Bæjarstjórn Hornafjarðar
321. fundur
11. apríl 2024
kl.
15:00
-
16:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason
aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Tinna Rut Sigurðardóttir
2. varamaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Gunnar Ásgeirsson
1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir
sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1121
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir 1. lið - Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar, 3. og 9. lið Silfurbraut 44-46 - Fyrirspurn til skipulagsstjóra og Sandbakkavegur 1-3 - Fyrirspurn til skipulagsstjóra og undir lið 10 í fundargerð bæjarráðs - Áskorun til sveitarfélaga vegna kjarasamninga 2024.
Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls undir 1. lið - Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar, lið 17 - Kuðungurinn - tilnefningar.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls undir 1. lið - Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar, lið 17 - Kuðungurinn - tilnefningar.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1122
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir 1. - 3. lið; Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar, Íbúaráð Öræfum og Íbúaráð - Nes og Lón.
Tinna Rut Sigurðardóttir tók einnig til máls undir 1. - 3. lið og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Þar sem ljóst er að umferð um þjóðveg eitt á Suðurlandi hefur aukist gríðarlega síðustu ár, ekki síst hér í Hornafirði og ekki sér fyrir endann á. Vill bæjarstjórn leggja áherslu á það við Vegagerðina að fyrri áætlanir um tvö svokölluð T-vegamót á nýja veginum um Hornafjarðarfljót á milli Hafnar og Nesja verði endurskoðaðar.
Umferð mun aukast gríðarlega á næstu árum milli Hafnar og Nesja enda er fyrirhuguð stórbrotin uppbygging bæði í Hoffelli og við Skriðu sem fjölga gistirýmum margfalt.
Í Nesjum er þéttbýliskjarni, stór hótel og mikil gisting þegar í boði, tvö tjaldsvæði, flugvöllurinn okkar, gróðrarstöð, stór verktakafyrirtæki og steypustöð ásamt útivistarsvæðum og íþróttahúsi sem notað er fyrir börn sveitarfélagsins sem stunda fimleika. Þarna aka skólabílar daglega og umferðarþungi eykst stöðugt.
Bæjarstjórn óskar eftir samtali um hönnun vegarins þar sem núverandi hönnun er a.m.k. 15 ára gömul og allar forsendur sem voru fyrir hendi þá gjörbreyttar og allt aðrar."
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók jafnframt til máls undir sömu liðum. Hún tók einnig til máls undir lið 7 - Örútboð fyrir rafmagnskaup.
Forseti bar bókun Tinnu Rutar upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tinna Rut Sigurðardóttir tók einnig til máls undir 1. - 3. lið og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Þar sem ljóst er að umferð um þjóðveg eitt á Suðurlandi hefur aukist gríðarlega síðustu ár, ekki síst hér í Hornafirði og ekki sér fyrir endann á. Vill bæjarstjórn leggja áherslu á það við Vegagerðina að fyrri áætlanir um tvö svokölluð T-vegamót á nýja veginum um Hornafjarðarfljót á milli Hafnar og Nesja verði endurskoðaðar.
Umferð mun aukast gríðarlega á næstu árum milli Hafnar og Nesja enda er fyrirhuguð stórbrotin uppbygging bæði í Hoffelli og við Skriðu sem fjölga gistirýmum margfalt.
Í Nesjum er þéttbýliskjarni, stór hótel og mikil gisting þegar í boði, tvö tjaldsvæði, flugvöllurinn okkar, gróðrarstöð, stór verktakafyrirtæki og steypustöð ásamt útivistarsvæðum og íþróttahúsi sem notað er fyrir börn sveitarfélagsins sem stunda fimleika. Þarna aka skólabílar daglega og umferðarþungi eykst stöðugt.
Bæjarstjórn óskar eftir samtali um hönnun vegarins þar sem núverandi hönnun er a.m.k. 15 ára gömul og allar forsendur sem voru fyrir hendi þá gjörbreyttar og allt aðrar."
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók jafnframt til máls undir sömu liðum. Hún tók einnig til máls undir lið 7 - Örútboð fyrir rafmagnskaup.
Forseti bar bókun Tinnu Rutar upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1123
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir lið 6 - Breyting á opnunartíma Áhaldahúss, lið 16 - Nýjar heimasíður fyrir sveitarfélagið og stofnanir og lið 22 - Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2024.
Tinna Rut Sigurðardóttar tók til máls undir lið 3 - Fundargerð Atvinnu- og menningarmálanefndar, 3., 4. og 5. lið; Samgönguhátíð, 100 ára afmæli flugsögu Íslands og 80 ára afmæli lýðveldis Íslands.
Gunnar Ásgeirsson tók til máls undir lið 7 - Fjallamennskunám.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið 3 og fjallaði um lið 7 í fundargerð Atvinnu- og menningarmálanefndar; Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs.
Til andsvars Sigurjón Andrésson bæjarstjóri.
Ásgerður tók aftur til máls.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tinna Rut Sigurðardóttar tók til máls undir lið 3 - Fundargerð Atvinnu- og menningarmálanefndar, 3., 4. og 5. lið; Samgönguhátíð, 100 ára afmæli flugsögu Íslands og 80 ára afmæli lýðveldis Íslands.
Gunnar Ásgeirsson tók til máls undir lið 7 - Fjallamennskunám.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið 3 og fjallaði um lið 7 í fundargerð Atvinnu- og menningarmálanefndar; Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs.
Til andsvars Sigurjón Andrésson bæjarstjóri.
Ásgerður tók aftur til máls.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1124
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tók til máls undir lið 13 - Flugáætlun til Hafnar.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið 4 - Áskorun til sveitarfélaga vegna kjarasamninga 2024 og undir lið 5 - Skipurit 2024.
Til andsvars Sigurjón Andrésson bæjarstjóri.
Ásgerður tók aftur til máls.
Sigurjón aftur til andsvars.
Ásgerður tók aftur til máls.
Sigurjón aftur til andsvars.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið 4 - Áskorun til sveitarfélaga vegna kjarasamninga 2024 og undir lið 5 - Skipurit 2024.
Til andsvars Sigurjón Andrésson bæjarstjóri.
Ásgerður tók aftur til máls.
Sigurjón aftur til andsvars.
Ásgerður tók aftur til máls.
Sigurjón aftur til andsvars.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 320
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Fundartími bæjarstjórnar
Forseti lagði til að bæjarstjórn haldi aukafund 24. apríl kl. 12:00 vegna fyrri umræðu ársreiknings. Þá lagði hann til að fundur bæjarstjórnar sem halda á í maí verði haldinn 8. maí kl. 15:00 í stað 9. maí sem er uppstigningardagur.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Menningarstefna 2023
Menningarstefna sveitarfélagsins Hornafjarðar hefur verið samþykkt í fastanefndum sveitarfélagsins.Markmið með menningarstefnunni er að öll eigi tækifæri á að njóta, skapa og móta menningu og að vera bæði þátttakendur og neytendur lista.
Forseti bar nýja menningarstefnu sveitarfélagsins upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Úthlutunarreglur menningarstyrkja 2024
Breytingar á úthlutunarreglum menningarstyrkja lagðar fram til samþykktar. Breytingarnar felast í því að 4. gr. var bætt við reglur sem samþykktar voru á 1108. fundi bæjarráðs 28. nóvember 2023. Áréttað er að úthlutunarreglur eru miðaðar við verkefni sem tengjast sveitarfélaginu og íbúum þess.
Forseti bar breytingar á úthlutunarreglum menningarstyrkja upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Heilsuefling starfsmanna sveitarfélagsins
Uppfærðar reglur um framlag til heilsueflingar starfsmanna sveitarfélagsins. Reglurnar fela í sér þá breytingu að heilsueflingarstyrkur er hækkaður úr 15.000 kr. í 20.000 kr. og að auki er veittur heilsueflingarstyrkur fyrir árskorti í sundlaug Hafnar.
Forseti bar reglur um framlag til heilsueflingar starfsmanna sveitarfélagsins upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Reglur um starfsemi leikskóla
Breytingar á reglum um starfsemi leikskóla í Sveitarfélaginu Hornafirði. Í almennu reglunum um starfsemi leikskóla er því bætt við að systkinaafsláttur reiknast á eldra barn.Í viðauka vegna leikskólans Lambhaga breytast önnur og þriðja málsgrein. Í annarri málsgrein kemur fram að ekki er boðið upp á skráningardaga í Leikskólanum Lambhaga og er hann lokaður sem samsvarar þeim 20 dögum sem skráningardagar eru á Sjónarhóli m.a. í jóla-, páska- og vetrarfríum grunnskólans auk þess að vera með lengri sumarlokun.Einnig breytist þriðja málsgrein og í stað þriggja skipulags- og námskeiðsdaga fær leikskólinn Lambhagi nú sex skipulags- og námskeiðsdaga líkt og Sjónarhóll.
Forseti bar breytingu á reglum um starfsemi leikskólans Lambhaga upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðauka III við fjárhagsáætlun 2024. Aukafjárveiting vegna kaupa á nýjum sölubásum. Viðbótarfjárheimildum er mætt með lækkun á handbæru fé.
Forseti bar viðauka III við fjárhagsáætlun upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Barnaverndarþjónusta Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar - 2024
Endurnýjun samnings um barnaverndarþjónustu á milli Fjarðabyggðar og Hornafjarðar lagður fram.
Forseti bar samning um barnaverndarþjónustu upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Breyting á aðalskipulagi - stækkun miðsvæðis á Höfn
Lögð er fram breyting á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 þar sem miðsvæði Hafnar er stækkað sem nemur lóð að Álaugarvegi 2 og athafnasvæði minnkar að sama skapi. Stofnvegur tekur breytingum í samræmi við deiliskipulagstillögu svæðisins sem auglýst verður samhliða.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012 - 2030 um stækkun á miðsvæði á Höfn (M1) til austurs sem nemur lóð að Álaugarvegi 2 og athafnasvæði minnki að sama skapi í samræmi við 3. mgr. 30. skipulagslaga nr. 123/2010 og að tillagan verði auglýst í samræmi við 31. gr. sömu laga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Breyting á aðalskipulagi - Nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Höfn
Breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins fyrir nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Höfn. Tillagan var auglýst með athugasemdarfresti frá 15. febrúar til 28. mars 2024. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Minjastofnun Íslands og Vegagerðinni.
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri tók til máls.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins fyrir nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Höfn og geri svör umhverfis- og skipulagsnefndar að sínum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins fyrir nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Höfn og geri svör umhverfis- og skipulagsnefndar að sínum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Breyting á íbúðarbyggð ÍB5 á Höfn - Breyting á aðalskipulagi
Kynningarferli vegna breytinga á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna íbúðarsvæðis ÍB5 (Hagahverfi), með athugasemdarfresti frá 15. febrúar til 28. mars 2024.Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Minjastofnun Íslands og Vegagerðinni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti breytingu á aðalskipulagi skv. 32. gr. skipulagslaga og geri svör umhverfis- og skipulagsnefndar að sínum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Háhóll Dilksnes - Breyting á deiliskipulagi
Lagt fram erindi dagsett 4. apríl 2024 þar sem Finndís Harðardóttir óskar eftir óverulegi breytingu á deiliskipulagi Dilkness þar sem byggingarreitur er færður til. Með erindinu er lagt fram samþykki eiganda í nágrenninu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti óverulega breytingu á deiliskipulagi Dilksness í samræmi við framlögð gögn. Þar sem tillagan felur í sér óverulegar breytingar á notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi svæðisins og að breytingin hefur í engu áhrif á hagsmuni í grennd og falli frá grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Deiliskipulag - Víkurbraut 1
Gunnar Ásgeirsson vék af fundi undir þessum lið. Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir miðbæjarhverfi á Höfn: Víkurbraut 1 og 5, Álaugarveg 2 og Heppuveg 5 og 7. Samhliða eru lagðar fram breytingar á skipulagsmörkum aðliggjandi svæða. Meginmarkmið skipulagsins er að styrkja miðbæ Hafnar með fjölbreyttri uppbyggingu þar sem tekið er tillit til mannlegs umhverfis svo unnt sé að skapa lifandi miðbæjarkjarna þar sem gott mannlíf þrífst til samræmis við áherslur Aðalskipulags sveitarfélagsins. Stefnt er að því að styrkja stöðu Hafnar sem miðstöð verslunar og þjónustu á Suð-austurlandi með uppbyggingu þjónustumannvirkja í lifandi miðbæ í bland við aukna íbúðabyggð. Gert er ráð fyrir að slík uppbygging muni auka við fjölbreytta atvinnuhætti innan bæjarfélagsins m.a. með aukinni verslun og þjónustu fyrir heimamenn og ferðamenn.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir miðbæjarhverfi á Höfn; Víkurbraut 1 og 5, Álaugarveg 2 og Heppuveg 5 og 7 ásamt breytingum á skipulagsmörkum aðliggjandi svæða skv. 41. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Samþykkt með sex atkvæðum.
18.
Lóðir J og K, Útbæ Höfn - Breyting á deiliskipulagi
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Útbæjar á Höfn fyrir lóðina Ránarslóð 3 og lóð J-K. Breytingar verða á byggingarreitum og hámarkshæð hækkar úr tveimur hæðum í þrjár hæðir auk þess sem lóðir eru sameinaðar.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að deiliskipulagsbreytingin verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Hvammur, ferðaþjónustusvæði - Deiliskipulagsbreyting
Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hvamms í Lóni. Markmið breytingarinnar er að auka umsvif ferðaþjónustu á svæðinu. Breytingin er í samræmi við gildandi aðalskipulag, landnotkunarreit VÞ34.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Umsókn um byggingarheimild - Álaugarvegur 6, starfsmannabúðir
Gunnar Ásgeirsson vék af fundi undir þessum lið. Umsókn um byggingarleyfi fyrir tímabundnum vinnubúðum á lóð Skinneyjar-Þinganess að Álaugarvegi 6 vegna framkvæmda fyrirtækisins. Um er að ræða 26 stk. af 16 feta og 2 stk. af 20 feta gámaeiningum með 16 einstaklingsherbergjum, salerniseiningu, sturtueiningu og tæplega 60 m2 kaffi- og setustofu. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið.Byggingaráform voru grenndarkynnt frá 28. febrúar með athugasemdarfresti til 28. mars 2024. Engar athugasemdir bárust.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti byggingarleyfið þegar fyrirliggjandi gögn hafa borist.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Samþykkt með sex atkvæðum.
21.
Umsókn um byggingarheimild - Stafafellsfjöll 23, frístundahús
Sigríður Guðbjörg Garðarsdóttir og Aðalsteinn Guðmundsson óska eftir heimild til að víkja frá kröfum deiliskipulags frístundasvæðis í Stafafellsfjöllum í Lóni fyrir lóð nr. 23 vegna nýs húss sem fyrirhugað er að reisa á lóðinni. Frávik varðar mænisstefnu.Í greinargerð deiliskipulagsins er miðað við að húsin falli sem best að landi og að stefna aðalmænis fylgi sem mest meginstefnu í landinu og verði að jafnaði samsíða hlíðum. Staðsetning fyrirhugaðs húss er sýnd á uppdráttum, og er mænisstefna ekki samsíða hliðum. Húsið er á sama stað og með sömu mænisstefnu og fyrra hús.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að víkja frá kröfu um skipulagsbreytingu og grenndarkynningu þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn skv. 3.mgr. 43.gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
22.
Byggingarleyfisumsókn - Víkurbraut 2, breyting á notkun
Funaborg ehf. sækir um leyfi til að breyta hluta 1. hæðar Víkurbrautar 2. Um er að ræða breytingu á núverandi veitingasal og salernum í stigagangi hússins í fjórar íbúðir og núverandi eldhúsi í þvottahús. Ekki er til gildandi deiliskipulag, en samkvæmt aðalskipulagi er lóðin staðsett á miðsvæði M1. Samþykki annars eiganda í húsinu liggur fyrir. Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin sé í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti heimild til að gefa út byggingarleyfi vegna breytinga á hluta fyrstu hæðar Víkurbrautar 2 og að fallið verði frá grenndarkynningu þar sem framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda, í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
23.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 10
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir vék af fundi undir þessum lið. Melatangi ehf. óskar eftir breytingum vegna uppbyggingar á lóð að Álaugarvegi 10. Fyrirhugað er að sameina hluta lóðar við lóð nr. 8 og annan hluta við lóð nr. 12. Númeri lóðar 12 yrði þá breytt í nr. 10. Lóðarhafar þessara lóða eru sammála um að með nýju fyrirkomulagi muni nýtingarmöguleikar lóðanna aukast.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki breytingar á lóðum nr. 8, 10 og 12 við Álaugarveg í samræmi við framlagt mæliblað.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Samþykkt með sex atkvæðum.