Bæjarstjórn Hornafjarðar
311. fundur
14. júní 2023
kl.
16:00
-
17:25
í Holti
Nefndarmenn
Gauti Árnason
aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Skúli Ingólfsson
aðalmaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1084
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 10. lið, fundargerðir, Sambands íslenskra sveitarfélaga og undir 12. lið, fundargerðir stjórnar Nýheima þekkingarseturs. Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir 5. lið, reglur um íbúakosningu.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1085
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 5. lið fundargerðir Samtaka sveitarfélaga á Suðurlandi.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1086
Sigurjón Andrésson tók til máls undir 2. lið, fræðslu- og frístundanefnd 3. lið, íþróttamannvirki. Hjördís E. Olgeirsdóttir tók til máls undir 4. lið hverfisráð - íbúaráð. Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 1. lið, umhverfis- og skipulagsnefnd, 8. lið, stöðuleyfisumsókn Jökulsárlóni og 13. lið, fyrirspurn til skipulagsstjóra, skógræktaráform í landi Selbakka, um hæfi og vanhæfi. 10. lið, byggingarleyfisumsókn Álaleira 5, nýtt iðnaðarhús og 2. lið fundargerð fræðslu og frístundanefnd 3. liður vallarstjórn og 5. lið, innleiðing á Barnvænu sveitarfélagi einnig tók hún til máls undir 5. lið ársskýrsla slökkviliðsstóra fyrir árið 2021-2022 og 7. lið útboð stækkun leikskóla á Hornafirði Sjónarhóll. Til andsvars Eyrún Fríða Árnadóttir og Hjördís E. Olgeirsdóttir. Einnig til andsvars Sigurjón Andrésson. Til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir. Til andsvars Björgvin Ó. Sigurjónsson .
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1087
Sigurjón Andrésson tók til máls undir fundargerð Hafnarstjórnar 2. lið, samtal við Vegagerðina um málefni hafnarinnar/Grynnslin. Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 4. lið, Vatnajökulsþjóðgarður fundargerðir stjórnar og svæðisráðs, 5. lið áhyggjur af fjölgun ferðamanna, Álag á innviðum 2. lið, fundargerð Hafnarstjórnar 2. liður, samtal við Vegagerðina um málefni hafnarinnar/Grynnslin. 6. liður, félagslegt leiguhúsnæði og 7. lið, samningur um samræmda móttöku flóttafólks. Til andsvars Sigurjón Andrésson. Hjördís E. Olgeirsdóttir tók til máls undir 1. lið fundargerð atvinnu- og menningarmálanefnd, 2. lið, Humarhátíð 2023. Til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1088
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 2. lið Gamlabúð auglýsing vegna leigu. Til andsvars Sigurjón Andrésson.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 310
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
7.
Áhyggjur af fjölgun ferðamanna - Álag á innviðum
Bæjarstjórn tekur heilshugar undir ályktun almannavarnarnefndar og bæjarráðs. Fjöldi ferðafólks eykst með hverju árinu og er öryggisviðbragð víða um sveitarfélagið í engu samræmi við fjölda fólks sem dvelur hér og fer hér um. Bæjarráð hvetur yfirvöld til að finna tafarlaust varanlega lausn til að auka neyðarviðbragð og tryggja öryggi ferðafólks, íbúa og þeirra sem starfa í sveitarfélaginu. Þá lýsir bæjarráð yfir vilja til samtals og samstarfs við Slysavarnarfélagið Landsbjörgu svo tryggja megi áframhaldandi viðveru Láglendisvaktar félagsins í Skaftafelli í sumar.Bókun almannavarnarnefndar er eftirfarandi:"Almannavarnarnefnd Hornafjarðar hefur auknar áhyggjur af öryggismálum í Öræfum vegna mikillar fjölgunar ferðamanna sem fara um og dvelja á svæðinu. Eina neyðaraðstoðin á svæðinu að staðaldri er Björgunarsveitin Kári. Hátt í klukkustundar bið er í viðbótarbjargir inn á svæðið ýmist frá Hornafirði eða Kirkjubæjarklaustri í um 100 kílómetra fjarlægð. Neyðarviðbragð sem tiltækt er á þessu svæði er í engu samræmi við þann mikla fjölda ferðamanna sem þar dvelur og fer um. Yfir sumarmánuði er mjög algengt að um 1.000 manns gisti í Skaftafelli yfir nótt og því til viðbótar eru fjölmargir gististaðir í Öræfum.Nauðsynlegt er að bregðast við síauknu álagi á það viðbragð sem er á svæðinu og gera ráðstafanir til að stytta viðbragðstíma vegna óhappa og slysa. Aukin viðvera lögreglu auk heilbrigðisstarfsmanns í Öræfum er bráðnauðsynleg og væri mikil innspýting á neyðarviðbragði. Láglendisvakt Landsbjargar hefur undanfarin ár sýnt og sannað gildi sitt sem viðbótarviðbragð þegar mesti fjöldi ferðamanna er á svæðinu yfir sumarmánuðina.Mikilvægt er að finna varanlega lausn til að auka neyðarviðbragð á svæðinu. Mætti þar meðal annars horfa til reynslu og útfærslu sem er í Þjóðgarðinum á Þingvöllum varðandi heilbrigðisstarfsmann."
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls og lagði fram tillögu að bókun. Til andsvars Eyrún Fríða Árnadóttir, Sigurjón Andrésson, Björgvin Ó. Sigurjónsson og Hjördís E. Olgeirsdóttir. Forseti bar bókun Ásgerðar upp til atkvæða, samþykkt með sjö atkvæðum.
Bæjarstjórn hvetur ríkisvaldið til að huga að grunninnviðum í samfélaginu, t.d. með öflugri löggæslu, til að tryggja öryggi íbúa- og ferðafólks á svæðinu. Bæjarstjórn beinir því til heimbrigðisráðherra að manna heilbrigðis- og viðbragðsþjónustu með þeim hætti að ávallt séu a.m.k. tveir læknar að störfum í sveitarfélaginu á hverjum tíma og að mönnun annarra heilbrigðisstarfsmanna sé einnig tryggð. Þá leggur bæjarstjórn áherslu á að láglendisgæsla Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sé til staðar yfir sumarið í Öræfum eða heilbrigðisstarfsmaður á vegum HSU sem sinni bæði íbúum og ferðafólki. Þá hvetur bæjarstjórn umhverfis, orku, og loftlagsráðherra að gera Vatnajökulsþjóðgarð kleift að huga að öryggismálum á sínum vettvangi og að auka við landvörslu í takt við þann mikla fjölda gesta sem sækja þjóðgarðinn heim.
Bæjarstjórn hvetur ríkisvaldið til að huga að grunninnviðum í samfélaginu, t.d. með öflugri löggæslu, til að tryggja öryggi íbúa- og ferðafólks á svæðinu. Bæjarstjórn beinir því til heimbrigðisráðherra að manna heilbrigðis- og viðbragðsþjónustu með þeim hætti að ávallt séu a.m.k. tveir læknar að störfum í sveitarfélaginu á hverjum tíma og að mönnun annarra heilbrigðisstarfsmanna sé einnig tryggð. Þá leggur bæjarstjórn áherslu á að láglendisgæsla Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sé til staðar yfir sumarið í Öræfum eða heilbrigðisstarfsmaður á vegum HSU sem sinni bæði íbúum og ferðafólki. Þá hvetur bæjarstjórn umhverfis, orku, og loftlagsráðherra að gera Vatnajökulsþjóðgarð kleift að huga að öryggismálum á sínum vettvangi og að auka við landvörslu í takt við þann mikla fjölda gesta sem sækja þjóðgarðinn heim.
8.
Holt á Mýrum - breyting á aðalskipulagi
Bæjarstjórn samþykkti óverulega breytingu á aðalskipulagi við Holt á Mýrum. Skipulagsstofnun óskar eftir skýrari rökum fyrir því að breytingin sé óveruleg. Skipulagsstofnun telur að miðað við umfang heildaruppbyggingar á svæðinu þurfi bæjarstjórn að taka afstöðu til þess hvort stefnt sé að skilgreiningu þéttbýlis á svæðinu þar sem eftir breytingu á aðalskipulagi verður heimilt að byggja allt að 30 íbúðir á svæðinu.Rökstuðningur sveitarfélagsins byggir á gátlista frá Skipulagsstofnun og kemur fram að samtals verða 26 íbúðir á 3 deiliskipulögum 12 í landi Holts ein í landi Hólabrekku og 13 í landi Kyljuholts. Ekki er allur landnotkunarreiturinn deiliskipulagður og verður heimild til byggingar á 4 íbúðum í viðbót.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki framlögð svör og feli starfsmönnum að senda þau til Skipulagsstofnunar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Deiliskipulag - Reynivellir - Efribær
Bæjarstjórn samþykkti þann 10. febrúar 2022 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Reynivalla, Efribæjar, í Suðursveit. Deiliskipulagið tekur til núverandi bæjartorfu og m.a. eru afmarkaðar lóðir og byggingarreitir fyrir frístundahús, smáhýsi og skemmu fyrir búfé og vinnuvélar. Gerð er grein fyrir fjölda gesta á svæðinu í nýjum og núverandi húsum og á svæði fyrir stöðuhýsi. Tillagan var auglýst frá 24. febrúar með athugasemdarfresti til 11. apríl 2022, 5 umsagnir bárust. Eftir auglýsingu var gerð fornleifaskráning á svæðinu, skipulagsgögnum breytt í samræmi við skráningu og óskað var eftir nýrri umsögn Minjastofnunar Íslands. Þar sem meira en ár er liðið frá því að umsagnarfrestur vegna deiliskipulagsins rann út þarf að auglýsa deiliskipulagstillöguna að nýju skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að auglýsa deiliskipulagstillöguna að nýju og vísa henni í lögformlegt ferli skv. 41. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Deiliskipulag hafnarsvæðis Krossey - endurskoðun
Forseti bar upp tillögu um að bæjarstjórn samþykki að hefja vinnu við endurskoðun á deiliskipulagi við Krossey.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Hofsnes Bær, umsókn um stofnun landeignar
Umsókn Egils Rúnars Sigurðssonar um stofnun 4 ha. lóðar úr landi Hofsness (L160178) skv. framlögðum uppdráttum.Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun lóðar, enda samræmist hún skipulagsáætlun. Stofnun lóðarinnar á ekki að hafa áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Forseti bar stofnun lóðar úr landi Hofsness upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Byggingarleyfisumsókn - Álaleira 5, nýtt iðnaðarhús
Björgvin Ó. Sigurjónsson og Gauti Árnason viku af fundi undir þessum lið, Guðrún Stefanía tók við fundarstjórn. Grenndarkynning vegna breytinga á teikningum að Álaleiru 5 stóð yfir frá 4. apríl til 5. maí.Engar athugasemdir bárust.Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við að gefið verði út byggingarleyfi á grunni grenndarkynntra gagna skv. 44.gr. skipulagslaga.
Forseti bar upp þá tillögu að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna og gefið verði út byggingarleyfi skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
13.
Byggingarleyfisumsókn - Hafnarbraut 16, endurbygging og viðbygging
Bæjarstjórn samþykkti breytingu á Hafnarbraut 16 á 301. fundi sínum. Grenndarkynning á breytingum á Hafnarbraut 16 fór fram 25. apríl til 25. maí tvær athugasemdir bárust sem brugðist hefur verið við.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi grenndarkynningu og að byggingaleyfi verði gefið út.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Umsögn - Karlsbrekka stofnun fimm lögbýla
Erindi dagsett 29. mars 2023 þar sem Direkta lögfræðiþjónusta sf. óskar eftir, f.h. landeigenda, umsögn Sveitarfélagsins Hornafjarðar á stofnun lögbýla á fimm fasteignum sem stofnaðar hafa verið en upprunajörðin er Bær í Lóni.Karlsbrekka, L180010 sem er 4,5 haKarlsbrekka 2, L230351 sem er 3,1 haKarlsbrekka 3, L231196 sem er 1,6 haKarlsbrekka 4, L231197 sem er 2,5 haKarlsbrekka 5, L231198 sem er 1,6 haLandspildurnar eru allar innan skilgreinds landbúnaðarsvæðis, í gögnum kemur fram að tilgangur eigenda sé að stunda þar skógrækt.
Forseti lagði til að bæjarstjórn veiti jákvæða umsögn og geri ekki athugasemd við að stofnuð séu lögbýli á spildunum, enda eru þær á landbúnaðarsvæði skv. aðalskipulagi.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Fundir bæjarráðs og bæjarstjórnar
Forseti bar upp tillögu um að bæjarstjórn verði í sumarleyfi í júlí. Lagt er til að bæjarstjórn veiti bæjarráði fullt umboð til afgreiðslu mála þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Kosningar í nefndir 2022-2026
Eyrún Fríða Árnadóttir tekur sæti í umhverfis- og skipulagsnefnd í stað Skúla Ingibergs Þórarinssonar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.