Bæjarstjórn Hornafjarðar
324. fundur
13. júní 2024
kl.
15:00
-
15:45
Fundarhús í Lóni
Nefndarmenn
Gauti Árnason
aðalmaður
Tinna Rut Sigurðardóttir
2. varamaður
Skúli Ingólfsson
aðalmaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
2. varamaður
Gunnar Ásgeirsson
1. varamaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1129
Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls undir lið nr. 4: Málþing um öryggisinnviði og öryggisviðbragð í Öræfum og Suðursveit í sumar. Gunnar Ásgeirsson tók til máls undir lið nr. 3: Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar; lið nr. 1: Skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1130
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tók til máls undir lið nr. 5: Starfsemi Kátakots og lið nr. 6: Útboð: Sindrabær - breytingar 2024. Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls undir lið nr. 6: Útboð: Sindrabær - breytingar 2024, undir lið nr. 8: Vegur á milli Nesja og Hafnar - Hringtorg og undir lið nr. 9: Útboð á flugi til Hornafjarðar.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1131
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir lið nr. 4: Gamlabúð. Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls undir lið nr. 2: Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar; lið nr. 2 í fundargerð nefndarinnar: Myndavefur héraðsskjalasafnsins. Nálgast má myndavefinn á eftirfarandi slóð: https://hornafjordur.myndahlada.is/Tinna Rut tók jafnframt til máls undir lið nr. 3: Starfsemi Ríkis Vatnajökuls.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1132
Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls undir lið nr. 1: Hafnarstjórn Hornafjarðar; lið nr. 3 í fundargerð hafnarstjórnar: Rekstur Hornafjarðarhafnar, undir lið nr. 3 í fundargerð bæjarráðs: Beiðni um afnot salernisaðstöðu í Mánagarði og lið nr. 9: Umsókn í framkvæmdasjóð aldraðra.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1133
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir lið nr. 1: Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar; lið nr. 7 í fundargerð nefndarinnar: Hagahverfi - Deiliskipulag íbúabyggðar vegna ÍB5 og jafnframt undir fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar; lið nr. 8 í fundargerð nefndarinnar: Deiliskipulag verslun við aðkomu á Höfn. Þá tók hún til máls undir lið nr. 2 í fundargerð bæjarráðs: Íþróttahús - hönnun og lið nr. 3: Aukin eftispurn umfram framboð á flugsætum til Hafnar. Eyrún Fríða lagði fram eftirfarandi bókun: "Flugsamgöngur á milli landshluta eru gríðarlega mikilvægar fyrir byggðir landsins, bæði vegna skertrar þjónustu og öryggisinnviða á landsbyggðinni. Ljóst er að vegna aukins fjölda ferðafólks eykst eftirspurnin eftir flugsætum langt umfram framboð. Nú hafa ferðaþjónustufyrirtæki bókað stóran hluta af flugum til og frá Höfn í sumar sem hefur veruleg áhrif á íbúa svæðisins. Niðurstaða Vegagerðarinnar eftir opnun tilboða nú þann 30. Apríl var sú að hafna öllum tilboðum þar sem þau voru öll verulega yfir kostnaðaráætlun. Ljóst er að það fjármagn sem verkefnið krefst og það fjármagn sem fjármálaráðuneytið og Vegagerðin hafa áætlað í verkefnið tala ekki saman. Því skorar bæjarstjórn á Vegagerðina og ráðuneytið að veita nauðsynlegu fjármagni í verkefnið og ganga fljótt og örugglega til samninga og tryggja áframhaldandi flugsamgöngur á milli Hafnar og Reykjavíkur"Gunnar Ásgeirsson tók til máls undir lið nr. 2: Íþróttahús - hönnun og undir lið nr. 3: Aukin eftirspurn umfram framboð á flugsætum til Hafnar.
Forseti bar bókun Eyrúnar Fríðu upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 323
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
7.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024
Staðgengill bæjarstjóra gerði grein fyrir viðauka IV við fjárhagsáætlun 2024. Viðbótarfjárheimildum verður mætt með hækkun á lántöku um 20 milljónir króna. Um er að ræða ósk um aukafjárveitingu vegna endurbóta á Kátakoti að fjárhæð tíu og hálf milljón króna og vegna breytinga á 1. hæð ráðhússins að fjárhæð sautján milljónir og þrjúhundruð þúsund krónur.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti viðauka IV við fjárhagsáætlun.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Stýrihópur um byggingu nýs íþróttahúss
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir víkur úr stýrihópi um byggingu nýs íþróttahúss vegna anna. Þá er lagt fram uppfært erindisbréf fyrir stýrihóp um byggingu nýs íþróttahúss þar sem gert er ráð fyrir að sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs taki við sem starfsmaður hópsins í stað umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðamanns fasteigna sveitarfélagsins.
Forseti lagði til að Eyrún Fríða Árnadóttir tæki sæti Guðrúnar Stefaníu í hópnum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar uppfært erindisbréf fyrir stýrihóp um byggingu nýs íþróttahúss, þar sem sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs er starfsmaður stýrihópsins, upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar uppfært erindisbréf fyrir stýrihóp um byggingu nýs íþróttahúss, þar sem sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs er starfsmaður stýrihópsins, upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Farsældarráð
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Suðurlandi kallaði eftir afstöðu sveitarfélagsins til viðaukasamnings við sóknaráætlun landshluta um að landshlutasamtökin fái fjárhagslegan stuðning til að ráða verkefnastjóra í tvö ár til að útfæra starfsemi farsældarráða samkvæmt 5. gr. farsældarlaga. Þá óskaði stjórnin eftir umboði sveitarfélagsins til að gera slíkan viðaukasamning undir merkjum sóknaráætlunar við mennta- og barnamálaráðuneytið.
Forseti leggur til að bæjarstjórn samþykki að veita stjórn SASS umboð til að gera viðaukasamning undir merkjum sóknaráætlunar við Mennta- og barnamálaráðuneytið.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Byggingarleyfisumsókn - Dalbraut 2a til 2c, fjölbýlishús
Fallastakkanöf ehf. hefur sótt um byggingarleyfi fyrir þrjú fjölbýlishús við Dalbraut 2a, 2b og 2c. Grenndarkynning hefur áður farið fram, en þar sem byggingarleyfi hafði ekki verið gefið út innan eins árs frá afgreiðslu bæjarstjórnar þarf hún að fara fram að nýju sbr. 4.gr. 44.gr. skipulagslaga. Ný tillaga gerir ráð fyrir að húsin muni nýta útsýni betur. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið.Erindið var grenndarkynnt frá 11. apríl með athugasemdarfresti til 10. maí 2024.Engar athugasemdir bárust en umsögn barst frá Minjastofnun Íslands.Gunnar Ásgeirsson tók til máls. Til andsvars Eyrún Fríða Árnadóttir.
Forseti lagði til að bæjarstjórn heimilaði útgáfu byggingarleyfis á grunni framlagðrar tillögu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með fimm atkvæðum, Gunnar Ásgeirsson og Gunnhildur Imsland sitja hjá.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með fimm atkvæðum, Gunnar Ásgeirsson og Gunnhildur Imsland sitja hjá.
11.
Umsókn um byggingarheimild - Smárabraut 10, viðbygging
Benni Albert Friðþórsson og Eik Aradóttir sækja um byggingarheimild fyrir stækkun á íbúðarhúsi að Smárabraut 10 skv. framlögðum teikningum. Um er að ræða u.þ.b. 50 fm tengibyggingu milli húss og bílskúrs sem kemur til með að innihalda salerni og alrými. Ekki er til gildandi deiliskipulag fyrir svæðið.Erindið var grenndarkynnt 11. apríl með athugasemdarfresti til 10. maí 2024.Engin athugasemd barst.
Forseti lagði til að bæjarstjórn heimilaði útgáfu byggingarleyfis á grunni framlagðrar tillögu í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Lagt er fram, eftir auglýsingu, deiliskipulag fyrir skóla- og íþróttasvæði á Höfn. Samhliða deiliskipulaginu eru gerðar breytingar á afmörkun þriggja aðliggjandi skipulaga; miðbæjarskipulags, knattleikjahúss við Víkurbraut og íbúðarsvæðis á Leirum. Nýtt skipulag mun taka yfir hluta þessara skipulaga og eru skipulagsmörk samræmd og skilmálar endurskoðaðir. Einnig er lögð fram húsakönnun skipulagssvæðisins.Skipulögin voru auglýst frá 2. apríl með athugasemdafresti til 15. maí 2024. Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands og Vegagerðinni.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti tillögu að deiliskipulagi fyrir skóla- og íþróttasvæði Hafnar og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga ásamt aðliggjandi skipulögum; miðbæjarskipulagi, knattleikjahúsi við Víkurbraut og íbúðarsvæði á Leirum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Flatatún í Öræfum - Deiliskipulag
Deiliskipulag Hjáleigu og Flatatúns í Öræfum var auglýst frá 10. janúar með athugasemdarfresti til 21. febrúar 2024. Umsögn barst frá Minjastofnun Íslands og Vegagerðinni. Borist hafa skipulagsgögn vegna minja á svæðinu og umsagnir Minjastofnunar Íslands og Vegagerðarinnar.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti tillögu að deiliskipulagi Flatatúns og vísi henni í lögformlegt ferli samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Umsókn um framkvæmdarleyfi - Smyrlabjargarvirkun-Reynivellir
Rarik sækir um framkvæmdaleyfi til að plægja og leggja há- og lágspennustrengi auk uppsetninga spennistöðva í Suðursveit. Verkefnið er á þremur aðskildum svæðum frá Smyrlabjargarvirkjun að Reynivöllum. Umsögn barst frá Minjastofnun Íslands.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að veita Rarik framkvæmdaleyfi í samræmi við umsókn þeirra með fyrirvara um að brugðist verði við umsögn Minjastofnunar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum
15.
Rauðaberg 2 Lóð 1 - Breyting á aðalskipulagi
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 8. febrúar 2024 að auglýsa tillögu að breytingu Aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030. Um er að ræða nýtt 10,3 hektara verslunar- og þjónustusvæði að Rauðabergi 2, Lóð 1. Þar verður m.a. heimilað að reisa hótel/gistihús með allt að 50 gistirýmum.Tillagan var auglýst með athugasemdafresti frá 15. apríl til 27. maí 2024.Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands og Veðurstofu Íslands.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti breytingu á aðalskipulagi skv. 32. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Landeignaskrá Flatatún - sameining lóða
Suðureignir ehf. óska eftir samþykki bæjarstjórnar fyrir sameiningu lóðanna Flatatún L233486 og Flatatún spilda L236204.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti sameiningu lóðanna.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Umsókn um lóð - Silfurbraut 46
Umsókn frá Fallastakkanöf ehf. um lóð að Silfurbraut 46.Gunnar Ásgeirsson tók til máls. Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti lóðarúthlutunina.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Umsókn um lóð - Silfurbraut 44
Umsókn frá Fallastakkanöf ehf. um lóð að Silfurbraut 44.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti lóðarúthlutunina.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Umsókn um lóð - Sandbakkavegur 5
Umsókn frá Fallastakkanöf ehf. um lóð að Sandbakkvegi 5.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti lóðarúthlutunina.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Fundir bæjarstjórnar og bæjarráðs sumarið 2024
Forseti bar upp tillögu um að bæjarstjórn verði í sumarleyfi í júlí og lagði til að bæjarstjórn veitti bæjarráði fullt umboð til afgreiðslu mála frá 18. júní næstkomandi og út júlí eða þar til bæjarstjórn kemur aftur til starfa. Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi verður þá 15. ágúst 2024 og bæjarráð fundar á tveggja vikna fresti frá 18. júní til 13. ágúst næstkomandi.
Forseti bar tillögu um sumarleyfi bæjarstjórnar upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillögu um að bæjarstjórn veitti bæjarráði fullt umboð til afgreiðslu mála á meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillögu um að bæjarstjórn veitti bæjarráði fullt umboð til afgreiðslu mála á meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.