Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

354. fundur
15. október 2026 kl. 15:00 - 16:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason aðalmaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir 1. varaforseti
Eyrún Fríða Árnadóttir 2. varaforseti
Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður
Hjalti Þór Vignisson aðalmaður
Reynir Ásgeirsson aðalmaður
Ingibjörg Sveinsdóttir Forseti
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Tjörvi Óskarsson Deildarstjóri upplýsingatæknideildar
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 353
Málsnúmer 2608018F
Fundargerð bæjarstjórnar nr. 353 lögð fram.



Mál tekið fyrir á mínútu 9:30 í upptöku.
Fundargerðin lögð fram til umræðu og kynningar.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1233
Málsnúmer 2609006F
Fundargerð bæjarráðs nr. 1233 lögð fram.



Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir lið nr. 1: Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar - 13.



Hjalti Þór Vignisson til andsvars.

Gauti Árnason til andsvars.



Hjalti Þór Vignisson tók til máls undir lið nr. 7: Smíðarými í vöruhúsi og undir lið nr. 12: Uppbygging miðbæjar á Höfn.



Mál tekið fyrir á mínútu 9:50 í upptöku.
Fundargerðin lögð fram til umræðu og kynningar.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1234
Málsnúmer 2609011F
Fundargerð bæjarráðs nr. 1234 lögð fram.



Mál tekið fyrir á mínútu 14:00 í upptöku.
Fundargerðin lögð fram til umræðu og kynningar.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1235
Málsnúmer 2609014F
Fundargerð bæjarráðs nr. 1235 lögð fram.



Hjalti Þór Vignisson tók til máls undir lið nr. 2:

Atvinnu- og menningarmálanefnd - 91, lið nr. 8: Áframhald á ritun byggðarsögu og undir sömu fundargerð lið nr. 9: Skaftfellingur í hljóðbók. Þá tók hann til máls undir lið nr. 18: Veggjald um Hornafjörð og lagði fram eftirfarandi tillögu að bókun:



Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar fagnar þeim mikilvægu samgöngubótum sem felast í nýjum Hringvegi um Hornafjörð. Með framkvæmdinni styttist Hringvegurinn um 12 kílómetra, þrjár einbreiðar brýr heyra sögunni til og umferðaröryggi eykst til muna.

Bæjarstjórn lýsir hins vegar yfir verulegum áhyggjum af þeirri gjaldtöku sem tekin hefur verið upp á nýja veginum og telur brýnt að fyrirkomulag hennar verði endurskoðað með tilliti til hagsmuna íbúa og atvinnulífs í sveitarfélaginu. Það er ljóst að afsláttarkerfið mætir ekki þörfum reglulegra notenda.

Bæjarstjórn hefur ítrekað komið þessum sjónarmiðum á framfæri við ráðamenn og væntir þess að stjórnvöld bregðist við með raunhæfum breytingum á gjaldtökunni í nánu samráði við sveitarfélagið.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar skorar því á stjórnvöld að endurskoða gjaldtökuna án tafar og tryggja verulega lækkun veggjalda fyrir íbúa og aðra reglulega notendur vegarins, sveigjanlegra og hagstæðara afsláttarkerfi þar sem ferðir eru ekki bundnar við eitt ökutæki eða þröng tímamörk og að endingu að tekið verði sérstakt tillit til þess að vegurinn þjónar daglegum samgöngum innan eins og sama sveitarfélags.



Gauti Árnason tók til máls undir lið nr. 18: Veggjald um Hornafjörð.



Mál tekið fyrir á mínútu 14:20 í upptöku.
Fundargerðin lögð fram til umræðu og kynningar.

Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti framlagða bókun.

Tillagan borin upp til atkvæða.

Samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1236
Málsnúmer 2609018F
Fundargerð bæjarráðs nr. 1236 lögð fram.



Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir lið nr. 2: Hafnarstjórn Hornafjarðar - 286, lið nr. 6: Tímabundnar umferðaröryggisaðgerðir á hafnarsvæðinu.



Hjalti Þór Vignisson til andsvars.

Hjördís Edda Olgeirsdóttir til andsvars.

Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls öðru sinni.



Gauti Árnason tók til máls undir lið nr. 1: Umhverfis- og skipulagsnefnd - 121, lið nr. 10: Umsókn um byggingarheimild - fjarskiptamastur í Suðursveit.



Mál tekið fyrir á mínútu 21:10 í upptöku.
Fundargerðin lögð fram til umræðu og kynningar.
6.
Bæjarráð Hornafjarðar - 1237
Málsnúmer 2610002F
Fundargerð bæjarráðs nr. 1237 lögð fram.



Björgvin Óskar Sigurjónsson tók til máls undir lið nr. 7: Undirbúningur framkvæmdar - Báran - endurnýjun gervigrass, undir lið nr. 8: Undirbúningur framkvæmdar - Sindravellir Endurnýjun og undir lið nr. 10: Íþróttahús - hönnun.



Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls undir lið nr. 1: Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2027-2031.



Hjalti Þór Vignisson til andsvars.



Gauti Árnason til andsvars.



Hjördís Edda Olgeirsdóttir til andsvars.



Eyrún Fríða Árnadóttir tekur til máls öðru sinni.



Hjalti Þór Vignisson til andsvars öðru sinni.



Mál tekið fyrir á mínútu 29:40 í upptöku.
Fundargerðin lögð fram til umræðu og kynningar.
7.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 202602038
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðauka nr. 8 við fjárhagsáætlun ársins 2026 og fjárhagslegum áhrifum hans. Viðaukinn felur í sér leiðréttingar á samþykktri fjárhagsáætlun ársins auk viðbótarfjárheimildar. Samanlögð áhrif breytinganna á rekstrarniðurstöðu A- og B-hluta nema 27,87 m.kr. til lækkunar og verður áætluð rekstrarniðurstaða 148,78 m.kr. Gert er ráð fyrir að áhrifunum verði mætt með samsvarandi lækkun handbærs fjár, sem áætlað er að verði 271,21 m.kr. í árslok. Meðfylgjandi yfirlit sýnir fjárhagsleg áhrif viðaukans á samþykkta fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.



Mál tekið fyrir á mínútu 52:40 í upptöku.

Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti viðauka nr. 8 og bar hann upp til atkvæða.

Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Umferðaröryggisáætlun
Málsnúmer 202212047
Lögð er fram umferðaröryggisáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árin 2026 - 2036 til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Í áætluninni eru sett fram markmið sveitarfélagsins til næstu ára á sviði umferðaröryggis. Þar er fjallað um helstu áskoranir ásamt úrræðum og aðferðafræði sem miða að því að fækka slysum og stuðla að öruggari umferð. Með áætluninni verður stefnumótun sveitarfélagsins skýrari, sem auðveldar upplýsta ákvarðanatöku og markvissa forgangsröðun aðgerða. Tekið er fram að samþykkt áætlunarinnar felur í sér staðfestingu á stefnumörkun sveitarfélagsins, en ekki samþykkt einstakra aðgerða eða fjárveitinga til þeirra.



Eyrún Fríða Árnadóttir tók til máls.



Gauti Árnason til andsvars.



Hjalti Þór Vignisson tók til máls.



Hjördís Edda Olgeirsdóttir tók til máls.



Gauti Árnason tók til máls.



Mál tekið fyrir á mínútu 55:20 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn vísaði umferðaröryggisáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar fyrir árin 2026 - 2036 til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Umsókn um lóð - Vesturbraut 29
Málsnúmer 202609087
Finnur Ármann Óskarsson sækir um lóð að Vesturbraut 29. Samkvæmt upplýsingum í umsókn er fyrirhugað að reisa einbýlishús á lóðinni.



Mál tekið fyrir á mínútu 1:03:10 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti lóðarúthlutunina með þeim fyrirvara að samkvæmt 4.3. kafla gildandi deiliskipulags fyrir svæðið skal rask innan hverrar lóðar taka að hámarki tvö ár.

Tillagan borin upp til atkvæða.

Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Deiliskipulag fjölorkustöð í Skaftafelli II, Freysnesi í Öræfum
Málsnúmer 202606088
Lýsing vegna áforma um fjölorkustöð í landi Skaftafells II/Freysness var auglýst frá 22. júlí til 2. september 2026. Sex umsagnir bárust.



Mál tekið fyrir á mínútu 1:03:55 í upptöku.
Forseti leggur til að bæjarstjórn geri svör umhverfis- og skipulagsnefndar við umsögnum að sínum.

Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Akstursþjónusta íbúa á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði
Málsnúmer 202609033
Lögð er fram tillaga að endurskoðaðri gjaldskrá vegna akstursþjónustu aldraðra og fatlaðs fólks. Um er að ræða breytingar á gjaldskrá vegna beiðni um að Sveitarfélagið Hornafjörður taki að sér að sinna akstri íbúa á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði vegna einkaerinda.



Mál tekið fyrir á mínútu 1:04:35 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti gjaldskrá vegna akstursþjónustu aldraðra og fatlaðs fólks.

Tillagan var borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Reglur um akstur foreldra í dreifbýli með börn í leikskóla
Málsnúmer 202609005
Lögð er fram tillaga að endurskoðuðum reglum um styrk til foreldra vegna aksturs leikskólabarna.



Mál tekið fyrir á mínútu 1:05:10 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti endurskoðaðar reglur um stuðningsþjónustu í sveitarfélaginu.

Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Reglur Sveitarfélagsins Hornafjarðar um frístundasþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni
Málsnúmer 202410051
Lögð er fram tillaga að endurskoðuðum reglum um frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni.



Mál tekið fyrir á mínútu 1:05:40 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti endurskoðaðar reglur um frístundaþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni.

Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Reglur um notendasamninga
Málsnúmer 202409036
Lögð er fram tillaga að endurskoðuðum reglum um notendasamninga við einstaklinga og barnafjölskyldur í Sveitarfélaginu Hornafirði.



Mál tekið fyrir á mínútu 1:06:05 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti endurskoðaðar reglur um notendasamninga við einstaklinga og barnafjölskyldur í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Reglur um notendastýrða persónulega aðstoð
Málsnúmer 202508029
Lögð er fram tillaga að endurskoðuðum reglum um notendastýrða persónulega aðstoð.



Mál tekið fyrir á mínútu 1:06:30 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti reglur um notendastýrða persónulega aðstoð.


Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Reglur um þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra
Málsnúmer 202501013
Lögð er fram tillaga að endurskoðuðum reglum um þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra.



Mál tekið fyrir á mínútu 1:06:55 í upptöku.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykkti reglur um þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra.

Tillagan borin upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.