Bæjarstjórn Hornafjarðar
342. fundur
13. nóvember 2025
kl.
15:00
-
17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Steindór Sigurjónsson
3. varamaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Tinna Rut Sigurðardóttir
1. varamaður
Elías Tjörvi Halldórsson
1. varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
1. varaforseti
Gunnhildur Imsland
1. varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 340
Mál tekið fyrir á 4:30 mínútu.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
2.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 341
Mál tekið fyrir á 4:40 mínútu.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1192
Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls undir lið númer 13- Styrkbeiðni vegna Legó hönnunarkeppni í Reykjavík.Gunnhildur Imsland tók til máls undir lið númer 13 - - Styrkbeiðni vegna Legó hönnunarkeppni í Reykjavík, lið númer 1- Fræðslu- og frístundanefnd - 129- lið númer 7 Barna og ungmennaþing 2025 og undir lið númer 10- Kvennaverkfall 2025.Mál tekið fyrir á 4:55 mínútu.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1193
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið númer 4-Framkvæmd byggingar hjúkrunarheimilis. Sigurjón Andrésson tók til máls undir lið númer 19- Hjúkrunarheimili.Mál tekið fyrir á 8:50 mínútu.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1194
Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls undir lið númer 6 - Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs og bar upp bókun.Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls undir lið númer 2- Atvinnu- og menningarmálanefnd - 80, liður númer 8- Skaftfellingur.Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið númer 6- Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs.Sigurjón Andrésson tók til máls undir lið númer 6- Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs. Ásgerður Kristín Gylfadóttir til andsvars. Sigurjón Andrésson til andsvars. Mál tekið fyrir á 19:50 mínútu
Bæjarstjórn Hornafjarðar lýsir yfir áhyggjum af stöðu þjóðgarðsvarðar á Höfn. Það er mikilvægt að staða þjóðgarðsvarðar verði áfram staðsett í Sveitarfélaginu Hornafirði í samræmi við hlutverk svæðisins og tengsl þjóðgarðsins við nærsamfélagið. Bæjarstjórn tekur undir með svæðisráði, stjórn þjóðgarðsins og atvinnu- og menningarmálanefnd um mikilvægi þess að staða þjóðgarðsvarðar á austurhluta suðursvæðis þjóðgarðsins verði auglýst sem fyrst. Suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs er bæði víðfemt og fjölsótt. Beint er til Náttúruverndarstofnunar að tryggja stöðu þjóðgarðsvarðar enda sé samstarf við þjóðgarðinn forsenda mikilvægs hluta atvinnulífsins í sveitarfélaginu.
Forseti bar bókunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
Forseti bar bókunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
6.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1195
Mál tekið fyrir á 45:40 mínútu.
Lagt fram til umræðu og kynningar.
7.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1196
Mál tekið fyrir á 45:50 mínútu
Lagt fram til umræðu og kynningar.
8.
Fjárhagsáætlun 2026
Máli frestað.
9.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2025
Viðauki 12 við fjárhagsáætlun 2025, vegna óskar um aukafjárveitingu vegna skólaskoðunar, óskar um styrk vegna Legó hönnunarkeppni í Reykjavík og óskar um vegaframkvæmd á Miðósi að upphæð 8,1 m.kr. lagður fram til samþykktar.Viðbótarfjárheimildum verður mætt með lántöku.Mál tekið fyrir á 46:40 mínútu
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti viðauka 12 og bar hann upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum
Samþykkt með sjö atkvæðum
10.
Kosning í nefndir
D- listi óskar eftir breytingu á nefndarmönnum í Atvinnu- og menningarmálanefnd.Hjördís Edda Olgeirsdóttir víkur sem varaformaður. Nýr varaformaður verður Steindór Sigurjónsson, nýr aðalmaður verður Tinna Rut Sigurðardóttir, 1. varamaður verður Níels Brimar Jónsson og 2. varamaður verður Hjördís Edda Olgeirsdóttir.Mál tekið fyrir á 47:30 mínútu
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti breytingu á nefndarmönnum D-lista.
Tillagan var borin upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum
Tillagan var borin upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum
11.
Breyting á reglum um gjaldskrá lengdrar viðveru - Kátakots
Lagðar eru fram breytingar á reglum um Kátakot sem kveða á um 30% afslátt fyrir einstæða foreldra. Mál tekið fyrir á 48:15 mínútu
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti breytingu á reglum um Kátakot.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Verklag vegna styrkja og auglýsinga
Breyting á reglum um úthlutun menningarstyrkja ásamt matsramma lagt fram til samþykktar. Minnisblað um breytingar á fyrirkomulagi styrkja lagt fram til upplýsinga.Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls. Steindór Sigurjónsson tók til máls. Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls. Mál tekið fyrir á 48:50 mínútu
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti uppfærðar reglur um úthlutun menningarstyrkja sveitarfélagsins.
Tillagan borin upp til atkvæða
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Reglur um notendastýrða persónulega aðstoð
Lagðar eru fram nýjar reglur um notendastýrða persónulega aðstoð við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.Mál tekið fyrir á 56:55 mínútu
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti reglur um notendastýrða persónulega aðstoð.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Barnaverndarþjónusta Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Undanfarna mánuði hefur verið unnið að gerð framkvæmdaáætlunar Barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar (BFSH).Gert var samkomulag við Sigur ráðgjöf um að annast gerð áætlunar í samstarfi við stjórnendur þjónustunnar.Framkvæmdaáætlun Barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar lögð fram.Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls. Mál tekið fyrir á 58:00 mínútu
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti framkvæmdaáætlunina.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Landeignaskrá: Stafafell - Merkjalýsing
Lagt er fram erindi þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á merkjalýsingu fyrir Stafafell fjárhús, þar sem gert er ráð fyrir uppskiptingu landeignar.Mál tekið fyrir á 1:01:10 mínútu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn gerði ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48. gr. skipulagslaga.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Landeignaskrá - Sandfell bílastæði, uppskipting
Lagt er fram erindi þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á merkjalýsingu fyrir Sandfell, þar sem gert er ráð fyrir uppskiptingu landeignar.Mál tekið fyrir á 1:02:00 mínútu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn gerði ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48. gr. skipulagslaga.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Umsókn um framkvæmdarleyfi - Hoffell II, Jarðtæknirannsóknir
Tekin er fyrir umsókn Ferðaþjónustunnar Hoffells ehf. þar sem óskað er eftir að framkvæma um 30 prufuholur á um 5.000 m² svæði á jökulöldunni við Hoffellslón. Engar jarðtæknilegar rannsóknir hafa farið fram á svæðinu fram til þessa og því er óvissa um jarðvegs- og grundunaraðstæður. Gert er ráð fyrir að rannsóknir fari fram veturinn 2025-2026.Elías Tjörvi Halldórsson tók til máls.Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls. Mál tekið fyrir á 1:02:45 mínútu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að útgefið verði framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Framkvæmdin er ekki háð mati á umhverfisáhrifum skv. viðauka 1 í lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Umsókn um framkvæmdarleyfi - Hagahverfi, áfangi 1 - innviðauppbygging
Tekin er fyrir umsókn um framkvæmdaleyfi vegna vegagerðar og vinnu við veitur vegna fyrsta áfanga Hagahverfis. Fyrirhugað er undirbúa lagna- og gatnagerð fyrsta áfanga en í honum er gert ráð fyrir að fjarlægja um 15.000m³ og koma fyrir um 12.000 m³ í fyllingar. Umframjarðvegi verði komið í manir skv. gildandi deiliskipulagi en það umframefni sem ekki verður nýtt í manir fari á efnislosunarstað. Á hluta vegsvæðis verður komið fyrir fargi. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.Mál tekið fyrir á 1:11:45 mínútu.
Forseti leggur til að bæjarstjórn samþykkir að útgefið verði framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Framkvæmdin er ekki háð mati á umhverfisáhrifum skv. viðauka 1 í lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Umsókn um framkvæmdarleyfi - Heimtaug við nýtt hringtorg
Tekin er fyrir umsókn Rarik um að plægja rafstreng frá Stekkakletti að fyrirhuguðu hringtorgi við nýjan hringveg. Um er að ræða um 350m langan lágspennustreng.Umhverfis- og skipulagsnefnd mat framkvæmdina ekki framkvæmdaleyfisskylda þar sem framkvæmdin hefur óveruleg áhrif á umhverfið og ásýnd þess.Mál tekið fyrir á mínútu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn geri ekki athugasemd við afgreiðslu nefndarinnar.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.