Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

349. fundur
28. apríl 2026 kl. 13:00 - 13:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður
Skúli Ingólfsson aðalmaður
Eyrún Fríða Árnadóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir 1. varaforseti
Gunnar Ásgeirsson 1. varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Tjörvi Óskarsson Deildarstjóri upplýsingatæknideildar
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2025
Málsnúmer 202604097
Bæjarstjóri lagði ársreikning Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árið 2025 fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn og fór yfir helstu atriði hans. Rekstrartekjur á árinu námu 4.744 millj. kr. samkvæmt ársreikningi fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 4.276 millj. kr. Álagningarhlutfall útsvars var 14,97% sem er lögbundið hámark. Álagningarhlutfall fasteignaskatts í A-flokki var 0,37% en lögbundið hámark þess er 0,625% með álagi. Í B-flokki var álagningarhlutfallið 1,32% sem er lögbundið hlutfall og í C-flokki var álagningarhlutfallið 1,65% en lögbundið hámark með álagi er 1,65%. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 535 millj. kr., og rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 388 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2025 nam 7.728 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta nam um 6.425 millj. kr.Ársreikningurinn hefur fengið kynningu í bæjarráði að viðstöddum fulltrúum úr bæjarstjórn. Bæjarráð samþykkti ársreikninginn og vísaði til fyrri umræðu í bæjarstjórn.Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls. Hjördís Edda Olgeirsdóttir til andsvars. Mál tekið fyrir á 5:00 mínútu.
Forseti lagði til að ársreikningi 2025 verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Sveitarstjórnarkosningar 2026
Málsnúmer 202603035
Með vísan til 17. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 112/2021 er lögð fram tillaga að skipan undirkjörstjórna í fjórum kjördeildum í Sveitarfélaginu Hornafirði vegna komandi sveitarstjórnarkosninga.Lagt er til að eftirtaldir aðilar verði kosnir í undirkjörstjórnir:Suðursveit - Hrollaugsstaðir:Steinþór TorfasonJóna IngólfsdóttirJón SigfússonVaramenn:Arnór Már FjölnissonBirna Þrúður SigurbjörnsdóttirFriðrik Hrafn ReynissonHöfn, Nes og Lón - Heppuskóli:Bartek Andresson KassHafdís HafsteinsdóttirLaufey SveinsdóttirVaramenn:Sigríður KristinsdóttirÞorbjörg HelgadóttirBorgþór FreysteinssonMýrar - Holt:Arndís Lára KolbrúnardóttirBarði Erling BarðasonKatrín HaraldsdóttirVaramenn:Anna María KristjánsdóttirSigurður GuðmundssonIngunn IngvarsdóttirÖræfi - Hofgarður:Pálína ÞorsteinsdóttirHólmfríður GuðlaugsdóttirSigurður GunnarssonVaramenn:Bjarni Sigurður GrétarssonÞorsteinn ÓskarssonEinar Páll IngimundarsonGunnar Ásgeirsson tók til máls.Mál tekið fyrir á 24:15 mínútu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að kjósa framangreinda aðila í undirkjörstjórnir í samræmi við 17. gr. laga nr. 112/2021 um kosningar til Alþingis.

Tillagan var borin upp í heild sinni og samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Umsókn um lóð - Borgartún 5
Málsnúmer 202604084
Straumhvarf ehf. sækir um lóðina Borgartún 5 í Öræfum til þess að byggja á henni raðhús fyrir starfsfólk Arctic Adventures og fjölskyldur þeirra. Gert er ráð fyrir að húsnæðið verði framtíðarhúsnæði starfsfólksins.Straumhvarf ehf. hyggst fjármagna lóðina og framkvæmdina með eigið fé og fylgir ársskýrsla fyrirtækisins með sem fylgiskjal ásamt umsókninni.Mál tekið fyrir á 26:50 mínútu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti lóðarúthlutunina.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202303123
Á síðasta fundi bæjarstjórnar var málið tekið fyrir en fyrir fórst að leggja fram Skipulagsuppdrátt 1 Öræfi A1609-181-U02 með öðrum fundargögnum. Málið var því aftur lagt fyrir og samþykkt samhljóða af bæjarstjórn í tölvupósti, dags. 16. apríl 2026. Lögð er fram tillaga að Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2025-2040, dags. 9.4.2026, sem samanstendur af þessum skjölum:Skipulagsgreinargerð A1609-180-U06 með sýnil. br. eftir umsögn Skipul.st.Forsendu- og umhverfismatsskýrsla A1609-179-U06 með sýnil. br. eftir umsögn Skipul.st.Skipulagsuppdráttur 1 Öræfi A1609-181-U02Skipulagsuppdráttur 2 Suðursveit og Mýrar A1609-182-U02Skipulagsuppdráttur 3 Nes og Lón A1609-183-U02Skipulagsuppdráttur 4 Höfn og Nesjahverfi A1609-184-U02Skipulagsuppdráttur 5 Fjalllendi A1609-185-U02Þemauppdráttur um náttúruvernd A1609-186-U02Einnig liggur fyrir aðalskipulagsvefsjá, https://geo.alta.is/hornafjordur/ask/ sem sýnir landnotkunarreiti tillögunnar í samhengi við ýmis grunngögn.Bæjarstjórn samþykkti að auglýsa framlagða tillögu í samræmi við 31. gr. skipulagslaga og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls. Mál tekið fyrir á 27:30 mínútu.
Lagt fram til kynningar.