Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

323. fundur
8. maí 2024 kl. 15:00 - 16:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Skúli Ingólfsson aðalmaður
Eyrún Fríða Árnadóttir aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1125
Málsnúmer 2404011F
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið nr. 1: Fundargerð velferðarnefndar, lið nr. 2 í fundargerð nefndarinnar: Öruggara Suðurland - Svæðisbundið samráð.
Eyrún Fríða Árnadóttir tók einnig til máls undir sama lið.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls að nýju undir sama lið.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1126
Málsnúmer 2404015F
Sigurjón Andrésson tók til máls undir lið nr. 20: Málþing um öryggisinnviði.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók einnig til máls undir lið nr. 20: Málþing um öryggisinnviði og lið nr. 4: Íþróttahús - hönnun.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1127
Málsnúmer 2404021F
Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls undir lið nr. 13: Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar, lið nr. 1 í fundargerð nefndarinnar: Hönnun - Ráðhús - endurbætur 1. hæð.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið nr. 6: Skipurit 2024.
Til andsvars Sigurjón Andrésson.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1128
Málsnúmer 2405001F
Sigurjón Andrésson tók til máls undir lið nr. 5: Umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamannastaða.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 322
Málsnúmer 2404017F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Ársreikningur 2023
Málsnúmer 202404081
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2023 lagður fram til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir ársreikningi sveitarfélagsins fyrir árið 2023. Einu breytingar sem gerðar voru á ársreikningnum frá fyrri umræðu í bæjarstjórn felast í uppfærslu á vátryggingarverðmætum.

Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tók til máls.

Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti ársreikninginn fyrir árið 2023.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Mannréttindastefna
Málsnúmer 202301007
Mannréttindastefna sveitarfélagsins Hornafjarðar hefur verið samþykkt í fastanefndum sveitarfélagsins. Fjölbreytni, jöfn meðferð og vernd gegn mismunun í víðum skilningi er leiðarstef Sveitarfélagsins Hornafjarðar og markmið stefnunnar er að uppfylla allar kröfur laga og reglna um mannréttindi.
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls.

Forseti bar mannréttindastefnu sveitarfélagsins upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Samningur um samræmda móttöku flóttafólks
Málsnúmer 202304055
Endurnýjaður samningur um samræmda móttöku flóttafólks lagður fram til staðfestingar. Samningurinn tekur til þjónustu sveitarfélagsins vegna samræmdrar móttöku flóttafólks. Samræmd móttaka flóttafólks stendur einstaklingum með vernd skv. 1. mgr. 3. gr. a. laga um málefni innflytjenda, nr. 116/2012, til boða, án tillits til þess með hvaða hætti fólkið hefur komið til landsins. Markmið samningsins er að samræma móttöku flóttafólks þannig að ríki og sveitarfélög tryggi flóttafólki samfellda og jafna þjónustu óháð því hvaðan það kemur.
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls.

Forseti leggur til að bæjarstjórn staðfesti samning um samræmda móttöku flóttafólks.
Tillagan er borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Yfirtaka og uppbygging eigna - Félagslegt leiguhúsnæði
Málsnúmer 202309012
Viljayfirlýsing á milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Bríetar leigufélags um uppbyggingu á leiguíbúðum í Sveitarfélaginu Hornafirði lögð fram.
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók einnig til máls.

Forseti bar viljayfirlýsingu sveitarfélagsins og Bríetar leigufélags um uppbyggingu á leiguíbúðum í Sveitarfélaginu Hornafirði upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Úrskurður - Kæra vegna gatnagerðagjalda Hagaleiru 11
Málsnúmer 202202048
Á fundi bæjarráðs 9. apríl sl. tók bæjarráð upp ákvörðun sína frá 6. janúar 2021, um að hafna erindi lóðarhafa um endurgreiðslu gatnagerðargjalda að Hagaleiru 11. Endurupptaka málsins fór fram í ljósi bréfs Innviðaráðuneytisins, dags. 6. mars 2024, sem bar yfirskriftina: Fyrirmæli innviðaráðuneytisins skv. 3. tölul. 2. mgr. 112. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Í niðurlagi bréfsins koma fram þau fyrirmæli ráðuneytisins að fella úr gildi ákvörðun bæjarráðs frá 6. janúar 2021 um að hafna beiðni málshefjanda um niðurfellingu gatnagerðargjalda vegna Hagaleiru 11 á Höfn og taka beiðni málshefjanda til lögmætrar meðferðar.Til grundvallar nýrri ákvörðun leitaði bæjarráð enn á ný ráðgjafar óháðs lögmanns um málið. Niðurstaða bæjarráðs var sú að á grundvelli þeirra laga og reglna sem málið byggir á væri ekki heimild til að samþykkja beiðni lóðarhafa að Hagaleiru 11 um niðurfellingu gatnagerðargjalda og var beiðninni því hafnað að nýju, með vísan til gjaldskrár embættis byggingar- og skipulagsfulltrúa, sem í gildi var við úthlutun lóðarinnar þann 6. október 2020 og hjálagðrar greinargerðar, þar sem gerð er ítarleg grein fyrir sjónarmiðum bæjarráðs í málinu. Samkvæmt 33. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar skulu mál sem eru endurupptekin af bæjarráði lögð fyrir bæjarstjórn til endanlegrar afgreiðslu.
Forseti leggur til að bæjarstjórn staðfesti ákvörðun bæjarráðs, frá 9. apríl sl., um að hafna erindi lóðarhafa að Hagaleiru 11 um endurgreiðslu gatnagerðargjalda vegna lóðarinnar.
Tillagan er borin upp til atkvæðagreiðslu.

Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Beiðni um endurskoðun gatnagerðargjalda fyrir Álaleiru 15
Málsnúmer 202404023
Á fundi bæjarráðs 9. apríl sl. tók bæjarráð ákvörðun sína, frá 15. febrúar 2023, um að hafna beiðni lóðarhafa að Álaleiru 15 um endurgreiðslu gatnagerðargjalda til endurskoðunar að beiðni lóðarhafa. Bæjarráð fór ítarlega yfir beiðni lóðarhafa og taldi að álagning gatnagerðargjalda væri í samræmi við þær reglur sem voru í gildi á þeim tíma sem lóðinni var úthlutað, þann 9. júní 2022 og var beiðninni hafnað á þeim grundvelli.Samkvæmt 33. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar skulu mál sem eru endurupptekin af bæjarráði lögð fyrir bæjarstjórn til endanlegrar afgreiðslu.
Forseti ber ákvörðun bæjarráðs, frá 9. apríl sl., um að hafna erindi lóðarhafa að Álaleiru 15 um endurgreiðslu gatnagerðargjalda vegna lóðarinnar upp til atkvæðagreiðslu.
Ákvörðun bæjarráðs er samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Umsókn um byggingarheimild - Viðborðssel, skemma
Málsnúmer 202403087
Bjarni Ingvar Bergsson sækir um byggingarheimild fyrir 343,5 m2 skemmu í landi Viðborðsels. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið en samkvæmt aðalskipulagi er um landbúnaðarland að ræða.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að víkja frá kröfu um grenndarkynningu þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggvarp eða innsýn skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga og heimili útgáfu byggingarleyfis í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um umsögn Minjastofnunar.

Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Umsókn um lóð - Sæbraut 4
Málsnúmer 202404045
Umsókn Gröfuþjónustu Olgeirs ehf. um lóð að Sæbraut 4. Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutuninni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti lóðarúthlutunina.
Samþykkt með sex atkvæðum.
14.
Leiðarhöfði - Deiliskipulag
Málsnúmer 202205086
Tillaga að deiliskipulagi Leiðarhöfða var auglýst frá 24. janúar með athugasemdarfresti til 6. mars 2024. Tilgangur deiliskipulagsins er að móta heildstætt skipulag fyrir Leiðarhöfða og styrkja hann sem áfangastað á Höfn. Markmiðið er að skipulagið auki aðdráttarafl Hafnar sem ferðamannastaðar og dragi til sín heimamenn auk þess að uppbyggingin falli vel að landi og nærliggjandi byggð, mannvirki verði lágstemmd og rýri ekki gæði þess. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, Náttúrustofu Suðausturlands, Minjastofnun Íslands og Náttúrufræðistofnun Íslands.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti deiliskipulagstillöguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Smyrlabjörg - Deiliskipulag
Málsnúmer 202310146
Deiliskipulag Smyrlabjarga var auglýst með athugasemdarfresti frá 22. janúar til 4. mars 2024. Skipulagsgögn hafa tekið breytingum eftir auglýsingu eftir að skýrsla um minjaskráningu lá fyrir.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti deiliskipulagstillöguna og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Stígá, efnisvinnsla - umsókn um framkvæmdarleyfi
Málsnúmer 202404078
Erindi dagsett 18. apríl 2024 þar sem Vegagerðin óskar eftir framkvæmdarleyfi í Stígá í Öræfum til að taka efni austan við varnargarð í farvegi og lágum eyrum Stígár. Efnistakan er í námu E 66 í aðalskipulagi. Jákvæð umsögn hefur borist frá Fiskistofu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að veita Vegagerðinni framkvæmdaleyfi í Stígá í Öræfum í samræmi við framlagða beiðni þeirra.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Hvalvörðugilslækur í landi Hofs - Deiliskipulag
Málsnúmer 202403001
Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi svæðis við Hvalvörðugilslæk í landi Hofs í Öræfum. Samhliða er lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags.Meginmarkmið skipulagsins er að bjóða ferðamönnum upp á stoppistöð þar sem safnast er saman í sérferðir, t.d. inn á jökul eða aðrar áhugaverðar ferðir í fylgd með reyndum leiðsögumönnum. Boðið verður upp á veitingasölu og geta ferðamenn skilið bíla/farangur eftir yfir daginn og gengið eða tekið aðra farmöguleika, s.s. rútur að áhugaverðum viðkomustöðum. Ferðamönnum gefst tækifæri til að njóta náttúrunnar sem svæðið hefur upp á að bjóða með ýmsum afþreyingarmöguleikum og skapast tækifæri til að lengja viðkomutíma ferðamanna í sveitarfélaginu.
Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls.

Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Umsókn um breytingu aðalskipulags í landi Hofs í Öræfum og landskipti
Málsnúmer 202305061
Lögð er fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030, vegna nýs verslunar- og þjónustusvæðis í landi Hofs í Öræfum ásamt ofanflóðamati. Samhliða er lögð fram tillaga að deiliskipulagi.Með aðalskipulagsbreytingunni er verið að auka uppbyggingu á ferðaþjónustu í Öræfum. Samhliða uppbyggingunni styrkist tekjugrundvöllur íbúa og atvinnumöguleikar í Öræfum.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að auglýsa tillöguna í samræmi við 31. gr. skipulagslaga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 321
Málsnúmer 2404007F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.