Bæjarstjórn Hornafjarðar
314. fundur
12. október 2023
kl.
15:00
-
15:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason
aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Tinna Rut Sigurðardóttir
2. varamaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1098
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir 3. lið, samningur um samræmda móttöku flóttafólks.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1099
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1100
Guðrún Stefanía Ingólfsdóttir tók til máls undir 14. lið, málstefna.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 1. lið, fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar undir 2. lið, Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs 7. lið, Jökulsárlón - uppbygging innviða - auglýsing ráðuneyta eftir samtal við markaðsaðila. 5. lið rekstur 2023 og fundargerð svæðisráðs suðursvæðis.
Sigurjón Andrésson, til andsvars undir Jökulsárlón uppbygging innviða. Til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Ásgerður K. Gylfadóttir tók til máls undir 1. lið, fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar undir 2. lið, Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs 7. lið, Jökulsárlón - uppbygging innviða - auglýsing ráðuneyta eftir samtal við markaðsaðila. 5. lið rekstur 2023 og fundargerð svæðisráðs suðursvæðis.
Sigurjón Andrésson, til andsvars undir Jökulsárlón uppbygging innviða. Til andsvars Ásgerður K. Gylfadóttir.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1101
Sigurjón Andrésson tók til máls undir 1. lið, fundargerð hafnarstjórnar 3. lið, dýpkun á Grynnslunum og las upp bókun hafnarstjórnar og óskaði eftir að bæjarstjórn samþykki að gera bókun hafnarstjórnar að sinni.
Guðrún Stefanía Ingólfsdóttir tók til máls undir 3. lið fundargerð íbúaráðs undir 2. lið, fræðsla til ferðamanna.
Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls 11. lið, uppbygging innviða á Jökulsárlóni.
Forseti bar upp tillögu um að bæjarstjórn geri bókun hafnarstjórnar að sinni.
Bæjarstjórn Hornafjarðar lýsir vonbrigðum með að dýpkunarskipið Sóley verði ekki hjá okkur við dýpkun í Hornafjarðarós, fyrr en í janúar. Bæði er tíðin þá orðin mikil áskorun og er dýpkunargeta Sóleyjar einnig mikið áhyggjuefni.
Bæjarstjórn hvetur hafnarstjóra og forstöðumann Hornafjarðarhafnar að kanna til hlítar hvort hægt verði að fá öflugra skip til verksins og kanna einnig hvort ekki verði hægt að byrja fyrr en í janúar, líkt og ráð var fyrir gert. Það gefur auga leið að viðhaldsdýpkun á skurði á Grynnslunum er einfaldara verk en að hefja stofndýpkun á erfiðasta tíma veðurfarslega, í janúar.
Forseti bar bókunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Guðrún Stefanía Ingólfsdóttir tók til máls undir 3. lið fundargerð íbúaráðs undir 2. lið, fræðsla til ferðamanna.
Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls 11. lið, uppbygging innviða á Jökulsárlóni.
Forseti bar upp tillögu um að bæjarstjórn geri bókun hafnarstjórnar að sinni.
Bæjarstjórn Hornafjarðar lýsir vonbrigðum með að dýpkunarskipið Sóley verði ekki hjá okkur við dýpkun í Hornafjarðarós, fyrr en í janúar. Bæði er tíðin þá orðin mikil áskorun og er dýpkunargeta Sóleyjar einnig mikið áhyggjuefni.
Bæjarstjórn hvetur hafnarstjóra og forstöðumann Hornafjarðarhafnar að kanna til hlítar hvort hægt verði að fá öflugra skip til verksins og kanna einnig hvort ekki verði hægt að byrja fyrr en í janúar, líkt og ráð var fyrir gert. Það gefur auga leið að viðhaldsdýpkun á skurði á Grynnslunum er einfaldara verk en að hefja stofndýpkun á erfiðasta tíma veðurfarslega, í janúar.
Forseti bar bókunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 313
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Viðaukar fjárhagsáætlunar 2023
Bæjarstjóri fór yfir viðauka IV við fjárhagsáætlun ársins. Meðfylgjandi yfirlit sýna áhrif viðaukans á upphaflega samþykkta áætlun ársins. Viðbótarfjárheimildum verður mætt með lækkun á handbæru fé.
Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls undir þessum lið. Til andsvars Sigurjón Andrésson einnig til andsvars Ásgerður Kristín Gylfadóttir, aftur til andsvars Sigurjón Andrésson
Forseti bar viðaukann upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar viðaukann upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Endurnýjun Jafnréttisáætlunar
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur það hlutverk að tryggja lífsgæði, og stuðla að velferð íbúa. Með jafnrétti er lagður grunnur að velferð einstaklinga, fjölskyldna, atvinnulífs og samfélagsins alls. Til að jafnrétti nái fram að ganga, verður öllum að standa til boða sömu tækifæri til áhrifa, virðingar og þátttöku í samfélaginu, jafnt í opinberu lífi sem og einkalífi.Öllum starfsmönnum, stofnunum og kjörnum fulltrúum sveitarfélagsins ber að vinna eftir henni og taka mið af henni í öllum sínum ákvörðunum.
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir þessum lið.
Forseti bar jafnréttisáætlunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar jafnréttisáætlunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Seljavellir 2E - Umsókn um framkvæmdarleyfi fyrir jarðvegsskipti
Erindi dagsett 15. september 2023 þar sem Reynir Ásgeirsson f.h. Gistihússins Seljavalla, sækir um framkvæmdarleyfi til að jarðvegsskipta undir tveimur húsum í landi Seljavalla 2E.
Forseti bar framkvæmdaleyfið upp til samþykktar að uppfylltum skilyrðum Minjastofnunar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Deiliskipulag - Víkurbraut
Skipulagslýsing vegna aðalskipulagsbreytingar og fyrir nýtt deiliskipulag við Víkurbraut 1 og 5, Álaugarveg 2 og Heppuveg 5 og 7.Meginmarkmið skipulagsins er að styrkja miðbæ Hafnar með fjölbreyttriuppbyggingu þar sem tekið er tillit til nánasta umhverfis svo unnt séað skapa lifandi miðbæjarkjarna þar sem gott mannlíf þrífst til samræmisvið áherslur aðalskipulags Sveitafélagsins Hornafjarðar. Stefnt er að því að styrkja stöðu Hafnar sem miðstöð verslunar og þjónustu á suð-austurlandi með uppbyggingu þjónustumannvirkja í lifandi miðbæ í bland við auknaíbúðarbyggð. Gert er ráð fyrir að slík uppbygging muni auka við fjölbreyttaatvinnuhætti innan bæjarfélagsins m.a. með aukinni verslun og þjónustu fyrir heimamenn og ferðamenn.
Forseti bar aðal- og deiliskipulagslýsinguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Umsókn um byggingarheimild - Reynivellir, starfsmannabúðir
Umsókn Suðurhúsa ehf. um byggingarheimild fyrir starfsmannabúðir á einni hæð úr verksmiðjuframleiddum húseiningum frá Ela Containers. Um er að ræða 30 fullinnréttuð herbergi ásamt sameiginlegum rýmum samkvæmt framlögðum teikningum. Búðirnar eru settar upp í tengslum við byggingu hótels Reynivalla en þær framkvæmdir munu standa yfir í allt að 3 ár. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið en samkvæmt aðalskipulagi er um að ræða landbúnaðarsvæði.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita megi byggingarheimild án deiliskipulagsgerðar sbr. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga og að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Umsókn um byggingarheimild - Þórisdalur, fjarskiptamastur
Umsókn um heimild til að reisa 21,3 metra mastur fyrir farsímaþjónustu til þess að sinna nærumhverfi í landi Þórisdals skv. framlögðum teikningum. Ekki er til gildandi deiliskipulag af svæðinu, skv. aðalskipulagi er svæðið á landbúnaðarasvæði.Framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar.
Forseti bar upp til atkvæða að bæjarstjórn heimili að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda, samkvæmt 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Stafafell 20A - Breyting á deiliskipulagi
Umsókn Gunnlaugs B. Ólafssonar f.h. Megin ehf. breytingu á lóðamörkum Stafafells 20A. Á svæðinu er í gildi deiliskipulag Stafafellsfjalla í Lóni frá 2014.
Forseti bar upp til atkvæða tillögu að lóðamörkin verði lagfærð í samræmi við fyrirliggjandi gögn og að unnin verður óveruleg breyting á deiliskipulagi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Breytingin hefur ekki áhrif á hagsmuni annarra en umsækjenda og er því fallið frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Landeignaskrá Skaftafell 4A - stofnun landeigna úr landi Skaftafell 4
Árni Benediktsson eigandi Skaftafells 4 óskar eftir stofnun nýrrar lóðar úr jörðinni. Fyrirhuguð er að stofna viðskipta- og þjónustulóð í samræmi við aðalskipulag svæðisins.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki stofnun lóðar, enda samræmist hún skipulagsáætlun, stofnun lóðarinnar hefur ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Byggingarleyfisumsókn - Hamarendi, einbýlishús
Björgvin Óskar Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið. Umsókn Þorsteins Óskarssonar um byggingarleyfi fyrir einbýlishús að Hamarenda, lóð úr landi Fagurhólsmýrar. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði en skv. aðalskipulagi er lóðin á landbúnaðarsvæði. Grenndarkynning fór fram frá 14.ágúst til 11.september sl. og engar athugasemdir bárust.Samþykkt með sex atkvæðum.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita byggingarleyfi án deiliskipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga og samþykki grenndarkynninguna og vísi málinu í lögformlegt ferli.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Samþykkt með sex atkvæðum.
15.
Umsókn um lóð - Ófeigstangi 16
Umsókn Skinneyjar-Þinganes hf. um lóð að Ófeigstanga 16 lögð fram, bæjarráð er jákvætt fyrir úthlutuninni.
Forseti bar lóðarumsóknina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Strandvarnir við Jökulsárlón - framkvæmdarleyfi
Beiðni Vegagerðarinnar um efnistöku er í samræmi við fyrirspurn Vegagerðarinnar um matsskyldu, álit Skipulagsstofnunar og Aðalskipulag Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veitt verði framkvæmdaleyfi fyrir strandvarnir við Jökulsárlón til að verja sjávarbakkann og lengja þann tíma sem tekur ströndina að rofna upp að vegi með þeim skilmálum að fylgt sé þeim mótvægisaðgerðum sem gert er grein fyrir í fyrirspurn um matsskyldu og að reynt verði að flytja efni um brú yfir Jökulsárlón utan háannatíma.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.