Bæjarstjórn Hornafjarðar
317. fundur
21. desember 2023
kl.
13:00
-
13:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason
aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Skúli Ingólfsson
aðalmaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
2. varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Hækkun útsvarsálagningar vegna fjármögnunar þjónustu við fatlað fólk
Fyrir liggur samkomulag á milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15.12.2023, varðandi fjármögnun þjónustu við fatlað fólk og hækkun útsvarsálagningar.Lagt er til að sveitarfélögin hækki útsvar vegna samkomulags um breytingu á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk og hækkunar á útsvarsálagningu.Með vísan til ákvæða og fyrirliggjandi samkomulags er byggir á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 15. desember 2023. Lagt er til að bæjarstjórn samþykki að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2024 hækki í Sveitarfélaginu Hornafirði um 0,23% og verði þannig 14,97%. Á móti kemur að ríkið lækkar tekjuskatt um samsvarandi hlutfall og mun þá almenningur ekki finna fyrir hækkuninni.
Forseti bar upp tillögu að bæjarstjórn samþykki að hækka útsvar fyrir árið 2024 um 0,23% úr 14.74% í 14,97% enda mun tekjuskattsálagning einstaklinga lækka um samsvarandi hlutfall og þannig ekki leiða til þess að heildarálögur á skattgreiðendur hækki.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Landeignaskrá: Laxárbakki - uppskipting landeignar, Laxárbakki 3
Helgi Ragnarsson eigandi Laxárbakka L159504 óskar eftir stofnun nýrrar landeignar. Um er að ræða 576 fm. lóð samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði, skv. aðalskipulagi er um landbúnaðarsvæði að ræða.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki stofnun lóðarinnar Laxárbakki 3 úr landi Laxárbakka enda hefur það ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004 og 48.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.