Bæjarstjórn Hornafjarðar
328. fundur
14. nóvember 2024
kl.
15:00
-
16:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason
aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Skúli Ingólfsson
aðalmaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 327
Mál tekið fyrir á mínútu 2:10 í upptöku.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1148
Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls undir lið númer 4: Kjörstaðir í Sveitarfélaginu Hornafirði og leggur til að bæjarstjórn geri bókun bæjarráðs að sinni: Kjörstaðir fyrir komandi kosningar verða í Hofgarði, Hrollaugsstöðum, Holti og Heppuskóla. Kjördeildir í Mánagarði og Heppuskóla verða sameinaðar í Heppuskóla.Vorið 2026 verður kjördeild í Holti sameinuð við kjördeild í Heppuskóla með tilkomu nýs þjóðvegs um Hornafjarðarfljót.Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir lið númer 1: fundargerð fræðslu- og frístundarnefndar númer 3: Frístundastyrkir 2024.Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið númer 1: fundargerð fræðslu- og frístundarnefndar númer 4: Móðurmálskennsla 2022 og undir lið númer 2: fundargerð velferðarnefndar, lið númer 3: Öldungaráð, lið númer 2: Framkvæmd byggingar hjúkrunarheimilis og lið númer 3: endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar.Sigurjón Andrésson til andsvars.Mál tekið fyrir á mínútu 2:30 í upptöku.
Forseti bar bókun Hjördísar Eddu Olgeirsdóttur upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1149
Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir lið númer 5: Ósk um aukafjárveitingu til að vinna úttekt á innleiðingu Barnvæns sveitarfélags. Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls undir lið númer 7: Atvinnu- og rannsóknasjóður. Staða sjóðsins og styrkverkefna. Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið númer 7: Atvinnu- og rannsóknasjóður. Staða sjóðsins og styrkverkefna og undir lið númer 1: Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar, lið númer 3: Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs. Sigurjón Andrésson til andsvars. Ásgerður Kristín Gylfadóttir til andsvars. Sigurjón Andrésson til andsvars. Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls undir lið númer 7: Atvinnu- og rannsóknasjóður. Staða sjóðsins og styrkverkefna. Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls undir lið númer 1: fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar lið númer 4: Menningarmiðstöð.Mál tekið fyrir á mínútu 15:20 í upptöku.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1150
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tók til máls undir lið númer 1: Fundargerð Hafnarstjórnar, lið númer 2: Loðnuveiðar fiskveiðiárið 2024 til 2025 og leggur til að bæjarstjórn geri bókun Hafnarstjórnar að sinni:Bæjarstjórn tekur undir bókun Hafnarstjórnar og lýsir yfir þungum áhyggjum af áhrifum mögulegs loðnubrests enda vinnsla uppsjávarafla ein af meginstoðum atvinnulífsins í Hornafirði.Ef ekki verður loðnuvertíð á næsta ári verður það annað árið í röð sem tekjutap af þeim völdum dynur yfir sveitarfélagið og samfélagið hér.Haustmælingar á loðnu gáfu þó vísbendingar um að hægt verði að gefa út upphafskvóta og því leggur bæjarstjórn Hornafjarðar áherslu á að Hafrannsóknarstofnun verði fjárhagslega undir það búin að fara í öflugar bergmálsmælingar í byrjun næsta árs til að hægt sé að ganga úr skugga um hvort ekki sé hægt að heimila þessar þjóðhagslega mikilvægu veiðar.Það er skýlaus krafa sjávarbyggða á Íslandi að ríkisvaldið sjái til þess að jafn mikilvæg stofnun og Hafrannsóknarstofnun sé fullfjármögnuð og gert kleift að halda úti öflugum rannsóknum á fiskistofnum þjóðarinnar til að hægt sé að tryggja sjálfbærar veiðar sem skipta sköpum fyrir sveitarfélögin og íslenskt efnahagslíf.Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls undir lið númer 7: Hjúkrunarheimilið Skjólgarður 50 ára.Mál tekið fyrir á mínútu 28:00 í upptöku.
Forseti bar bókun Guðrúnar Stefaníu Vopnfjörð Ingólfsdóttur upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1151
Sigurjón Andrésson tók til máls undir lið númer 7: Umf.Sindri - Samningur 2024.Mál tekið fyrir á mínútu 33:00 í upptöku.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Álagningarreglur 2025
Tillaga að álagningarreglum fyrir árið 2025.Útsvar 14,97%Fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði 0,37% af fasteignamati (óbreytt)Fasteignaskattur á opinb. húsnæði 1,32% (óbreytt)Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði 1,65% af fasteignamati (óbreytt)Lóðarleiga 1% af lóðamatiHolræsagjald samkvæmt gjaldskrá (óbreytt)Vatnsgjald samkvæmt gjaldskrá (óbreytt)Sorpgjöld samkvæmt gjaldskráMál tekið fyrir á mínútu 36:10 í upptöku.
Forseti bar álagningarreglurnar upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs 2024-2025
Umfjöllun um hækkun á gjaldskrám fræðslu- og frístundasviðs sem hækka eiga 1. janúar 2025. Fræðslu- og frístundarnefnd lagði til hóflegar hækkanir á gjaldskrám, að jafnaði kringum 3%. Sumt hækkaði ekkert en annað meira en 3%. Mál tekið fyrir á mínútu 39:50 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki hækkanir á gjaldskrám fræðslu- og frístundarsviðs.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Fjárhagsáætlun 2025
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fjárhagsáætlun ársins 2025 og þriggja ára áætlun 2026-2028. Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir árið 2025 eru eftirfarandi: Ráðgert er að rekstrartekjur A hluta árið 2025 verði 4.048.954 þús. Kr. en þær eru áætlaðar 4.016.805 þús. í afkomuspá fyrir yfirstandandi ár en voru 3.704.126 þús. kr. árið 2023.Rekstrargjöld A hluta á næsta ári eru áætluð 3.420.663 þús.kr. en eru áætluð 3.211.468 þús.kr. í útkomuspá þessa árs. Í áætlun ársins 2025 er rekstrarniðurstaða í A hluta jákvæð sem nemur 318.445 þús.kr. Í A og B hluta er ráðgert að rekstrartekjur verði samtals 4.464.379 þús.kr. en þær eru áætlaðar 4.539.256 þús.kr. í útkomuspá. Í áætlun ársins 2025 er rekstrarniðurstaða í A og B hluta því samtals jákvæð sem nemur 381.505 þús.kr.Gangi þessi áætlun eftir ráðgerum við að samantekið veltufé samstæðu frá rekstri í A og B hluta verði 817.489 þús.kr. og að fjárfesting nemi 1.477.146 þús. kr. Áætlaðar afborganir af langtímalánum 2025 eru 134.616 þús.kr. en samhliða verði tekin ný lán að upphæð 650 milljónir króna.Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls.Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls.Mál tekið fyrir á mínútu 41:10 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn vísi fjárhagsáætlun 2025-2028 til síðari umræðu bæjarstjórnar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Umsókn um framkvæmdaleyfi - fráveita á Höfn, áfangi 4a
Sveitarfélagið Hornafjörður sækir hér með um framkvæmdaleyfi fyrir 4. áfanga uppbyggingu fráveitukerfis Hafnar. Framkvæmdin felur í sér að koma fyrir skólplögn frá núverandi brunni úr 2. áfanga sem staðsettur er austan við Ásgarð (Ránarslóð 3), vestur með Ránarslóð að Sandbakkavegi og enda sunnan við Sandbakka 1. Skólplögn meðfram Ránarslóð munu koma til með að liggja undir núverandi gangstétt/göngustíg fyrstu 80 metrana og síðan liggur hún út í Höfðavík og liggur þar sunnan við núverandi göngustíg meðfram Ránarslóð og Sandbakkavegi og liggur síðan að lokum við hlið gangstéttar/göngustígs meðfram Sandbakkavegi. Einnig er um að ræða að tengja fráveitulagnir frá Bogaslóð við nýja skólplögn. Um er að ræða að grafa fyrir lögnum, þ.e. skólplögnum og brunnum ásamt rofvörn meðfram Ránarslóð, útvega lagnaefni, leggja lagnirnar, sanda kringum þær og fylla í lagnaskurð og jafna út fyllingu og ganga frá yfirborði. Hluti af lagnaleiðinni er undir gangstétt/göngustíg sem þegar er búið að leggja og eru klæddar með malbiki en að mestum hluta til liggja lagnir við hlið göngustígs og utan í malar- og grjótbakka meðfram Ránarslóð. Verkið inniheldur einnig rofvarnir utan á núverandi fyllingu undir götu og gangstíg meðfram Ránarslóð. Um er að ræða að koma fyrir burðarhæfri fyllingu, utan á hana kjarna og þar utan á grjótvörn skv. teikningum og verklýsingum. Verkið inniheldur einnig sögun, rif og förgun á malbiki sem getið er til í magnskrá.Mál tekið fyrir á mínútu 1:06:16 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkir að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. gr. skipulagslaga. Engar líkur eru á fornminjum á svæðinu og því ekki þörf á umsögn Minjastofnunar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Tjörn 4 - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Erindi dagsett 15.október 2024 þar sem Agnar Ólafsson sendir inn fyrirspurn vegna fyrirhugaðra landskipta á jörðinni Tjörn Holtar 2.Óskað er eftir áliti sveitarfélagsins um hvort fyrirhuguð landskipti og uppbygging samræmist skipulagsáætlun sveitarfélagsins.Svæðið er landbúnaðarland samkvæmt gildandi aðalskipulagi og ekkert deiliskipulag er í gildi. Ný lóð mun verða 4,3 ha. og er fyrirhugað að reisa þar íbúðarhús.Mál tekið fyrir á mínútu 1:09:00 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn geri ekki athugasemd við afmörkun lóðar og skiptingu hennar úr upprunalandi enda samræmist hún skipulagsáætlunum og telur að stofnun lóðarinnar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Björgvin Óskar Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Björgvin Óskar Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
11.
Landskipti - Flatey
Lögð er fram fyrirspurn frá Flateyjarbúinu um hvort skipting lands samræmist skipulagsáætlun sveitarfélagsins. Fyrirhugað er að klára framkvæmdir á mannvirki sem ætlað var sem kornhlaða. Til stendur að afmarka sérstaka lóð um 1 ha úr landi Flateyjar L160084 undir mannvirkið og ljúka við byggingu þess en með breytingum frá upphaflegum áætlunum.Mál tekið fyrir á mínútu 1:10:20 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn geri ekki athugasemd við afmörkun lóðar og skiptingu hennar úr upprunalandi enda samræmist hún skipulagsáætlunum og telur að stofnun lóðarinnar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Forseti bar erindið upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar erindið upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Byggingarleyfisumsókn - Silfurbotn 1, 3, 5 - raðhús
Sótt er um byggingarleyfi til að reisa steinsteypt þriggja íbúða raðhús á lóðunum Silfurbotn 1, 3 og 5. Áform um framkvæmdir og frávik frá deiliskipulagi var grenndarkynnt í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 2. september með athugasemdafresti til 30. september 2024.Málinu var frestað 2. október 2024. Lögð eru fram ný gögn er varða umsóknina ásamt óverulegri deiliskipulagsbreytingu.Mál tekið fyrir á mínútu 1:11:20 í upptöku.
Brugðist hefur verið við athugasemdum sem fram komu í grenndarkynningu. Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að veita undanþágu frá skilmálum gildandi deiliskipulags um þéttingu byggðar í innbæ samkv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem um svo óverulegt frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Björgvin Óskar Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Björgvin Óskar Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
13.
Hringvegur um Hornafjörð, breyting á tengingum, beiðni um umsögn um matskyldu
Tekin er fyrir beiðni frá Skipulagsstofnun dags. 9. október 2024 um umsögn vegna fyrirspurnar um matsskyldu vegna áforma um að gera hringtorg í stað tveggja T-gatnamóta á vegkaflanum á milli Hafnar og Nesja. Framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030.Mál tekið fyrir á mínútu 1:13:10 í upptöku.
Forseti bar upp eftirfarandi bókun.
Bæjarstjórn telur að nægjanlega sé gerð grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, umhverfisáhrifum og mótvægisaðgerðum. Bæjarstjórn telur að framkvæmdin skuli ekki háð umhverfismati að teknu tilliti til viðmiða í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Framkvæmdin er framkvæmdaleyfisskyld.
Forseti bar bókunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Bæjarstjórn telur að nægjanlega sé gerð grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, umhverfisáhrifum og mótvægisaðgerðum. Bæjarstjórn telur að framkvæmdin skuli ekki háð umhverfismati að teknu tilliti til viðmiða í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Framkvæmdin er framkvæmdaleyfisskyld.
Forseti bar bókunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Landeignaskrá - Breiðabólsstaðir, ný lóð
Óskað er eftir að stofnuð verði ný lóð úr landi Breiðabólsstaðar undir fjarskiptamastur. Áður var sótt um heimild fyrir stofnun 100 fm lóða, en nú er ljóst að lóðin þurfi að vera 280 fm að stærð.Mál tekið fyrir á mínútu 1:14:30 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn geri ekki athugasemd við afmörkun lóðar og skiptingu hennar úr upprunalandi enda samræmist hún skipulagsáætlunum og telur að stofnun lóðarinnar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Hreinlætisaðstaða á tjaldsvæði á Höfn - Breyting á deiliskipulagi
Sótt er um leyfi fyrir hönd Þjónustumiðstöðvar SKG ehf. til að setja upp tvo gáma fyrir salernis- og baðaðstöðu á tjaldsvæðinu á Höfn.Mál tekið fyrir á mínútu 1:15:30 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að gera óverulega breytingu á deiliskipulagi tjaldsvæðis og íbúðarsvæðis við Fiskhól í samræmi við 2. málsgrein 43. greinar skipulagslaga þannig að heimilt verði að staðsetja á lóðinni gáma fyrir salernis- og baðaðstöðu tímabundið þar til viðbygging þjónustuhúss hefur risið og að tillagan feli í sér óverulegar breytingar á notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi svæðisins og að breytingin hafi í engu áhrif á hagsmuni í grennd og því ekki þörf á grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.