Bæjarstjórn Hornafjarðar
341. fundur
21. október 2025
kl.
15:00
-
15:12
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason
aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Tinna Rut Sigurðardóttir
1. varamaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
1. varaforseti
Gunnar Ásgeirsson
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Vegir í náttúru Íslands - Endurskoðun aðalskipulags
Lögð fram skrá yfir vegi í náttúru Íslands í samræmi við reglugerð nr. 260/2018 um vegi í náttúru Íslands samkvæmt lögum um náttúruvernd, sbr. tengil á vefsjá https://geo.alta.is/hornafjordur/vini/.Umhverfis- og skipulagsnefnd lagði til við bæjarstjórn að skráin yrði send til umsagnar sbr. 2. mgr. 2. gr. framangreindrar reglugerðar. Jafnframt verði skráin auglýst samhliða aðalskipulagstillögu.Mál tekið fyrir á 1:45 mínútu.
Forseti lagði til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu umhverfis- og skipulagsnefndar og fela skipulagsfulltrúa að senda skránna til umsagnar skv. 2. mgr. 2.gr. reglugerðar nr. 260/2018.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Lögð fram bókun umhverfis- og skipulagsnefndar frá 1. október sl. ásamt minnisblaði með svörum nefndarinnar við umsögnum sem bárust á kynningartíma aðalskipulagstillögu á vinnslustigi, sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Lögð fram eftirfarandi skipulagsgögn sem hafa verið uppfærð til samræmis við framangreind svör: ● Skipulagsgreinargerð (A1609-180-U4)● Forsendu- og umhverfismatsskýrsla (A1609-179-U04)● Fjórir skipulagsuppdrættir fyrir dreifbýli (A1609-181-U01 Öræfi, A1609-182-U01 Suðursveit og Mýrar, A1609-183-U01 Nes og Lón A1609-185-U01 Fjalllendi)● Þéttbýlisuppdráttur fyrir Höfn og Nesjahverfi (A1609-184-U01)● Þemauppdráttur um náttúruvernd (A1609-186-U01)● Aðalskipulagsvefsjá (https://geo.alta.is/hornafjordur/ask/)● Yfirlit umsagna um vinnslutillögu og svör samþykkt af umhverfis- og skipulagsnefnd.Nefndin leggur til að bæjarstjórn sendi aðalskipulagstillöguna til athugunar Skipulagsstofnunar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga.Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls. Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls.Mál tekið fyrir á 3:45 mínútu.
Bæjarstjórn hefur fjallað um framlögð skipulagsgögn.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki tillögu umhverfis- og skipulagsnefndar og að fela skipulagsfulltrúa að senda aðalskipulagstillöguna til athugunar Skipulagsstofnunar.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki tillögu umhverfis- og skipulagsnefndar og að fela skipulagsfulltrúa að senda aðalskipulagstillöguna til athugunar Skipulagsstofnunar.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Framkvæmd byggingar hjúkrunarheimilis
Sveitarfélagið veitti Framkvæmdasýslunni og Ríkiseignum (FSRE) umboð til að rifta verksamningi við Húsheild ehf. um byggingu nýs hjúkrunarheimilis á Höfn. Sveitarfélagið hefur einnig undirritað samkomulag við íslenska ríkið um að ríkið taki yfir ábyrgð, skuldbindingar og réttindi sem tengjast framkvæmdinni, bæði hvað varðar nýbygginguna og endurbætur á eldra húsnæði Skjólgarðs.Þetta er mikilvæg niðurstaða og við vonum að verkefnið nái nú framgangi með öruggum og farsælum hætti til hagsbóta fyrir íbúa á Skjólgarði og samfélagið í Hornafirði.Mál tekið fyrir á 10:00 mínútu.
Málið var tekið fyrir og samþykkt í tölvupósti. Lagt fram til kynningar.