Bæjarstjórn Hornafjarðar
350. fundur
12. maí 2026
kl.
16:00
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason
aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
aðalmaður
Tinna Rut Sigurðardóttir
1. varamaður
Eyrún Fríða Árnadóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
1. varaforseti
Björgvin Óskar Sigurjónsson
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Tjörvi Óskarsson
Deildarstjóri upplýsingatæknideildar
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 348
Mál tekið fyrir á 4:00 mínútu.
Fundargerðin lögð fram til umræðu og kynningar.
2.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 349
Mál tekið fyrir á 4:10 mínútu.
Fundargerðin lögð fram til umræðu og kynningar.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1216
Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls undir lið númer 3 - Fræðslu- og frístundanefnd - 135, lið númer 1 - Ungmennaráð Hornafjarðar - 110, lið nr. 3 - Skuggakosningar 2026 (Sveitarstjórnarkosningar). Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tók til máls undir lið númer 3 - Fræðslu- og frístundanefnd - 135, lið númer 7 - Lengri opnun sundlaugar á þriðjudögum, tilraun í febrúar. Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið númer 3 - Fræðslu- og frístundanefnd - 135, lið númer 2 - Sumarfrístund 2026. Til andsvars Eyrún Fríða Árnadóttir. Mál tekið fyrir á 4:25 mínútu.
Fundargerðin lögð fram til umræðu og kynningar.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1217
Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls undir lið númer 11 - Atvikaskráning kjörinna fulltrúa. Mál tekið fyrir á 10:45 mínútu.
Fundargerðin lögð fram til umræðu og kynningar.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1218
Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls undir lið númer 9 - Umsókn um lóð - Borgartún 5. Til andsvars Eyrún Fríða Árnadóttir. Til andsvars Björgvin Óskar Sigurjónsson. Til andsvars Eyrún Fríða Árnadóttir. Til andsvars Ásgerður Kristín Gylfadóttir. Mál tekið fyrir á 15:35 mínútu.
Fundargerðin lögð fram til umræðu og kynningar.
6.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1219
Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls undir lið númer 10 - Niðurföll og götulýsing við hús Björgunarfélags Hornafjarðar. Til andsvars Eyrún Fríða Árnadóttir. Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir lið númer 1 - Íþróttahús - hönnun. Mál tekið fyrir á 21:00 mínútu.
Fundargerðin lögð fram til umræðu og kynningar.
7.
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2025
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2025 lagður fram til síðari umræðu í bæjarstjórn. Engar breytingar hafa átt sér stað frá fyrri umræðu. Bæjarstjóri gerði grein fyrir ársreikningnum og lagði hann fram til samþykktar. Mál tekið fyrir á 24:45 mínútu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti ársreikning Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árið 2025.
Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun ársins 2026 og fjárhagslegum áhrifum hans.Viðaukinn felur í sér breytingar á rekstri og fjárfestingum. Gert er ráð fyrir að mæta honum annars vegar með lækkun á handbæru fé að fjárhæð 43,70 m.kr. og hins vegar með tilfærslu fjárheimilda innan A hluta að fjárhæð 39,83 m.kr. Lækkun fjárheimilda í B hluta er sjálfstæð aðlögun að uppfærðri fjárfestingaráætlun og er ekki hluti af fjármögnun viðaukans.Meðfylgjandi yfirlit sýnir áhrif viðaukans á upphaflega samþykkta fjárhagsáætlun ársins.Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls. Mál tekið fyrir á 34:05 mínútu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti viðauka nr. 3 og bar hann upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði 2026
Samkvæmt 15. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar sbr. 1. tl. 1. mgr. 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, ber bæjarstjórn að hafa tvær umræður um samþykktir og aðrar reglur sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráðherra. Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði er því lögð fram til síðari umræðu í bæjarstjórn. Mál tekið fyrir á 40:15 mínútu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Hornafjörður náttúrulega
Samkvæmt 15. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar og 3. tl. 1. mgr. 18. gr. sveitarstjórnarlaga, skal sveitarstjórn hafa tvær umræður um stefnumarkandi áætlanir sem gilda eiga til lengri tíma og taka til sveitarfélags í heild eða meiri hluta þess. Heildarstefna sveitarfélagsins, Hornafjörður, náttúrulega! er lögð fram til annarrar umræðu.Mál tekið fyrir á 41:15 mínútu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti framlagða heildarstefnu sveitarfélagsins.
Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Samþykkt um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Lögð er fram tillaga að breytingum á samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa Sveitarfélagsins HornafjarðarUm er að ræða gagngera endurskoðun á samþykktinni þar sem ný samþykkt hefur verið unnin frá grunni en þó með sambærileg kjör fulltrúa og áður að leiðarljósi.Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls. Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls.Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls. Mál tekið fyrir á 42:20 mínútu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti uppfærða samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Breyting á deiliskipulagi moto-cross - Stækkun vegna fjallahjólabrautar
Lögð er fram tillaga að breytingu á Moto-cross svæði á Höfn. Breytingin felur í sér stækkun á skipulagssvæði og skilgreiningu á nýjum sportgreinum innan skipulagssvæðis, enduro- og fjallahjólabraut. Kynningarfundur vegna tillögunnar var haldinn 8. maí 2026.Sigurjón Andrésson tók til máls. Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls. Mál tekið fyrir á 48:55 mínútu.
Forseti lagði til að tillagan verði auglýst í samræmi við 4 mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti lagði jafnframt til að bæjarstjórn samþykkti að breytt landnotkun úr landbúnaðarlandi í íþróttasvæði verði tekin fyrir í yfirstandandi endurskoðun aðalskipulags.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti lagði jafnframt til að bæjarstjórn samþykkti að breytt landnotkun úr landbúnaðarlandi í íþróttasvæði verði tekin fyrir í yfirstandandi endurskoðun aðalskipulags.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Deiliskipulag - Jörðin Birgi í Borgarhöfn
Lögð er fram tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir jörðina Birgi í Suðursveit. Skipulagið gerir ráð fyrir uppbyggingu 3-4 stjörnu hótels. Skipulagssvæðið er sunnan við þjóðveg 1. Gert er ráð fyrir hótelbyggingu að stærð allt að 6.000 m² með um 216 gistirúmum. Hótelið verður reist úr forsmíðuðum einingum. Norðan við hótelbygginguna er gert ráð fyrir starfsmannaíbúðum á tveimur hæðum. Áformin eru hluti af endurskoðun aðalskipulags Hornafjarðar.Kynningarfundur vegna tillögunnar var haldinn 8. maí 2026. Mál tekið fyrir á 52:30 mín.
Forseti lagði til að tillagan verði auglýst í samræmi við 4 mgr. 40. gr. skipulagslaga.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Deiliskipulagsbreyting Skaftafell III og IV
Lögð er fram ósk Arctic Circle Hotels ehf. um breytingu á deiliskipulagi Skaftafells III og IV. Breytingin felur í sér að hámarkshæð bygginga verði lækkuð úr 6 m í 4 m. Hámarksflatarmál húsa verður áfram óbreytt eða um 64 m².Kynningarfundur vegna tillögunnar var haldinn 11. maí 2026.Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls. Mál tekið fyrir á 53:45 mínútu.
Forseti lagði til að tillagan verði kynnt og auglýst í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Umsókn um byggingarleyfi - Hafnarbraut 47, viðbygging
Lögð er fram umsókn um leyfi fyrir viðbyggingu við Hafnarbraut 47 (Brautarholt). Viðbyggingin samanstendur af kjallara og tveimur hæðum ásamt tvöföldum staðsteyptum bílskúr.Ekki er í gildi deiliskipulag sem nær yfir lóðina. Grenndarkynning hefur farið fram, engar athugasemdir bárust. Minjastofnun Íslands hefur veitt álit og gerir ekki athugasemd við fyrirhugaða framkvæmd.Mál tekið fyrir á 1:01:25 mínútu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að gefið verði út byggingarleyfi í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Umsókn um endurnýjun á framkvæmdarleyfi - Kálfafellsstaðarkirkja
Björgvin Óskar Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið. Lögð er fram beiðni um endurútgáfu framkvæmdaleyfis fyrir nýjan veg við Kálfafellsstaðarkirkju. Fyrra leyfi var gefið út þann 20. apríl 2021 og er því runnið úr gildi. Fyrir liggja umsagnir Minjastofnunar Íslands og Vegagerðarinnar sem gera ekki athugasemd við fyrirhugaða framkvæmd.Mál tekið fyrir á 1:02:40 mínútu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti að veita framkvæmdaleyfi skv. 13. grein skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
17.
Landeignaskrá - Skaftafell 3, umsókn um staðfestingu merkjalýsingar M003310
Björgvin Óskar Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið. Lögð er fram beiðni um samþykki merkjalýsingar vegna stofnunar lóðarinnar Sandbúðir 1a sem er áformuð um 17 ha.Umhverfis- og skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu. Nefndin taldi að stofnun lóðanna hefði ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48. gr. skipulagslaga. Umsækjanda var bent á að uppbygging og framkvæmdir hafi ekki verið heimilaðar á svæðinu umfram það sem gert var ráð fyrir í deiliskipulagi.Mál tekið fyrir á 1:03:30 mínútu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48. gr. skipulagslaga.
Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
18.
Landeignaskrá - Sandbúðir 3 umsókn um staðfestingu merkjalýsingar M003311
Björgvin Óskar Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið. Lögð er fram beiðni um samþykki merkjalýsingar vegna stofnunar lóðar Sandbúðir 4 sem er áformuð um 28 ha.Umhverfis- og skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu. Nefndin taldi að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48. gr. skipulagslaga. Umsækjanda var bent á að uppbygging og framkvæmdir hafa ekki verið heimilaðar á svæðinu umfram það sem gert er ráð fyrir í deiliskipulagi.Mál tekið fyrir á 1:04:50 mínútu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48. gr. skipulagslaga.
Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
19.
Landeignaskrá - Stafafellsfjöll 33, umsókn um staðfestingu merkjalýsingar M003543
Björgvin Óskar Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið. Lögð er fram umsókn um staðfestingu merkjalýsingar Stafafellsfjalla 33. Samkvæmt merkjalýsingu stækkar lóðin úr 0,3 ha og verður um 1,3 ha.Umhverfis- og skipulagsnefnd gerði ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu. Nefndin taldi að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48. gr. skipulagslaga. Umsækjanda var bent á að uppbygging og framkvæmdir hafi ekki verið heimilaðar á svæðinu umfram það sem gert er ráð fyrir í deiliskipulagi.Mál tekið fyrir á 1:06:00 mínútu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga, sbr. einnig 48. gr. skipulagslaga.
Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sex atkvæðum.
20.
Veglínur
Lagt fram erindi frá Sigrúnu Sigurgeirsdóttur þar sem óskað er eftir að bæjarstjórn taki undir beiðni til Vegagerðarinnar um skýrari og betri veglínur á þjóðvegum í sveitarfélaginu, sérstaklega á mjóum og hlykkjóttum köflum.Í erindinu kemur fram að Sigrún hafi áður sent Vegagerðinni ábendingu um mikilvægi góðra vegmerkinga, sérstaklega yfir vetrartímann þegar aðstæður geta verið erfiðar og skyggni takmarkað. Vegagerðin hafi tekið vel í erindið og brugðist jákvætt við.Bent er á mikilvægi skýrra veglína fyrir öryggi allra vegfarenda, þar á meðal íbúa sveitarfélagsins, ferðafólks, starfsfólks í ferðaþjónustu og annarra sem ekki eru staðkunnugir og reiða sig því í ríkari mæli á góðar vegmerkingar.Í samræmi við erindið leggur forseti til eftirfarandi bókun: Bæjarstjórn þakkar Vegagerðinni fyrir góð viðbrögð við ábendingum um mikilvægi skýrra veglína á þjóðvegum í sveitarfélaginu. Bæjarstjórn tekur undir mikilvægi þess að vegmerkingar séu skýrar og vel við haldið, sérstaklega á mjóum og hlykkjóttum vegköflum þar sem aðstæður geta verið krefjandi.Bæjarstjórn hvetur Vegagerðina til að leggja áfram áherslu á skýrar veglínur í sveitarfélaginu við framkvæmd sumarmálunar á vegum, enda séu þær mikilvægur þáttur í umferðaröryggi íbúa og gesta svæðisins.Mál tekið fyrir á 1:07:40 mínútu.
Forseti bar bókunina upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
21.
Kjörtímabilið 2022 - 2026
Forseti gaf orðið laust um kjörtímabilið sem nú er að líða undir lok. Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir tók til máls.Tinna Rut Sigurðardóttir tók til máls. Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls. Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls. Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls.Ásgerður Kristín Gylfadóttir tók til máls. Sigurjón Andrésson tók til máls. Mál tekið fyrir á 1:09:45 mínútu.