í fyrri umræðu bæjarstjórnar. Samningurinn er gerður í samræmi við 10., 11. og 12. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 þar sem fjallað er um umdæmi barnaverndarþjónustu og 96. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.Samningurinn hefur verið uppfærður að lokinni umfjöllunar í mennta- og banamálaráðuneytinu fyrirliggjandi gögn eru um barnaverndarþjónustu milli Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar ásamt fylgiskjali um fullnaðarafgreiðsluheimildir.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki samning og fylgiskjal um fullnaðarafgreiðsluheimildir og vísi honum til síðari umræðu bæjarstjórnar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Hafin er endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins, undirbúningsfundir hafa verið haldnir með kjörnum fulltrúum og starfsmönnum sveitarfélagsins og stýrihópur skipaður. Hér er lögð er fram lýsing sem er fyrsti áfangi þeirrar vinnu. Í lýsingunni er farið yfir viðfangsefni aðalskipulags og tilgreind helstu atriði sem kalla á endurskoðun og frekari stefnumótun og skipulagsákvæði.Lýsingin er byggð á mati á þróun sem orðið hefur frá því gildandi aðalskipulag var staðfest árið 2014. Hún byggir einnig á frumgreiningu á stefnu og áætlunum á heims-, lands- og svæðisvísu sem eru tilkomnar eftir gildistöku aðalskipulagsins, auk nýrra stefnuskjala sveitarfélagsinssem kalla á samræmingu og nánari útfærslu m.t.t. skipulags.Í lýsingunni er farið yfir málaflokka aðalskipulags og tilgreind þau viðfangsefni sem kalla á að gildandi stefna og skipulagsákvæði aðalskipulags Hornafjarðar séu yfirfarin m.t.t. stöðu og þróunar eða nýrra áætlana og stefnuskjala á ríkis- og svæðisvísu og/eða hjá sveitarfélaginu sjálfu.Viðfangsefnin eru dregin fram með spurningum sem endurskoðun aðalskipulagsins mun fást við á sviðum vistkerfa og auðlinda, byggðar og samfélags og atvinnulífs og menningarlífs.Umhverfismat við endurskoðun aðalskipulagsins mun beinast að helstu breytingum á gildandi aðalskipulagsstefnu og landnotkunarákvæðum. Einkum mun matið beinast að þeim breytingum sem teljast líklegar til að hafa veruleg umhverfisáhrif.Tilgangur lýsingar er að tryggja að almenningur, hagsmunaaðilar og umsagnaraðilar komi að skipulagsferlinu á fyrstu stigum og stuðla þannig að gagnsæi í ferlinu og bæta upplýsingaöflun.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkir framlagða lýsingu skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Breyting á aðalskipulagi - Leiðarhöfði
Lögð fram tillaga að skipulagslýsingu fyrir breytingu á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag á Leiðarhöfða í samræmi við tillögu úr hönnunarsamkeppni um uppbyggingu á Leiðarhöfða.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki skipulagslýsinguna og að skipulagslýsing verði kynnt skv. 30.gr og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Breyting á íbúðarbyggð ÍB5 á Höfn - Breyting á aðalskipulagi
Lögð fram skipulagslýsing vegna breytingar á aðalskipulagi fyrir nýtt deiliskipulag.Í gildandi aðalskipulagi er kveðið á um að byggð skuli vera lágreist, 1-3 hæðir, með þéttleika semsvarar 15 íbúðum á hektara. Með skipulagsbreytingunni er gert ráð fyrir að auka við þéttleikannog stækka reitinn til austurs til þess að byggðin geti samræmst betur landslaginu og að landiðnýtist vel. Þannig mætti koma um 150 íbúðum fyrir á reitnum.Gert er ráð fyrir að breytt skipulag kveði á um fjölbreytni í íbúðargerðum og stærðum og aðsvæðið tengist vel aðlægri byggð og þjónustusvæðum.
Elías Tjörvi tók til máls undir þessum lið.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að vinna að breytingu á aðalskipulagi á svæði ÍB 5 og samþykki fyrirliggjandi lýsingu fyrir svæðið skv. 30. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að vinna að breytingu á aðalskipulagi á svæði ÍB 5 og samþykki fyrirliggjandi lýsingu fyrir svæðið skv. 30. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Holt á Mýrum - breyting á aðalskipulagi
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi vegna breytingu á íbúðarsvæði ÍB 12 við Holt á Mýrum. Breytingin snýr að fjölgun íbúða á svæðinu úr 15-20 í 30 íbúðir.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á aðalskipulagi skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga þar sem tillagan hefur ekki verulegar breytingar á landnotkun í för með sér eða sé líkleg til að hafa mikil áhrif á einstaka aðila eða hafa áhrif á stór svæði.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Kyljuholt á Mýrum - Deiliskipulag
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Kyljuholt á Mýrum. Skipulagið tekur yfir 4 ha. svæði innan jarðar Kyljuholts. Afmarkaðar verða íbúðarhúsalóðir og verður möguleiki á að afmarkaðar verði fleiri lóðir síðar innan skipulagssvæðisins. Gert verður ráð fyrir að afmörkuð verði lóð utan um núverandi einbýlishús á svæðinu, tvær lóðir fyrir raðhús og sameiginleg lóð fyrir bílastæði.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu og vísi henni í lögformlegt ferli.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Deiliskipulag Háhóll - Dilksnes
Forseti Gauti Árnason vék af fundi undir þessum lið, varaforseti Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tók við stjórn fundarins undir þessum lið. Deiliskipulagstillaga fyrir Háhól-Dilksnes var í kynningu frá 3. nóvember til 15. desember 2022. Umsagnir bárust frá HAUST, Skipulagsstofnun, Vegagerðinni, Náttúrfræðistofnun Íslands og Minjastofnun Íslands. Skipulagssvæðið er tvískipt og nær yfir um 37 ha. Tillagan tekur yfir land Dilksness 1 og 2, Hjarðarness, Háhóls, Garðshorns og Hólaness. Skipulagið var sent til yfirferðar til Skipulagsstofnunar og óskað eftir heimild til að birta staðfestingu þess í B-deild Stjórnartíðinda. Í bréfi Skipulagsstofnunar dags. 27. janúar 2023 voru gerðar athugasemdir, brugðist hefur verið við þeim athugasemdum sem bárust. Bygging nýrra íbúðarhúsa stuðlar að eflingu samfélags og mögulega atvinnulífs í dreifbýli. Ný íbúðarhús eru nauðsynleg til að kynslóðaskipti á bújörðum séu möguleg. Íbúðarhús nýtast fyrir starfsfólk sem starfar á jörðunum við landbúnað, í ferðaþjónustu, garðyrkju eða í steypustöðinni. Þau íbúðarhús sem gert er ráð fyrir að byggja eru staðsett á þurru landi og hæðarkollum sem standa aðeins hærra í landinu. Aðkomuvegur að lóðum 1 og 2 hefur verið færður frá fyrstu kynningu deiliskipulagsins til þess að leitast við að fara um þurrara svæði. Almennt er skortur á íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu, bæði í dreifbýli og þéttbýli og er uppbygging á svæðinu þáttur í að tryggja nægt íbúðarhúsnæði.
Forseti lagði til bæjarstjórn samþykki deiliskipulagið Háhóll Dilksness á ný skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Útbær Höfn - Breyting á deiliskipulagi
Deiliskipulag fyrir um 13.000 m2 hótel í útbæ var samþykkt í bæjarstjórn þann 25. október 2022. Skipulagsstofnun gerði athugasemdir við skipulagið við yfirferð, lagfærð gögn lögð fram til samþykktar.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki á ný tillögu að breytingu á deiliskipulagi Útbæ á Höfn skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
21.
Breyting á deiliskipulagi - Hafnarsvæði við Krossey
Breyting deiliskipulags Hafnarsvæði við Krossey fyrir reit á Krosseyjarvegi 2 austan við fiskvinnsluhús. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir 10 metra mænishæð, en óskað er eftir að mænishæð verði færð í 17 metra. Tillagan var auglýst 27. janúar með athugasemdafresti til 10. mars 2023.Engin athugasemd barst. Umsagnir frá Minjastofnun og Vegagerðinni bárust.Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkti að bæta inn í tillöguna kvöð um gegnumakstur norðan við fiskvinnsluhúsin um Krosseyjarveg.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingu á deiliskipulagi hafnarsvæðisins við Krossey skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
22.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Í Aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030 er gert ráð fyrir uppbyggingu á miðsvæði Hafnar, skóla- og íþróttasvæði. Fyrirhugað er að svæðið myndi samfellu í kjarna byggðarinnar. Skipulagssvæðið er um 9,3 ha að stærð. Með deiliskipulaginu er verið að skapa grundvöll til frekari uppbyggingar á skóla- og íþróttasvæði Hafnar í Hornafirði til þess að mynda sterkari miðkjarna í bæjarfélaginu.Tillaga skipulagsins var auglýst með athugasemdarfresti frá 13. apríl til 5. júní 2022. Ein athugasemd barst frá Kaffihorninu. Umsagnir bárust frá Minjastofnun og Vegagerðinni dags. 12. júlí 2022.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki nýtt deiliskipulag fyrir Miðbæ Hafnar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
23.
Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Hafnar í Hornafirði - fjölbýlishúsalóðir
Lögð fram tillaga að breyttu skipulagi fyrir nýjar lóðir við Sandbakkaveg, sunnan Nettó.Svæðið sem breytingin nær yfir afmarkast af Sandbakkavegi í vestri, Litlubrú í norðri, Hafnarbraut í austri og núverandi íbúðarbyggð við Sandbakkaveg í suðri. Svæðið er grasi gróið og flatt. Um það liggur göngustígur. Engin byggð er á svæðinu.Stefna sveitarfélagsins er að þétta byggð á Höfn og byggja upp á auðum svæðum innan byggðarinnar. Eftirspurn hefur verið eftir litlum íbúðum sem getahentað sem fyrstu kaup og einnig fyrir starfsfólk fyrirtækja. Deiliskipulagsbreytingunni er ætlað að koma til móts við þetta
Sigurjón Andrésson tók til máls undir þessum lið.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki tillögu að breytingu á deiliskipulagi Miðbæ Hafnar og að tillagan verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki tillögu að breytingu á deiliskipulagi Miðbæ Hafnar og að tillagan verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
24.
Ósk um umsögn við stofnun lögbýlis
Óskað er umsagnar bæjarstjórnar vegna stofnunar lögbýlis að Hellisholti á Mýrum í samræmi við 17. gr. jarðalaga nr. 81/2004.Umhverfis- og skipulagsnefnd staðfesti að fyrirætlanir um stofnun lögbýlis sé í samræmi við staðfest skipulag og að ekki sé raskað búrekstraraðstöðu nálægra jarða og lagði til að bæjarstjórn gefi jákvæða umsögn um stofnun lögbýlisins.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita jákvæða umsögn við stofnunar lögbýlis að Hellisholti á Mýrum í skv. 17. gr. jarðarlaga nr. 81/2004.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.