Bæjarstjórn Hornafjarðar
319. fundur
8. febrúar 2024
kl.
15:00
-
17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason
aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Tinna Rut Sigurðardóttir
2. varamaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1113
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir 5. lið, útboð 2. stækkun leikskóla á Hornafirði - Sjónarhóll.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir 4. lið, uppbygging innviða á Jökulsárlóni, málþing um framtíðar uppbyggingu á Jökulsárlóni. Hún tók einnig til máls undir 5. lið, útboð 2. stækkun leikskóla á Hornafirði - Sjónarhóll og 11. lið, tilkynning frá ráðherra um frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Til andsvars Sigurjón Andrésson.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.

2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1114
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir 1. lið. fundargerð fræðslu- og frístundanefndar, 1. lið, fundargerð ungmennaráðs og
8. lið, bygginganefnd um nýtt íþróttahús. Til andsvars Sigurjón Andrésson. Til andsvars Ásgerður Kristín Gylfadóttir. Aftur til andsvars Sigurjón Andrésson.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8. lið, bygginganefnd um nýtt íþróttahús. Til andsvars Sigurjón Andrésson. Til andsvars Ásgerður Kristín Gylfadóttir. Aftur til andsvars Sigurjón Andrésson.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1115
Guðrún Stefanía tók til máls undir 5. lið umferðaröryggi og neyðarviðbrögð í Öræfum og lagði til að bæjarstjórn geri bókun bæjarráðs að sinni.
"Bæjarstjórn Hornafjarðar lýsir enn og aftur yfir þungum áhyggjum af stöðu mála þegar kemur að umferðaröryggi og öryggisviðbragði í Hornafirði. Bæjarstjórn skorar á Vegagerðina, Innviðaráðherra og ríkisstjórnina að leggja tafarlaust það fé til sem þarf til að bæta vetrarþjónustu á svæðinu og gera þjóðveg eitt öruggari enda umferðarþunginn stöðugt að aukast.
Enn fremur er skorað á að Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Lögreglustjórann á Suðurlandi að tryggja ásættanlegt öryggisviðbragð á svæðinu með fastri viðveru bráðaviðbragðsaðila í Öræfum og Suðursveit allt árið um kring.
Einnig tók hún til máls undir 4. lið fundargerð umhvefis- og skipulagsnefndar 4. lið, færsla Hringvegar í Mýrdal og lagði til að bæjarstjórn geri bókun umhverfis- og skipulagsnefndar að sinni.
"Bæjarstjórn telur að fyrst og fremst eigi að byggja ákvörðun um veglínu á umferðaröryggi. Á þeim forsendum leggur bæjarstjórn áherslu á að áfram sé unnið að láglendisvegi með göngum í gegnum Reynisfjall. Mun það auka umferðaröryggi til muna fyrir vegfarendur um svæðið og tryggja betur samgöngur að vetri sem eru Hornfirðingum mjög mikilvægar."
Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls undir 1. lið fundargerð atvinnu- og menningamálanefndar 6. lið, Skaftfellingur vefútgáfa.
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir 11. lið, unga fólkið aftur heim.
Sigurjón Andrésson tók til máls undir 3. lið fundargerð hafnarstjórnar, og
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls og vakti athygli á því að verið er að auglýsa eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga og 5. lið umferðaröryggi og neyðarviðbragð í Öræfum og 11. lið, unga fólkið aftur heim.
Forseti bar bókun bæjarráðs um umferðaröryggi og neyðarviðbrögð í Öræfum upp til atkvæða.
Forseti bar bókun umhverfis- og skipulagsnefndar um færslu hringvegar í Mýrdal og bar hana upp til atkvæða."

4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1116
Sigurjón Andrésson tók til máls undir 3. lið, Gamlabúð - auglýsing vegna leigu.
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tók til máls undir 4. lið, stýrihópur um byggingu nýs íþróttahúss.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tók til máls undir 4. lið, stýrihópur um byggingu nýs íþróttahúss.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 318
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Gjaldskrá vegna útleigu á húsnæði og munum í eigu sveitarfélagsins
Gjaldskrá um útleigu á húsnæði og muna í eigu sveitarfélagsins lögð fram til samþykktar. Þær breytingar sem gerðar eru á gjaldskránni eru að samræmi er gætt í útleigu á félagsheimilum. Einnig er skerpt á ákvæðum um leigu á íþróttahúsum.
Málinu er frestað til næsta fundar.
7.
Skipurit 2024
Jóna Benný Kristjánsdóttir vék af fundi undir þessum lið. Breytingar á skipuriti sveitarfélagsins, lagt er til að skipta umhverfis- og skipulagssviði upp í tvö svið umhverfis-og skipulagssvið og mannvirkjasvið. Brynja Dögg Ingólfsdóttir mun áfram leiða umhverfis- og skipulags hluta sviðsins, en Bartek Andresson Kass mun taka við nýju starfi sem sviðsstjóri mannvirkjasviðs og er breytingin gerð til eins árs. Með breytingunni færist starfsemi byggingarfulltrúa, öll rekstrarverkefni og umsjón verklegra framkvæmda, ásamt Hornafjarðarhöfn og slökkviliði, af umhverfis og skipulagssviði á nýtt mannvirkjasvið. Einnig leggur bæjarráð til að Jóna Benný Kristjánsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs verði staðgengill bæjarstjóra.
Sigurjón Andrésson tók til máls og gerði grein fyrir breytingum á skipuritinu.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.
"Bæjarfulltrúi Ásgerður Kristín Gylfadóttir óskar er eftir kostnaðarmati vegna þeirra breytinga sem gerðar hafa verið á skipuriti sveitarfélagsins frá nóvember ´23 þar til í dag, þ.e. í sviðstjóra fjármála og sviðstjóra stjórnsýslu, sviðstjóra umhverfis- og skipulagsmála og sviðstjóra mannvirkjasviðs auk þess að sviðstjóri stjórnsýslu verði staðgengill bæjarstjóra. Óskað er eftir því að upplýsingarnar verði lagðar fyrir bæjarráð fyrir næsta fund bæjarstjórnar í mars 2024."
Til andsvars Sigurjón Andrésson.
Til andsvars Ásgerður Kristín Gylfadóttir.
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls.
Til andsvars Ásgerður Kristín Gylfadóttir.
Forseti bar upp tillögu að umhverfis- og skipulagssvið verði skipt upp og í umhverfis- og skipulagsvið og mannvirkjasvið, Bartek Andreasson Kass mun taka við starfi sviðsstjóra mannvirkjasviðs til eins árs. Jóna Benný sviðsstjóri stjórnsýslusviðs verður staðgengill bæjarstjóra."

8.
Stýrihópur um byggingu nýs íþróttahúss
Erindisbréf stýrihóps um nýtt íþróttahús lagt fram. Markmið með stýrihópnum er að stýra vinnu og leita hagkvæmustu og bestu lausna við hönnun, byggingu og rekstur nýs íþróttahúss og leggi til grundvallar vinnu sinni þau gögn sem bæjarstjórn og/eða nefndirsveitarfélagsins hafa fjallað um t.d. skýrslur, þarfagreiningu, tillögur frá bæjarstjórn og annað sem hlotið hefur meðferð sveitarstjórnar eða starfsmanna sveitarfélagsins.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls.
Sigurjón Andrésson tók einnig til máls.
sForseti bar erindisbréfið upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Sigurjón Andrésson tók einnig til máls.
sForseti bar erindisbréfið upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024
Viðauki I við fjárhagsáætlun 2024 lagður fram. Aukafjárveiting er vegna ráðgjafar og þjálfunar fyrir sérfræðing í málefnum fatlaðra í Grunnskóla Hornafjarðar og fjárveiting í þróunarverkefnið, Ungt fólk og efling byggðar. Viðaukinn felur ekki í sér viðbótarlántöku þar sem útgjaldaaukningu er mætt með lækkun á handbæru fé.
Forseti bar viðauka I upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Notendaráð um málefni fatlaðs fólks
Endurskoðað erindisbréf fyrir notendaráð lagt fram. Notendaráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar um málefni fatlaðs fólks heyrir undir velferðarnefnd. Hlutverk notendaráðs um málefni fatlaðs fólks er að vera formlegur vettvangur samráðs og samstarfs við sveitarstjórn um hagsmuni fatlaðs fólks þar sem fjallað er um þjónustu við fatlað fólk, framkvæmd hennar og þróun
Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls.
Forseti bar erindisbréfið upp til samþykktar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar erindisbréfið upp til samþykktar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Umsókn - Lóð undir verslun og þjónustu
Sveitarfélagið og Staðarfjall ehf. gera með sér samning um lóðarvilyrði 8. febrúar 2024 í tengslum við uppbyggingu lóðar fyrir verslunar- og þjónustuhúsnæði við innkomu í þéttbýlið á Höfn á svæði sem merkt verður VÞ-51 í aðalskipulagi. Endanleg mörk lóðar ásamt kvöðum verða ákveðin eftir að deiliskipulag hefur verið unnið. Úthlutun lóðarinnar fer fram að beiðni Staðarfjalls ehf. þegar deiliskipulag er staðfest á grundvelli þessa lóðarvilyrðis.Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarvilyrðinu.
Sigurjón Andrésson tók til máls.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarvilyrðið.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki lóðarvilyrðið.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Heppuvegur 9 - Breyting á aðalskipulagi
Óveruleg breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Við Heppuveg er gert ráð fyrir að núverandi húsnæði verði breytt. Aðalskipulagsbreytingin felur í sér að heimilt verði að hafa gistingu í húsinu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki óverulega breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins skv. 2. mgr. 36. gr. skipulasglaga þar sem tillagan hefur ekki verulegar breytingar á landnotkun í för með sér eða sé líkleg til að hafa mikil áhrif á einstaka aðila eða hafa áhrif á stór svæði.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Rauðaberg 2 Lóð 1 - Breyting á aðalskipulagi
Lögð er fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi byggða á skipulagslýsingu sem var auglýst frá 19. desember 2023 til 15. janúar 2024. Um er að ræða afmörkun nýs verslunar- og þjónustusvæði á lóð Rauðabergs 2 Lóð 1.Umsagnir bárust frá RARIK, Skipulagsstofnun, Minjastofnun Íslands og Veðurstofu Íslands.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að kynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga og að tillagan verði send Skipulagsstofnun til skoðunar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. sömu laga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Skaftafell III-IV - Breyting á aðalskipulagi
Skipulagslýsing vegna breytingar aðalskipulagi sveitarfélagsins var auglýst frá 19. desember 2023 til 15. janúar 2024. Um er að ræða fyrirhugaða aukningu á uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu Skaftafell II og IV.Umsagnir bárust frá RARIK, Skipulagsstofnun, Veðurstofu Íslands, Minjastofnun Íslands og Umhverfisstofnun.Lögð er fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi sem er byggð á skipulagslýsingunni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki aðalskipulagstillöguna í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga og að tillagan verði kynnt og send Skipulagsstofnun til skoðunar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Skaftafell III og IV - Breyting á deiliskipulagi
Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Skaftafell III og IV.Skipulagslýsing vegna deiliskipulagsins var auglýst frá 19. desember 2023 til 15. janúar 2024. Um er að ræða fyrirhugaða uppbyggingu ferðaþjónustu á lóðinni nr. IV.Umsagnir bárust frá RARIK, Skipulagsstofnun og Veðurstofu Íslands.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagstillöguna og hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga samhliða breytingu á aðalskipulagi.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Umsókn um byggingarheimild - Hoffell 3, skemma
Björgvin Óskar Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið. Umsókn Þrúðmars S. Þrúðmarssonar um byggingarheimild fyrir geymsluhúsnæði sem fyrirhugað er að reisa að Hoffelli 3 þar sem áður stóð fjárhús.Grenndar kynning hefur farið fram.Einnig var óskað eftir umsögn Minjastofnunar sem barst ekki.Engin athugasemd barst.
Forseti lagði til að bæjarstjórn geri ekki athugasemd við að gefið verði út byggingarleyfi á grunni framlagðrar tillögu og samþykki grenndarkynninguna í samræmi við 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Samþykkt með sex atkvæðum.
17.
Tilkynning um framkvæmd - Hafnarbraut 24, breyting á gluggum
Sigríður Kristinsdóttir tilkynnir um framkvæmd á efri hæð Hafnarbrautar 24. Fyrirhugað er að endurnýja einn glugga án breytinga og skipta hægri glugga út fyrir hurð/neyðarútgang, til þess að koma húsinu í upprunalegt horf og til að bæta aðgengi að neyðarútgangi. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæði.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita leyfi til framkvæmda án deiliskipulagsgerðar þar sem framkvæmdin er í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar, sbr. 1.mgr. 44.gr. skipulagslaga, og að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem framkvæmd varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda, sbr. 3.mgr. 44.gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Fiskhóll 11 - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu
Breytingar á lóð Fiskhóls 11 voru grenndarkynntar öðru sinni skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, frá 21. desember 2023 með athugasemdarfresti til 21. janúar 2024.Engar athugasemdir bárust.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkir deiliskipulagsbreytinguna skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Umsókn um lóð - Sandbakkavegur 1
Umsókn Steinar Resort ehf. um lóð að Sandbakkavegi 1. Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni.
Forseti bar lóðarúthlutunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Umsókn um lóð - Sandbakkavegur 3
Umsókn Steinar Resort ehf. um lóð að Sandbakkavegi 3. Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni.
Forseti bar lóðarúthlutunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
21.
Kosningar í nefndir 2022-2026
Tillaga um skipan í notendaráð fatlaðs fólk og stýrihóp um nýtt íþróttahús.
Notendaráð fatlaðs fólks:
Gunnar Páll Halldórsson til vara Guðjón Örn Magnússon (K)
Tinna Rut Sigurðardóttir til vara Hjördís Edda Olgeirsdóttir (D)
Kolbrún Rós Björgvinsdóttir til vara Gunnar Ásgeirsson (B)
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Stýrihópur um byggingu nýs íþróttahús:
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir (K)
Björgvin Hlíðar Erlendsson (D)
Björgvin Óskar Sigurjónsson (B)